Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2011, Síða 40
40 | Minning Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kgk@dv.is 24.–26. júní 2011 Helgarblað
Ólafur Gaukur
Þórhallsson
tónlistarmaður, hljómsveitarstjóri og tónskáld f. 11.8. 1930, d. 12.6. 2011
merkir íslendingar
Séra Pétur fæddist á Akur-eyri og ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskól-
anum á Akureyri 1971
og guðfræðiprófi
frá Háskóla íslands
1976.
Pétur vígðist
sem sóknarprestur
til Hálsprestakalls
i Þingeyjarpró-
fastsdæmi 1976 og
þjónaði þar til árs-
ins 1982, er hann
varð sóknarprestur á
Möðruvöllum í Hörg-
árdal. Þar þjónaði hann
næstu sjö árin en var þá
kjörinn sóknarprestur Gler-
árprestakalls á Akureyri.
Vegna veikinda varð hann að
láta af því starfi í ársbyrjun 1991, en
sama ár var Pétur kjörinn sóknar-
prestur Laufássprestakalls í Þingeyj-
arprófastsdæmi og þjónaði því síð-
an meðan heilsa hans entist. Hann
var skipaður prófastur Þingeyjarpró-
fastsdæmis 1999 og sinnti því emb-
ætti til 2006.
Pétur sat á Kirkjuþingi á árun-
um 1998–2002 sem fulltrúi Eyja-
fjarðar- og Þingeyjarprófastsdæma.
Hann starfaði mikið að æskulýðs-
málum innan kirkjunnar sem og að
málefnum ungmennahreyf-
ingarinnar og gegndi trún-
aðarstörfum fyrir sauð-
fjárbændur.
Árið 1996 kom út
bókin Lífskraftur,
baráttusaga séra
Péturs og Ingu í
Laufási, þar sem
m.a. er fjallað um
langa sjúkdóms-
sögu Péturs, sorg-
ir þeirra og sigra,
en hann greind-
ist með sykursýki á
háu stigi er hann var
níu ára gamall. Hann
var í hópi allra vinsæl-
ustu sóknarpresta hér á
landi en útför hans frá Ak-
ureyrarkirkju mun vera ein fjöl-
mennasta útför sem þar hefur farið
fram. Hann var jarðsettur að Laufási.
Eftirlifandi eiginkona Péturs er
Ingibjörg Svafa Siglaugsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur sem var umsjónar-
maður Gamla bæjarins í Laufási.
Ingibjörg og Pétur eignuðust þrjú
börn: Þórarin Inga, f. 1972, Jón Helga,
f. 1974, og Heiðu Björk, f. 1985.
Pétur var sonur Þórarins S. Hall-
dórssonar, stýrimanns og síðar frysti-
hússtjóra hjá KEA, og konu hans,
Elínar Jónsdóttur kennara.
Séra Pétur Þórarinsson
prófastur í Laufási f. 23.6. 1951, d. 1.3. 2007
Merkir Íslendingar
Merkir Íslendingar
Gestur fæddist í Laugarnesi við Reykjavík. Hann stundaði nám við Handíða- og myndlista-
skólanum 1944–46, Kunstaka-
demiet í Kaupmannahöfn
1946–47 og lauk teikni-
kennaraprófi frá Hand-
íðaskólanum 1953.
Gestur kom víða
við á langri ævi en
sinnti listinni all-
an sinn starfsfer-
il. Hann stofnaði
og starfrækti leir-
brennsluna Laug-
arnesleir í Reykja-
vík 1947–52 og
síðan aftur frá 1969,
ásamt konu sinni,
Sigrúnu Guðjóns-
dóttur. Hann var teikni-
kennari við Barnaskóla
Hafnarfjarðar, myndlistar-
kennari í Flensborgarskólan-
um, vann að gamanleik og skemmti-
söng á árunum 1953–59 og að gerð
útvarpsþátta 1954–60, var starfs-
maður Fræðslumyndasafns ríkis-
ins 1956–63 og kenndi við Kenn-
araskóla Íslands 1957–77 og síðan
lektor við Kennaraháskóla Íslands
1977–85. Hann vann með öðrum að
kvikmyndagerð á árunum 1963–70.
Hann hélt þó nokkrar einka-
sýningar, þar af þrjár er-
lendis, og tók þátt í ýms-
um samsýningum.
Gestur var gisti-
prófessor við
háskólann í
Saskatoon í Sas-
katchewan í Kan-
ada sumarið 1972,
setti upp leir-
munaverkstæði
við Kleppsspítal-
ann og leiðbeindi
sjúklingum þar
1972–76 og veitti
forstöðu gagna-
smiðju KHÍ 1979–85.
Gestur var höfund-
uru bókarinnar Maður
lifandi, endurminningar í
söguformi, 1960.
Meðal opinberra verka Gests eru
höggmynd fyrir utan KHÍ, Hamar við
lækinn í Hafnarfirði, og utanhúss-
skreyting á Íþróttaleikvanginum í
Laugardal.
Gestur Þorgrímsson
myndlistarmaður og kennari f. 27.6. 1920, d. 7.1. 2003
Ólafur Gaukur fæddist í Reykja-vík. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akur-
eyri 1949, stundaði tónsmíða- og gít-
arnám hjá Sigurði Briem, Jóni Ás-
geirssyni, Helga Jacobsen, Atla Heimi
Sveinssyni og fleirum og tónsmíð-
anám við Tónlistarskólann í Reykja-
vík, lauk prófum tónsmíðum frá Dick
Grove School of Music í Los Angeles
1984 og prófi í kvikmyndatónlist og
tónsmíðum frá sama skóla 1988.
Ólafur Gaukur stundaði blaða-
mennsku frá unga aldri, s.s. við dag-
blaðið Tímann um tveggja ára skeið,
við vikublaðið Vikuna með hléum á
árunum 1950–60 og var aðstoðarrit-
stjóri VR Blaðsins, félagsrits Verslun-
armannafélags Reykjavíkur á árunum
1983–2002. Auk þess var hann ritstjóri
ýmissa blaða og tímarita, en hann
var einungis tíu ára er hann ritstýrði,
samdi og dreyfi sínu fyrsta blaði,
Stjörnunni.
Ólafur Gaukur var einn helsti
brautryðjandi dægurlagatónlistar
hér á landi frá því um miðja síðustu
öld, sem gítarleikari, lagahöfundur,
hljómsveitarstjóri, útsetjari, textahöf-
undur, plötuútgefandi og kennari.
Hann stofnaði sitt fyrsta tríó, fimmtán
ára, var farinn að leika með vinsæl-
ustu danshljómsveitum landsins á
menntaskólaárunum, s.s. KK-sextett-
inum og stýrði auk þess eigin hljóm-
sveitum um langt árabil en þeirra
þekktust var Sextett Ólafs Gauks og
Svanhildur en sú hljómsveit kom
fram í fjölda sjónvarpsþátta, gerði
eigin sjónvarpsþætti og sendi frá sér
hljómplötur.
Ólafur Gaukur stofnaði Gítarskóla
Ólafs Gauks árið 1975 og starfrækti
hann til æviloka.
Ólafur Gaukur samdi tónlist fyr-
ir sjónvarp og kvikmyndir en tónlist
hans í íslensku kvikmyndinni Benja-
mín dúfa var útnefnd til verðlauna
á Berlin Film Festival í Þýskalandi
árið 1996. Hann hlaut heiðursverð-
laun íslensku tónlistarverðlaunanna
árið 2006, var sæmdur hinni íslensku
fálkaorðu 2008 og kjörinn heiðurs-
félagi Félags tónskálda og textahöf-
unda sama ár. Árið 2009 var hann
sæmdur Gullnöglinni af gítarleikur-
um.
Fjölskylda
Ólafur Gaukur kvæntist 8.6. 1963
Svanhildi Jakobsdóttur, f. 23.11. 1940,
söngkonu.
Börn Ólafs Gauks og Svanhildar
eru Andri Gaukur, f. 11.8. 1963, skurð-
læknir í Bandaríkjunum; Anna Mjöll,
f. 7.1. 1970, söngkona í Bandaríkjun-
um.
Fyrri kona Ólafs var Inga Einars-
dóttir, f. 27.5. 1930.
Börn Ólafs og Ingu eru Bergþóra, f.
17.10. 1949; Ragnhildur, f. 14.1. 1951;
Ingibjörg, f. 3.3. 1952, d. 17.4. 2008;
Ingunn, f. 3.2. 1954; Hlöðver Már, f.
31.5. 1959.
Dætur Ólafs Gauks og Jórunn-
ar Marý Ingvarsdóttur, f. 19.11. 1934,
d. 17.5. 1992, eru Aðalbjörg María, f.
12.3. 1953; Inga Sigrún, f. 12.3. 1953.
Systkini Ólafs: Dóra Gígja, f. 26.7.
1933, húsmóðir, giftist Andrési Reyni
Kristjánssyni, f. 24.2. 1931, d. 31.8.
2007, forstjóra Fönix, og eignuð-
ust þau þrjú börn; Ólafía Guðlaug, f.
22.12. 1936, húsmóðir en eiginmaður
hennar er Pálmi Steinar Sigurbjörns-
son, f. 16.12. 1931, stýrimaður og
eignuðust þau tvö börn; Einar Garð-
ar, f. 10.7. 1946, gullsmiður og á hann
eina dóttur.
Foreldrar Ólafs Gauks voru Þór-
hallur Þorgilsson, f. í Knarrarhöfn í
Hvammssveit í Dalasýslu 3.4. 1903,
d. 23.7. 1958, magister í rómönskum
málum, löggiltur skjalaþýðandi og
dómtúlkur í spænsku og frönsku og
bókavörður við Landsbókasafn Ís-
lands, og k.h., Bergþóra Einarsdóttir,
f. í Garðhúsum í Grindavík 27.4. 1908,
d. 1.10. 1989, húsmóðir.
Ætt
Meðal systkina Þórhalls voru Egill,
skipstjóri á Tröllafossi, Helga, yfir-
kennari við Melaskóla, Steinunn,
húsfreyja á Breiðabólsstað, móð-
ir Friðjóns Þórðarsonar, alþm. og
ráðherra, föður Þórðar heitins, for-
stjóra Kauphallarinnars, en Stein-
unn var einnig móðir Guðbjargar,
móður Þorgeir Ástvaldssonar dag-
skrárgerðarmanns, og loks Fríða,
móðir Auðar Eydal leiklistargagn-
rýnanda, konu Sveins Eyjólfssonar,
fyrrv. stjórnarformanns DV. Þórhall-
ur var sonur Þorgils, oddvita í Knarr-
arhöfn Friðrikssonar, b. á Orms-
stöðum og Hofakri Þorgilssonar, b. í
Fremri-Hundadal Halldórssonar, b.
á Hvoli í Saurbæ Jónssonar. Móðir
Þorgils í Fremri-Hundadal var Helga
Andrésdóttir. Móðir Friðriks var Ingi-
björg ljósmóðir, systir Jóns á Kleif-
um, afa Snæbjörns Kristjánssonar í
Hergilsey. Annar bróðir Ingibjargar
var Vigfús, langafi Björns Guðfinns-
sonar prófessors, föður Fríðu, fyrrv.
framkvæmdastjóra Blaðamanna-
félagsins. Systir Björns var Agnes,
móðir Björns, fyrrv. skólastjóra
Hagaskólans. Þriðji bróðir Ingibjarg-
ar var Guðmundur, langafi Kristjönu,
ömmu Garðars Cortes söngvara.
Ingibjörg var dóttir Orms, ættföður
Ormsættarinnar Sigurðssonar. Móð-
ir Þorgils var Helga Jónsdóttir, snikk-
ara á Berserkjahrauni, bróður Önnu,
langömmu Jónasar, föður Eyjólfs,
hestamanns á Sólheimum í Laxárdal.
Jón var sonur Þórðar, pr. í Hvammi
í Norðurárdal Þorsteinssonar, pr. í
Hvammi Þórðarsonar. Móðir Þórð-
ar var Margrét Pálmadóttir, lrm. á
Breiðabólstað Sigurðssonar.
Móðir Þórhalls var Halldóra
Ingibjörg Sigmundsdóttir, syst-
ir Jóns Sigmundssonar gullsmiðs.
Halldóra Ingibjörg var dóttir Sig-
mundar, b. á Skarfsstöðum, hálf-
bróður, sammæðra, Friðriks, föður
Þorgils. Sigmundur var sonur Gríms,
b. í Hvammsdal Guðmundssonar, b. í
Hvammsdal Jónssonar. Móðir Gríms
var Guðríður Guðmundsdóttir. Móð-
ir Sigmundar var Ingibjörg ljósmóð-
ir. Móðir Halldóru Ingibjargar var
Steinunn Jónsdóttir, b. og meðhjálp-
ara á Breiðabólstað Jónssonar, eldri
Ásgeirssonar, b. á Orrahóli Björns-
sonar. Móðir Jóns á Breiðabólstað
var Halldóra Jónsdóttir. Móðir Stein-
unnar var Halldóra Þórðardóttir, b.
í Blönduhlíð í Hörðudal Þórðarson-
ar, b. á Ljárskógum Jónssonar. Móð-
ir Halldóru var Guðríður Þorsteins-
dóttir.
Bergþóra var dóttir Einars Guð-
jóns, hreppstjóra, kaupmanns
og útvegsmanns í Garðhúsum í
Grindavík, bróður Dagbjarts, útgerð-
armanns í Grindavík, afa Dagbjarts
Einarssonar útgerðarmanns og fyrrv.
formanns SÍF. Systir Einars Guðjóns
var Jóhanna, amma Erlu, konu Krist-
jáns í KK, og móður Péturs heitins
Kristjánssonar, söngvara í Pelican,
en systir Erlu er Svala, kona Stein-
gríms Steingrímssonar píanóleikara
(Steina spil). Jóhanna var auk þess
langamma Ásgeirs Hannesar Eiríks-
sonar, fyrrv. alþm. Einar Guðjón var
sonur Einars, útvegsb. hreppstjóra
og dbrm. í Garðhúsum í Grindavík,
bróður Þorláks, langafa Steingríms
Hermannssonar forsætisráðherra og
þeirra Bergsteins brunamálastjóra
og Sigurðar, lögmanns og fyrrv. bæj-
arfógeta Gizurarsona. Annar bróðir
Einars var Sæmundur, faðir Bjarna
fiskifræðings, afa Bjarna, forstjóra
Byggðastofnunar og Guðmundar,
forstöðumanns Skipaútgerðar rík-
isins Einarssona. Sæmundur var
einnig faðir Margrétar, ömmu Ell-
erts Eiríkssonar bæjarstjóra og Guð-
laugs ríkissáttasemjara og Tómasar
útgerðarmanns Þorvaldssona. Einar
kaupmaður var sonur Jóns, drbm. og
útvegsb. á Húsatóftum í Grindavík,
ættföður Húsatóftaættar Sæmunds-
sonar. Móðir Einars var Margrét Þor-
láksdóttir, bókbindara á Húsatóftum
Björnssonar og Kristrúnar Einars-
dóttur. Móðir Einars í Garðhúsum
var Guðrún Sigurðardóttir, b. í Götu
í Selvogi og síðast í Krísuvík Gísla-
sonar, Sigríðar Jónsdóttur.
Móðir Bergþóru var Ólafía Ás-
bjarnardóttir, .
Móðir Ólafíu var Ingveldur, syst-
ir Sigríðar, ömmu Guðna, rektors
Menntaskólans í Reykjavík, Gunnars,
framkvæmdastjóra Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands, og Bjarna blaðafull-
trúa Guðmundssona. Sigríður var
einnig amma Sigurðar Sigurðssonar
sem var fægasti íþróttafréttamaður
þjóðarinnar upp úr miðri síðustu öld.
Ingveldur var dóttir Jafets, gullsmiðs í
Pálsbæ á Seltjarnarnesi, bróður Ingi-
bjargar, konu Jóns forseta Sigurðs-
sonar. Jafet var sonur Einars, kaup-
manns í Reykjavík Jónssonar, bróður
Sigurðar, pr. á Hrafnseyri, föður Jóns
forseta.
Útför Ólafs Gauks fór fram frá
Dómkirkjunni sl. mánudag.
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 – www.utforin.is – Allan sólarhringinn
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Jón G. BjarnasonHermann Jónasson
Andlát