Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Side 72

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Side 72
Allt er gott sem endar vel! Sundbíó í september n Atli Bollason úr hljómsveitinni Sprengjuhöllinni og Jóhann Alfreð Kristinsson, einn af grínistum Mið- Íslands, eru á meðal þeirra sem skipuleggja kvikmyndahátíðina RIFF í ár. Í tilkynningu frá Atla kemur fram að hið árlega sundbíó verði haldið með pompi og prakt í Laugardalslaug þann 29. septem- ber næstkomandi. „Sundbíóið er orðin ein af sérgreinum RIFF og einhver vinsælasti viðburður há- tíðarinnar ár eftir ár. Ungir gest- ir sem aldnir skella sér í sund og njóta þess að svamla um leið og þeir horfa á ein- hverja perluna úr kvikmyndasögunni.“ Í ár varð kvikmyndin Back to the Fut- ure fyrir valinu og að sögn Atla Bolla- sonar verð- ur Laugar- dalslaug skreytt í samræmi við atriði úr myndinni. Hannes fluttur n Glæsilegt einbýlishús listakon- unnar Kötlu Jónasdóttur í Ing- ólfsstræti er til leigu. Útrásarvík- ingurinn Hannes Smárason bjó þar í sumar ásamt nýju kærustunni sinni, Brynju X. Vífilsdóttur en ný- lega bárust fréttir af því að hann væri skilinn við eiginkonu sína, Unni Sigurðardóttur. Katla er fyrr- um eiginkona viðskiptajöfursins Kevin Stanford sem var giftur tísku- drottningunni Karen Miller. Hús Kötlu er einstaklega glæsilegt en það var gert upp fyr- ir nokkrum árum síðan. Húsið er nú falt til leigu fyrir hálfa milljón á mánuði. Músíkalskur markvörður n Einn dáðasti handknattleiks- markvörður Íslendinga, Guðmund- ur Hrafnkelsson, sýndi á sér nýja hlið á Götubarnum á Akureyri um liðna helgi. Götubarinn hef- ur náð miklum vinsældum og þá sérstaklega vegna flygils sem öll- um er frjálst að leika á. Myndast þar jafnan mjög góð stemning þar sem menn leika vel valin dæg- urlög á hljóðfærið og gest- ir á barnum taka vel undir. Guðmundur gerði sér lítið fyrir og kitlaði nóturnar á flyglinum síðast- liðið laugardags- kvöld og sýndi það að hann er ekki bara liðtækur í mark- vörslunni. Þ að kom í raun ekkert fyrir höf- uðið á honum. Hann var að- eins upphleyptur á enninu eftir hjálminn,“ segir Linda Sól- ey Halldórsdóttir, móðir Bergs Páls Karvels sonar, 6 ára, sem varð fyrir bíl skammt frá heimili sínu í Mosfellsbæ á miðvikudag. „Hann lenti á bílnum, fór upp á húddið og flaug svo út í gras,“ segir hún um slysið. Læknar sem meðhöndluðu drenginn eftir slysið, sem og foreldrar hans, eru sannfærð um að hjálmurinn hafi jafnvel bjarg- að lífi hans. Linda vill vekja athygli á mikil vægi hjálmsins, en sonur hennar fer aldrei út að hjóla án hans. Bergur Páll slapp þó ekki alveg ómeiddur frá slysinu því sköflungur- inn á honum brotnaði og þarf hann því að vera í gifsi í allt að sex vikur. Linda segir það vera erfitt fyrir son sinn, en hann taki þessu þó af miklu æðruleysi. Bergi Páli var vissulega brugðið eftir slysið en það virðist ekki hafa gert hann afhuga hjólreiðum. Hann er strax farinn að tala um nýtt hjól sem hann langar að eignast. Linda vill taka fram að ekki sé við ökumann bílsins að sakast í þessu tilfelli. Bílnum var ekið á löglegum hraða í íbúðahverfi, en Bergur Páll og vinir hans gleymdu sér þegar þeir fóru yfir götuna. „Eins og hann segir sjálfur, hann gleymdi að kíkja,“ segir Linda. Ökumanninum var brugðið eftir að hafa ekið á drenginn en Linda gætti þess ásaka hann ekki. „Ég knúsaði hann bara fram og til baka. Og hann var bara yndislega góður og hringdi í okkur um kvöldið. Það var allt í góðu.“ solrun@dv.is Hjálmurinn bjargaði n Móðirin knúsaði ökumanninn í bak og fyrir Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 31. áGúSt–2. SepteMBer 2012 100. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr. Skiptir höfuðmáli Bergur Páll á það hjálminum sínum líklega að þakka að ekki fór verr þegar hann varð fyrir bíl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.