Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Blaðsíða 30
30 Viðtal 20.–22. janúar 2012 Helgarblað sem hafði sent tölvupóstana. Hún var rakin til eiginmanns konunnar sem sleikti aftan á frímerkið, sam- kvæmt DNA-niðurstöðum.“ Saksóknari þaggaði málið niður Þarna héldu hjónin að málið væri leyst. Manneskjan sem hafði ofsótt fjölskylduna var fundin. „Þetta voru eiginlega straumhvörf fyrir lögregl- una. Þetta var í fyrsta skipti sem þetta hafði tekist, að leysa svona ótrúlegt mál. Svo gerðist bara hin skelfilega staðreynd, að ríkissaksóknari neitaði fyrir hönd lögreglunnar að kæra mál- ið,“ segir Valgeir og greinilegt er að það tekur á hann að rifja þetta upp. Konan sem hafði staðið fyrir ofsókn- unum er að sögn hans eiginkona hátt setts manns í íslensku samfélagi. „Þetta var bara íslensk spill- ing eins og hún gerist ömurlegust. Þetta var fólk sem mátti ekki anda á. Við auðvitað höfum ekkert verið að básúna það hver þetta er vegna þess að það breytir engu. Þetta var kona sem við þekktum löngu fyr- ir þennan tíma. Þetta er eiginkona manns sem saksóknari taldi að væri þess virði að það væri best að þagga málið niður. Hvað sem réttlætinu og lögum leið.“ Ef þau vildu halda áfram með málið þyrftu þau að standa straum af kostnaði sjálf. „Okkur var sagt að við yrðum að fara í einkamál ef við vildum halda áfram með þetta en við höfðum ekki efni á því, við áttum ein- faldlega ekki peninga til þess að fara í einkamál. Þetta fólk sem um ræðir er margfalt betur stætt en við. Við vor- um líka niðurbrotin eftir þetta mál. Þetta var gífurlega mikið sjokk, að málið yrði lagt niður. Ég meina, það var lífsýni og IP-tala úr tölvu á heim- ili fólksins en það var ekki nóg. Ég held þeir hafi sagt að þetta hafi ekki verið talið líklegt til sakfellingar. Þeir eiga voða fín orð yfir þetta.“ Þau fundu fyrir gremju innan lög- reglunnar enda ekki allir sáttir við að málið væri þaggað niður á þennan hátt. „Þetta var svo mikill sigur fyr- ir lögregluna en sá sigur var bara að engu gerður. Rannsóknarlögreglu- fólkið, það trúði þessu ekki. Þetta var svo fjarstæðukennt. Að þarna væri lögreglan komin til botns í ógeðslegu máli, sem var búið að valda miklum skaða og þjáningum og það var bara lokað ofan í skúffu. Ef ég man rétt þá gaf saksóknari ríkisins ekki einu sinni færi á að ræða þetta.“ Hann segir ef til vill fleiri tengja nú, og skilja að þessar þöggunarað- ferðir viðgangist, en gerðu fyrir rúm- um áratug. „Eftir hrun, þegar við erum orðin svona vön því að hlut- irnir hafi verið svo rosalega rangir víða, þá einhvern veginn er hugsan- lega meiri skilningur á þessu í dag en þarna var. Þarna var bara hægt að setja lok á pottinn og ekkert hægt að gera í rauninni.“ Tvö bréf til viðbótar Eftir þessa reynslu segist Valgeir hafa efast um margt. „Svona reynsla auðvitað fær mann til þess að setja óskaplega stórt spurningarmerki við lífið í þessu landi. Sérstaklega við stjórnvöld þessa lands. Spurn- ingarnar sem mann langar til að fá svör við verða óskaplega margar. Við Ásta erum bæði baráttufólk og lét- um þetta ekki knésetja okkur, sem þetta hefði kannski alveg getað gert. Svona eftir á að hyggja. Þetta voru svo dimmir dagar og áhyggjurnar voru svo miklar og þetta lamaði svo starfsþrek okkar.“ Eftir að saksóknari hafði lokað málinu bárust tvö bréf til viðbótar. „Það komu tvö bréf enn. Við höfð- um auðvitað samband við lögreglu- stöðina. Lögfræðingur sem varð fyrir svörum kvað vera búið að loka mál- inu og ef eitthvað ætti að aðhafast þá þýddi það nýtt mál frá grunni. Það komu ekki fleiri bréf í framhaldinu. Við efumst ekki um að það hafi ver- ið hringt í viðkomandi og sagt að ef þetta gerðist einu sinni enn myndu bara opnast allar gáttir helvítis. Við- komandi hefur sloppið í þetta skipt- ið. Það gerir náttúrulega enginn svona nema sá sem á við andlegar hremmingar að stríða.“ Valgeir segir þau hafa reynt að láta hefndina og reiðina ekki stjórna sér. „Maður hugsar með sjálfum sér: Ekki vildi ég skipta við þetta fólk. Ég get ekki ímyndað mér að hamingjan ríði röftum á heimili þeirra. Þannig að ég segi bara: Guð blessi ykkur. Hefnd- arhugur er mjög niðurbrjótandi afl þannig að maður verður bara að rísa sterkari upp gegn mótlæti og reynsl- unni ríkari. Þetta kennir manni auð- vitað margt um mannlegt eðli.“ Sextugir fá ekki fasta vinnu Valgeir er, eins og áður sagði, að verða sextugur. Svo sannarlega stór tímamót þótt hann finni lítið fyr- ir aldrinum. Hann hefur þó fundið fyrir því að atvinnurekendur virðast margir halda að eftir að fólk nái viss- um aldri sé það ekki gjaldgengt afl á vinnumarkaðnum. „Það er eitt sem ég get sagt um það að vera sextugur: Þú færð enga vinnu,“ segir hann. Blaðamaður furðar sig á atvinnu- leysi hans enda um einn þekktasta tónlistarmann landsins að ræða. Val- geir segir það ekki skipta máli. „Þeir sem hafa atvinnu af því að vera tón- listarmenn eru ekki mjög margir – allavega ekki á eigin vegum. Að vera tónlistarmaður á Íslandi veitir manni ekki föst laun. Ég á öll þessi lög sem fólk vill heyra og hef ánægju af að fylgja þeim til áheyrenda. Sem ég fæ sem betur fer oft tækifæri til. Ég fæ fólk oft líka til að hlæja, en það er bara …“ segir Valgeir hugsi og örlítið hikandi en bætir svo við: „… þetta er ekki stærra en svo. Ég er oft fenginn til að spila á árshátíðum, hjá fyrir- tækjum, í afmælum sem ég geri þeg- ar ég er beðinn en ég er ekkert voða- lega duglegur að selja sjálfan mig fyrir utan þessa tónleika í Hörpu,“ segir hann og á við afmælistón- leikana sem fram fara á sunnudag- inn. Valgeir hefur sótt um á nokkrum stöðum en fengið neitun. „Ég er tek- inn í viðtöl, fólk þekkir mig og veit hvað ég stend fyrir. Að einhverju leyti hvað ég get. Ég hef svona talsvert sérhæfða reynslu, ég er mjög góð- ur í ákveðnum hlutum en það hefur aldrei dugað til að fá þessi störf. Þetta eru ekkert voðalega háar stöður sem ég er að sækja um en þetta eru svona stöður þar sem ég hef séð að ég get unnið að einhverju sem mér þyk- ir áhugavert. Þetta hefur kannski tengst PR, ljósvakamiðlunum, sem er eitt af því sem ég kann og get. Ég er ritfær í góðu meðallagi og talfær eins og dæmin sanna,“ segir hann og brosir hógværu brosi. Tæknilega atvinnulaus „Þannig að ég er tæknilega atvinnu- laus. Það er kannski eitt sem ég veit, að mörgum af minni kynslóð þyk- ir það og svíður það sárt að vera kannski á toppi tilverunnar sem manneskjur hvað varðar það að fólk hugsar meira um líkama sinn, borð- ar hollari mat, ég veit ekki hverjir eru orðnir svona feitir – allavega er það ekki fólkið í kringum mig sem er feitasta þjóð í heimi – sem sagt bara hefur mikið fram að færa en er ekki talið gjaldgengt. Þetta er nátt- úrulega ofsalega nöturlegt, að ef þú ert kominn yfir vissan aldur fáir þú ekki vinnu og ef þú ert í starfi, þá bara passar þú að láta ekkert gerast svo þú missir ekki starfið því að þú ert ekki gjaldgengur á vinnumarkaði á þessum aldri. Þetta er mjög alvarlegur hlutur. Og það að þjóðin telji sig geta verið án krafta þeirra sem eru komnir yfir miðjan aldur er stórkostleg vannýt- ing á mikilvægri auðlind og sameig- inlegum hæfileikum þessarar litlu þjóðar sem þarf að sinna svo fjöl- breytilegum verkefnum með svona fáu fólki. Þetta er ótrúlega skrýtið og í raun bara alveg skelfilegt.“ Kraftar beggja dýrmætir Eins og áður sagði eru þau hjónin baráttufólk. Þau gefast ekki upp þó í harðbakkann slái. „Í rauninni erum við bæði tæknilega atvinnulaus og erum algjörlega háð þeim verkefn- um sem við getum búið til sjálf. Það byggir ekki upp djúpstæða öryggis- kennd að vera alltaf háður því sem er í gangi á hverjum tíma. Ég held að kraftar okkar beggja séu dýrmætir – sérstaklega Ástu – ég bara sé hvað hún hefur lagt íslensku þjóðfélagi mikið til í gegnum ráð- gjöf sína. Hún hefur stuðlað að því að stór hópur fólks hefur náð að ljúka prófi og farið að vinna þjóðfélaginu gagn í sínum störfum. Sem hefði ekki orðið með sama hætti ef það hefði til dæmis horfið frá námi í Háskól- anum eins og gjarnan stóðu efni til. Hún heldur þessu starfi áfram. Hing- að leitar til hennar fólk og fær ráð- gjöf. Ég hef komið hluta til inn í slíka ráðgjöf, ekki að sama ráði því ég er ekki jafn góður ráðgjafi og hún,“ segir hann og augljóst er að hann er stolt- ur af sinni konu. „Ég held ég halli ekki á neinn þegar ég segi að hún er fremsti námsráðgjafi Íslands og sá framsæknasti um leið vegna þess að hún er að þróa aðferðir sem hún skynjar af dýpt fyrir fólk sem þarf á því að halda.“ Eftir að Ásta var flæmd úr Há- skólanum fór hún að þróa verkefni út frá reynslu sinni sem námsráð- gjafi. Verkefnið byggir á tækni sem hún þróaði út frá aðferðum sínum við náms- og starfsráðgjöfina og er ætlað að hjálpa fólki í námi og starfi. Valgeir hefur þróað verkefnið með henni og þau stefna að því að koma því á markað sem fyrst. „Við trúum því að við komumst þá í höfn með þetta langtímaverkefni sem heitir Nema Net. Og að það verði mörgum til góðs. Það er í rauninni það sem knýr mann áfram, að koma einhverju góðu til leiðar. Hvort sem það er í tali, tónum eða verkum. Það er svona það sem fær mann til að tikka.“ „Erfitt að horfa framan í fólk sem maður skuldar“ Þau hafa lengi stefnt að því að sigla verkefninu úr höfn og lagt mik- ið undir. Líka tapað miklum fjár- munum sem reyndist afar sárt. „Við lögðum peninga inn í fyrirtæki. Við seldum íbúð og lögðum peningana í fyrirtækið. Það voru tveir útlend- ingar með geyisleg umsvif sem vildu fjárfesta hér á landi. Þeir sáu meðal annars mikil tækifæri í því sem Ásta var að gera.“ Þetta var í kringum aldamót- in síðustu. Allt var í uppsveiflu og löngunin til að koma verkefni Ástu á markað dreif þau hjónin af stað. Þau lögðu allt undir, fengu húsnæði og byrjuðu framkvæmdir. Pening- arnir frá fjárfestunum skiluðu sér hins vegar aldrei. „Annar þeirra hvarf, hann var settur í fangelsi suð- ur á Indlandi. Hann var með miklar áætlanir um að gera hér hluti. Síð- an var fótunum kippt undan hon- um, meðal annars vegna aðstæðna í hans heimalandi. Hann bara hvarf af sjónarsviðinu og spilaborgin hrundi í kjölfarið.“ Margir stóðu eftir sárir, fleiri en Ásta og Valgeir höfðu lagt pening í púkkið. „Það voru margir sem komu að þessu og mikið af hæfileikafólki sem tengdist þessu fyrirbæri. Okkur var ekki sagt neitt, ef við hefðum vit- að eitthvað fyrr þá hefðum við hugs- anlega getað dregið eitthvað af þess- um peningum sem við settum í þetta til baka. Við stóðum uppi í rauninni allslaus. Þegar upp er staðið er þetta holl reynsla en mjög óskemmtileg, geng- ur nærri sjálfsvirðingu manns og það er erfitt að horfa framan í fólk sem maður skuldar pening,“ segir Val- geir alvarlegur. „Þetta var heilmik- ill peningur og við höfum þurft að vinna okkur upp úr þessu hægt og rólega og svo í skugga þessara of- sókna. Þetta var allt að gerast á svip- uðum tíma. Við erum heiðarlegt fólk og viljum geta gert upp við þá sem við skuld- um peninga. Ég veit svo sem ekki ná- kvæmlega hver okkar staða er þegar öll kurl koma til grafar en auðvitað hefur þetta ekkert verið auðvelt. Svo á uppgangstímanum, „à la“ 2007, þegar peningarnir flæddu, þá voru áformin okkar bara ekki nógu stór. Þá var bara sagt við okkur: Við tölum ekki við neinn undir hálfum milljarði. Það er sama vinnan fyrir okkur en við þurft- um ekki svo mikið og vorum því ekki vænn fjárfestingarkostur.“ Hafa margt fram að færa Valgeir er þrátt fyrir allt bjartsýnn. „Við vorum í raun aldrei komin á þann stað með verkefnið að við vær- um tilbúin að byrja að selja það. Við viljum hafa það fullkomið og það má ekkert klikka, þá snýr fólk sér bara annað. Við höfum haldið okkar fók- us á því að klára. Ef þú ferð í kross- ferð, þá viltu sjá Jerúsalem,“ segir hann kankvís og glottir út í annað. „Það er í rauninni það sem vakir fyrir okkur. Þess vegna verðum við voða glöð ef fólk kemur og gleðst hér hjá okkur. Kemur á menningarvök- urnar, nýtir NemaForum-stofurnar fyrir fundi og mannfagnaði, kem- ur í ráðgjöf eða á námskeið hér hjá okkur. Þetta er það sem við erum að gera. Það er ánægjuefni að geta unn- ið við fólk á svo mismunandi en samt tengdum sviðum. Við höfum sannar- lega mikið fram að færa og minnum okkur á það þegar á móti blæs. Við sjáum á viðbrögðum fólks sem kem- ur hingað að við skilum góðu verki og það gleður okkur. Ég held að árið 2012 verði betra en árið 2011 sem var mikið baráttu- ár. Ég held að sporið sér að greikka og gatan sé að breikka.“ n viktoria@dv.is Tæknilega atvinnulaus Valgeir segir fólk á hans aldri ekki eiga auðvelt með að fá vinnu. Þegar það sé komið yfir vissan aldur sé það ekki talið gjaldgengt á vinnumarkaðnum lengur. myndir SigTryggur ari jóHannSSon „Það var borið á mig að ég hefði misnotað aðstöðu mína í STEFi og svo gott sem stolið húsgögnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.