Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2012, Blaðsíða 53
„Töframenn eru skemmtilegir nördar“
Fólk 53Helgarblað 19.–21. október 2012
Jóhanna Vigdís fimmtugÍ bústað með
fjölskyldunni
É
g ætla með stórfjölskyldunni í
sumarbústað í Borgarfjörðinn
í tilefni dagsins,“ segir Ólafur
Snorri Rafnsson í Mosfellsbæ
sem verður þrítugur á laugardaginn.
Ólafur Snorri býst við að elda eitt
hvað gott lambakjöt handa fjöl
skyldunni á laugardagskvöldið. „Það
verður lamb og með því. Móðir mín á
líka afmæli þennan dag en hún verð
ur 65 ára. Hún fékk mig því eigin
lega í afmælisgjöf fyrir 30 árum,“
segir hann og bætir við að í næstu
viku muni hann svo halda til Ítalíu
til að heimsækja unnustu sína sem
sé þar í námi. „Það má því segja að
þetta verði rúm vika í afmæli hjá mér.
Unnustan á svo líka afmæli sama dag
svo þetta verður stór afmælisdagur.“
Aðspurður segist hann ekki stefna
út á lífið í tilefni dagsins. „Ég er mikið
afmælisbarn og hef voðalega gaman
af því að halda upp á daginn með
mínum nánustu. En ég ætla ekki á
djammið. Mig langar frekar að eiga
notalega stund í bústað.“
Ólafi Snorra líst vel að komast
á fertugsaldurinn. „Því fylgir bara
dásemdartilfinning. Ég hef aldrei ótt
ast að eldast. Lífið verður bara alltaf
betra og betra.“
É
g er í París og ætla að halda
upp á daginn hérna,“ segir
fréttakonan Jóhanna Vigdís
Hjaltadóttir sem er fimmtug
í dag, föstudag. Jóhanna er stödd
í Frakklandi ásamt eiginmanni og
börnum. „Evrópa er í uppáhaldi hjá
mér og ekki síst París. Mér finnst
þetta alveg dásamleg borg og var
að ljúka við að fá mér kaffi hér á
torginu. París er dásamleg á öllum
árstímum og svo hentar hún líka vel
öllum aldurshópum. Hér finnst öll
um gaman að vera enda yndisleg
menningin og maturinn er góður
hvert sem maður fer.“
Jóhanna Vigdís segir aldrei að
vita nema hún haldi upp á daginn
eftir að heim er komið en í París ætli
hún að njóta þess að vera með fjöl
skyldunni. „Ég er að hugsa um að
fara á Louvresafnið og borða svo á
góðum stað sem ég er búin að finna
og er með ekta franskt eldhús. Þar
sem ég er gríðarleg áhugamann
eskja um matargerð drekk ég í mig
allt hér og leita uppi góða veitinga
staði sem bjóða upp á flott eldhús
og góða kokka.“
Jóhanna Vigdís segist þakklát
fyrir að vera komin á sextugsaldur
inn. „Ef maður fær að velja að ná
þessum aldri eða ná honum ekki
er mér efst í huga þakklæti fyrir að
ná honum, vera við góða heilsu og
eiga dásamlega fjölskyldu. Það er
ekkert yndislegra í lífinu. En þetta
er líka mjög stór áfangi. Ég er yngst
af mínum systkinahópi og hefur
alltaf fundist allir hinir geta orðið
fimmtugir en ekki ég. Það er pínu
skrítið að ná þessum aldri. En ald
ur er samt ekkert annað en hugar
ástand. Ef manni líður vel og er við
góða heilsu skiptir engu máli hvað
tölurnar segja.“
Heldur upp á daginn í París með fjölskyldunni
Aldur er hugarástand Jó-
hanna er þakklát fyrir að hafa náð
þessum aldri, vera við góða heilsu
og eiga dásamlega fjölskyldu.
Deilir afmælisdeginum með móður og unnustu