Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2012, Síða 64
Ánægð með
biskupinn
n Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, fagnar
nýjum biskup á Facebook-síðu
sinni. Eins virðist hún ánægð með
gott fylgi Þóru Arnórsdóttur. „Hugs-
aði líka um það hversu frábær skila-
boð það væru ef Þóra yrði kjörin í
júní að taka mynd af biskupi, for-
sætisráðherra, bankastjóra, for-
seta, rektor, forstjóra, vélstjóra og
húsameistara. Allt
konur í hefð-
bundnum
karlastörfum,“
segir Þorbjörg
Helga sem bú-
sett er á Spáni
ásamt fjölskyldu
sinni um þessar
mundir og í
leyfi frá
borgar-
pólitík-
inni.
Gott að eiga góða að
n Tobba Marinós brá sér í hádegismat
á Rub 23 á fimmtudaginn og fékk
sér sushi og hvítvín. Það væri ekki í
frásögur færandi nema fyrir þá stað-
reynd að fyrir stuttu bloggaði Tobba
um að hún ætlaði að reyna lifa á
500 krónum á dag og flestir vita að
ekki er hægt að fá sér sushi og hvít-
vín fyrir þann pening. Hún gaf þó þá
skýringu að henni hafi verið boðið
út í hádegismat og sagði jafnframt
að sér liði eins og svikara fyrir vikið.
Ástæðan fyrir sparnaði Tobbu er
auglýsing Amnesty International um
fátækt. „Ég er ekki að líkja mér við þá
sem búa við sára fátækt
en það að vera aðeins
með 500 krónur milli
handanna takmark-
ar margt og maður
er ansi fljótur
að einangr-
ast félagslega
ef peninga-
leysið er við-
varandi til
lengdar,“
skrifaði
hún.
Endurtekinn
draumur Sölva
n Sjónvarpsstjarnan Sölvi Tryggva-
son veltir því fyrir sér hvort hann sé
fastur í einhvers konar endurteknum
draumi og hvort hann þurfi að gera
góðverk til að losna. Þar vitnar hann
í myndina Groundhog Day þar sem
Bill Murray þurfti að gera góðverk til
að hætta að upplifa sama daginn
aftur og aftur. Ástæðan fyrir spurn-
ingum Sölva eru við-
töl sem hann tók við
Geir Haarde fyrir hrun
og svo viðtal við
hann í vikunni. „Eru
í alvöru liðin næst-
um fjögur ár? Erum
við í alvöru enn að
horfa á sama við-
talið? Hefur í
alvöru ekkert
breyst?“ spyr
hann og seg-
ir sennilega
vera kominn
tíma til góð-
verka.
Við höfum lausn við því!
Garðaþjónusta Reykjavíkur
Öll almenn garðvinna á einum stað fyrir garðinn þinn.
Góð vinnubrögð og sanngjarnt verð.
Eiríkur, sími 774 5775 Þórhallur, sími 772 0864
Er mosinn
að eyðileggja
flötina þína?
Erfða-
breyttir
iðnaðar-
menn?
E
kki enn sem komið er, en hver
veit, dagurinn er ungur,“ segir
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, að-
spurður hvort hann hafi sigað lög-
reglu á iðnaðarmenn sem komu að
byggingu rúmlega 600 fermetra ein-
býlishúss hans við Fagraþing í Kópa-
vogi.
Heimildir DV herma að að
minnsta kosti einn iðnaðarmaður
sem starfaði við húsbygginguna hafi
farið inn í óklárað húsið og sótt þang-
að byggingarefni sem hann taldi sig
eiga, þar sem illa hefði gengið að fá
greitt fyrir vinnuna. Skömmu síðar
mun lögreglan á Selfossi hafa haft af-
skipti af manninum vegna málsins.
Heimildirnar herma jafnframt að
sættir hafi náðst á milli hans og Kára.
Töluvert hefur verið fjallað um
byggingu hússins. Árið 2010 hóf
Kópavogsbær að beita Kára dagsekt-
um því framkvæmdir á lóðinni höfðu
staðið í stað í dágóðan tíma. Sama ár
höfðaði Eykt ehf. mál á hendur Kára
vegna 11 milljóna króna uppgjörs í
tengslum við byggingu hússins. „Ég
hef átt skrautleg samskipti við iðn-
aðarmenn, ég viðurkenni það. Enda
eru iðnaðarmenn skrautleg stétt al-
mennt,“ segir Kári hlæjandi, en kann-
ast þó ekki við að iðnaðarmenn hafi
tekið úr húsi hans ófrjálsri hendi.
Í samtali við blaðamann tók Kári
fram að líf sitt væri fullt af ævintýr-
um sem eflaust gætu fyllt heilu dag-
blöðin. Þessu ævintýri hefði hann þó
ekki lent í.
„Flestir iðnaðarmenn sem vinna
með mér eru afspyrnugott fólk sem
vinnur fína vinnu. Mér þykir mjög
vænt um þá, en ég hef ekki velt því
fyrir mér að ættleiða þá,“ sagði Kári
að lokum.
„Iðnaðarmenn skrautleg stétt“
n Kári Stefánsson sagður standa í deilum við iðnaðarmenn
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 27.–29. Apríl 2012 48. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
lífið er ævintýri Kári Stefánsson segir
líf sitt vera fullt af ævintýrum sem geti fyllt
heilu blöðin.