Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Blaðsíða 10
D aníel Isebarn Ágústsson, lögmaður þrotabús Mile- stone ehf., segir að Ing- unn Gyða Wernersdóttir, ein af fyrrverandi eigend- um Milestone, hafi flúið land til þess að komast hjá því að hægt væri að birta henni stefnu í riftunarmáli sem þrotabúið höfðar gegn henni vegna meintra ólöglegra hluthafalána upp á 2,5 milljarða króna. Þrotabúið telur að um hafi verið að ræða gjafagjörn- inga og freistar þess nú að fá þeim rift fyrir dómi. Ingunn Gyða krefst þess að stefnunni verði vísað frá, meðal annars á þeim forsendum að birting stefnunnar gegn henni hafi verið ólögleg. Sigurður G. Guðjóns- son lögmaður hennar sakaði Daníel lögmann um að setja á svið sýningu fyrir þann eina blaðamann sem var í dómsalnum í Héraðsdómi Reykja- víkur á miðvikudag. Hart var tekist á um frávísunar- kröfu Ingunnar Gyðu en Sigurð- ur gerir einnig kröfu um að Daníel lögmaður greiði persónulega máls- kostnaðinn í málinu – ekki þrotabúið heldur hann sjálfur. Birti stefnu á heimili hennar Málið snýst um að þann 12. nóvem- ber 2010 tókst þrotabúinu að birta Ingunni stefnu fyrir utan lögheimili hennar í Fossvogi, rétt áður en fyrn- ingarfrestur til málshöfðunar rann út. Ingunn dvaldi á þessum tíma í Bandaríkjunum og því var ekki hægt að birta henni stefnuna persónulega. Lögmaður þrotabúsins fór því þá leið að kalla til mann að nafni Krist- ján Ólafsson, hæstaréttarlögmann og stefnuvott í Kópavogi, að heim- ili hennar í Fossvogi þar sem bókað var að henni hefði verið birt stefnan löglega. Hún var síðan sett inn um bréfalúguna á heimili hennar þar sem hún fannst í blaðabunka á gólf- inu nokkru síðar. Sigurður G. vildi meina að þessi gjörningur væri ólög- legur. Sigurður G. tók fyrstur til máls fyr- ir hönd Ingunnar. Íklæddur jakka- fötum undir blárri lögmannsskikkju og forláta leðurskóm með áberandi þykkum og æpandi appelsínugul- um skóbotni, spígsporaði hann um í ræðustól dómsalsins á meðan hann þuldi upp ræðu sína. Í ræðu sinni tætti hann í sig stefnubirtinguna og las upp úr stefnuvottorðinu sjálfu þar sem seg- ir að Kristján lögmaður hafi hist fyr- ir við heimili Ingunnar þennan dag. Ekki komi fram í stefnubirtingar- vottorði að hann hafi tekið við stefn- unni því hans undirskrift sé hvergi að finna. Sigurður sagði að birtingin væri alls ekki í samræmi við strang- ar reglur um stefnubirtingar og benti á að birta skuli stefnu fyrir þeim sem er stefnt. Þó sé birting lögmæt ef stefna er birt á skráðu lögheim- ili stefnda. Þar megi birta stefnu fyr- ir heimilismanni eða þá þeim sem dvelst á skráðu lögheimili. Það geti þess vegna verið iðnaðarmenn að störfum á heimilinu eða jafnvel gest- ir. Ef enginn slíkur er á heimilinu þá sé nóg að birta hana þeim sem hittist fyrir á heimilinu. Sigurður sagði að það gæti vel verið að Kristján hefði hist fyrir á heimilinu, eins og það er orðað í lögunum. Auðvitað mætti vel vera að hann hafi verið að þvælast um einbýlishúsagötuna í Fossvog- inum í hádeginu þennan föstudag. Hins vegar megi draga í efa að svo hafi verið. Líklegra sé að um hafi ver- ið að ræða samvinnuverkefni stefnu- votta til að koma fram lögmætu stefnubirtingarvottorði. Pælingar um „afbæjarmann“ Lögmaðurinn fór mikinn í rökstuðn- ingi sínum fyrir því að stefnan gegn Ingunni hafi verið með öllu ólögleg. Vísaði hann meðal annars í gamlan dóm þar sem sveitarstjóri var kall- aður að heimili manns til að taka við stefnu fyrir hans hönd. Bæði héraðsdómur og Hæstiréttur féllust á að þessi stefnubirting hefði ver- ið ófullnægjandi. Í tilfelli Ingunnar liggi ekkert fyrir um að stefnubirt- ingin fullnægi lögum um slíkar birt- ingar. Kristján stefnuvottur sé bú- settur í Kópavogi og hann hafi aldrei sett sig í samband við Ingunni til að koma stefnunni í hendur hennar eða til að gera henni grein fyrir stefn- unni. „Stefnubirting þessa máls er eins ólögmæt og frekast getur verið,“ sagði Sigurður háum rómi. Því næst vísaði hann í annan dóm frá 4. áratug síðustu aldar, en þar var stefna birt „afbæjarmanni“, sem stefnuvottar sóttu að heimili þess sem átti að stefna. Sigurður taldi því ljóst að í lagi væri að birta stefnu „af- bæjarmanni“, en það gæti verið íbúi í sama stigagangi eða nágranni í sömu einbýlishúsagötu. Lögmaðurinn hefði því átt að banka upp hjá ná- grönnunum til þess að taka við stefn- unni. Ekkert liggi fyrir um að löglegt sé að draga mann úr öðru byggðar- lagi til að taka við stefnubirtingunni. Þar sem stefnubirtingin hafi ver- ið ólögmæt og fyrningarfestur ekki rofnað sé stefnubirtingin ólögleg. Reyndi að flýja stefnuna Daníel var algjörlega ósammála mál- flutningi Sigurðar og taldi stefnubirt- inguna vera lögmæta. Benti hann meðal annars á að ef svona stefnu- birting væri ólögmæt, þá væri eign- arfólki á borð við Ingunni í lófa lag- ið að að komast hjá stefnubirtingu með því að flýja land og koma ekki til baka fyrr en málshöfðunarfrestur sé liðinn. Það sé einfaldlega hluti af því að eiga lögheimili á Íslandi að hægt sé að birta stefnu með þessum hætti. Ingunn hafi sannarlega reynt að komast hjá stefnubirtingu. Ekki hafi verið hægt að birta henni stefnu því hún var ekki í heima. „Stefnda reyndi í lengstu lög að forðast að hægt væri að höfða mál gegn henni. Hún fór af landi brott töluvert áður en þessi málshöfðunarfrestur rann út en eft- ir að henni var sent kröfubréf,“ sagði Daníel lögmaður. Þá sagði hann túlkun Sigurðar lögmanns um afbæjarmanninn ekki eiga sér neina stoð í lögum og það eigi ekki að skipta neinu máli þó að sá sem tekur við stefnunni búi ekki í næsta nágrenni. Þessi stefnubirting hafi verið nauðsynleg þar sem óger- legt hafi verð að birta henni stefnuna með öðrum hætti. Þá hafi hún látið fulltrúa sinn mæta fyrir þingfestingu málsins og þar með firrt sig öllum rétti til að telja að stefnan hafi verið ólögmæt. Reyna að hóta mér Um málskostnaðarkröfuna á hendur sér sagði Daníel: „Það er sérstakt en ekki sérstaklega úr takti við þá hátt- semi sem Ingunn og Sigurður hafa sýnt í málinu.“ Fyrir liggi að hún hafi tekið við fimm milljörðum króna frá Milestone sem hafi ekki fengið neitt í staðinn. Þá sakaði hann Sigurð G. um að hafa stýrt samningagerð sem væri til skoðunar hjá skattrannsókn- arstjóra ríkisins. „Það er mjög skilj- anlegt að lögmaður og sóknaraðili vilji ekki að þessi mál séu skoðuð og reyni allt sem þau geta til að komast hjá því.“ Kom þá til nokkuð skarpra orða- skipta því Sigurður G. reiddist í sæti sínu og krafðist þess að bókað yrði um dylgjur gegn sér að hann hafi ver- ið sakaður um lögbrot. Eftir nokkurt þras greip dómarinn fram í fyrir hon- um og bað hann um að halda sig til hlés á meðan Daníel lögmaður klár- aði ræðu sína. Daníel sagði í kjölfarið að með því að krefja sig persónulega um málskostnað væru Sigurður G. og Ingunn að reyna að hafa áhrif á þá sem rannsaka þessi mál. Hann sagð- ist að lokum treysta því að dómstólar létu ekki undan svona hótunum. „Hverju í andskotanum ætti ég að ljúga upp á þig?“ Mikill hiti var kominn í Sigurð G. eft- ir þessi orðaskipti og sagðist hann hafa orðið vitni að „ótrúlegasta og ósmekklegasta málflutningi sem hefði farið fram í réttarsal,“ síðan hann varð lögmaður. Í skammar- ræðu sagði hann Daníel hafa leyft sér að ljúga því að réttinum að Ing- unn hafi flúið land til þess að blaða- maður í salnum gæti birt fyrirsögn um það. Hann hafi talað sér þvert um geð. Hann sakaði Daníel um slugshátt og að hann hafi átt að vita að Sigurður hefði ekki farið með mál Ingunnar síðan áramótin 2005–2006. Því hafi hann gerst sekur um hreina lygi, aðdróttanir og ómerkilegheit. Hann hafnaði því jafnframt algjör- lega að með því að krefja lögmann- inn um málskostnað væri hann að hóta honum. Sigurður G. hélt reiðilestrinum áfram og sagði að að lögmaður- inn teldi sig vera vörð réttætisins – góða manninn. Hann vék aftur að meintri ólöglegri stefnubirtingu áður en dómarinn greip aftur fram í fyrir honum og sagði: „Sigurður, hvern- ig getur þú sagt svona?“ Dómarinn bað hann um að gæta hófs í mál- flutningi sínum. Eftir nokkurt orða- skak hélt Sigurður áfram ásökunum sínum á hendur Daníel lögmanni. Daníel væri eingöngu að reyna að líta vel út með því að stefna Ingunni og bræðrum hennar. Hann ætlaði sér greinilega að vera maðurinn sem næði peningum af útrásarvíkingum. „Þetta er allt gert fyrir fjölmiðla. Þetta hefur ekkert með réttinn að gera!“ Daníel var því næst spurður hvort hann vildi svara þessu. Hann muldr- aði: „Nei, þetta er ekki svaravert!“ Eftir að dómþinginu var slit- ið héldu orðaskipti lögmannanna áfram. Sigurður spurði lögmanninn hvössum tóni hvort hann væri að ljúga upp á sig. „Hverju í andskotan- um ætti ég að ljúga upp á þig?“ var svar hans áður en þeir skelltu hurð- inni í dómsalnum og héldu karpinu áfram. 10 Fréttir 20.–22. janúar 2012 Helgarblað Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Sakar IngunnI um að flýja land Ingunn Wernersdóttir Vill að stefnu gegn sér verði vísað frá dómi þar sem henni hafi ekki verið birt stefnan löglega. Fór mikinn Sigurður G. tók þátt í hvössum orðaskiptum við lögmann þrotabús Milestone fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag. „Það er mjög skilj- anlegt að lögmað- ur og sóknaraðili vilji ekki að þessi mál séu skoð- uð og reyni allt sem þau geta til að komast hjá því. n Hart tekist á um hvort Ingunni Wernersdóttur hafi verið birt lögmæt stefna n Vill að lögmaður greiði málskostnað persónulega n „Sigurður, hvernig getur þú sagt svona?“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.