Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Page 22
S tarfsmaður hjúkrunarheim- ilis í Bretlandi var dæmdur í fangelsi á miðvikudag fyr- ir hrottalega misnotkun á 89 ára konu sem var skjól- stæðingur heimilisins. Emma Bryan, 29 ára, barði og hristi konuna, Ivy Robinson, og talaði niður til hennar í nokkur skipti. Þá neitaði hún að gefa henni réttan skammt af lyfjum. Atvik- ið átti sér stað á Oakfoss-dvalarheim- ilinu í Vestur-Jórvíkurskíri en Emma var dæmd í fjögurra mánaða fangelsi vegna málsins. Upp komst um mál- ið þegar dóttir konunnar kom fyrir falinni myndavél í herbergi móður sinnar. Daily Mail fjallaði um málið í vikunni. Öskraði af sársauka Katherine Wallis, 45 ára, var dæmd til tólf mánaða samfélagsþjónustu fyrir þátt sinn í misnotkuninni. Hún var ákærð fyrir að draga gömlu kon- una um gólf herbergis hennar. Á myndbandsupptökum sést Robin- son öskra af sársauka. Dóttir konunnar kom myndavél- inni fyrir þegar hana grunaði að ekki væri allt með felldu. Hún sá að móðir hennar, sem þjáist af elliglöpum, var marin á líkamanum og virtist í miklu andlegu ójafnvægi. Myndavélin var vandlega falin inni í vekjaraklukku sem stóð á náttborði við rúm henn- ar. Í fimm daga gekk upptakan og þegar dóttirin, Angela Wood, skoð- aði hana sá hún hvað móðir hennar hafði gengið í gegnum og tilkynnti málið til lögreglu. „Ófyrirgefanleg grimmd“ Dómari í málinu vandaði kvölurum konunnar ekki kveðjurnar þegar hann kvað upp dóm sinn. „Þið vitið vel að það sem þið gerðuð var rangt. Þessi kona var ykkur aldrei til ama,“ sagði hann og bætti við að um „ófyr- irgefanlega og algjörlega óásættan- lega grimmd“ hefði verið að ræða. Saksóknarinn, Richard Butters, sagði fyrir dómi að upptökurnar hefðu ver- ið teknar dagana 11. til 16. nóvem- ber í fyrra og sýndu, svo ekki yrði um villst, alvarlega vanrækslu og ofbeldi. „Þessar upptökur eru átakanlegar,“ sagði hann í dómsal áður en dómur- inn var kveðinn upp. Færð annað Í yfirlýsingu frá Angelu, dóttur kon- unnar, og fleiri aðstandendum sem var lesin upp í dómsal lýstu þau reiði sinni. „Það er ekki hægt að lýsa því hvaða áhrif þetta hefur haft á líf móð- ur okkar. Við vorum skelfingu lostin við að sjá ofbeldið sem hún varð fyr- ir. Starfsfólkið brást mömmu.“ Í yfir- lýsingunni kom fram að sú ákvörðun, að koma myndavél fyrir í herberginu, hefði verið lokaúrræði. Engin svör hefðu fengist frá starfsfólki vegna áverkanna sem Robinson var með. „Við tókum þessa ákvörðun þegar hún varð skyndilega hrædd þegar við ætl- uðum að fara frá henni kvöld eitt. Hún grét og bað okkur um að vera áfram hjá sér.“ Að sögn fjölskyldu konunnar hefur Robinson verið flutt á annað dvalarheimili. n Gómaði kvalara mömmu sinnar K ínverji nokkur þykir hepp- inn að vera á lífi eftir að hafa reynt að koma kærustu sinni á óvart. Maðurinn, Hu Seng, ákvað að pakka sjálf- um sér ofan í kassa og senda til kær- ustu sinnar, Li Weng, sem átti af- mæli. Seng ráðgerði að stökkva upp úr kassanum þegar kærastan opnaði hann og koma henni þannig á óvart. Ráðabrugg Sengs gekk ekki eins vel og hann gerði ráð fyrir því töf varð á afhendingu kassans á pósthús- inu sem átti að afhenda hann. Þegar kassinn komst loks á áfangastað, á skrifstofuna þar sem kærasta hans starfar, opnaði kærastan pakkann sem var risastór. Henni var þó veru- lega brugðið enda lá Weng þar með- vitundarlaus vegna súrefnisskorts. Sjúkrabíll kom á vettvang en sem betur fer rankaði Seng við sér og bar engan skaða af. „Ég skildi ekkert af hverju þetta tók svona langan tíma. Ég reyndi að gera gat á kassann en hann var of þykkur,“ segir hann en meðfylgjandi mynd tók vinur Sengs sem vinnur á sama stað og kærastan. 22 Erlent 31. ágúst–2. september 2012 Helgarblað Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Gallerí Fold 1992–2012 mánudaginn 3. september, kl. 18 í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg Finnur Jónsson Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. Verkin verða sýnd í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17, sunnudag 12–17, mánudag 10–17 Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Gallerí Fold 20 ára afmælisuppboð Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Féll í yfirlið Hér sést Seng á botni kassans – meðvitundarlaus. Hættuleg afmælisgjöf n Pakkaði sjálfum sér ofan í kassa Bankarnir græða eins og árið 2007 Hagnaður af rekstri bandarískra banka og fjármálastofnana á öðr- um ársfjórðungi 2012 nam 34,5 milljörðum Bandaríkjadala, eða 4.100 milljörðum króna. Þetta er mikil hækkun frá öðrum ársfjórð- ungi ársins 2011, eða hækkun upp á 5,9 milljarða dala, 713 milljarða króna. Slíkar tölur hafa ekki sést síðan árið 2007, að því er fram kemur í umfjöllun bandaríska við- skiptablaðsins Forbes. Tölurnar hér að ofan koma frá tryggingarsjóði innstæðueigenda í Bandaríkjunum (FDIC). „Bankageirinn hélt á áfram ba- taleið sinni á öðrum ársfjórðungi,“ segir stjórnarformaður FDIC, Martin J. Gruenberg. Í umfjöllun Forbes kemur fram að bandarísk- ir bankar virðast hafa fundið leið til að viðhalda hagnaði sínum líkt og hann var á góðærisárunum. Landslagið er þó annað en það var þá. Bankar í Bandaríkjunum hafa skorið mikið niður, selt verðmætar eignir og sagt upp fólki. Árið 2007 voru starfsmenn fyrirtækja í fullu starfi, sem tryggingarsjóðurinn nær utan um, 2,2 milljónir. Nú, fimm árum síðar, hefur starfsmönnum fækkað um hundrað þúsund og fyrirtækjum í bankastarfsemi fækk- að um fjórtán prósent. „Starfs- fólkið brást mömmu Skelfilegt ofbeldi Ivy Robinson, 89 ára, var fórnar- lamb skelfilegs ofbeldis. n Beittu konu með elliglöp ofbeldi n Falin myndavél kom upp um starfsfólk Sprenging í námu í Kína Gassprenging varð í kolanámu í suðvesturhluta Kína á miðviku- dagskvöld með þeim afleiðing- um að 19 námumenn létust og 28 lokuðust inni. Björgunaraðgerðir stóðu yfir á fimmtudag en þegar sprengingin varð voru 150 námu- menn við vinnu í göngunum. Stór hluti þeirra komst út að sjálfsdáð- um. Slys í námum eru algeng í Kína, en stjórnvöld þar hafa reynt að bæta öryggi námuvinnslu- manna. Samkvæmt opinberum tölum létust tæplega tvö þúsund námuvinnslumenn við vinnu sína á síðasta ári. Það er nítján pró- senta fækkun frá árinu 2010. Falin myndavél Myndavél- inni var komið fyrir í vekjara- klukku. Upptökurnar leiddu til sakfellingar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.