Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Page 57

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Page 57
Menning 41Helgarblað 31. ágúst–2. september 2012 varð hljóðfæralaus árið 1985,“ segir Andrea og á þar við sellóið sem hún lærði á. „Á þeim tíma labbaði maður ekkert inn banka og bað um lán fyrir hljóðfæri. Svo hitti ég fólk sem hvatti mig til að fara að syngja, það gæti enginn tekið það frá mér. Í framhaldi af því kíkti ég í klassísku deildina.“ Varð amma fyrir fimm árum Hún byrjaði að fikta við sönginn í Tónlistarskólanum í Garðabæ, þar sem hún var að kenna, en færði sig svo í Söngskólann eftir að hafa hitt Guðmundu Elíasdóttur á förnum vegi. „Hún fór að forvitnast um það hvað ég væri að gera því ég hafði verið hjá henni sem krakki á Akra­ nesi í söngdeild þar sem við settum upp barnasöngleiki og svona.“ Guð­ munda hvatti Andreu til að koma í Söngskólann, sem hún og gerði, og lauk þar sjöunda og áttunda stigi í klassískum söng. „Það var bara mjög skemmtilegt að detta inn í þennan óperufíling og klassíska ljóðasöng. Það var mjög lærdómsríkt og gam­ an.“ Hún var að ljúka náminu þegar hljómsveitarmeðlimir í Grafík höfðu samband og vildu fá hana í prufur. „Þannig atvikaðist það nú að ég var allt í einu komin inn í þennan bransa. Og hér er ég í dag, með þrítugan son og fimm ára barnabarn og lít yfir far­ inn veg.“ Hún er sátt, getur ekki ann­ að en verið það. „Þau vandamál sem hafa komið upp hjá manni eru í rauninni bara lúxusvandamál miðað við margt annað sem fólk þarf að díla við í lífinu. Ég held bara að það sem kemur upp, maður verði bara að læra af því. Maður fæðist ekki með alla vitneskju. Þetta er bara eins í tónlistinni. Maður byrjar einhvers staðar. Þegar ég er að hlusta á gamalt efni, plötur og upp­ tökur og svona þá heyri ég að maður var einu sinni ungur og var einu sinni að byrja. Í dag er ég náttúrulega með reynslu á bakinu, búin að tileinka mér ýmislegt og veit hvað má betur fara. Maður vonar að það skili sér á einhvern hátt.“ Langar að læra músíkþerapíu Tónlistin heillaði Andreu strax í barnæsku. Hún var alltaf syngjandi og trallandi, eins og hún orðar það, og fiktaði í öllum hljóðfærum sem urðu á vegi hennar. Hún stundaði nám í tónlistarskólum þegar hún var barn og unglingur og fann fljótt að þessi heimur átti við hana. „Maður er einhvern veginn búinn að hrærast í þessu alla tíð og þekkir varla neitt annað. Þó maður hafi unnið alls kon­ ar störf þá er þetta samt það mikill partur af manni og verður það áfram. Það er svolítið seint að snúa við blað­ inu núna og fara að gera eitthvað allt annað en það er allt hægt. Einhvern veginn togast maður alltaf inn í þetta aftur.“ Aðspurð hvort önnur framtíðar­ störf hafi einhvern tíma komið til greina segist hún minnast þess að hafa skrifað það í minningabæk­ ur vinkvennanna í grunnskóla að hún ætlaði að verða fóstra eða hár­ greiðslukona. Hún starfaði um tíma á barnaheimilum áður en hún hellti sér af fullum krafti út í tón­ listina svo hún hefur fengið nasa­ þefinn af þeim starfsvettvangi. Hár­ greiðslukonudraumurinn náði þó aldrei lengra en á blað í minninga­ bók. Í seinni tíð hefur Andreu þó dreymt um að læra músíkþerapíu, þar sem unnið er með tónlistina sem hjálpartæki gegn ýmsum vandamál­ um. „Ég trúi því og veit það að tón­ list er heilandi. Alveg eins og þegar maður er í vatni. Tónlist og vatn er svo heilandi og ég nota oft tónlist þegar mér líður illa eða þegar ég er ógeðslega kát. Tónlist er svo stór þáttur í lífi fólks. Hún er alls staðar, í eyrunum á manni allan daginn og fólk tekur þessu sem sjálfsögðum hlut. Stundum fattar maður að mað­ ur er orðinn tens og pirraður og þá slekkur maður á útvarpinu og fattar að þetta er bara áreiti sem á ekki við þessa stundina. Þegar ég var að vinna á barna­ heimilum notaði ég mikið músík og var með músíkkennslu í leikskólum. Bjó bara til mitt eigið kerfi sem all­ ir höfðu gaman og gott af. Það fóru margir í músíknám jafnvel út frá því og foreldrarnir vilja halda því fram að þetta hafi kveikt í mörgum af börnunum. Sum eru bara stór nöfn í dag,“ segir Andrea sposk. „Ég nefni engin nöfn,“ bætir hún hlæjandi við. „Ég ætla nú ekki að fara að grobba mig af því, þetta á ekki að hljóma þannig.“ Spilar á selló heima Þrátt fyrir að hún segist sátt þegar hún lítur yfir farinn veg leikur blaða­ mann forvitni á að vita hvort hún finni ekki til eftirsjár vegna neins. Andrea hikar örlítið við spurn­ inguna. „Ég veit það ekki,“ segir hún og tekur sér smátíma til að hugsa. „Ég er orðin svolítið sátt við það bara hvar ég er stödd í dag. Ég til dæmis valdi að fara ekki í óperusöng held­ ur í þetta, mér fannst eins og hitt væri meira bein lína. Mig langaði að gera svo margt í músíkinni. Og í einhvern tíma var alltaf svona smá eftirsjá þegar ég heyrði flottan óperu söng og sellókonserta og svona. Þá hugsaði ég: Kannski hefði ég átt … Þetta var svolítið eins og maður væri að syrgja gamlan kærasta. En þú náttúrulega breytir ekki orðnum hlut, þannig að ég er bara sátt við það og spila á mitt selló heima í stofu alsæl með það.“ Andrea fékk selló í afmælisgjöf frá manni sínum, Einari Rúnarssyni, fyrir nokkrum árum og spilar tölu­ vert á það, en bara heima við. „Það er svona svolítið prívat. Ég hef haldið svona smá stofutónleika fyrir fjöl­ skylduna,“ segir hún hálffeimnislega og hlær. Andrea viðurkennir að hún gæli stundum við þá hugmynd að fara með sellóið út af heimilinu til að leyfa fleirum að njóta þess fögru tóna en henni finnst hún ekki vera tilbú­ in. „Ég þarf að æfa mig almennilega. Maður vill vera boðlegur. Ég æfi mig aðallega í góðu tómi þegar enginn er heima. Ekki það að ég sé svona hræðilegur spilari, ég er bara ekki í þjálfun og verð bara aum í puttunum ef ég spila of lengi.“ Fékk óvænt bónorð Andrea og Einar hafa verið saman í 18 ár og giftu sig fyrir 4 árum, en bónorðið var ansi skemmtileg og óvænt uppákoma. „Ég var að syngja á jólatónleikum með Borgardætr­ um og þær voru báðar búnar að gifta sig, Ellen og Berglind. Einar var á tónleikunum og við vorum að grínast með að honum hlyti bara að vera illt í hnjánum. Hvað hann væri nú að pæla að vera ekki búinn að fara á hnén. Við þusuðum um þetta, kannski einum of mikið, og grínuð­ umst í honum. Heyrðu, hann fór bara á hnén á tónleikunum og ég hélt ég yrði ekki eldri, þetta var svo ólíkt honum.“ Auðvitað sagði Andr­ ea já. Fréttin flaug eins og eldur í sinu um íslenska netheima og ættingj­ ar Andreu í Noregi lásu um uppá­ komuna, hringdu og spurðu hvenær brúðkaupið yrði. „Það varð ekkert aftur snúið og við giftum okkur um sumarið. Það voru bara allir að koma svo það varð að vera brúðkaup. Við giftum okkur bara í garðinum heima. Það var voða gaman. Svona er nú sagan á bak við það, annars værum við örugglega ógift ennþá.“ Þegar Einar var spurður að því eftir bónorðið hvort það hefði ver­ ið vel skipulagt, svaraði hann því til að hann hefði hugsað þetta í fimm sekúndur áður en hann lét til skarar skríða. „Við værum nú enn­ þá saman þó það hefði ekki orðið brúðkaup, en það er fínt að vera giftur,“ segir Andrea sem nýtur þess að vera fimmtug eiginkona, móðir og amma. n „Svo hitti ég fólk sem hvatti mig til að fara að syngja, það gæti enginn tekið það frá mér Fjölbreyttur ferill Andrea hefur starf- að með fjölmörgum hljómsveitum á 25 ára ferli sínum í tónlistarbransanum en á erfitt með að gera upp á milli þeirra. Fyrir henni er ferillinn eins og konfektkassi þar sem allir molarnir eru góðir. myndir yþór árnaSon „Eins og að syrgja gamlan kærasta“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.