Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2012, Qupperneq 56
Stelpu-
skott?
Fimm stjörnu
algleymi
n Skáldsagan Algleymi eftir Her-
mann Stefánsson fær almennt
góðar viðtökur í Þýskalandi, en
hún kom út í þar í landi í fyrra.
Hermann segir ekkert hálfkák
vera í viðtökum bókarinnar,
„annaðhvort skilyrðislaus ást
eða algert hatur.“ Á Facebook-
síðu sinni biðlar höfundurinn
til fjölmiðla um að vekja athygli
á nýjum þýskum fimm stjörnu
dóm á áberandi
stað. „Kæra
dagblað.
[…] Gæt-
irðu nokk-
uð verið
svo vænt
að segja
frá þess-
um dómi
á áber-
andi stað í
blaðinu?“
Heldur upp á
Fox News
n Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, er eins og aðrir
stjórnendur í Reykjanesbæ með
iPhone-snjallsíma frá bænum. Í
tilefni af því ræddu bloggararnir
á tæknisíðunni simon.is við Árna
og fengu meðal annars skjáskot
af skjáborði símans. Í ljós kom að
Árni vill fylgjast vel
með fréttum en
hann var búinn
að festa nokkrar
fréttasíður á
skjáborðið.
Athygli vakti að
bæjarstjórinn var
með Fox News-
fréttasíðuna
fasta á
skjá-
borðinu
en sú
fréttastofa
þykir ansi
íhaldssöm
og hlut-
dræg.
Heiða er
stelpukona
n „Það er allt rétt í þessu.
Nema að ég er ekki stelpa. Ég
er stelpukona. Hef óskað eftir
leiðréttingu og sent ritstjóran-
um lagið i´m not a girl, not yet a
woman með Britney máli mínu
til stuðnings,“ segir Heiða Kristín
Helgadóttir á Facebook-síðu
sinni um skoðanagrein á heima-
síðu Viðskipta-
blaðsins þar
sem Heiða er
kölluð stelp-
an og Guð-
mundur Stein-
grímsson og
Róbert Mars-
hall kallað-
ir guttarnir
tveir.
Þ
etta er bara frábært og við erum
mjög glaðir með þetta. Þær hafa
verið að safna peningi þær Alma
og Hrafnhildur og fóru á stúfana
til þess að vita hvort þær fengju sjón-
varp,“ segir Þórir Haraldsson, dag-
skrárstjóri Gistiskýlisins sem er úr-
ræði fyrir útigangsmenn. Skýlinu barst
í vikunni vegleg gjöf frá Bræðrunum
Ormsson sem gáfu skýlinu plasma-
sjónvarp. Það eru þær Alma Rut
Lindudóttir og Hrafnhildur Jóhanns-
dóttir, sem hafa barist ötullega fyrir
bættri aðstöðu fyrir útigangsmenn,
sem Þórir vísar til hér að framan. Sjón-
varpið er komið upp í setustofu skýl-
isins. „Það hefur verið sjónvarp hér
síðan skýlið var opnað árið 1969. Sjón-
varpið sem var hér fyrir var nú komið
nokkuð til ára sinna en virkaði alveg,“
segir Þórir en segir mikla ánægju ríkja
með nýja tækið.
Talsvert hefur verið fjallað um
lélegan aðbúnað í Gistiskýlinu. Rúm
sögð léleg og ýmislegt annað sem
mætti bæta. „Það er ekki alveg búið
að klára það mál en okkur áskotnuð-
ust tólf sjúkrarúm um daginn sem eru
mjög góð en alls eru rúmin hjá okk-
ur tuttugu þannig það vantar nokkur
í viðbót.“
Einnig er mikil eldhætta í húsinu
sem er timburhús en það er klætt með
striga og pappa. Lengi hefur verið leit-
að að nýju húsnæði undir reksturinn
en ekkert gengið. „Þetta er auðvitað
mjög óhentugt húsnæði fyrir þennan
rekstur. Það eru þröngir gangar og
það er friðað þannig að það má litlu
breyta. Borgin var búin að kaupa hús
fyrir fimm árum en einhver nágrann-
inn mótmælti og þá var hætt við. Það
er nefnilega þannig að það vilja all-
ir hafa Gistiskýli en bara ekki nálægt
sér eða í sínu hverfi. Við vitum að það
er alltaf verið að leita að nýju húsnæði
en ég ætla bara að gleðjast og fá mér ís
daginn sem ég sé nýtt húsnæði,“ segir
hann vantrúaður á að það finnist á
næstunni. n
„Mjög glaðir með þetta“
n Gistiskýlið fékk nýtt sjónvarp gefins n Vantar nýtt húsnæði
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 9.–11. nóveMbeR 2012 130. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
Sjónvarpið Karl Matthíasson og Þórir
Haraldsson frá Samhjálp taka á móti sjón-
varpinu ásamt þeim Ölmu og Hrafnhildi.