Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Blaðsíða 42
42 Lífsstíll 20.–22. janúar Helgarblað Bílaverkstæði Varahlutaverslun Smurstöð Dekkjaverkstæði Bremsur, spindilkúlur, stýrisendar, o.fl., o.fl. Allar gerðir bætiefna fyrir vél, drif og gírkassa www.bilaattan.is Allt á einum stað Fimm frá Olympus n Olympus kynnti nokkrar nýjar mynda- vélar til sögunnar á CES. Fimm vélar voru kynntar sem kosta allar innan við 200 dali, eða jafnvirði 25 þúsund króna. Vélarnar eru allar hefðbundnar „point-and- shoot“ vélar sem allir ættu að geta notað án mikillar tæknikunnáttu. Vélarnar sem Olympus kynnti voru SZ-12 og SP-620 „ultrazoom“-vélar, TG-230 vél sem á að þola hnjask, VR-340 og VG-160. Vélarnar kosta allt frá 12 þúsund krónum. Gera má þó ráð fyrir því að vélarnar verði með talsverðri álagningu þegar þær verða fáanlegar á Íslandi. n Fjöldi nýrra myndavéla var kynntur á CES 2012 n Vélarnar kosta frá rúmlega tólf þúsund krónum n Myndflögur betri og hærri upplausn Myndavélar ársins 2012 Á raftækja og tækniráð- stefnunni CES sem haldin var í Las Vegas í síðustu viku voru marg- ar virkilega dýrar og spennandi myndavélar kynntar til sögunnar. Þar voru þó líka kynntar til sögunnar vélar sem ættu að vera á viðráðanlegu verði fyrir okkur venjulega fólkið. DV tók saman lista yfir áhugaverðustu myndavélarnar sem kosta undir hundrað þús- und krónum. Lytro-mynd- bandsupptökuvél n Eric Cheng, einn af mönnunum á bak við Lytro-myndavélina, segir ekkert standa í vegi fyrir því að sama tækni verði notuð í myndbandsupptöku- vélum. Í viðtali við bandaríska veftímaritið The Verge segir Cheng að það megi kannski ekki búast við Lytro-myndbands- tökuvél á næstunni en það sé svo sannarlega ekkert sem standi í vegi fyrir því að tæknin sem þegar sé til staðar verði heimfærð yfir á myndband. Það er því kannski bjartsýni að segja að vélin verði ein af myndavélum ársins 2012 en hún fær engu að síður að fljóta með á listanum. Lytro-myndavélar eru einstakar á þann veg að hægt er að endur- stilla fókusinn á myndum sem teknar eru með vélinni eftir að myndin er tekin. Þannig getur ein mynd í rauninni virkað eins og þúsund mismunandi myndir. Lytro er fyrsta fyrirtæki í heim- inum til að nota þessa nýju tækni á myndavélar sem seldar eru almenningi. Á einfaldan hátt er hægt að útskýra virkni mynda- vélarinnar þannig að í stað þess að fanga ljósbrot sem lendir í tvívídd á myndflögu mynda- vélarinnar fangar myndflagan ljósbrot í þrívídd. WiFi-tengi í Samsung-vélum n Samsung virðist framleiða öll tæki sem til eru undir sólinni. Myndavélar eru þar engin undantekning. Nýjustu vélar fyrirtækisins verða búnar WiFi-tengimöguleika þannig að hægt verður að senda myndir úr vélinni þráðlaust í næstu tölvu. Flaggskip þessarar nýju myndavélalínu frá Samsung er WB850F superzoom. Vélin býður upp á 21x aðdrátt á F/ 2,8 linsu og 16 megapixla CMOS-mynd- flögu. Vélin kemur til með að kosta 379 dali, jafnvirði 47 þúsund króna. Hægt verður að taka 1080p myndbönd á vélina á 30 römmum á sekúndu. FujiFilm með nítján vélar n FujiFilm hefur vakið mikla athygli með X-myndavélalínunni sinni. Ein ný vél undir 100 þúsund krónum var kynnt í X-línunni auk 18 ódýrra myndavéla í FinePix- línu fyrirtækisins. Þar fer fremst í flokki X-S1 sem er með 12 mega- pixla, 2/3-tommu myndflögu, EXR processor, þriggja tommu LCD skjá og 24-624 millimetra linsu með 26x aðdrátt. Hinar vélarnar eru allar aðeins ódýrari en X-S1 vélin en þær eru allar 14 til 16 megapixla með áföstum linsum. Vélin kostar það sama og G1 X-vélin frá Canon, jafnvirði 99 þúsund króna. Canon með nýja G-vél n Canon hefur lengi verið með öfluga og ódýra „point-and-shoot“ myndavélalínu. Fyrirtækið hefur nú kynnt til leiks líklega bestu vélina í línunni til þessa, PowerShot G1 X. Vélin er 14,3 megapixla vél með 1,5 tommu myndflögu sem er nánast jafn stór og APS-C myndflagan í flestum DSLR-vélum fyrirtækisins. Vélin er langdýrasta „point-and-shoot“ myndavélin frá Canon sem kynnt var á CES en hún kostar 799,99 dali, jafnvirði 99 þúsund króna. Ferðanærbuxur Það er víst aldrei of var- lega farið þegar kemur að ferðalögum á fjarlægar slóðir. Þetta vita hönnuð- irnir að baki ferðanærbux- unun. Ferðanærbuxurnar frá Scottevest eru engar venju- legar nærbuxur. Á þeim er nefnilega að finna vasa fyrir bæði iPhone og vegabréf og þær prýða allir helstu kostir sem góðar nærbuxur fyrir karlmenn búa yfir. Buxurnar eru kjörnar fyrir ferðalanga sem vilja koma í veg fyrir að vera rændir en það verður að teljast ólíklegt að þjófarnir fari að leita í nærbuxunum að verðmætum. Svitalyktareyðir án aukaefna Náttúrulegar vörur sem skaða ekki líkamann eru í mikilli sókn. Mæður kaupa ekki annað en náttúrlegar vörur fyrir börn sín og nú er úrval snyrtivara fyrir konur gott þegar kemur að lífrænum vörum án aukaefna. Mikið hefur vantað upp á að vörur fyrir karla séu á grænu línunni. Burts Bees hefur nú sett á markað svita- lyktareyði sem er náttúrulegur, án allra aukaefna og lyktar af salvíu og sítrónu. Drekktu vatn úti á lífinu Alkóhól er hitaeiningaríkt og óhollt. En þeir sem vilja skemmta sér ættu að fá sér vatnsglas með hverjum drykk. Hafi þú þetta fyrir reglu pantar þú þér færri drykki og hausverkurinn daginn eftir verður mildari. Léttvín inni- heldur fæstar hitaeiningar, þá bjór og síðan kokkteilar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.