Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2012, Page 44
Þ
að verður sannkölluð veisla í
enska boltanum á sunnudag
þegar Chelsea tekur á móti
Liverpool og Manchester City
fær Gylfa Þór Sigurðsson og félaga í
Tottenham í heimsókn. Chelsea hef-
ur aðeins fatast flugið eftir frábæra
byrjun í deildinni. Liðið tapaði á
heimavelli fyrir Manchester United
fyrir hálfum mánuði en gerði síðan
aðeins jafntefli gegn Swansea í síð-
ustu umferð. Á sama tíma er Liver-
pool ósigrað í síðustu fimm deildar-
leikjum sínum og af þeim hafa tveir
unnist en þrír endað með jafntefli.
11 leikir á 4 árum
Leikir Chelsea og Liverpool hafa í
gegnum tíðina verið frábær skemmt-
un en frá byrjun árs 2009 hafa liðin
mæst hvorki meira né minna en ell-
efu sinnum. Liverpool hefur unnið
sex þessara leikja og Chelsea þrjá en
aðeins einn hefur endað með jafn-
tefli. Það kom á Stamford Bridge
í apríl 2009 þegar liðin mættust í
undanúrslitum Meistaradeildar
Evrópu og endaði leikurinn 4–4.
Liverpool virðist kunna ágætlega
við sig á Stamford Bridge og hefur
liðið unnið þar þrjá leiki í röð með
markatölunni 5–1. Liðin mættust
síðast í deildinni í maí síðastliðnum
og vann Liverpool þá sannfærandi
4–1 sigur á Anfield.
Bæði lið ættu að geta stillt upp
nokkuð sterkum liðum en hjá
Chelsea er Ashley Cole spurningar-
merki vegna meiðsla og sömu sögu
er að segja af Pepe Reina og Glen
Johnson hjá Liverpool. Fyrir leikinn
er Chelsea í öðru sæti deildarinnar
með 23 stig en Liverpool í 12. sæti
með 11 stig.
Hörkuleikur í Manchester
Manchester City tekur á móti
Tottenham í áhugaverðum leik á
sunnudag. City hefur unnið fjóra
af síðustu sex leikjum sínum í
deildinni og er enn eina liðið sem
ekki hefur tapað leik. Aftur á móti
hefur Tottenham tapað tveimur
af síðustu þremur leikjum sínum
í deildinni, nú síðast á heimavelli
gegn Wigan,1–0. City vann báða
leiki þessara liða í deildinni í fyrra.
Fyrri leikurinn á heimavelli Totten-
ham endaði 5–1 fyrir City sem vann
síðan seinni leikinn á heimavelli,
3–2. Tottenham hefur aðeins tap-
að einum útileik og unnið þrjá en
Manchester City hefur unnið fjóra
heimaleiki og gert eitt jafntefli.
United heimsækir Villa Park
Topplið deildarinnar, Manchester
United, heimsækir Villa Park í
Birmingham þar sem liðið mætir
Aston Villa. United hefur verið á
góðri siglingu að undanförnu og
unnið fjóra leiki í röð. Hins vegar
hefur Aston Villa verið í basli og
situr í 17. sæti deildarinnar með 9
stig. Villa vann þó góðan útisigur á
Sunderland í síðustu umferð á sama
tíma og United vann góðan heima-
sigur á Arsenal.
Meðal annarra áhugaverðra
leikja um helgina má nefna Lund-
únaslag Arsenal og Fulham á Em-
irates á laugardag. Bæði lið eru með
15 stig í deildinni en Arsenal er þó
með örlítið betri markatölu. Ful-
ham hefur gert þrjú jafntefli í síð-
ustu fimm leikjum sínum í deildinni
á meðan Arsenal hefur tapað þrem-
ur af síðustu fimm leikjum sínum. n
44 Sport 9.–11. nóvember 2012 Helgarblað
n Chelsea mætir Liverpool n City tekur á móti Tottenham n United heimsækir Villa Park
EllEfta orrustan
á fjórum árum
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Gamlir félagar Fernando
Torres og Daniel Agger
munu væntanlega eigast við
um helgina. Liverpool hefur
haft ágætis tak á Chelsea á
Brúnni. Mynd ReUteRs
„Þetta verður
markaleikur
og ég spái 2–2
Toppliðin vinna sína leiki
n Kristján Guðmundsson spáir í spilin fyrir leiki helgarinnar
DV fékk knattspyrnuþjálfarann Kristján Guðmundsson til að tippa á leiki helgarinnar
í ensku úrvalsdeildinni. Kristján er harður stuðningsmaður Derby County og því er
spáin eins hlutlaus og mögulegt er. Hann spáir því að topplið deildarinnar haldi
áfram að hala inn stig en býst við einum stórsigri í botnslag deildarinnar.
Laugardagur:
n Arsenal – Fulham „Walcott byrjar og Arsenal vinnur þennan leik, 2–1. Berbatov
skorar fyrir Fulham.“
n everton – sunderland „Öruggur sigur Everton, 3–0. Everton er búið að vera
eitt besta lið deildarinnar hingað til og heldur því áfram.“
n Reading – norwich „Jafntefli, 1–1. Erfiður leikur að tippa á.“
n southampton – swansea „Southampton er í vandræðum og þau halda
áfram. Swansea heldur boltanum vel, er sterkt sóknarlega og vinnur þennan leik.“
n stoke – QPR „Þetta verður öruggur sigur Stoke. Háloftaboltinn tryggir þeim
öruggan sigur og QPR mun ekkert ráða við hornin og innköstin þeirra. 3–0 sigur að
lágmarki.“
n Wigan – WBA „Athyglisverð viðureign. Þetta verður markaleikur og ég spái 2–2.
Þetta eru bæði mjög fín lið.“
n Aston Villa – Manchester United „United hefur átt mjög auðvelt með
Aston Villa í gegnum tíðina og sérstaklega á Villa Park. Þetta verður ekki stórsigur en
ætli van Persie setji ekki eitt í 2–1 sigri.“
sunnudagur:
n Manchester City – tottenham „Tottenham hefur verið ágætt á móti topp-
liðunum en ég held að City komi til baka eftir hremmingarnar í vikunni. City vinnur
3–1 sigur og nær að sprengja upp vörnina hjá Tottenham.“
n newcastle United – West Ham „Newcastle vinnur þetta. Ég held að
þetta verið sneypuför hjá Andy Carroll á gamla heimavöllinn. Þetta fer 2–1 fyrir
Newcastle.“
n Chelsea – Liverpool „Liverpool hefur átt dálítið erfitt með að skora og ég sé
liðið ekki vinna þennan leik. Chelsea er hættulegra sóknarlega og vinnur þennan leik
– líklega með tveimur mörkum.“
Vissir þú …
… að WBA hefur fengið flest stig allra
liða á heimavelli þetta
tímabilið, eða 15 stig.
… að sjálfsmark
Tims Howard fyrir
Everton um liðna
helgi var það 666
síðan enska úrvals-
deildin var stofnuð.
… að Manchester City hefur unnið 27 af
síðustu 29 heimaleikjum
sínum í deildinni.
… að byrjun Arsenal í
deildinni er sú versta
síðan Arsene Wenger
tók við liðinu. Liðið
er með 15 stig en var
með 16 á sama
tímapunkti í fyrra.
… að QPR hefur tapað
11 af síðustu 12 útileikj-
um sínum í deildinni.
… að
Liverpool hefur aðeins
unnið 3 af síðustu
15 leikjum sínum á
Anfield í deildinni.
… að 10 vítaspyrnur hafa
verið dæmdar í leikjum United og
Arsenal í deildinni frá því að Wenger
tók við Arsenal – allar á Old Trafford.
Sex hafa farið forgörðum.
… að Stoke hefur gert jafntefli í sex
af síðustu sjö heimaleikjum sínum í
deildinni.
… að Everton hefur gert jafntefli í
síðustu fjórum deildarleikjum sínum.
… að Manchester United hefur skorað
í 53 heimaleikjum í röð í deildinni sem
er met.
… að Juan Mata
hjá Chelsea hefur
lagt upp 18 mörk í
deildinni frá byrjun
síðasta tímabils,
flest allra leikmanna.
Staðan í deildinni
1 Man.Utd. 10 8 0 2 26:14 24
2 Chelsea 10 7 2 1 22:10 23
3 Man.City 10 6 4 0 18:9 22
4 Everton 10 4 5 1 19:13 17
5 WBA 10 5 2 3 15:11 17
6 Tottenham 10 5 2 3 17:14 17
7 Arsenal 10 4 3 3 15:8 15
8 Fulham 10 4 3 3 21:16 15
9 West Ham 10 4 3 3 13:11 15
10 Newcastle 10 3 5 2 12:14 14
11 Swansea 10 3 3 4 15:14 12
12 Liverpool 10 2 5 3 13:15 11
13 Wigan 10 3 2 5 11:16 11
14 Norwich 10 2 4 4 8:18 10
15 Stoke 10 1 6 3 8:10 9
16 Sunderland 9 1 6 2 6:9 9
17 Aston Villa 10 2 3 5 8:14 9
18 Reading 9 0 5 4 12:18 5
19 QPR 10 0 4 6 8:19 4
20 Southampton 10 1 1 8 14:28 4