Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Side 70

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Side 70
300 Íslendingar koma að Noah n Arnoddur Magnús leikur við hlið Jóhannesar Hauks og Arnars Dan í stórmyndinni E ins og fram hefur komið, leika íslenskir leikarar í bandarísku stórmyndinni Noah en myndin er að hluta til tekin upp á Ís- landi. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá munu þeir Jóhannes Hauk- ur Jóhannesson og Arnar Dan fara með hlutverk en DV hefur nú feng- ið staðfest hjá fjölmiðlafulltrúa Para- mount Pictures að leikarinn Arnodd- ur Magnús Danks fari einnig með hlutverk í myndinni. Þá eru ótaldir þeir íslensku statistar og aukaleikar- ar sem koma að myndinni en eins og DV hefur áður sagt frá var leit- að til bardagakappa úr Mjölni til að leika stríðsmenn. Þegar DV hafði samband við forsvarsmenn bardaga- klúbbsins fengust engin svör enda er það oftast venjan að leikarar skrifi undir plagg um þagnarskyldu þegar svo stór Hollywood-verkefni eru annarsvegar. Arnoddur Magnús nam leiklist við háskólann í East London frá 1997 til 2000 auk þess sem hann hefur sér- menntað sig í bardagaatriðum og skylmingum, sem ætti að koma sér vel í myndinni. Talið er líklegt að hlutverk íslensku leikaranna verði í minni kantinum en stóru stjörnur Noah eru Russell Crowe, Jennifer Connelly, Sir Ant- hony Hopkins og Emma Watson en það er Darren Aronofsky sem leik- stýrir myndinni. Samkvæmt örugg- um heimildum blaðsins unnu Mjöln- ismenn með Crowe og Connelly en leikarinn sagði einnig frá því á Twitt- er-síðu sinni að hann hefði sjálfur æft í Mjölni, bæði áhættuatriði sem og lyft þar lóðum ásamt einkaþjálfara sínum. Um 150 íslenskir statistar og aukaleikarar koma að myndinni og álíka margir eru í starfsmannahópn- um í kringum myndina svo allt í allt, eru hátt í 300 Íslendingar sem koma að þessari stórmynd. 54 Fólk 31. ágúst–2. september 2012 Helgarblað J arðskjálfti sem mældist 4,6 stig á Richter skók suðvestur- horn landsins um hádegisbil á fimmtudag. Í kjölfarið reið flóðbylgja stöðuuppfærslna yfir samskiptavefinn Facebook þar sem allir kepptust við að deila upplifun sinni af skjálftanum. Þeir sem ekki fundu fyrir neinu, létu heldur ekki sitt eftir liggja. Flestir íbúar á svæðinu voru ef- laust að sinna sínum daglegu störfum og þörfum þegar skjálftinn hristi upp í tilverunni og eðlilega var því upplif- un manna af honum misjöfn. Stöðu- uppfærslurnar báru þess glögglega merki. Sumir virtust skelkaðir, aðrir spenntir og enn aðrir svekktir yfir því að hafa misst af honum. Tefldi við páfann Sigmar Vilhjálmsson, fjölmiðla- maður og eigandi Hamborgara- fabrikkunnar, var einn þeirra sem sinnti eðlilegum þörfum sínum þegar allt fór að hristast. Hann var ansi opinskár og deildi persónu- legri reynslu sinni af skjálftanum með Facebook-vinum sínum: „Ha- haha skemmtileg lífsreynsla að vera á klósettinu að tefla við páfann þegar skjálfti uppá 4,6 ríður yfir. Hélt fyrst að ég væri að slá met í niðurhali. :)“ Karl Sigurðsson, borgarfulltrúi Besta flokksins og Baggalútsmaður fann einnig vel fyrir skjálftanum þar sem hann var staddur í Borgartún- inu: „Vó, stuð á 7. hæð í Borgartúni!“ Upplifun kærustu hans og sambýlis- konu, Tobbu Marinós rithöfundar, var keimlík: „WOW skrifstofan mín hristist!“ Kastljóssmaðurinn Jóhannes Kr. Kristjánsson fór ekki varhluta af hristingum þar sem hann var að fá sér sæti: „Þar sem ég settist í stólinn skalf allt.“ Jarðskjálftinn hristi ansi vel upp í Óttari M. Norðfjörð rithöfundi sem virðist hafa verið hálf skjálfandi þegar hann skrifaði stöðuuppfær- slu á Facebook. Hún var einföld en sýndi glögg- lega að hann var með á nótunum. „Jarrrðeðaksjáll- efti!!!“ Borgarbúar stela athyglinni Marta María Jónasdóttir, umsjónar- maður Smartlands á mbl.is, tjáði umheiminum að lítið hefði farið fyrir skjálftanum í höfuðstöðvum Morgunblaðsins í Hádegis móum. „Moggahöllin er brynvarin, fann ekki fyrir neinu!“ Starfsmenn á Birtíngi, sem með- al annars gefur út Vikuna, Nýtt líf og Séð og heyrt, voru hins vegar tví- saga af upplifuninni í höfuðstöðvum sínum í Garðabænum. „Garðabær- inn er greinilega varinn fyrir jarð- skjálftum ... Lifi 210!“ Skrifaði Björk Eiðsdóttir, ritstjóri Séð og heyrt á Facebook-síðu sína. Í athugasemda- kerfinu fyrir neðan sköpuðust í kjöl- farið umræður þar sem Elín Arn- ar, ritstjóri Vikunnar, sagði allt aðra sögu: Ekki vinnustaður – hér var greinilegur jarðskjálfti, við fund um hann allar.“ Björk svaraði að bragði: „Ekkert hér, ekkert haggar Séð og Heyrt!“ Þá bætti Elín við: „en Vikan er með nótunum!!!“ Það voru þó ekki eingöngu íbú- ar á suðvesturhorninu sem tjáðu sig um skjálftann á Facebook, en Þór- hildur Ólafsdóttir, fréttamaður RÚV á Akureyri, var hálf ósátt við þetta út- spil höfuðborgarbúa svona rétt fyr- ir helgina: „Alveg er þetta eftir höf- uðborgarbúum. Geta ekki unað Akureyri að fá smá athygli út á 150 ára afmælið. Setja í jarðskjálfta af athyglissýki. Týpískt.“ Knattspyrnumenn hvekktir Twitter-samfélagið lét ekki sitt eftir liggja í skjálftauppfærslum en sjón- varpsmaðurinn Logi Bergmann var ansi sáttur við sína upplifun: „Sko mig. Ég fann fyrir skjálftanum. Það er sumsé ekki satt að allt fari fram- hjá mér! “ Erlendum liðsmönnum knatt- spyrnu félaga hér á landi virtist ansi brugðið og tístu um málið. Mark Doninger, leikmaður Stjörnunnar, var staddur í rúminu þegar skjálftinn reið yfir og tíst hans bar þess merki að hann væri hvekktur eftir að rúmið hans hafði leikið á reiðiskjálfi. Gary Martin, leikmaður KR var frá sér numinn þegar hann komst að því að fyrirbærið sem hristi heimilið hafði verið jarðskjálfti. Atli Sigurjónsson, liðsfélagi hans var þó ekki var við skjálftann: „Af hverju var ég ekkert var við þennan jarðskjálfta, heyrði bara í Gary fara með bænirnar.“ n Flóðbylgja á Facebook n Misjöfn upplifun af jarðskjálfta n Simmi Vilhjálms sat á klósettinu Jarðskjálfti Sumir virtust skelkaðir, aðrir spenntir og enn aðrir svekktir yfir því að hafa misst af honum. Hrikalegur Jóhannes Haukur á örugglega eftir að sóma sér vel í kvikmyndinni, innan um stríðskappa og risa Hollywoodstjörnur. Russell Crowe Leikarinn sagði frá því á Twitter-síðu sinni að hann hefði æft áhættuatriði myndarinnar í bardagaklúbbnum Mjölni. Með stórskerta IKEA-greind Leikarinn Karl Ágúst Úlfsson er haldinn óstjórnlegum samsetn- ingarkvíða ef marka má fésbók- arfærslu. Þar talar Karl Ágúst um greindirnar átta, það er málgreind, rýmisgreind, stærðfræðigreind, tónlistargreind, hreyfigreind, fé- lagsgreind, sjálfsþekkingargreind og umhverfisgreind. „Mér hefur lengi fundist vanta þá níundu í kenninguna, sem er IKEA-greind – ég verð að viðurkenna að ég er með stórskerta IKEA-greind – hvert einasta húsgagn sem ég hef keypt í IKEA hef ég þurft að setja saman að minnsta kosti tvisvar, þrátt fyrir afar greinargóðar leið- beiningar,“ segir leikarinn og bætir við að hans bíði þrír pappakassar sem hann sé að fresta í lengstu lög að takast á við. Uppgjafar- trommari Þormóður Dagsson, forsprakki og söngvari hljómsveitarinnar Til- bury, var nýlega í viðtali við breska tónlistartímaritið Artrocker þar sem hann segir frá stofnun hljóm- sveitarinnar og tónlistarflórunni á Íslandi. Hann birtir tengil á við- talið á Facebook-síðu sinni undir yfirskriftinni: „Viðtal við uppgjaf- artrommara.“ En Þormóður lamdi húðir með hljómsveitum á borð við Jeff Who? og Hudson Wayne, áður en hann steig fremst á sviðið og greip hljóðnemann sér í hönd. Einn vina hans á Facebook vill þó ekki taka undir uppgjöfina: „Þú ert ekki uppgjafartrommari. Þú tókst skrefið upp á við.“ Þormóði líkar við ummælin svo hann er að öllum líkindum sáttur við hlut- skipti sitt. Hýr á brún og brá Það er óhætt að segja að for- síða nýjasta tölublaðs Nýs Lífs hafi vakið mikla athygli, en hana prýð- ir Bjarni Benedikts- son, for- maður Sjálfstæð- isflokksins. Líkt og sjá má er Bjarni hýr á brún og brá á myndinni sem geng- ið hefur manna á milli á Face- book. Sumum finnst uppstill- ingin heldur kvenleg en öðrum þykir augljóst að kosningar séu í nánd. Nýtt Líf skartar reyndar tveimur forsíðum, því á helm- ingi upplagsins er sænska söng- konan Loreen sem hefur ekki fengið jafn mikla athygli. Um 50 manns hafa deilt forsíðunni með Bjarna beint af Facebook- síðu Nýs Lífs á meðan Loreen hefur aðeins fengið 5 deilingar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.