Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Blaðsíða 6
6 Fréttir 20.–22. janúar 2012 Helgarblað Átakatímar fram undan n Séra Sigríður boðar framboð S éra Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Guðríðar- kirkju, varð á miðvikudag fyrst til þess að stíga fram sem kandídat til biskupsframboðs. Sig- ríður segist hlakka til næstu mán- aða en greinir þó nokkurn kvíða og veit að þeir verða stormasamir. „Ég geri mér grein fyrir því að það eru átakamánuðir fram undan en líka áhugaverðir. Það sem mér finnst mest spennandi er að fá að fara og kynnast fólki og upplifa söfnuðina í ólíkum myndum. Vissulega er ég kvíðin fyrir því sem fram undan er, en ég er líka spennt. Þetta verður hörkuvinna.“ Hún segist finna fyrir miklum stuðningi í embættið, en Sigríður er aðeins önnur konan sem býður sig fram í til biskups á Íslandi, en þrjár konur hafa boðið sig fram til vígslu- biskups. Margir hafa rætt að nú sé tími kvenna kominn. „Hver kona þarf að hafa stefnu og hæfni til að framfylgja stefnunni,“ segir hún. „En Ísland hefur aldrei vígt kven- kyns biskup. Það er mikilvægt að kirkjan sé bæði fyrir karla og kon- ur.“ Sigríður boðar ákveðið uppgjör á því sem aflaga hefur farið í mál- efnum kirkjunnar. „Við þurfum meðal annars að taka á þeim ömur- lega veruleika sem kynferðisofbeldi er og taka virkan þátt í að uppræta það,“ segir hún og segir að eitt af fyrstu verkefnunum yrði að gera upp fortíðina, verði hún kjörin. Sig- ríður segir að undir stefnu hennar sé von hennar að meira rúm skapist fyrir ólík fjölskyldumynstur innan þjóðkirkjunnar, svo sem samkyn- hneigða og einstæða foreldra. „Ég held að íslenska þjóðin hafi breyst mikið að undanförnu. Hún hefur auðvitað orðið fyrir miklum áföll- um. En ég held líka að fjölhyggjan hafi þýtt það að við erum fjölbreytt- ari og þurfum að taka tillit til fleiri skoðana. Ég held að það sé lands- lag sem kirkjan þarf að tala inn í,“ segir hún. astasigrun@dv.is Kletthálsi 7 - Reykjavík Fuglavík 18 - Reykjanesbæ Furuvöllum 15 - Akureyri Pallettu tjakkur EP Pallettu-tjakkur 2 tonna lyftigeta 31.990,- Stal hjólbarða undan bifreið Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann á nítjánda aldursári í skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela hjólbarða og felgu undan bifreið. Atvikið átti sér stað í byrjun nóvember í fyrra en um- rædd bifreið, sem er af gerðinni Subaru Impreza, stóð við bílasölu Toyota við Baldursnes á Akureyri. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi en hann hefur áður komist í kast við lögin. Árið 2009 var hann dæmdur fyrir líkamsárás og í tví- gang hefur hann hlotið dóma fyrir umferðarlagabrot, þar á meðal fíkniefna- og ölvunarakstur. Fang- elsisdómurinn yfir manninum er skilorðsbundinn til tveggja ára. Verslunarmenn reiðir ríkisstjórn „Þá mun það lengi í minnum haft að ríkisstjórn, sem kennir sig við norræna velferð, skuli svíkja gefin loforð um þá hækkun atvinnu- leysisbóta og aðrar hækkanir almannatrygginga, sem um var samið.“ Þetta kemur fram í yfir- lýsingu sem Landssamband ís- lenskra verzlunarmanna (LÍV) sendi frá sér á fimmtudag. Í yfir- lýsingunni kemur fram að stjórnin lýsi sárum vonbrigðum með að ríkisstjórnin hafi ekki staðið við þau fyrirheit sem gefin voru með yfirlýsingu hennar við gerð kjara- samninga hinn 5. maí í fyrra. „Vill stjórnin benda sérstak- lega á að sú aðför sem gerð er að almennu lífeyrissjóðunum gengur þvert á gefin fyrirheit um jöfnun lífeyrisréttinda á íslenskum vinnu- markaði, sem ríkisstjórnin lofaði að hafist yrði handa um,“ segir í yfirlýsingunni. Þá krefst stjórn LÍV þess af stjórnvöldum og atvinnu- rekendum að ráðist verði í fjárfest- ingar sem skili fólkinu í landinu fleiri störfum til framtíðar. S teingrímur J. Sigfússon, ráð- herra efnahags-, viðskipta- og sjávarútvegs- og landbún- aðarmála, segir að ábyrgðin í iðnaðarsaltsmálinu svokall- aða sé þrískipt. Verið sé að taka á mál- inu og styrkja eftirlit sem virðist hafa verið ábótavant. Málið hefur vakið mikla athygli, enda ljóst að saltið var notað á matvælamarkaði í þrettán ár. Miklar líkur eru á að hver ein- asti Íslendingur, eða í það minnsta þorri Íslendinga, hafi neytt iðnað- arsalts á undanförnum árum. Saltið var notað í hvers kyns bakstur, píts- ur, mjólkurvörur og kjötvörur svo dæmi séu tekin. Hins vegar hefur verið nokkuð á reiki hvar ábyrgðin liggur. „Að sjálfsögðu er það alveg klárt hvar ábyrgðin liggur í þessu máli. Fyrst liggur hún hjá innflytjandan- um, sem flytur inn og selur þetta salt og hefði átt að vita betur. Hún liggur í öðru lagi hjá kaupendunum sem kaupa þetta salt. Ég hefði viljað sjá að þeirra aðfanga- og gæðaeftirlit hefði þá stoppað svona mál. En síðan ligg- ur hún að sjálfsögðu hjá opinberu eftirlitsaðilunum, hjá Matvælastofn- un og Heilbrigðiseftirlitinu. Til þess eru þau nú til að passa það að svona lagað gerist ekki í vöru sem er notuð í matvælaframleiðslu,“ segir Stein- grímur. Enginn víkur Steingrímur segir málið ekki vera komið á það stig að einhver hætti eða segi af sér vegna þess og að enn sem komið er verði enginn látinn taka pokann sinn. „Það er ekki kom- ið á það stig ennþá. Enn sem komið er erum við að afla gagna í málinu og gera það sem nauðsynlegt er að gera strax þegar svona kemur upp. Svo verður það skoðað hvort það kalli á einhverja endurskipulagningu í fram- haldinu. Auðvitað hafa komið upp tilvik af þessu tagi, sem heyra undir fleiri eftirlitsaðila, en það gefur okkur tilefni til að fara yfir það hvort neyt- endavernd og gæðaeftirlit sé ekki jafn skilvirkt hjá okkur og við vildum. Ég held að það sé algjörlega ljóst að hug- ur stjórnvalda er að hafa þetta í lagi. En það er sérstaklega viðkvæmt þegar það varðar matvælaeftirlit og það er óþolandi þegar hlutirnir eru ekki í lagi,“ segir hann. Fannst við reglubundið eftirlit Forstjóri Matvælastofnunar, Jón Gíslason, segir ábyrgðina einnig þrí- skipta en bendir á að upp komst um iðnaðarsaltsmálið við eftirlit stofn- unarinnar. Það hafi verið starfsmenn hennar sem áttuðu sig á því að iðnað- arsalt, en ekki matvælasalt, var í um- ferð. Jón segir það ekki hafa komið til umræðu að einhver innan stofn- unarinnar víki vegna málsins. „Nei, það hefur ekki komið til umræðu þar sem það erum við sem uppgötv- uðum þetta mál. Það eru okkar eftir- litsmenn sem komust að því að ver- ið væri að nota þetta salt,“ segir hann og segir að stofnunin hafi brugðist skjótt við. „Mér þætti nánast verið að skjóta boðbera tíðinda ef það ætti að vera Matvælastofnun sem hlyti mesta gagnrýni fyrir það að átta sig á því hvað var í gangi, afla upplýsinga og setja sig í samband við hlutaðeigandi aðila,“ segir hann en eftir á að hyggja hafi það ekki verið besta leiðin, að heimila áfram sölu á birgðum Ölgerð- arinnar, jafnvel þó að þær birgðir hafi aðeins verið um viku birgðir. „Mér skilst að mjög lítið hafi selst af þeim eftir að kaupendurnir voru látnir vita.“ Taka málinu alvarlega „Nú þegar er hafin mikil vinna sem eðlilegt er þegar svona mál kemur upp. Við tökum þessu mjög alvar- lega og Matvælastofnun er það ljóst. Það eru mikil samskipti við þá og verið að ræða um viðbrögð eins og rétt og skylt er. Við ætlum að reyna að gera okkar besta til þess að bregðast við þessu máli og lágmarka þann skaða sem af þessu hlýst, sem verður þó óum- flýjanlega einhver. Þetta er hlutur sem við sem matvælaframleiðslu- þjóð þurfum að taka alvarlega, þar sem við viljum væntanlega framleiða hér hágæðamatvæli – holl og örugg og það þarf að vera innistæða fyrir því,“ segir Stein- grímur „Það verður farið yfir alla verkferla, öll lög og allar reglugerðir. Allt verður gert til þess að svona lagað endurtaki sig ekki.“ Hlúir að ólíkum fjölskyldum Sigríður vill setja það í forgang að fjölbreytt fjölskyldumynstur séu velkomin innan þjóðkirkjunnar. Enginn mun víkja vegna saltmálsins n Að reka einhvern væri að skjóta sendiboðann, segir Matvælastofnun Sendiboðinn skotinn Jón Gíslason segir að saltið hafi fundist við eftirlit Mat- vælastofnunar. Því væri verið að skjóta boðberann ef hún bæri ein ábyrgð. Málið litið alvarlegum augum Steingrímur segir að málið sé litið alvarlegum augum og að það sé óþolandi þegar hlutir séu ekki í lagi. Mynd SigTryggur Ari Ásta Sigrún Magnúsdóttir blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.