Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Page 48
E
ins og ég hef ríka ástríðu fyr-
ir leikhúsinu þá fann ég líka
fyrir miklu frelsi þegar ég átt-
aði mig á því að það væri þó
ekki upphaf og endir alls; að
ég gæti alveg líka notið þess að takast
á við önnur viðfangsefni.
Þótt ég hafi lengi verið í hringiðu
leikhússins þá er það svo undarlegt
að ég finn það alla daga hvað ég er
ótrúlega gæfusamur, að vera í svona
skemmtilegu starfi sem gefur mér
svona mikið. Ég hlakka til að mæta
í vinnuna og mér finnst þetta alltaf
vera jafn mikið upp á líf og dauða. Í
hverri nýrri sýningu er allt lagt undir.
Enda er leikhúsið þannig í eðli sínu,
það endurnýjar sig í sífellu. Leik-
húsið er alltaf í núinu og það er það
sem mér finnst svo heillandi,“ seg-
ir Magnús Geir Þórðarson, leikhús-
stjóri Borgarleikhússins.
Blómaskeið LA
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Magnús
Geir verið í forgrunni íslensks menn-
ingarlífs síðustu árin og hefur hlot-
ið mörg verðlaun. Hann var meðal
annars valinn markaðsmaður ársins
2009 og fékk Íslensku þekkingarverð-
launin 2010 fyrir störf sín sem leik-
hússtjóri. Hann hefur verið viðloð-
andi leiklist frá unga aldri og var rétt
orðinn þrítugur þegar honum bauðst
að taka við Leikfélagi Akureyrar, árið
2004, þar sem honum tókst á eftir-
tektarverðan máta að rífa starfsem-
ina upp og hefja leikhúsið til vegs og
virðingar.
Við tók mesta blómaskeið í sögu
leikhússins, aðsókn var sú mesta í
sögunni, sýningar hlutu mikið lof
og leikhúsið varð eitt helsta aðdrátt-
arafl bæjarins. Fjórum árum síðar
flutti hann aftur suður þegar honum
bauðst starf leikhússtjóra Borgarleik-
hússins, stærsta leikhúss landsins.
Þar ætlar hann að vera til ársins 2016
en stutt er síðan stjórn leikhússins
endurnýjaði samninginn við hann
eftir mikla velgengni á fyrra ráðn-
ingartímabili hans.
Aðspurður segir Magnús Geir ný-
hafið leikár leggjast vel í sig. „Það er
alltaf ótrúlega spennandi að hleypa
nýju leikári úr vör. Við höfum leg-
ið yfir verkefnavalinu og bíðum í of-
væni eftir viðbrögðum áhorfenda við
því sem við bjóðum upp á. Verkefna-
valið er á svipuðum nótum og áður
en markmið okkar er að hafa eitt-
hvað fyrir alla en við erum ekki endi-
lega að sækjast eftir því að allt sé fyrir
alla. Á því er mikill munur. Við viljum
að leikhúsið okkar sé heitt og kalt en
ekki svæfandi í hálfvelgju. Fyrstu við-
brögð við nýju leikári sem við kynnt-
um fyrir viku eru frábær og kortasala
fer frábærlega af stað.”
Ekki fangar eigin velgengni
Aðsókn í Borgarleikhúsið í leikhús-
stjóratíð Magnúsar er sú mesta í
sögu íslenskra leikhúsa. „Aðsókn er
að sjálfsögðu ein vísbendingin um
árangur leikhússins og að tekist hafi
að vekja áhuga leikhúsgesta. Það
er mjög ánægjulegt og hvetjandi að
finna þennan meðbyr. En við meg-
um ekki gleyma því að aðsókn er ekki
eini mælikvarðinn.
Ég hef brýnt fyrir mínu fólki að
gæta þess að við verðum ekki fangar
eigin velgengni. Við erum ekkert að
keppast við að auka enn aðsókn enda
má segja að þetta hús, með þennan
sætafjölda, geti ekki annað meiru.
Okkar markmið nú er að halda leik-
húsinu á hreyfingu, ögra okkur sjálf-
um og áhorfendum. Við viljum vera
leitandi og sönn í list okkar,“ segir
hann en á meðal sýninga eru einn
vinsælasti söngleikur heims, Mary
Poppins, hin sígilda saga Mýs og
menn og nýtt leikrit Ragnars Braga-
sonar, Gullregn, auk rómaðra sýn-
inga síðasta leikárs á borð við Svar
við bréfi Helgu og Tengdó, sem var
ótvíræður sigurvegari Grímunnar í
vor.
Hlaut menningarlegt uppeldi
Magnús Geir fæddist árið 1973 og
ólst upp í Vesturbænum. Hann gekk
í Melaskóla og Hagaskóla og útskrif-
aðist úr Menntaskólanum í Reykjavík
1993. Hann var viðloðandi leiklist öll
unglingsárin og ákvað eftir stúdent-
inn að nema leikstjórn. Hann komst
inn í The Bristol Old Vic Theatre
School, tók MA í leikhúsfræðum frá
háskólanum í Wales og síðar MBA
frá Háskólanum í Reykjavík. Hann
segist hafa átt drauma um að verða
leikari sem ungur drengur en á ung-
lingsárum fór leikstjórnin að heilla
meira. „Ég smitaðist snemma af leik-
húsbakteríunni. Sem barn var ég
á kafi í þessu, lék í Þjóðleikhúsinu,
kvikmyndum og sýningum sem við
settum upp sjálf. Á unglingsárunum
færðist áhuginn yfir í að leikstýra.“
Magnús Geir er miðbarn í hópi
þriggja drengja. Foreldrar hans eru
Marta María Oddsdóttir kennari
og Þórður Magnússon, fjárfest-
ir og stjórnarformaður Eyrir Invest.
Þrátt fyrir að vera Vesturbæingur í
húð og hár eyddi hann litlum tíma
á knattspyrnuvellinum. Hann segist
þó vera vera KR-ingur þrátt fyrir að
lítið fari fyrir íþróttaáhuganum. „Ég
hlaut menningarlegt uppeldi. For-
eldrar mínir kenndu okkur að njóta
bókmennta, hlusta á tónlist, sækja
leikhús og horfa á kvikmyndir. Það
var því lítill tími eftir til að sinna
íþróttum. Frá því ég man eftir mér
hafa listir og menning verið eðlilegur
hluti af lífinu. Eflaust er það ástæð-
an fyrir því að ég smitaðist af þessari
leikhúsbakteríu. Fyrir mér eru það
mikil forréttindi,“ segir hann en
enginn annar í fjölskyldunni hafði
tengst leikhúsinu. „Margir í minni
„Gott leikhús
þarfnast
ástríðu“
Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins, er að hefja nýtt
leikár. Hann stendur nú á tímamótum. Hann er ástfanginn og á von á sínu
fyrsta barni í byrjun næsta árs. Indíana Ása Hreinsdóttir spjallaði við Magn-
ús Geir um listina, erfiðleikana hjá Leikfélagi Akureyrar, ástina, hamingjuna og
leyndarmálið að baki góðu leikhúsi. „Það sem kom mér
mest á óvart var
hve langur tími leið án
þess að gripið væri til af-
gerandi aðgerða.
Hamingjusöm Magnús Geir og Ingibjörg Ösp eiga von á barni í byrjun næsta árs.
32 Viðtal 31. ágúst–2. september 2012 Helgarblað
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Viðtal