Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Síða 26
26 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 12.–14. ágúst 2011 Helgarblað
H
arpa fæddist á Akureyri
en ólst upp í Vogum við
Hofsós. Hún var í Grunn-
skólanum á Hofsósi,
stundaði nám við Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki, stundaði síðan nám
við Viðskipta- og tölvuskólann í
Reykjavík og lauk þaðan prófum
2001.
Harpa ólst upp við öll almenn
sveitastörf í Vogum. Hún stundaði
verslunarstörf við dýraverslunina
Furðufuglar og fylgifiskar í Reykja-
vík og í Mosfellsbæ á árunum 2003–
2005. Hún stofnaði eigin gælu-
dýraverslun á Ísafirði árið 2005 og
starfrækti hana í eitt ár þar til hún
seldi verslunina.
Harpa flutti frá Ísafirði í Kópa-
vog árið 2006 en hefur verið búsett
í Reykjanesbæ frá 2010. Hún hefur
stundað hundrækt frá 2002. Harpa
starfar með Hundaræktarfélagi Ís-
lands.
Fjölskylda
Unnusti Hörpu er Sveinn Gunnar
Jónsson, f. 8.8. 1976, stálsmiður.
Hálfbræður Hörpu, samfeðra,
eru Þorleifur Þorbjörnsson, f. 16.7.
1990; Ómar Logi Þorbjörnsson, f.
28.4. 1994; Aron Þorbjörnsson, f.
19.9. 1997; Jón Birkir Þorbjörnsson,
f. 12.11. 2002.
Hálfbræður Hörpu, sammæðra,
eru Daníel Eggertsson, f. 26.1. 1992;
Grétar Þór Jónsson, f. 7.3. 1997.
Foreldrar Hörpu: Þorbjörn Jóns-
son, f. 23.1. 1958, vélstjóri á línu-
bátnum Jóhönnu Gísladóttur RE,
búsettur á Akranesi, og Alda Jó-
hanna Stangeland, f. 10.7. 1964, d.
25.6. 2005, listakona í Reykjavík. Eig-
inkona Þorbjörns og fósturmóðir
Hörpu er Eyrún Helga Þorleifsdóttir,
f. 2.9. 1966, hárgreiðslukona og
kennari á Akranesi.
B
jörn Grétar fæddist í Sigurð-
arhúsi á Eskifirði. Hann lauk
prófi frá Gagnfræðaskóla
Reykjavíkur 1949 og versl-
unarskólaprófi frá Verslun-
arskóla Íslands 1952, lauk kennara-
skólaprófi frá Kennaraskóla Íslands
1955, var í Norska kennaraháskól-
anum á Hlöðum í Þrándheimi 1958–
59, lauk handavinnukennaraprófi frá
Kennaraskóla Íslands 1967 og prófi
í talkennslu í Norska sérkennslu-
kennaraskólanum í Ósló 1973.
Björn var kennari við Barna- og
unglingaskólann á Búðum í Fá-
skrúðsfirði 1955–56, var með Reykja-
víkurumboð Tryggingastofnunar
ríkisins, lífeyrisdeild 1956–58, var
kennari við Barna- og unglingaskól-
ann í Grindavík 1959–60, kennari á
Reyðarfirði, við Barna- og unglinga-
skólann á Búðareyri í Reyðarfirði
1960–61, var kennari við Vogaskóla
í Reykjavík 1961–63, kennari við
Barna- og unglingaskólann á Höfn
í Hornafirði 1963–64, kennari við
Barna- og unglingaskólann á Búðar-
eyri í Reyðarfirði 1964–65 og aftur
1967–71 og var auk þess kennari
við miðskólann Reyðarfirði 1970–
71, kennari við Ármúlaskóla (Gagn-
fræðaskóla verknámsins) 1971–72 og
frá 1973 og til starfsloka, 1998, og var
hann talkennari í Reykjavíkurskóla-
héraði við ýmsa skóla.
Björn vann einnig margs kon-
ar sumarstörf og var til að mynda
stöðumælavörður hjá Bílastæðasjóði
Reykjavíkurborgar í fimm sumur.
Björn hefur verið virkur þátttak-
andi í félagsstörfum en ekki verða
þau öll tíunduð hér. Meðal félaga
sem hann starfaði í eru barna-
stúkan á Fáskrúðsfirði, Framtíðin
(æðstitemplar) frá 1986, Þingstúka
Reykjavíkur, Stórstúka Íslands, Bind-
indisfélag Kennaraskólans, Sam-
band bindindisfélaga í skólum,
Samtök skólamanna um bindindis-
fræðslu, Kristilegt sjómannastarf,
Kristinboðsfélag karla, KFUM og
Gíd eonfélagið.
Fjölskylda
Björn kvæntist 21.12. 1970 Björgu
Aasen, f. 16.1. 1940, forskólakenn-
ara. Foreldrar Bjargar voru Hallvor
Aasen, bóndi á Aasen á Þelamörk, og
k.h., Tone, f. Gulbek, sem bæði eru
látin. Björn og Björg skildu árið 1994.
Börn Björns og Bjargar eru Veró-
nika, f. 23.9. 1973, móttökuritari við
Domus Medica, búsett í Reykjavík,
er gift Jose Manuel C. Salvador, vél-
smið, og eru börn þeirra Alexand-
er Nigel Salvador, Antoníó Kristófer
Salvador, Helena Marína Salvador og
Valentína Rósa Salvador; Una Tone,
f. 8.1. 1977, búsett í Reykjavík; Grétar
Páll, f. 8.1. 1979, starfsmaður hjá Ísa-
foldarprentsmiðju, búsettur í Reykja-
vík en sonur hans er Víkingur Glói.
Foreldrar Björns voru Eiríkur Ei-
ríksson, f. 7.9. 1896, d. 12.12. 1973,
sjómaður á Eskifirði, og k.h., Ásta
Verónika Björnsdóttir, f. 20.7. 1893,
d. 16.10. 1984, húsmóðir.
Ætt
Eiríkur var sonur Eiríks, vefara á Eski-
firði Arasonar, bróður Ragnheiðar,
móður Björgólfs Stefánssonar, skó-
kaupmanns. Móðir Eiríks Eiríks-
sonar var Kristín Magnúsdóttir, b. á
Hvammi í Fáskrúðsfirði Árnasonar,
langafa Ingimars Eydals, Finns Eydals
og Gunnars Eydals, skrifstofustjóra
hjá Reykjavíkurborg. Móðir Kristínar
var Rósa Jónsdóttir, b. á Hvammi
Árnasonar, bróður Steinunnar, ömmu
Eysteins, fyrrv. ráðherra, og Jakobs,
sóknarprests í Reykjavík Jónssona,
föður Þórs veðurfræðings, Svövu rit-
höfundar og Jökuls leikritaskálds, föð-
ur Elísabetar skáldkonu og rithöfund-
anna Illuga og Hrafns.
Ásta var dóttir Björns, bókbindara
og hreppstjóra á Sléttu í Reyðarfirði
Jónssonar, pr. á Stað, bróður Þor-
kels, afa Óskars Clausen rithöfund-
ar, og langafa Lúðvíks Kristjánsson-
ar, sagnfræðings og rithöfundar, og
Arnar Clausen hrl. og Hauks Clausen
tannlæknis, en annar bróðir Jóns var
Gísli, faðir Eyjólfs, söðlasmiðs og b. í
Borgarfirði auk þess sem systir Jóns
var Ágústína Jóhanna skáldkona. Jón
var sonur Eyjólfs, pr. í Snóksdal Gísla-
sonar, pr. á Breiðabólstað Ólafssonar,
biskups í Skálholti Gíslasonar. Móð-
ir Jóns var Guðrún Jónsdóttir, pr.og
skálds á Bægisá Þorlákssonar, og Mar-
grétar Bogadóttur, bróður Benedikts,
föður Boga fræðimanns, ættföður
Staðarfellsættar. Móðir Björns var
Sigríður Oddsdóttir, b. á Atlastöðum
Jónssonar, bróður Ólafs, langafa Ingi-
bjargar, móður Þorleifs Bjarnasonar
námsstjóra. Móðir Sigríðar var Guð-
rún, systir Þorleifs, langafa Örnólfs,
föður Þorvarðar, fyrrv. framkvæmda-
stjóra Krabbameinsfélagsins. Þorleif-
ur er einnig langafi Kristjáns, langafa
Ólafs Hjartar. Guðrún var dóttir Þor-
kels, b. í Gelti Jónssonar, b. á Vöðl-
um Þorleifssonar, b. á Hóli Jónssonar.
Móðir Þorleifs var Guðlaug Jónsdótt-
ir, b. í Hjarðardal Jónssonar, og Krist-
ínar Þorleifsdóttur, smiðs í Hjarðardal
Sveinssonar, bróður Brynjólfs biskups.
Móðir Ástu var Siggerður, systir
Bóasar, föður Páls, afa Harðar Einars-
sonar framkvæmdastjóra, og Kjartans
Gunnarssonar, fyrrv. framkvæmda-
stjóra Sjálfstæðisflokksins.
Björn G. Eiríksson
Sérkennari og talkennari í Reykjavík
Harpa Þorbjörnsdóttir
Húsmóðir í Reykjanesbæ
30 ára á föstudag
80 ára á sunnudag
S
veinbjörn fæddist á Sel-
fossi en ólst upp á Hvols-
velli. Hann var í Hvols-
skóla, stundaði nám við
Fjölbrautaskóla Suður-
lands á Selfossi og lauk þaðan
prófum í vélvirkjun, lauk síðan
sveinsprófi í vélvirkjun og stundar
nú meistaranám í greininni.
Sveinbjörn var í unglingavinnu
á Hvolsvelli á grunnskólaárunum,
starfaði hjá byggingarfyrirtækinu
Krappa um skeið og síðan hjá verk-
takafyrirtækinu Jóni og Tryggva.
Hann hefur starfað við Vélsmiðj-
una á Hvolsvelli sl. tíu ár.
Sveinbjörn hefur starfað með
björgunarsveitinni Dagrenningu á
Hvolsvelli frá 1996.
Fjölskylda
Eiginkona Sveinbjörns er Árný Jóna
Sigurðardóttir, f. 13.9. 1978, leikskóla-
kennari og aðstoðarleikskólastjóri á
Hvolsvelli.
Börn Sveinbjörns og Árnýjar Jónu
eru Emelía Sif Sveinbjörnsdóttir, f.
25.7. 2005; Sigurður Kári Sveinbjörns-
son, f. 18.5. 2008; Oddný Sif Svein-
björnsdóttir, f. 7.6. 2010.
Systur Sveinbjörns eru Guðrún
Ósk Birgisdóttir, f. 23.5. 1971, ritari hjá
sýslumanni Rangárvallasýslu, búsett á
Hvolsvelli; Guðfinna Björk Birgisdóttir,
f. 23.7. 1974, ritari hjá sýslumanninum
á Eskifirði.
Foreldrar Sveinbjörns eru Pálína
Svanhvít Guðbrandsdóttir, f. 21.11.
1951, starfsmaður hjá prjónastofunni
Glófa á Hvolsvelli, og Birgir Óskarsson,
f. 8.9. 1950, starfsmaður hjá trésmíða-
fyrirtækinu Húskörlum á Hvolsvelli.
Sveinbjörn Már Birgisson
Vélvirki á Hvolsvelli
30 ára á föstudag
S
ævar fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hann var
í Melaskóla, Æfingadeild
Kennaraháskóla Íslands
og Rimaskóla og stundaði
nám við Einholtsskóla og var síðan í
menntaskóla í Hollandi, The Amer-
ican School of den Haag.
Sævar starfaði hjá B&L um skeið
þar sem hann hafði umsjón með
notuðum bifreiðum, vann hjá N1 um
tíma og var vaktstjóri hjá verslunum
10-11 en starfaði síðan við sambýli í
Reykjavík.
Sævar hefur
stundað golf í tíu
ár.
Fjölskylda
Systkini Sævars
eru Þórey Björk
Sigurðardótt-
ir, f. 15.12. 1977,
starfsmaður við
hótel í Reykjavík.
Foreldrar Sævars eru Sigurður
Pálmason, f. 25.7. 1956, starfsmaður
hjá IKEA í Hollandi, og Inga Árna-
dóttir, f. 27.2. 1958, starfsmaður hjá
IKEA í Hollandi.
Sævar Pálmi Sigurðsson
Starfsmaður við sambýli í Reykjavík
30 ára á laugardag
Ó
Ólafía er fædd í Reykjarfirði
og ólst þar upp í foreldrahús-
um. Hún var við nám í hús-
stjórnarfræðum að Löngu-
mýri í Skagafirði.
Ólafía var aðstoðarmatráðskona
á Reykjalundi í einn vetur og ráðs-
kona við Barna- og héraðsskólann
á Reykjanesi í tvo vetur en var síð-
an um árabil húsfreyja á gestkvæmu
prestsheimili í Vatnsfirði.
Ólafía hefur setið í stjórn Kven-
félagsins Sunnu um langt árabil og
verið endurskoðandi sveitarsjóðs og
átt sæti í sveitarstjórn.
Fjölskylda
Ólafía giftist 6.10. 1957 Baldri Vil-
helmssyni, f. 22.7. 1929, presti og
síðar prófasti í Vatnsfirði. Foreldrar
hans voru Vilhelm Erlendsson, póst-
afgreiðslumaður á Hofsósi, og k.h.,
Hallfríður Pálmadóttir húsfreyja.
Börn Ólafíu og Baldurs eru Hall-
fríður, f. 25.9. 1957, bókasafnsfræð-
ingur; Ragnheiður, f. 6.10. 1958, póst-
hússtjóri á Ísafirði, gift Kristjáni B.
Sigmundssyni vélstjóra og eiga þau
tvö börn, Ólafíu og Baldur; Þorvald-
ur, f. 5.11. 1959, lengi bifreiðastjóri,
búsettur í Reykjavík; Stefán Oddur,
f. 5.4. 1966, búsettur í Njarðvík; Guð-
brandur, f. 2.5. 1968, veitingamaður á
Ísafirði og á hann einn son.
Ólafía átti áður Evlalíu S. Krist-
jánsdóttur, f. 1.6. 1951, gift Jóhanni
H. Jónssyni húsgagnasmið og eiga
þau fjóra syni, Salvar, Jón Svan, Krist-
ján Heiðar og Ragnar Karl.
Systkini Ólafíu: Gróa Jóhanna,
fyrrv. símstjóri á Arngerðareyri, var
gift Halldóri Víglundssyni sem er lát-
inn, smiði og vitaverði á Dalatanga
og Hornbjargsvita; Hákon, fyrrv.
bóndi og hreppstjóri í Reykjarfirði
við Djúp, kvæntur Steinunni Ingi-
marsdóttur; Sigríður, fyrrv. húsfreyja
í Vigur, ekkja eftir Baldur Bjarnason,
bónda og hreppstjóra í Vigur; Arn-
dís, ljósmóðir, gift Júlíusi Jónssyni,
bónda í Norðurhjáleigu í Álftaveri.
Foreldrar Ólafíu voru Salvar
Ólafsson, f. 4.7. 1888, d. 3.9. 1979,
bóndi í Reykjarfirði við Djúp, og k.h.,
Ragnheiður Hákonardóttir, f. 16.8.
1901, d. 19.5. 1977, húsfreyja.
Ætt
Salvar var sonur Ólafs, b. í Reykjar-
firði Jónssonar, og k.h., Evlalíu Krist-
jánsdóttur húsfreyju.
Ragnheiður var dóttir Hákonar
Magnússonar. Móðir Hákonar var
Arndís, systir Ragnheiðar, móður
Jóns Leifs. Arndís var einnig systir
Böðvars, föður Bjarna hljómsveitar-
stjóra, föður Ragnars söngvara.
Annar bróðir Arndísar var Þórður,
kaupmaður í Reykjavík, faðir Reg-
ínu leikkonu og Sigurðar tónskálds,
föður Þórðar, fyrrv. forstöðumanns
Reiknistofnunar bankanna. Arndís
var dóttir Bjarna, b. á Reykhólum
Þórðarsonar.
Ólafía Salvarsdóttir
Húsfreyja í Vatnsfirði við Ísafjarðardjúp
80 ára á föstudag