Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2012, Side 25
É
g hef ekki hugmynd um hvert
ég á að fara meðan á mótinu
stendur,“ segir Anna Ivanova,
nítján ára úkraínskur há
skólanemi. Anna, sem stund
ar nám í líffræði við Taras Shev
chenkoháskólann í Kænugarði,
er í hópi fjölmargra nemenda sem
neyðast til að flytja af heimavist
skólans meðan á Evrópumótinu í
fótbolta stendur í sumar. Ástæð
an er sú að ekki er nóg pláss á hót
elum í borginni fyrir alla þá knatt
spyrnuáhugamenn sem munu
streyma til borgarinnar vegna
mótsins sem einnig verður haldið
í Póllandi. Mótið hefst þann 8. júní
og lýkur 1. júlí.
Engin búsetuúrræði
Mikill skortur er á húsnæði fyrir
þær þúsundir manna sem munu
streyma til Úkraínu í sumar. Sá hluti
mótsins sem haldinn verður í Úkr
aínu fer fram í borgunum Kænu
garði, Kharkov, Donetsk og Lviv.
Nemendur sem búa á heimavist
um í Kharkov, Donetsk og Lviv eru
í sömu stöðu og Anna. Og það sem
verra er þá standa þessum nemend
um engin búsetuúrræði til boða og
þá þurfa þeir einnig að halda áfram
að greiða leigu af íbúðunum meðan
á mótinu stendur.
Þýska blaðið Spiegel fjallaði um
málið á dögunum og þar var meðal
annars fjallað um þýska ferðaþjón
ustufyrirtækið TUI AG sem leigir
áhugasömum Þjóðverjum stúdenta
garðana. Herbergin kosta frá 8.300
krónum nóttin til 25.000 þúsund
króna og renna 20 til 25 prósent af
leiguverðinu til sjálfra háskólanna.
Þeir taka því sinn skerf af gróðanum.
Margir ringlaðir
Eins og gefur að skilja ríkir mikil
óánægja meðal þeirra nemenda sem
þurfa að yfirgefa heimili sín vegna
mótsins. Katerina Odarchenko,
stjórnmálafræðinemi við Taras
Shevchenkoháskólann, skipulagði
mótmæli þegar nemendum var til
kynnt um ráðahaginn í desember
síðastliðnum.
„Margir eru ringlaðir og fólki
er brugðið,“ segir hún í samtali við
Spiegel. Henni fyrst sérstaklega
ósanngjarnt að nemendur þurfi að
halda áfram að borga fullt leigu
verð meðan ókunnugir einstaklingar
dvelja í íbúðum þeirra. Þar að auki sé
nánast ómögulegt fyrir þessa nem
endur að fara annað þar sem leigu
verð á almennum markaði sé mun
hærra en þeir þurfa að greiða fyrir
að vera á stúdentagörðunum. Þá sé
leiguverð á íbúðum meðan á keppn
inni stendur sérstaklega hátt enda
eftirspurnin mun meiri en framboð
ið.
Þurfa að lagfæra herbergin
Katerina og Anna sem stunda nám
við Tarasháskólann teljast þó
heppnar í samanburði við nem
endur Læknaháskólans í Kænu
garði. Stúdentagarðar skólans eru
staðsettir skammt frá ólympíuleik
vanginum í Kænugarði og nánast á
besta stað fyrir knattspyrnuáhuga
menn. Sá böggull fylgir hins veg
ar skammrifi að stúdentagarðarnir
eru komnir til ára sinna og þarfnast
lagfæringa. Sergey Kravchuk, sem
býr á heimavistinni, segir við Spie
gel að hann hafi fengið skilaboð frá
skóla yfirvöldum um að lagfæra her
bergi sitt; mála gluggakistu og vegg
fóðra. Hann segir að hann fái ekkert
fjármagn til þess heldur þurfi hann
sjálfur að standa straum af kostnað
inum.
Sumum nemendum í Mohyla
háskólanum í Kænugarði stendur til
boða að vinna sjálfboðavinnu með
an á keppninni stendur til að halda
herbergjum sínum. „Mér var boðið
að halda herberginu gegn því að að
stoða í átta klukkustundir á dag,“
segir Alexander Simonenko, nem
andi við skólann. Hann hefur ekki
tekið tilboðinu. Annar nemandi,
Konstantin Boiko, fékk þó betra til
boð. Það hljóðaði upp á að vinna í
tvær klukkustundir á dag og halda
herberginu sínu. Boiko tók tilboð
inu enda hefur hann ekki í önnur
hús að venda meðan á keppninni
stendur.
Erlent 25Helgarblað 27.–29. apríl 2012
n Erlendir ferðamenn leggja stúdentagarða í Úkraínu undir sig í sumar„Mér var boðið að
halda herberg-
inu gegn því að aðstoða í
átta klukkustundir á dag.
Þarf að fara Anna
Ivanova er í hópi
margra nemenda sem
neyðast til að flytja
meðan á EM stendur.
Hún veit ekkert hvert
hún getur farið.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Háskólanemar á
götunni vegna em
Eltihrellir
ónáðar þýska
afrekskonu
Ariana Friedrich, eina helsta af
rekskona Þjóðverja í stangarstökki,
ákvað að birta nafn eltihrellis sem
hefur ónáðað hana ítrekað að und
anförnu. Ariana nýtti samskipta
vefinn Facebook til þess og bar við
sjálfsvörn. Hún birti meðal annars
nafn mannsins og heimilisfang
hans og sáu þúsundir manna sem
eru aðdáendur hennar á Face book
allar upplýsingar um hann.
Samkvæmt frétt breska rík
isútvarpsins, BBC, hafði mað
urinn meðal annars sent henni
klámfengnar myndir af sjálfum
sér. Ekki eru allir á eitt sáttir með
þessa ákvörðun Ariönnu og hafa
spunnist miklar umræður um
gjörninginn í Þýskalandi. Snýst
umræðan meðal annars um frið
helgi einkalífs og hversu langt þol
endur, eins og Ariana í umræddu
tilfelli, geta gengið. Þannig hafa
margir gagnrýnt íþróttastjörnuna
harðlega, en Ariana býr sig undir
Ólympíuleikana í London af full
um krafti.
„Ég hef oft verið móðguð, mátt
þola kynferðislega áreitni og verið
fórnarlamb eltihrella,“ sagði hún á
Facebooksíðu sinni eftir að hafa
birt persónuupplýsingarnar um
manninn. „Nú er komið nóg og ég
þarf að verja mig. Og það er það
sem ég er að gera. Ég er ekki tilbú
in til að láta þetta yfir mig ganga.
Ég er einfaldlega þreytt og það
kemur alltaf að þeim tímapunkti
að nóg er nóg,“ bætti hún við.
Ariana kærði manninn einnig
til lögreglu og segir umboðsmaður
hennar, Guenter Eisinger, að mál
ið sé nú í höndum saksóknara.
Óhugnanlegt mál í Þýskalandi:
Þrjú börn
fundust látin
Móðir þriggja kornabarna, sem
fundust látin í húsi hennar
skammt frá borginni Giessen,
neitar að hafa ráðið þeim bana.
Lík barnanna fundust í kæli
boxum í kjallara hússins fyrir
skemmstu og segir saksóknari í
málinu, Ute SehlbachSchellen
berg, í samtali við BBC að konan
beri því við að börnin hafi fæðst
andvana. Hún hefur ekki verið
ákærð í málinu en afplánar nú sex
mánaða dóm sem hún fékk fyrir
fjársvik.
Schellenberg segir að grunur
leiki á að börnunum hafi verið
ráðinn bani skömmu eftir fæð
ingu. Þó sé ekki hægt að útiloka
neitt í málinu. Svo virðist vera sem
lík barnanna hafi legið í boxunum
í nokkra mánuði, jafnvel ár.