Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2011, Blaðsíða 18
18 | Fréttir 24.–26. júní 2011 Helgarblað
Þann 23. ágúst í fyrra fór 31 árs gam-
all maður í hjartastopp á salerninu í
Domus Medica eftir að hafa spraut-
að sig með lyfinu fentanyl en fent-
anyl er morfínlyf og sem verkjalyf er
það margfalt sterkara en morfínið
eitt og sér.
Fór í hjartastopp á Domus
Medica
Maðurinn var með fjölnotalyfseðil
fyrir fentanyl frá lækni þrátt fyrir að
eiga sér langa sögu um harða fíkn-
efnaneyslu. Hann hafði farið í apó-
tek í Domus Medica ásamt tveimur
félögum sínum og sótt lyfið og í kjöl-
farið farið inn á salerni sem stað-
sett er á fyrstu hæð byggingarinnar.
Hann leysti plásturinn upp í vatni og
sprautaði lyfinu í æð. Skammturinn
var of sterkur og hann lést tveimur
sólarhringum síðar á gjörgæsludeild
Landspítalans. Eftir lát mannsins
fann fjölskylda hans nokkrar lyfja-
umbúðir af fentanyl-plástrum í föt-
unum sem hann var í þegar hann
lést. Á umbúðunum var læknanúmer
sem tilheyrir Sverri Bergmann, sér-
fræðingi í heila- og taugalækningum.
Í kjölfarið tilkynnti fjölskyldan Sverri
til landlæknis.
Taldi sig vera að gera rétt
Málið var skoðað og komist var að
þeirri niðurstöðu að Sverrir skyldi
loka læknastofu sinni þann 1. júlí
næstkomandi. Hann verður þó ekki
sviptur lækningaleyfi og mun halda
áfram sinna sjúklingum á MS Setr-
inu en Sverrir hefur unnið að með-
ferð MS-sjúklinga í tugi ára. Hann var
á föstudaginn heiðraður með ridd-
arakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu
fyrir störf sín í þágu MS-sjúklinga
sem og á vettvangi heilbrigðismála
og læknavísinda.
Sjálfur segir Sverrir ástæðuna fyr-
ir lyfjagjöfinni vera þá að hann hafi
grunað að maðurinn væri haldinn
verkjaheilkenni sem kallast Reflex
Sympathetic Dystrophy Syndrome
og lýsir sér með óeðlilega miklum
verkjum vegna truflunar í ósjálfráða
taugakerfinu. Sverrir taldi sig vera að
hjálpa manninum en viðurkennir að
hafa verið í erfiðri stöðu og hafa litla
reynslu í að vinna með fíklum. Hann
segist einungis hafa verið að reyna að
hjálpa manninum þangað til hann
kæmist í meðferð og hægt væri að
greina undirliggjandi sjúkdóm og í
kjölfarið koma hans málum í réttan
farveg.
Dauðaskammturinn frá lækni
Móðir mannsins sem kýs að koma
ekki fram undir nafni segir son sinn
hafa verið afskaplega eðlilegan
dreng, en eftir að hann fór að reykja
hass með skólafélögum eftir ferm-
ingu hafi farið að síga á ógæfuhlið-
ina. Hún hafi alltaf óttast um son
sinn eftir að hann byrjaði í neyslu
harðra fíkniefna en hún hafi orðið
reið og sé það enn þegar hún heyrði
eftir lát hans að dauðaskammturinn
hafi komið frá lækni. Ég hélt alltaf
að hann fengi þetta eitur hjá dóp-
sölum á götunni. Ég gerði mér bara
ekki grein fyrir að hann gæti fengið
svona frá læknum ekki fyrr en hann
dó. Þó að ég hafi ekki nema þessar
tvær pakkningar í höndunum, þá tel
ég mig vita í hjarta mínu eftir að hafa
talað við gamla félaga og vini hans að
sonur minn sé ekki sá eini sem hann
hafi skrifað upp á lyf fyrir.“
Mjúkur þrátt fyrir neyslu
Ekki er liðið ár síðan sonur henn-
ar lést og hún syrgir hann ákaflega.
„Hann var bráðgreindur, átti mjög
auðvelt með að læra og var listrænn.
Hann fór aftur í menntaskóla á sín-
um edrútíma og þrátt fyrir að hafa
áður verið í harðri neyslu stóð hann
sig frábærlega. Hann var ekki skap-
laus, en hann var samt mjög blíður
og góður. Hann var mjög vinamarg-
ur og vel liðinn. Lögreglan sagði mér
einmitt að þrátt fyrir að hann hefði
verið í þessum harða og ógeðslega
heimi, hefði hann haft eitthvert lag
á að koma sér undan því að lenda
í einhverju stórveseni. Hann var
mjúkur hvort sem hann var í neyslu
eða ekki og aldrei ofbeldisfullur.
Sama dag og hann fékk skammt-
inn fór hann í viðtal við lækni á Vogi.
Hann var þá tilbúinn til þess að leggj-
ast inn og fara í meðferð.
„Hann hélt að hann ætti að leggj-
ast þar inn en hafði misskilið það.
Hann átti bara að mæta í viðtal. Það
var allt fullt hjá þeim. En læknirinn
uppi á Vogi átti langt viðtal við hann
og þeir komu sér saman um að hann
myndi leggjast inn nokkrum dögum
síðar. Síðan fer hann niður í Dom-
us Medica og fær þetta lyf, leysir
það upp í vatni og sprautar sig, sem
veldur því að það hægist það mikið
á önduninni að það veldur hjarta-
stoppi. Eftir að hann dó fundum
við pakkningar upp á fentanyl með
tveimur styrkleikum. Sú eldri er 75
míkrógrömm og hin er 100 míkró-
grömm sem varð síðan hans dauða-
skammtur.“
Grunaði verkjaheilkenni
Sverrir Bergmann læknir segist ein-
göngu hafa skrifað upp á fentanyl í
þeim tilgangi að hjálpa manninum
og lina verki sem hafa átt að hrjá
hann.
„Það er einfaldlega rangt að ég sé
í því að skrifa út lyf fyrir fíkla,“ seg-
ir Sverrir. „Ég kynnti mér alla sögu
þessa manns og ástæðan fyrir því
að hann kom til mín var nú kannski
svolítið einkennileg því venjulega tek
ég ekki við nýjum sjúklingum. Ég sé
eingöngu fólk sem ég hef þekkt árum
saman. Hann kom á þeim forsend-
um að ég hafði séð hann áður, en ég
hafði séð hann á gjörgæslu þegar ég
var starfandi læknir á Landspítal-
anum. Svo ég vissi um hans mál al-
veg frá upphafi. En að mínu mati var
þessi piltur með sérstakt verkjaheil-
kenni sem ég skildi að væri ástæðan
fyrir því að hann væri að nota ákveð-
ið verkjalyf en ég komst fljótt að því
að þarna var meira á bak við.“ Verkja-
heilkennið sem Sverri grunaði að
maðurinn væri með heitir Reflex
Sympathetic Dystrophy Syndrome
einkenni þess eru mjög sárir verk-
ir þegar ósjálfráða taugakerfið kem-
ur í veg fyrir eðlilega verkjamyndun.
Hún verður margföld. „Þetta er fyrst
og fremst mjög miklir verkir og með
þeim er líka röng tilfinning til dæm-
is bara snerting getur virkað eins og
óskaplegur sársauki. Það er oft mik-
il truflun á hita og kuldaskyni og það
kemur líka fram truflun á vöðahreyf-
ingum. Það koma krampar í vöðvana
og fleira. Ég skoðaði þennan dreng ít-
arlega og ég sendi hann í rannsóknir
til að vita hvað væri til ráða.“
Hræddur um fráhvarfseinkenni
Sverrir segist hafa sinnt honum í
stuttan tíma. Hann hafi leitað álits
annara lækna með hvað væri hægt
að gera til þess að taka verkina frá
honum hvort sem það hefði læknað
fíknina eða ekki og ákveðið að þessi
leið hentaði best . „Ég hitti hann fyrst
á stofu í desember 2009 ef ég man rétt
en hann hvarf mér síðan. Ég sá hann
ekki reglulega. Ég hitti hann næst í
apríl 2010 og þá var ég búinn að gera
ráðstafanir til þess að hann færi enn
einu sinni í meðferð því hann yrði
hvergi tekinn til annarar meðferð-
ar nema losna undan lyfjunum. Þá
hvarf hann mér aftur en kom aftur
til mín í júní og við gerðum eiginlega
samkomulag að hann færi í með-
ferð og á meðan hann biði eftir því
þá skrifaði ég upp á það sem var nátt-
úrulega langt frá því að vera hægt að
fyrirfara sér á.“ Hann skrifaði upp á
fentanýl plástra en fentanýl er ópíóíð
verkjalyf og er skylt morfíni. „Það er
ósköp einfalt að maður tekur plást-
urinn á þriggja sólarhringa fresti. Ég
ákvað að hafa bara mánuð í einu. Ég
gerði þetta í júní og aftur í júlí og svo
í ágúst var hann á leið í meðferð og
þar með var þessu bara lokið. Hann
hringdi í mig skömmu áður en hann
dó og sagði mér að hann stæði við
orð sín og ætlaði að fara í meðferð.
Ég tilkynnti honum að hann yrði að
gera það því að ég myndi ekki skrifa
fyrir hann lyfseðil nokkurn tímann
aftur og hann yrði að fara í meðferð.
Ástæðan fyrir því að ég ávísaði hon-
um þessu lyfi í þennan tíma, var sú
að ég var hræddur um að hann lenti
í alvarlegum fráhvarfseinkennum.
Svo ég kaus heldur að fara þessa leið.
Þetta skýrði ég mjög ítarlega fyrir
honum sem og áhættuna sem fylgdi
því og þess háttar. Þetta voru löng
viðtöl og ég reyndi að gera allt sem
ég mögulega gat fyrir þennan dreng.“
„Þessi drengur var fíkill“
Aðspurður hvort sér finnist ekki
ábyrgðarlaust að skrifa upp á mor-
fínlyf handa einstaklingi sem ætti sér
langa sögu um fíkniefnanotkun, seg-
ir hann þetta vera eina skiptið á sín-
um langa ferli sem hann hafi staðið
í frammi fyrir slíku. „Þessi drengur
var fíkill en hann var að mínu mati
illa haldinn. Mér fannst að það yrði
að láta rannsaka hann til að vita
hvort að ég væri með rétta grein-
ingu í höndunum. Það tók einhverja
tvo mánuði og hann fékk ekki mikið
uppáskrifað á meðan. Ekkert um-
fram það sem telst hættulegt, langt
frá því.“ Þegar blaðamaður spyr hvort
FÉKK DAUÐASKAMMTINN HJÁ LÆKNINUM
n Fór í hjartastopp inni á Domus Medica eft-
ir að hafa sprautað sig með lyfinu fentanyl
n Móðir syrgir ljúfan dreng n Læknirinn
segist hafa talið sig vera að hjálpa honum
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
„Ég hélt alltaf að
hann fengi þetta
eitur hjá dópsölum á
götunni. Ég gerði mér
bara ekki grein fyrir að
hann gæti fengið svona
frá læknum ekki fyrr en
hann dó.
Heiðursorða Sverrir Bergmann læknir var
sæmdur fálkaorðunni síðastliðinn föstudag
fyrir störf sín í þágu MS-sjúklinga og á vett-
vangi heilbrigðismála og læknavísinda.
Lést ungur Af neyslu læknadóps.