Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Page 4
Lét mömmu smygla dópi n Par ákært fyrir að skipuleggja fíkniefnainnflutning T uttugu og fimm ára kona játaði fyrir Héraðsdómi Reykjaness á fimmtudag að hafa skipulagt fíkniefnasmygl í lok maí. Kær- asti hennar, sem er á fertugsaldri, var einnig ákærður fyrir fíkniefnasmyglið en hann neitaði sök. Konan fékk móð- ur sína til að flytja með sér ferðatösku frá Danmörku til Íslands en í töskunni voru 569 grömm af kókaíni sem talið er að hægt hefði verið að framleiða um tvö kíló af kókaíni úr. Móðirin var stöðvuð við eftirlit í Leifsstöð þann 25. maí síðastliðinn. Parið er einnig ákært fyrir að hafa skipulagt innflutning á 350 grömm- um af kókaíni hingað til lands. Því er gefið að sök að hafa fengið par á fer- tugsaldri til að sækja efnin til Spán- ar og flytja þau með sér til Íslands. Parið er einnig ákært í málinu en hvorugt mætti ekki við þingfestingu á fimmtudag. Fyrrgreinda parið er einnig ákært fyrir að hafa staðið að innflutningi á 140 grömmum af kóka- íni frá Danmörku til Íslands. Konan neitaði sök í því máli, maðurinn ját- aði að hluta til en sagðist hafa staðið einn að þeim innflutningi en burðar- dýrin voru tekin við eftirlit í Leifsstöð þann 8. desember síðastliðinn. Þau afhentu efnin einstaklingi í Kaup- mannahöfn í febrú ar en ekkert varð af innflutningnum þar sem sá einstak- lingur hvarf frá málinu. Konan er einnig ákærð fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna 25. maí síðastliðinn. Þá var hún undir áhrif- um kannabisefna og var þar að auki með rúmt gramm af amfetamíni á sér. Konan játaði sök í þeim ákærulið. 4 Fréttir 31. ágúst–2. september 2012 Helgarblað Leiðrétting Vegna fréttar í miðvikudags- blaði DV um starfshóp sem skipaður var af ríkisstjórninni til að kanna möguleg skaða- bótamál á hendur þeim sem álitnir voru hafa valdið ríkinu fjárhagslegu tjóni í aðdraganda hrunsins, ber að taka fram að fulltrúar í umræddum starfs- hóp fengu ekki greidd laun. Þau mistök urðu að orðið „ekki“ varð út undan í setn- ingu sem átti að taka það skýrt fram að engin laun hefðu verið greidd fyrir setu í hópnum. Af þessum sökum varð ósamræmi milli setningar og millifyrir- sagnar í greininni þar sem tek- ið var fram: „Ekki á launum.“ Leiðréttist það hér með. S teinar Aubertsson, sem var handtekinn í Amsterdam þann 18. ágúst síðastliðinn grunaður um að hafa ætlað að selja íslenska konu man- sali, hafði verið eftir eftirlýstur af Interpol í tengslum við umfangsmik- ið fíkniefnasmygl hér á landi. Gefin var út alþjóðleg handtökuskipun á hendur honum þann 26. júní síðast- liðinn og í kjölfarið lýst eftir honum á heimasíðu Interpol. Framseldur til Íslands Steinari hafði tekist að fara huldu höfði í um tvo mánuði, allt þar til ís- lensk kona gerði hollenskum lögreglu- yfirvöldum viðvart og hann var í kjöl- farið handtekinn. Konan hafði dvalið í íbúð sem Steinar hafði til umráða en óttaðist að hann, ásamt fleiri einstak- lingum sem einnig voru handteknir í tengslum við málið, ætlaði að neyða sig í vændi í Brasilíu eins og hún lýsti í viðtali við DV. Steinar er enn í haldi lögreglunnar í Amsterdam og verð- ur framseldur til Íslands á næstunni vegna meintra fíkniefnabrota. Steinar kærir konuna Steinar hefur nú lagt fram kæru á hendur konunni fyrir meiðyrði og hefur ásamt öðrum sem handteknir voru í Amsterdam kært konuna fyr- ir rangar sakargiftir í Hollandi. Hann segir fréttaflutning af málinu hafi skaðað mannorð sitt og þeirra sem eru honum nákomnir. Hann hafi aft- ur á móti fallist á framsalsbeiðni ís- lenskra yfirvalda vegna fíkniefna- brots sem hann er grunaður um að tengjast og vonist til að komast heim á næstu dögum og „hreinsa sig af ásökunum í því máli“. Sagður tengjast Svedda tönn Í viðtali við DV sagði konan meðal annars að hún hefði séð mikið magn eiturlyfja í íbúð Steinars og stóran hníf. Lögmaður Steinars í Amsterdam staðfesti í samtali við DV að lögreglan hefði fundið eiturlyf og ólögleg vopn í íbúðinni þar sem fólkið dvaldi, en sagði jafnframt að dómari hefði úrskurðað að lögreglan hefði ekki verið með löglega leit- arheimild og því væri ekki hægt að leggja fram ákæru vegna þeirra. Konan sagðist einnig hafa heyrt samtal á milli Steinars og fleiri að- ila í Brasilíu. Fólkið hefði talað um og við íslenskan einstakling sem stadd- ur er í Brasilíu sem þau kölluðu „afa“. Samkvæmt heimildum DV og eins og Fréttablaðið hefur greint frá tengist Steinar Sverri Þór, eða Svedda tönn eins og hann er kallaður, sem var meðal annars eftirlýstur á Spáni þar sem hann flúði undan fangelsisdómi. Sverrir Þór situr nú í fangelsi í Bras- ilíu og hefur samkvæmt heimildum DV aðgang að tölvu með netaðgangi í klefa sínum. Þá á hann að hafa verið í Skype-samskiptum, meðal annars við Steinar, innan úr fangelsinu. Ekki áður hlotið dóm Fólkinu sem var handtekið var sleppt úr haldi þann 21. ágúst en Steinar situr enn í gæsluvarðhaldi og verð- ur framseldur til Íslands á næstunni sem fyrr segir. Eftir handtökuna í Amsterdam samþykkti hann fram- salsbeiðni íslenskra yfirvalda og mun koma til landsins innan tíðar. Steinar er sem fyrr segir talinn tengjast smygli á miklu magni af kókaíni en upp komst um málið í lok maí þegar tollgæslan á Keflavíkur- flugvelli stöðvaði íslenska konu og danskan karl, bæði á sjötugsaldri, sem voru að koma frá Danmörku. Í ferðatösku þeirra var vandlega falið um eitt kíló af kókaíni. Fólkinu var sleppt að lokinni yfirheyrslu, en í kjölfarið var framkvæmd húsleit á nokkrum stöðum þar sem lagt var hald á töluvert magn af fíkniefnum. Handtökuskipun var gefin út á hendur Steinari en hann er talinn hafa átt þátt í að skipuleggja smyglið. Steinar er fæddur árið 1983 og er því 29 ára. Hann hefur ekki hlotið dóm vegna sakamáls hér á landi. n Steinar sagður tengjast Svedda tönn sem situr í brasilísku fangelsi Þræðir liggja til Svedda tannar „ Í viðtali við DV sagði konan með- al annars að hún hefði séð mikið magn eiturlyfja í íbúð Steinars og stóran hníf. 29. ágúst 2012 w w w .d v .i s F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 29.–30. ágúst 20 12 miðvikudagur/fimmtudagur 9 9 . t b l . 10 2 . á r g . l e ið b . v e r ð 4 2 9 k r . „Það átti að selja mig“ komst naumlega undan Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík Sími: 534 7268 1.250 kr 1.350 kr HOLLT OG GOTT PHO víetnamskur veitingastaður Ármúla 21 - 108 Reykjavík - Sími: 588 6868 1.250 kr ALLT FYRIR AUSTURLENSKA MATARGERÐ 699 kr. 550 kr. 387 kr. 320 kr. Opið: mán - föst Kl. 11 - 21 lau - sun Kl. 12 - 21 n Fjórir handteknir í Amsterdam n Eins var leitað af Interpol n Fórnarlambið segir sögu sína n Sefur illa og fær martraðir Íslendingar Í haldi fyrir mansal eftirlýstur Hún heitir Reykia Fick n Nefnd eftir Reykjavík Háskinn á hring- veginum Alls kyns farartæki á þjóðvegi 1 n Deilt um aðbúnað í gistiskýli „kjósa frekar að sofa úti“ 2–3 12–13 3 8 Hinir eldri eru hamingju- samari 20 hrunverjar sleppa frá rÍkisstjórn n Starfshópur greip í tómt n Engar bætur sóttar á næstunni 4 Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is Lýsti reynslu sinni Konan lýsti upplifun sinni í viðtali við DV á miðvikudag. Eftirlýstur Steinar Aubertsson hafði verið eftirlýstur hjá Interpol frá því í lok júní. Játaði og neitaði Parið bæði játaði og neitaði sakargiftum við þingfestingu í Héraðs- dómi Reykjaness á fimmtudag. Brennisteinslykt við Hverfisfljót Myndband sem tekið var af Atlants- flugi á fimmtudag staðfestir að Skaftárhlaup hafi komið úr vestari katlinum. Vísbendingar um hlaup- ið hafa verið greinilegar síðan 25. ágúst en hlaupið er lítið og vatnið hefur verið nokkra daga að ferðast undir Vatnajökli, sem er lengri tími en vant er. Vatnsrennsli Skaftár við Sveinstind var síðdegis á fimmtu- dag um 180 rúmmetrar á sekúndu, og mun flóðið væntanlega ekki verða mikið stærra en það. Síðast hljóp úr vestari katlinum í júlí 2011. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Veðurstofan hefur fengið til- kynningar um brennisteinslykt við Hverfisfljót, sem rennur úr Síðu- jökli. Myndbandsupptaka úr flug- vél sem flaug yfir sporð Síðujökuls á fimmtudag benda einnig til þess að eitthvað af hlaupvatninu hafi far- ið í Hverfisfljót. Meðal annars sáust nokkrir litlir ísjakar á floti í ánni nálægt jökuljaðrinum og brenni- steinslykt var sterkust við útfall- ið. Kunnugt er um einn stað undir vestanverðum Vatnajökli, þar sem hlaupvatn á ferð um jökulbotninn getur flæmst af vatnasviði Skaft- ár yfir á vatnasvið Hverfisfljóts og er þekkt eitt sambærilegt dæmi um þetta, við stórt hlaup úr Eystri Skaft- árkatli árið 1995. Veðurstofan starfrækir vatna- mælistöð við Hverfisfljót en ekki er unnt að sækja gögn úr henni um síma. Mældar vatnshæðar- breytingar í Hverfisfljóti verða skoð- aðar ítarlega þegar gögnin hafa ver- ið sótt. Starfsmenn Veðurstofu fylgjast náið með þróuninni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.