Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2012, Blaðsíða 38
38 27.–29. apríl 2012 Helgarblað
Stórafmæli Jón Ólafsson bassaleikari verður 60 ára þann 28. apríl
xxx xxx
58 ára 29. apríl
Gamanleikarinn Jerry Seinfeld hefur elst vel en
hann verður hvorki meira né minna en 58 ára á
sunnudag.
61 árs 27. apríl
Ace Frehley gítarleikar hljómsveitarinnar
Kiss fagnar 61 árs afmæli sínu í dag,
föstudag.
31 árs 28. apríl
Kynbomban Jessica Alba deilir þessum
afmælisdegi með einræðisherranum
sáluga Saddam Hussein.
J
ón Ólafsson er borinn og
barnfæddur Reykvíking-
ur og segir að hann hafi
verið mikið úti að leika
sér þegar hann lítill. „Ég
hef alla tíð verið mjög næmur
fyrir tónlist en þegar Bítlarnir
og Rolling Stones komu þá var
ég kolfallinn. Ég hef gefið rokki
og róli öll mín bestu ár og ég
sé ekkert eftir því. Ég var 10–11
ára þegar ég heyrði í Bítlunum
í fyrsta skipti og ég gleymi því
aldrei, það var lagið I Want To
Hold Your Hand. Það heillaði
mig hvað það gekk allt upp hjá
þeim í tónlistinni.“
Um fermingu byrjaði Jón í
sinni fyrstu hljómsveit. „Hún
hét Glamparar og Egill Ólafs-
son var í henni með mér.
Egill spilaði á ryþmagítar
og ég sá um að syngja lög
vinsælustu hljómsveita þess
tíma.“ Það þekkja flestir lagið
Dimmar rósir og það hafa
margir tekið það lag í gegn-
um tíðina en Jón spilaði það
með þeim, þá 17 ára gamall.
„Þá vantaði bassaleikara og
tóku menn í prufur og ég var
valinn.“
Jón var í langvinsælustu
hljómsveit Íslands árið 1974,
Pelikan, með Pétri Kristjáns-
syni. „Við áttum metsöluplöt-
una Uppteknir sem seldist
í 12 þúsund eintökum. Við
tókum plötuna upp í Banda-
ríkjunum og það var einstak-
lega skemmtilegt ævintýri
sem ég mun aldrei gleyma.
Við vorum í 11 daga í það
skipti í Bandaríkjunum en
ári seinna fórum við aftur
þangað og þá spiluðum við á
mörgum stöðum.“
Jón hefur verið fastur
meðlimur í blúshljómsveit-
inni Vinir Dóra og þá hefur
hann spilað með nokkrum
erlendum blúsurum. „Ég
spilaði fyrir nokkrum árum
með Pinetop Perkins en
hann var mjög frægur blús-
ari en hann lést fyrir örfáum
árum.“ Jón er alltaf að spila
enn þann dag í dag og hann
ætlar ekkert að fara að hætta.
„Paul McCartney er að verða
70 ára, 10 árum eldri en ég,
og hann er enn að túra um
heiminn svo ég á nóg eftir.“
Jón hefur aldrei hitt neinn
af Bítlunum en hann mun
eyða afmælisdegi sínum
úti í London ásamt tveimur
sonum sínum. „Hver veit
nema maður rekist á Paul í
London?“ segir Jón að lokum
og hlær.
Lífið er rokk og ról
Fjölskylda
Börn
n Ólafur Jónsson f. 1970
n Haukur Ingi Jónsson f. 1975
n Halldór Hrafn Jónsson f. 1981
„Hver veit
nema
maður rekist á
Paul í London?
Þ
að er ekki jafn erfitt og fólk
gæti haldið að búa til regn-
bogaköku og pottþétt að
svona kaka veki gríðarlega
hrifningu yngri kynslóð-
arinnar í barnaafmælum. Krökk-
unum finnst þetta ekkert lítið flott
og þeir eru sko ekki feimnir við að
sýna það.
Þetta er örugglega ekki bragð-
besta kakan sem til er en krakkarn-
ir kolfalla fyrir útlitinu og allir fá sér
sneið.
Þetta er svo einfalt að það er eig-
inlega bara fyndið. Notaðu bara til
dæmis venjulega svampbotnaupp-
skrift og skiptu deiginu í jafnmarg-
ar skálar og þú vilt hafa litina á kök-
unni. Svo notar þú bara venjulega
matarliti og blandar þeim saman
eins og þú vilt. Gulur+rauður= app-
elsínugulur, gulur+blár=grænn og
rauður+blár= fjólublár.
Svo bakar maður botnana alla
hvern í sínu lagi. Lætur þá kólna og
setur krem á milli og yfir öll herleg-
heitin til dæmis smjörkrem í litum.
Hér er svo ein uppskrift af
svampbotni sem hægt er að nota.
n 3 egg
n 200 gr sykur
n ¾ dl heitt vatn
n 150 gr hveiti
n ½ tsk. lyftiduft
Þeytið egg og sykur vel saman
þar til það er orðið ljóst og létt. Bæt-
ið svo vatni, hveiti og lyftidufti sam-
an við og hrærið varlega í með sleif.
Setjið í form með lausum botni
og bakið við 180°C í um það bil 20
mínútur, fer alveg eftir því hversu
stór formin eru.
Regnbogakaka í barnaafmæli
n Slær alltaf í gegn
27. apríl
1937 Þýskar sprengjuflug-
vélar eyðileggja bæinn Guernica
á Spáni.
1947 Fyrsti Babe Ruth-dagurinn
er haldinn hátíðlegur í New York.
1961 Bretland veitir Síerra Leóne
sjálfstæði.
1965 Vörumerkið Pampers
er skráð á einkaleyfastofu
en Pampers er í dag frægasti
bleyjuframleiðandi í heimi.
1982 Réttarhöldin yfir John W.
Hinckley Jr. hefjast í Washington.
Hinckley var síðar sýknaður af
því að skjóta að Ronald Reagan
Bandaríkjaforseta og þremur
öðrum. Hann þótti ekki sakhæfur
vegna geðveilu.
1989 Nemendur sem mótmæla
í Kína taka yfir Tianamen-torgið
í Peking.
1992 Rússland og tólf önnur
fyrrverandi sovésk lýðveldi fá inn-
göngu í AGS og heimsbankann.
2005 Stærsta farþegaþota
heims, A380, lendir eftir sitt fyrsta
flug. 840 farþegar voru í þotunni.
osama-twintowers.jpg
2006 Framkvæmdir við
Frelsisturninn í New York hefjast
en hann mun rísa þar sem World
Trade Center var.
28. apríl
1902 Bylting brýst út í Dóminíska
lýðveldinu.
1910 Claude Grahame-White
flýgur fyrstur manna að nóttu til.
1920 Aserbaídsjan sameinast
Sovétríkjunum.
1957 Fréttamaðurinn Mike
Wallace sem nú er nýlátinn
sést í fyrsta skipti í sjónvarpi í
viðtalsþætti sínum Mike Wallace
Interviews.
1967 Hnefaleikakappinn
Muhammad Ali neitar að ganga í
bandaríska herinn og heimsmeist-
aratitillinn er tekinn af honum.
1969 Charles de Gaulle segir af
sér sem forseti Frakklands.
1994 Fyrrverandi yfirmaður í
CIA, Aldrich Ames, er dæmdur
í lífstíðarfangelsi fyrir að selja
Rússlandi leyniskjöl.
1997 Samningur þess efnis að
enginn noti efnavopn í hernaði er
undirritaður af flestum löndum
heims að undanskildum Rúss-
landi, Írak og Norður-Kóreu.
2000 Sjónvarpsmað-
urinn Jay Leno fær
stjörnu á frægðar-
götunni í Hollywood.
29. apríl
1879 Rafmagnsljósastaurar eru
notaðir í fyrsta skipti í Cleveland í
Bandaríkjunum.
1945 Adolf Hitler
kvænist Evu
Braun í sprengu-
byrgi í Berlín og
á sama tíma gerir
hann aðmírálinn Karl
Dönitz að eftirmanni sínum.
1974 Richard Nixon, fyrrverandi
Bandaríkjaforseti, tilkynnir að
hann ætli að opinbera upptökur
sem hann tók upp á laun í Hvíta
húsinu í tengslum við Watergate-
hneykslið.
1997 Geimfararnir Jerry Linenger
frá Bandaríkjunum og Rússinn
Vasily Tsibliyev ganga saman á
tunglinu.
1998 Brasilía opinberar áætlun
sína um að vernda risastórt svæði
í Amazon-regnskóginum. Svæði á
stærð við Colorado-fylki í Banda-
ríkjunum.
2003 Leikarinn Mr. T kærir
verslunina Best Buy fyrir að nota
mann sem líkist honum í auglýs-
ingaherferð.
Merkis-
atburðir