Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2012, Blaðsíða 12
Pólitísk afskiPti
sjálfstæðismanna
27.–29. apríl 2012 Helgarblað
Afskipti Sjálfstæðisflokksins af ákærunum
17.–20. nóvember 2011
Landsfundur Sjálfstæðisflokks
„Við stöndum öll með þér“
n Sjálfstæðisflokkurinn boðar til
landsfundar. Landsdómsákæran
gegn Geir er meðal fyrirferðarmestu
málum fundarins. Greina má að margir líti svo á að
landsdómsmálið sé gegn Sjálfstæðisflokknum. „Við
stöndum öll með þér,“ sagði formaður flokksins meðal
annars í ávarpi á fundinum og beindi orðum sínum að
Geir H. Haarde.
16. desember 2011
Formaður Sjálfstæðisflokksins
leggur til afturköllun á ákærunni
n Bjarni Benediktsson formaður
Sjálfstæðisflokksins leggur fram
þingsályktunartillögu um afturköllun
á ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, á síðasta degi þingsins fyrir fundarhléið.
20. janúar 2012
Afturköllun rædd í þinginu
n Bjarni Benediktsson, frummælandi tillögunnar, fer
yfir röksemdir fyrir því að falla frá ákæru, til að mynda
áhrif ákærunnar á málflutning íslenska ríkisins í Icesave-
deilunni. Í ræðunni segir Bjarni meðal annars: „Þegar
menn taka afstöðu til þessa ákæruliðar þurfa þeir að
gera það upp við sig hvort þeir eru þeirrar skoðunar að
Icesave-reikningarnir og það hvort þeir voru vistaðir í
Landsbankanum á Íslandi eða í dótturfélagi á Bretlandi
séu það atriði sem ráði úrslitum um stöðu íslenska
ríkisins og þar með íslenskra skattgreiðenda.“ Með
ummælunum tínir samflokksmaður Geirs því til pólitísk
rök fyrir því að falla eigi frá ákæru í dómsmáli sem hann
hefur sjálfur gagnrýnt fyrir að vera pólitísks eðlis.
3. apríl 2012
Ungir sjálfstæðismenn álykta
– ekki verði unnið með þeim sem
ákærðu
n „Ungir sjálfstæðismenn telja
framgöngu þeirra þingmanna sem
stóðu að ákærunni, og frávísun aftur-
köllunarinnar, svo alvarlega atlögu að mannréttindum
og réttarríkinu að Sjálfstæðisflokkurinn ætti ekki að
taka þátt í ríkisstjórn með þeim þingmönnum,“ segir
í ályktun Sambands ungra sjálfstæðismanna hálfum
mánuði fyrir dómsuppsögu landsdóms.
n Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa nokkrum sinnum haft aðkomu að ákærunum gegn Geir H. Haarde með hætti
sem telja má nokkuð á skjön við hefðbundna aðkomu ákæruvalds að dómsmáli. Hér eru rakin nokkur dæmi:
2011 2012
H
ver á fætur öðrum hafa þing-
menn Sjálfstæðisflokksins
tekið undir gagnrýni Geirs
H. Haarde, fyrrverandi
ráðherra, um pólitíska rót
málarekstursins gegn honum fyrir
landsdómi. Það er þó óhætt að full-
yrða að enginn flokkur hefur haft
jafn mikil afskipti af málarekstrinum
og einmitt Sjálfstæðisflokkurinn. Af-
skipti flokksins af málinu eru raunar
svo mikil að Geir H. Haarde þakkaði
þingmönnum Sjálfstæðisflokksins
fyrir aðkomu þeirra að landsdóms-
málinu en fordæmdi aðkomu þeirra
þingmanna sem kusu á annan máta
en eftir flokkslínu Sjálfstæðisflokks-
ins í yfirlýsingu sinni eftir að dómur
í málinu féll gegn honum.
Þakklæti sem ekki virðist óverð-
skuldað í ljósi þess að þingmenn
Sjálfstæðisflokksins eru einhuga í
atkvæðagreiðslum á Alþingi í and-
stöðu sinni gegn ákærum. Þingmenn
flokksins hafa ítrekað tekið málið
upp í sal Alþingis. Séu atkvæða-
greiðslur þingsins skoðaðar má sjá
að flokkslína sjálfstæðismanna hefur
haldið óbrotin í öllum atkvæða-
greiðslum er varða málefni málsókn-
arinnar. Aðeins Hreyfingin státar af
viðlíka árangri, en aðrir flokkar hafa
margklofnað í afstöðu í málinu.
Ákæran gegn
Sjálfstæðisflokknum
„Við stöndum öll með þér,“ sagði
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, í ávarpi á landsfundi
flokksins. Orðunum var beint til
Geirs H. Haarde sem sat ekki einung-
is fundinn heldur hélt sérstakt ávarp.
Þá fullyrti formaðurinn að hann tal-
aði fyrir hönd allra viðstaddra en
einungis landsfundarfulltrúar sjálf-
stæðisfélaga hafa seturétt á fundin-
um. „Hverju reiddust þá goðin úti í
Evrópu. Hverjum er kreppan þar að
kenna? Á kannski líka að kenna Sjálf-
stæðisflokknum um hana og bæta þá
nýjum lið í landsdómsákæruna gegn
mér,“ sagði Geir H. Haarde í ávarpi
undir klappi fulltrúa. Klökkur lauk
formaður Sjálfstæðisflokksins ræðu
sinni með því að lýsa yfir stuðningi
við fyrrverandi formann, Geir H. Ha-
arde, í landsdómsmálinu og fullyrti
að hver einasti sjálfstæðismaður
stæði með Geir. Bjarni sagði öllum
ljóst að réttarhaldið yfir Geir væri af
pólitískum toga og að sú aðför væri
í meira lagi ógeðfelld og öllum sem
að henni stæðu til ævarandi skamm-
ar. Erfitt er að líta á ræðu formanns-
ins öðrum augum en sem pólitíska
yfirlýsingu fyrir hönd flokksins.
Landsfundir eru miðja stjórnmála-
starfs íslenskra flokka, þeir fara með
stefnuvald flokkanna og eru æðsta
vald þeirra. Þess utan er ræðan hald-
in í skjóli formannsslags, þar sem
Bjarni sóttist eftir endurkjöri með
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgar-
fulltrúa sem mótframbjóðanda.
Geir í framboðsræðu
Hönnu Birnu
„Ríkisstjórnin hefur misboðið sið-
ferðisvitund okkar,“ sagði Hanna
Birna í framboðsræðu sinni til for-
manns Sjálfstæðisflokksins. „Sárasta
dæmið eru þær pólitísku ofsóknir
sem góður félagi okkar, minn gamli
og náni samstarfsmaður Geir H.
Haarde, fyrrverandi formaður Sjálf-
stæðisflokksins, hefur mátt þola.
Hver hefði trúað því – nokkurn tím-
ann – að í okkar góða lýðræðisþjóð-
félagi á 21. öld, myndu stjórnmála-
menn láta hatrið og heiftina fara
þannig með sig að það sé fyrrver-
andi pólitískur andstæðingur sem er
dreginn fyrir dóm.“
Að jafnvel mótframbjóðandi sitj-
andi formanns vitni í ákæruna gegn
Geir í framboðsræðu til formanns er
gríðarsterk vísbending um að innan
flokksins séu pólitísk afskipti flokks-
ins talin eðlileg og í takti við grund-
vallarstefnu flokksins.
Litið pólitískum augum
Af fyrirferð ákæranna gegn Geir H.
Haarde á landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins er ljóst að trúnaðarmenn flokksins
hafa lengi litið málið pólitískum aug-
um. Í því skjóli hefur flokkurinn beitt
sér í málinu bæði með formlegum og
óformlegum hætti. Ungir sjálfstæðis-
menn í Eyjum ályktuðu til að mynda
um málið þar sem ákæran var hörm-
uð. Þá hafa ungir sjálfstæðismenn á
landsvísu ályktað sérstaklega að ekki
verði starfað í ríkisstjórn sem inni-
haldi þingmenn sem stóðu að ákæru
gegn Geir. Tekið skal fram að aðrir
flokkar hafa ályktað um málið við
nokkur tækifæri. Þannig ályktuðu Ung
vinstri græn um þingsályktunartillögu
Bjarna sem og Ungir jafnaðarmenn og
Samfylkingarfélagið í Reykjavík. Það
hefur hins vegar einkennt málflutning
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins að sérstök
áhersla er lögð á nauðsyn þess að ekki
blandist saman stjórnmál og ákæran
gegn Geir H. Haarde. Gagnrýni á að-
komu þingmanna flokksins að mál-
inu hefur verið svarað á þá leið að hún
sé óhjákvæmileg enda Alþingi ákær-
andi í málinu. Landsfundir stjórn-
málaflokka eru það hins vegar ekki og
skoðast því ummæli um málið á þeim
vettvangi sér. Það á sérstaklega við um
framboðsræður til formanns stjórn-
málaflokks.
Höfðu í hótunum á þingi
Það vekur einnig athygli að á sama
tíma og þingmenn og fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins hafa ítrekað talað
gegn pólitískri aðkomu fulltrúa ann-
arra flokka að landsdómsmálinu
virðist sem þeir hafi virkt beitt sér
pólitískt gegn ákæru innan þingsins.
Þannig lýsir Björgvin G. Sigurðsson
hótunum sjálfstæðismanna í garð
þingmanna Samfylkingarinnar fyr-
ir atkvæðagreiðsluna. „Áður en að
síðustu atkvæðagreiðslu kom kvaddi
sér hljóðs Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins. Það kom
mér ekki á óvart. Ég hafði haft spurnir
af ítrekuðum skilaboðum sjálfstæð-
ismanna til okkar jafnaðarmanna í
þá veru að ef við greiddum atkvæði
með því Geir Haarde yrði ákærður,
þá myndu þeir sitja hjá þegar kæmi
að okkur Ingibjörgu Sólrúnu.“ Sjálfur
hefur Björgvin gerst sekur um að vera
margsaga um sinn þátt í falli bank-
anna en sérstaka athygli vakti að vitn-
isburður hans fyrir rannsóknarnefnd
Alþingis var töluvert annar en vitnis-
burður hans fyrir landsdómi. Nokkr-
ir þingmenn Samfylkingar staðfestu
þó þessa lýsingu á andrúmsloftinu
innan Alþingis á þeim tíma sem taka
átti fyrir ákærur gegn fyrrverandi ráð-
herrum. Tveir þingmenn sem rætt
var við könnuðust þó ekki við þessa
lýsingu. Í gögnum Alþingis kemur
fram að Bjarni Benediktsson kvaddi
sér hljóðs og hvatti þingmenn flokks-
ins til að greiða atkvæði gegn ákæru á
hendur Björgvin G. Sigurðssyni þrátt
fyrir að atkvæði hefðu fallið Geir H.
Haarde í óhag.
n Ákæran gegn Geir til umfjöllunar á landsfundi Sjálfstæðisflokks og í framboðsræðum
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
12 Fréttir
„Við stöndum öll
með þér.
- Bjarni Benediktsson á landsfundi„Á kannski líka að
kenna Sjálfstæðis-
flokknum um [kreppuna
í Evrópu] og bæta þá nýj-
um lið í landsdómsákær-
una gegn mér.
- Geir H. Haarde á landsfundi„Ríkisstjórnin hefur
misboðið siðferð-
isvitund okkar
- Hanna Birna Kristjánsdóttir á landsfundi
Standa með Geir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, lýsti yfir stuðningi við Geir fyrir hönd allra landsfundarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins.