Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Side 59

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Side 59
Í rannsókn, sem ber nafnið The 2012 Lysol Back to School, og fram­ kvæmd var á 14.000 mæðrum fimm til tólf ára barna í fjórtán lönd­ um kom ýmislegt í ljós varðandi hreinlætisvenjur skólabarna. Þótt flest börnin í rannsókninni þvægju sér um hendur eftir að hafa farið á salernið og hóstuðu í ermina voru aðeins 53 pró­ sent sem þvoðu sér fyrir matmálstíma. „Niðurstaðan sýnir okkur að for­ eldrar verða að halda áfram að venja börn sín á ákveðnar hreinlætisvenj­ ur, sérstaklega í sambandi við nestis­ tímann,“ sagði Erica Di Ruggiero sem situr í Public Health­samtökunum í Kanada. „Góður og reglulegur hand­ þvottur með sápu og heitu vatni og að venja börnin á að leggja ekki matinn beint á skrifborðið eða borðið í mat­ salnum getur komið í veg fyrir ýmsa kvilla.“ Di Ruggiero segir að slæm geymsla á nesti geti einnig valdið matareitrun. Í könnuninni kom í ljós að 43 prósent mæðra geymdu nestið ekki í ísskáp yfir nóttina. „Slíkt get­ ur aukið líkur á bakteríum á borð við E.coli og salmonellu sem geta valdið alvarlegum sjúkdómum og orðið til þess að barnið missi úr í skóla.“ Í rannsókninni kom einnig í ljós að nestisboxið sjálft getur reynst gróðrarstía fyrir bakteríur en aðeins 45 prósent foreldra sögðust þrífa boxið á hverjum degi. „Nestisboxið á að tryggja öryggi barnsins en get­ ur snúist upp í andstæðu sína,“ sagði Donald Low, yfir­ örverufræðingur við Mount Sinai­ spítalann, sem segir brauðmylsnu og aðra afganga geta orðið til þess að bakteríur grass­ eri í boxinu, ber­ ist í nestið og valdi matareitrun. Í rannsókninni voru matsalir skóla landanna enn fremur rannsakað­ ir. Í 44 prósentum tilfella voru borðin í matsalnum meng­ uð. Á hinn bóg­ inn reyndist hrein­ læti ekki ábótavant á salernisaðstöðu skólanna. indiana@dv.is Súkkulaði er gott fyrir hjartað n Rannsóknir sýna að ljóst súkkulaði er einnig gott fyrir heilsuna S úkkulaði er kannski ekki það besta fyrir mittismál­ ið en niðurstöður nýrrar rannsóknar benda þó til að súkkulaði geti varið okkur gegn hjartaáfalli. Fylgst var með 37 þús­ und sænskum karlmönnum og kom í ljós að þeir sem borðuðu hvað mest af súkkulaði voru í minni hættu á að fá hjartaáfall og draga rannsakendur þá ályktun að neysla á sælgætinu bæti heilsu hjartans. Fjallað er um þetta á bbc.com en niðurstöður rannsóknarinnar birt­ ust í læknaritinu Neurology. Þar segir að þátttakendur hafi verið spurðir út í mataræði sitt og svo var fylgst með þeim í áratug og niðurstöður benda til að þeir sem borðuðu mest af súkkulaði eða um 63 grömm á viku voru í 17 prósenta minni hættu á að fá hjartaáfall. Rannsakendur telja líklegt að það sé andoxunarefnið flavóníð sem hafi þessi áhrif en rannsókn­ ir hafa sýnt fram á tengsl á milli andoxunarefnisins og fækkun til­ fella af hjarta­ og æðasjúkdóm­ um. „Það er einnig mögulegt að flavóníð minnki slæma kólester­ ólið og lækki blóðþrýsting,“ seg­ ir Susanna Larsson, prófessor við Karólínska sjúkrahúsið. Rannsak­ endur benda á að fyrri rannsókn­ ir gefi til kynna að einungis dökkt súkkulaði geti haft jákvæð áhrif á heilsuna. Þessi rannsókn sýnir þó að aðrar tegundir af súkkulaði hafi svipuð áhrif. Þeir benda einnig á að það sé þó ekkert sem mæli með of­ áti á því. gunnhildur@dv.is Lífsstíll 43Helgarblað 31. ágúst–2. september 2012 Hreinlæti skóla- barna ábótavant n Flest börn þvo sér eftir klósettferðir en gleyma að þvo sér fyrir matinn Mundu að þvo nestisboxið Í rannsókn- inni kom í ljós að nestisboxið getur breyst í gróðrarstíu fyrir bakteríur ef það er ekki þvegið daglega. Ráð frá The Global Hygiene Council: 1 Vendu barnið á að þvo hendur sínar reglulega, sérstaklega eftir ferð á salernið og fyrir matmálstíma, bæði heima og í skólanum. Minntu barnið á að þvo sér um hendurnar áður en það opnar nestisboxið. 2 Kenndu barninu að þurrka skrif borðið eða matarborðið í mötuneytinu með sótthreinsandi þurrku áður en það borðar nestið. 3 Ef þú býrð til nesti kvöldinu áður skaltu muna að setja það inn í ísskáp yfir nóttina. 4 Sótthreinsaðu nestisbox barnsins daglega. 5 Þvoðu hrátt grænmeti og ávexti áður en þú setur það í nestisboxið. 6 Búðu til nesti samdægurs og fyrir einn dag í einu. Þannig minnkarðu líkur á hættulegum bakteríum. Skólinn byrjar Kenndu barninu að þvo sér um hendur og þrífa borðið áður en það byrjar að borða í skólanum. Nesti Mundu að skola grænmeti og ávexti og setja í hreint nestisbox. „Nestisboxið á að tryggja öryggi barns- ins en getur snúist upp í andstæðu sína n Þeir sem fara skyndilega að ganga hægar ættu að huga að líkamlegri heilsu V onin er lítil. Þetta er líklega krabba­ mein í höfði. Ef aðgerðin leiðir það í ljós leyfum við henni að deyja fremur en að hún þjá­ ist,“ sagði dýralæknirinn alvarlegur. Fjölskyldan var sem þrumulostin. Einn af þremur heimilishundun­ um virtist vera með smávægilegan krankleika og var haldið með hana á Dýraspítalann. Á sólríkum degi ókum við hjónin ásamt yngstu dótturinni með hundinn í heim­ sókn sem átti að verða stutt. Ann­ að kom á daginn. Tíkin Lena var skyndilega við dauðans dyr. Þ etta var áfall. Dóttirin sem hafði í sjö ár umgengist tíkina nær daglega brotnaði niður og hljóp út af stofunni. Eft­ ir nokkrar fortölur féllst hún á að koma inn aftur. „Við skulum kveðja hana til öryggis,“ sagði ég við stúlk­ una. Hundurinn lá meðvitundar­ laus á skurðarborðinu. Við strukum öll feld hennar. Þetta var dauðans alvara. Þ egar við gengum út af stofunni til þess að leyfa dýralæknunum að vinna sitt verk reikaði hug­ urinn til baka. Tíkin Lena var sú yfirvegaðasta í hundahópnum. Hún hafði yfirbragð hefðarhunds. Ást hennar til húsbændanna var skilyrðislaus. Hún vildi aðeins fá að vera þar sem fjölskyldan var. En hún hafði ekki alltaf verið rólynd. Sem hvolpur hafði hún þá áráttu að naga fjöltengi. Eina nóttina vakn­ aði ég og komst að því að íbúðin var rafmagnslaus. Eftir nokkra leit fann ég ástæðuna undir rúmi. Tíkin Lena sat stjörf yfir sundurnöguðu fjöltengi. Öðrum megin á höfð­ inu voru hárin sviðin inn að húð. Svipurinn lýsti skelfingu. T íminn silaðist áfram á Dýra­ spítalanum þar sem við biðum eftir því að örlög Lenu réðust. Hugurinn reikaði enn til baka. Hún hafði í hundruðum tilvika fylgt mér á fjöll við alls konar aðstæð­ ur. Hún gætti þess ævinlega að vera við dyrnar í hvert sinn sem ég reim­ aði á mig gönguskóna. Í fannfergi á Esjunni hafði snjór hlaðist í feld hennar svo hún komst ekki lengur áfram. Hún horfði á mig bænaraug­ um á meðan ég braut af henni klakann. Ég gekk með henni á Ok og tjaldaði neðan við fjallið. Um nóttina skalf ég úr kulda. Þá skreið Lena ofan í svefn­ pokann með hlýju sína. Hún hafði allt að gefa en krafðist einskis. Nú virtist lífshlaup hennar á enda. Ég hélt aftur af tárunum. Karlar gráta ekki. Þ að var liðinn hálftími frá því við kvöddum Lenu og fólum dýralæknunum að skera úr um líf eða dauða. Ég sagði í hálf­ um hljóðum að það væri jákvætt hve langan tíma aðgerðin tæki. Mæðgurnar horfðu daprar á mig. Skyndilega opnuðust dyrnar á milli lífs og dauða. Dýralæknirinn kom hálfhlaupandi fram og kallaði hlæj­ andi: „Þetta er ekki krabbamein. Við fundum gröft. Tíkin er líklega hólpin.“ Hálftíma síðar ókum við heimleiðis með tíkina Lenu sof­ andi í aftursætinu. Sólin skein og fjallahringurinn brosti við okkur. Við Lena áttum enn eftir að ganga saman. Lífið hafði sigrað dauðann. Hundur við dauðans dyr Reynir Traustason Baráttan við holdið Hollt í hófi Súkkulaði getur komið í veg fyrir hjartaáfall en ekki er mælt með að borða of mikið af því.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.