Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2012, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2012, Side 4
Þuklaði á systurdóttur sinni n Hafði safnað barnaníðsefni í 11 ár H æstiréttur staðfesti á fimmtu­ dag dóm Héraðsdóms Suður­ lands yfir 24 ára karlmanni sem dæmdur hafði verið í sex mánaða fangelsi, þar af þrjá skilorðs­ bundna, fyrir að áreita fjögurra ára gamla systurdóttur sína kynferðis­ lega með því að hafa girt niður um hana og nuddað á henni kynfær­ in þegar hann var að passa hana. Þá fundust þrjú þúsund ljósmyndir með barnaníðsefni á tölvu mannsins sem hann viðurkenndi fyrir dómi að hafa safnað og skoðað síðan hann var 13 ára gamall. Sumar myndir voru af stúlkum allt niður í 3–4 ára gamlar. Viðurkenndi maðurinn að það hafi verið orðin fíkn hjá honum að leita að barnaníðsefni á netinu. Fram kom í máli mannsins að systir hans hefði hringt í hann daginn eftir brotið. Hafði stúlkan þá sagt móður sinni frá því sem gerst hafði. Í kjölfarið sagði maðurinn að honum hafi liðið „mjög illa, m.a. reynt sjálfs­ morð þremur dögum síðar, og verið undir læknishendi.“ Kvaðst maður­ inn hafa glímt við þunglyndi í mörg ár en hefði haft gott af starfsendur­ hæfingu sem hann var í. Kvaðst hann „eftir þennan atburð hafa misst allan kynferðislegan áhuga á börnum en sá áhugi hafi verið til staðar þegar umrætt atvik átti sér stað.“ Í skýrslu sálfræðings fyrir dómi segir að maðurinn sé haldinn barna­ grind, hafi kynferðislegan áhuga á stúlkubörnum og hafi haft í mörg ár. Þá hafi hann kynferðislegar þrá­ hyggjuhugsanir varðandi barna­ níðsefni. Þrátt fyrir þetta metur sál­ fræðingur það sem svo að „lítil til miðlungs áhætta“ sé á að maðurinn fremji aftur kynferðisbrot. Ríkissaksóknari hafði skotið mál­ inu til Hæstaréttar og krafist þyngri refsingar en Hæstiréttur sá ekki ástæðu til þess. Maðurinn þarf einnig að greiða allan sakarkostnað. n mikael@dv.is 4 Fréttir 19.–21. október 2012 Helgarblað E ignarhaldsfélagið Varnagli, sem var í eigu Tryggva Þórs Herbertssonar þingmanns, hefur verið úrskurðað gjald­ þrota. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu. Félagið var tekið til gjaldþrotaskipta þann 3. október síðastliðinn. Félagið skuld­ ar rúmar 800 milljónir króna og á nánast engar eignir á móti þess­ um skuldum – tæpar 400 þúsund krónur. Skiptastjóri er Steinn Finn­ bogason hdl. Ljóst er að kröfuhafar Varnagla þurfa því að afskrifa um 800 milljónir af skuldum félagsins. Varnagli var stofnað til að halda utan um hlutabréfaeign Tryggva Þórs í fjárfestingarbankanum Askar Capital en hann var ráðinn sem forstjóri hans árið 2006. Tryggvi fékk 300 milljóna kúlulán frá Askar og Glitni inn í félagið til að kaupa hlutabréf í bankanum. Tryggvi Þór fór í leyfi frá störfum sem forstjóri Askar Capital um sumarið 2008 þegar hann var ráðinn sem efna­ hagsráðgjafi ríkisstjórnar Geirs Haarde. Í viðtali við DV í mars 2009, þegar blaðið greindi frá kúlu­ láni Tryggva Þórs, sagðist hann hafa selt félagið aftur til bankans þegar hann gerðist ráðgjafi Geirs. Þessi háttur var hafður á þar sem kúlulánið var hluti af starfskjörum Tryggva Þórs hjá Askar Capital. Sagðist koma út á sléttu Í því viðtali sagði Tryggvi Þór: „Ég kem á sléttu út úr þessu persónu­ lega. Ég tapaði engu og græddi ekkert.“ Tryggvi hefði hins vegar getað greitt mikið ef hlutabréfin í Askar Capital hefðu hækkað í verði. Engar persónulegar ábyrgðir voru fyrir láninu en Tryggvi sagðist hafa lagt fram 500 þúsund krónur til að stofna eignarhaldsfélagið. Um þetta sagði Tryggvi: „Þetta er bara hefðbundið og eins og hlutirnir gengu fyrir sig á þessum tíma. Askar er einkahlutafélag en ekki al­ menningshlutafélag þannig að ekki var verið að svína á neinum. Hugs­ unin er sú að hagsmunir mínir og félagsins fari saman. Þetta er bara það sem var gert og var fullkomlega eðlilegt á þeim tíma þó setja megi spurningarmerki við það í dag.“ Lánið til Tryggva Í febrúar 2010 sagði DV svo frá því að Tryggvi Þór hefði fengið rúm­ lega 25 milljóna króna lán frá einkafélaginu í erlendum mynt­ um áður en hann seldi það aftur til bankans. Lánið var veitt til að fasteignakaupa – Tryggvi keypti kjallara hússins sem hann bjó í við Sörlaskjól – og var til þriggja ára. Tryggvi Þór sagði lánið ekki vera óeðlilegt: „Það er ekkert óeðlilegt við þetta … Þetta er bara venjulegt lán.“ Tryggvi Þór sagðist þá ætla að endurgreiða lánið árið 2010. Í viðtali við DV um sumarið 2011 vildi Tryggvi Þór ekki greina frá því hvort hann hefði greitt lán­ ið til baka. Meira en þrjú ár voru þá liðin frá því að hann fékk lánið frá eigin einkahlutafélagi. „Eina sem ég vil segja er að ég gaf ykkur upp­ lýsingar á sínum tíma en annars lít ég á þetta sem mitt einkamál.“ Greiddi lánið í fyrra Þegar DV spurði Tryggva Þór um stöðu lánsins árið 2011 lá fyrir að veðið fyrir umræddu láni hefði ekki verið í húsi Tryggva í Vestur­ bænum, miðað við veðbandayfir­ lit hússins. Í ársreikningi félagsins fyrir árið 2009 kom fram að stærsta eign Varnagla væru útistandandi lán upp á tæpar 38 milljónir króna. Í ársreikningi félagsins fyrir árið 2010 kom fram að þessi útistand­ andi lán stæðu í 0 krónum og fór eignastaða félagsins úr rúmum 38 milljónum árið 2009 og niður í rúmlega 390 þúsund árið 2010. Tryggvi Þór segist hafa greitt lánið frá Varnagla í fyrra. „Já, ég er búinn að greiða þetta. Ég greiddi þetta fyrir ári síðan.“ Miðað við þetta mun lánið til Tryggva ekki lengur vera ein af útistandandi kröfum félagsins við gjaldþrota­ skipti þess. Varnagli er í dag í eigu eignar­ haldsfélagsins Hrímbaks sem er í eigu fyrrverandi forstjóra Mile­ stone, fyrrverandi eiganda Askar Capital. Sá heitir Guðmundur Óla­ son. Varnagli endaði því sem eign Hrímbaks eftir að Tryggvi Þór hætti hjá Askar Capital. n SegiSt hafa greitt kjallaralánið n Um 800 milljónir af skuldum Varnagla verða afskrifaðar „Þetta er bara venjulegt lán Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Greiddi lánið Tryggvi Þór segist hafa greitt Var- naglalánið í fyrra. 24 fá sekt Brot 24 ökumanna voru mynd­ uð í Rofabæ í Reykjavík á mið­ vikudag. Fylgst var með öku­ tækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, við Árbæjarskóla. Á einni klukkustund, eftir há­ degi, fóru 84 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 29 prósent, of hratt eða yfir af­ skiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 kílómetrar á klukkustund en þarna er 30 kílómetra hámarkshraði. Vöktun lögreglunnar í Rofa­ bæ er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað. Helgi Þór Bergs dæmdur: Endurgreiðir 642 milljónir Helgi Þór Bergs, fyrrverandi fram­ kvæmdastjóri hjá Kaupþingi, þarf að endurgreiða slitastjórn bank­ ans tæplega 642 milljónir króna vegna ábyrgðar á tveimur lán­ um sem hann fékk hjá vinnuveit­ anda sínum fyrir hrun til hluta­ bréfakaupa í bankanum. Ábyrgðin hafði verið felld niður af stjórn bankans í umdeildum aðgerðum hennar skömmu fyrir hrun. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði í maí í fyrra dæmt slitastjórn Kaupþings í vil en hún hafði gert þær kröfur að ráðstöfun stjórn­ ar Kaupþings frá 25. september 2008 um að fella niður persónu­ lega ábyrgð Helga Þórs á greiðslu lánanna. Héraðsdómur dæmdi einnig Helga Þór til að endur­ greiða 641.875.606 krónur með dráttarvöxtum frá 25. september 2008. Hæstiréttur staðfesti dóm­ inn úr héraði á fimmtudag. Sýknukrafa Helga í málinu byggði á því annars vegar að kröf­ ur slitastjórnarinnar hafi hvorki verið réttmætar né lögmætar þegar persónuleg ábyrgð hans var felld niður. Helsta röksemdin, sem Helgi færði fyrir þessu samkvæmt dómi Hæstaréttar, var að hon­ um hefði verið lofað skaðleysi af kaupum á þeim hlutum sem hann keypti fyrir lánin tvö. Ekki var hins vegar kveðið á um slíkt skaðleysi í lánssamningunum. Hæstiréttur sagði ljóst að með niðurfellingu ábyrgða hafi verið um gjafagern­ ing að ræða hjá fyrrverandi stjórn­ endum Kaupþings.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.