Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Blaðsíða 38
Hvað er að
gerast?
Laugardagur
Föstudagur
Sunnudagur
21
jan
20
jan
22
jan
James Bond í Eldborg
Sinfóníuhljómsveitin býður til
James Bond veislu í Hörpu. Þar
eru fluttir allir helsu smellir
úr myndunum þekktu. Breski
stjórnandinn Carl Davis hefur
stýrt slíkum tónleikum um allan
heim og er nú kominn til Íslands.
Söngvarar eru meðal annarra:
Páll Óskar Hjálmtýsson, Sigríður
Beinteinsdóttir, Sigríður Thorlacius
og Eyþór Ingi Gunnlaugsson. Tón-
leikarnir eru einnig á laugardaginn
og hefjast klukkan 20. Miðaverð er
frá 3.000– 7.500 krónum, eftir því
hvar setið er.
Fjallabræður í Hofi
Karlakórinn Fjallabræður troða
upp í menningarhúsinu Hofi ásamt
hljómsveit og gestum. Gestir verða
söngvararnir Sverrir Bergmann og
Jónas Sig úr Ritvélum framtíðar-
innar. Tónleikarnir hefjast klukkan
20 og miðaverð er 3.500 krónur.
Berfætt með gítarinn
Söngkonan Eivør Pálsdóttir er með
tónleika í Langholtskirkju í kvöld.
Þar ætlar hún að
koma fram eins
og hennar er von
og vísa, berfætt
með gítarinn að
vopni. Miðaverð
er 3.000 krónur
og tónleikarnir
hefjast klukkan 20.
Afmælistónleikar
Valgeirs
Söngvarinn góðkunni, Valgeir
Guðjónsson, fagnar 60 ára afmæli
sínu með stórtónleikum. Þar
ætlar Valgeir að flytja öll sín bestu
lög og fær til þess góða hjálp,
meðal annars frá félögum úr Stuð-
mönnum og Spilverki þjóðanna.
Tónleikarnir fara fram í Eldborg og
miðaverð er 3.900 –5.900 eftir því
hvar setið er.
38 20.–22. janúar 2012 Helgarblað
„Gary Oldman sýnir nær
fullkomna frammistöðu.“
„Frábær leikur, fyrir
alla fjölskylduna.“Menning
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
Tinker Tailor
Soldier Spy
Dance Party Star
fyrir PS Move
S
trákar, hættið þið
þessu masi. Við þurf-
um að fara að byrja
þetta,“ sagði Halldór
Gunnar Pálsson, kór-
stjóri Fjallabræðra, í upphafi
kóræfingar á miðvikudags-
kvöldið. Þetta þarf hann alltaf
að gera – og oft á hverri æf-
ingu. Það er stórmál að stjórna
á milli 40 og 50 körlum á kór-
æfingu. Og þeir hafa allir gam-
an af því að tala – sérstaklega
Stebbi panda eins og hann er
kallaður. „Fyrsta lagið sem við
æfum er Ísland,“ sagði Halldór,
sneri sér að hljómsveitinni og
takturinn var sleginn. Æfingin
var byrjuð.
Fyrstu tónleikarnir fyrir
norðan
Það stendur mikið til hjá
Fjallabræðrum. Á morgun,
laugardag, halda þeir sína
fyrstu tónleika á Akureyri – í
Hofi. Þrátt fyrir að bræðurn-
ir hafi allir einhverja teng-
ingu vestur á firði þá bera þeir
allir sterkar taugar til lands-
byggðarinnar. „Norðurland á
mjög stóran sess í mínu hjarta,
móðir mín Magnea Guð-
mundsdóttir, býr í Skagafirði
og fyrsti vísirinn að Fjalla-
bræðrum varð til í Skagafirði.
Svo finnst mér líka svo fallegt
fyrir norðan, blómlegar sveitir
og öflugar útgerðir,“ segir Hall-
dór Gunnar en hann hefur
stjórnað Fjallabræðrum frá
upphafi. Í fyrstu var kórinn
óformlegur – nokkrir strákar
að vestan sem hittust reglu-
lega til að syngja.
Spila á elliheimilinu
Fjallabræður orðnir hluti af
tónlistarlífi Íslendinga. Þeir
hafa spilað víða og það er
mikil eftirspurn eftir þeim á
skemmtunum og tónleikum.
Síðustu tvo vetur hafa þeir
glatt gamla fólkið á elliheim-
ilum höfuðborgarsvæðisins
því reglulega hafa þeir farið
á eitt slíkt og sungið. „Það
gefur okkur mikið að syngja
fyrir gamla fólkið sem byggði
landið okkar upp. Við ætlum
að fara fyrr um daginn, syngja
fyrir eldri borgara á Akur-
eyri og eiga með þeim góða
stund. Það skiptir okkur öllu
máli að geta gert þetta. Við-
mótið sem fáum er yndislegt
og manni líður vel á eftir. Á
meðan margir eru uppteknir
af silíkoni, salti og snjómokstri
þá virðast ekki margir hafa
áhyggjur af því hvernig gamla
fólkinu okkar líður. Maður
þarf ekki að vera landsþekkt-
ur tónlistarmaður til að fara
og gleðja þetta fólk og sjálfan
sig um leið,“ segir Halldór
Gunnar.
Sussað á strákana
Æfingar hjá Fjallabræðrum
standa yfir í tvo tíma með
einni pásu. Æfingarhúsnæðið
er stórt og með mörgum her-
bergjum og í pásum fara þeir
bræður sem reykja út fyrir,
aðrir fara og fá sér kaffi og enn
aðrir setjast niður og spjalla.
Pásurnar eru mislangar en
þegar Halldór er kominn með
gítarinn í hönd og byrjaður að
spila er það merkið um að pás-
unni sé lokið. Þá koma menn
sér fyrir. „Jæja strákar, nú æfum
við með Unni lagið Ísland,“
segir Halldór Gunnar, en það
er nýtt lag Fjallabræðra sem
þeir hafa verið að æfa síðustu
vikur. Hljómsveitin kemur sér
fyrir og Halldór vill byrja. Aftur
þarf hann að sussa á strákana.
Og Leibbi jazz, hljómborðs-
og básúnuleikari Fjallabræðra
tekur sóló á hljómborðið. Hall-
dór Gunnar er rólegur, lítur á
Leibba og segir í hljóðnemann.
„Ertu búinn Leibbi, eigum við
að fara að byrja?“ Leibbi lítur
brosandi á Halldór og svo á
strákana – sem brosa alltaf á
móti. Það er talið inn í lagið.
Unnur byrjar að syngja og Hall-
dór gefur kórnum merki.
Prinsessan í strákahópnum
„Við erum líka sérstaklega
spenntir yfir því að fara til
Akureyrar af þeirri einföldu
ástæðu að fallegasti Fjalla-
bróðirinn, hún Unnur Birna
er frá Akureyri,“ segir Hall-
dór Gunnar en þetta verða
síðustu tónleikar Unnar Birnu
með Fjallabræðrum að sinni
því hún heldur til Rómar á
Frjálst og hrátt
með Fjallabræðrum
Karlakórinn Fjallabræður heldur sína fyrstu
tónleika í Hofi á Akureyri á laugardagskvöld-
ið. Þar mun „fallegasti Fjallabróðirinn“, Unn-
ur Birna, syngja með kórnum í síðasta skiptið
í bili en hún er á leið til Rómar. DV skellti sér
á æfingu með þessum hressa kór og sá hann
undirbúa sig fyrir tónleikana norðan heiða.
Myndarlegur hópur Fjallabræður hafa verið á meðal vinsælustu kóra landsins.
Æft af krafti Unnur Birna með Fjallabræður í baksýn.