Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Side 8
8 Fréttir 20.–22. janúar 2012 Helgarblað R óbert Spanó, lagaprófess­ or og forseti lagadeildar Há­ skóla Íslands, upplýsir í nýút­ kominni lögfræðibók sinni, Ne bis in idem, að hann hafi veitt verjanda Baldurs Guðlaugs­ sonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, launaða ráð­ gjöf. Baldur var í apríl síðastliðnum dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir innherjasvik eftir að hann seldi hluta­ bréf sín í Landsbankanum. Baldur nýtti sér innherjaupplýsingar sem hann aflaði sér sem ráðuneytisstjóri og seldi hlutabréf sín að verðmæti 193 milljóna króna rétt fyrir fall bank­ ans í október 2008. Fjármálaeftir­ litið tilkynnti Baldri á sínum tíma að rannsókn á málum hans hefði verið hætt. Síðar komu fram ný gögn og því var málið tekið upp aftur. Sannfærandi rök fyrir sýknu Fræðibók Róberts, Ne bis in idem, heitir eftir réttarreglu sem snýst um bann við endurtekinni málsmeðferð vegna refsiverðrar háttsemi en kveðið er á um hana í Mannréttindasáttmála Evrópu. Í bók sinni kemst Róbert að þeirri niðurstöðu að færa megi sann­ færandi rök fyrir því að ákvörðun Fjár­ málaeftirlitsins um að fella málið gegn Baldri niður hafi í ljósi dómafram­ kvæmdar og rúms gildissviðs laga fal­ ið í sér sýknu. Hann setur hins veg­ ar fyrirvara á ályktanir sínar. Róbert bendir einnig á að Hæstiréttur taki ekki af öll tvímæli er þetta varðar. „Af forsendum Hæstaréttar verður ráðið að ekki var tekin endanleg afstaða til þess hvort ákvörðun Fjármálaeftir­ litsins teldist til sýknu.“ Því álitaefni sé haldið opnu með orðalagi í dómnum. Í umfjöllun sinni um mál Baldurs, rit­ ar Róbert í neðanmálsgrein: „Það skal upplýst að höfundur þessa rits hefur veitt verjanda X (Baldurs Guðlaugs­ sonar, innsk. blaðamanns) ráðgjöf um ákveðna þætti málsins við með­ ferð þess fyrir dómi eftir að gefin var út ákæra í því 13. október 2010.“ Baldur hefur tvívegis krafist frávísunar í máli sínu á grundvelli þessarar reglu en ekki haft erindi sem erfiði. Fjár­ málaeftirlitið tilkynnti Baldri skriflega sumarið 2009 að rannsókn á málum hans hefði verið felld niður. Hins veg­ ar var gerður sá fyrirvari að FME gæti hafið rannsókn málsins á nýjan leik ef ný gögn kæmu fram. Baldri var síðan tilkynnt bréfleiðis að FME hefði hafið rannsókn málsins á nýjan leik. FME sendi málið til ákæruvaldsins sem síð­ an leiddi til þess að hann var dæmdur. „Í samræmi við akademískar kröfur“ Róbert Spanó segir aðspurður í sam­ tali við DV að umfjöllun hans í bókinni sé að hluta til byggð á fyrirlestri sem hann hélt á vegum Lögfræðingafélags Íslands í janúar í fyrra. Á þeim tíma hafði hann ekki komið neitt að ráðgjöf í málinu. Hann telji það jafnframt rétt að prófessor í Háskóla Íslands upplýsi skilmerkilega um slík ráðgjafarstörf líkt og hann gerir í bókinni. Aðspurður hvort hann hafi unnið sambærileg störf fyrir aðra aðila sem eru til rann­ sóknar hjá sérstökum saksóknara seg­ ir Róbert að hann sé með ráðgjafar­ samning við lögmannsstofuna Logos, en hann sé bundinn trúnaði um ein­ staka viðskiptavini. DV spurði Róbert hvers eðlis ráð­ gjöfin hefði verið, hvað hann hefði fengið greitt fyrir hana og hvort hann teldi það vera við hæfi að forseti laga­ deildar HÍ blandaði sér í sakamál með þessum hætti. Í skriflegu svari segir Róbert: „Bókin er niðurstaða tæplega sex ára rannsóknar á þessari lagareglu þar sem fjallað er um rúmlega 100 dóma og aðrar úrlausnir, innlendar sem er­ lendar. Í þessu ferli veitti ég ýmsum aðilum, bæði opinberum aðilum og einkaaðilum, ráðgjöf um þetta efni sem gaf mér tækifæri til að auka við þekkingu mína. Í bókinni fjalla ég um dóm Hæstaréttar í máli fyrrver­ andi ráðuneytisstjóra fjármálaráðu­ neytisins sem gekk á rannsóknarstigi málsins í febrúar 2010 enda fræðilega mjög áhugaverður fyrir það efni sem ég var að skrifa um. Er sú umfjöllun að hluta til byggð á opinberum fyrirlestri sem ég hélt á vegum Lögfræðinga­ félags Íslands í janúar á síðasta ári. Á þeim tíma hafði ég ekki komið neitt að ráðgjöf í því máli. Eins og ég upplýsi í bókinni veitti ég hins vegar verjanda í málinu tiltekna ráðgjöf eftir að ákæra var gefin út í því haustið 2010 en um efnismeðferð málsins er eðli máls samkvæmt ekki rætt í bókinni þar sem endanlegur dómur Hæstaréttar liggur ekki fyrir. Um þessa ráðgjöf mína upp­ lýsi ég hins vegar með skýrum hætti í samræmi við akademískar kröfur sem fram koma í siðareglum og stefnu Há­ skóla Íslands auk þess að upplýsa um önnur tilvik. Mikilvægt er að háskóla­ menn á sviði lögfræði taki virkan þátt í lagaframkvæmdinni til að dýpka eigin skilning, en að fylgt sé því verklagi að upplýsa um slíka ráðgjöf ef nauðsyn krefur við útgáfu efnis.“ Aflar tekna utan háskólans Ekki liggur fyrir hvað Róbert fær greitt fyrir þau störf sem hann sinnir utan háskólans en fram kom í tekjublaði DV á síðasta ári að Róbert hefði um tvær milljónir króna í mánaðarlaun. Ljóst er að stór hluta þeirra tekna aflar hann utan háskólans. Auk þess að sinna fyrrgreindum ráðgjafarstörf­ um var hann meðal annars formað­ ur rannsóknarnefndar Kirkjuþings á síðasta ári, sem fór ofan í saumana á viðbrögðum kirkjunnar við ásökun­ um kvenna á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi. n Forseti lagadeildar með ráðgjafarsamning við Logos Veitti verjanda Baldurs ráðgjöf „Um þessa ráð- gjöf mína upplýsi ég hins vegar með skýr- um hætti í samræmi við akademískar kröfur sem fram koma í siðareglum og stefnu Háskóla Íslands auk þess að upplýsa um önnur tilvik. Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Róbert Spanó Forseti lagadeildar HÍ veitti verjanda Baldurs Guðlaugssonar launaða ráðgjöf og er einnig með samstarfssamning við lögmannsstofuna Logos. mynd SigtRygguR ARi Baldur guðlaugsson Hefur tvívegis kraf- ist frávísunar á grundvelli réttarreglunnar sem Róbert Spanó fjallar um í fræðibók sinni. Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.isár drekans Heilsumeðferð · opnar orkuflæði · slökun · losar um spennu og kvíða · dregur úr verkjum · styrkir líkamann · o.fl. Jafnvægi fyrir líkama og sál Var hegnt fyrir hetjudáð: Þórarinn fær bæturnar „Þetta eru náttúrulega gleðitíð­ indi fyrir mig, og ekki bara fyrir mig heldur fyrir launamenn í landinu,“ segir Þórarinn Björn Steinsson sem á fimmtudag fékk viðurkennda skaðabótaskyldu Norðuráls vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir þegar hann, í félagi við annan mann, bjargaði samstarfskonu sinni í kjölfar vinnuslyss. DV hefur fjallað talsvert um málið en Þórarinn hlaut alvarleg bakmeiðsli þegar hann lyfti ofan af samstarfskonu sinni svokall­ aðri bakskautsklemmu sem fallið hafði á hana. Klemmu sem vegur 620 kíló. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður hafnað því að Norður­ ál væri skaðabótaskylt í málinu og var ákvörðun Hæstaréttar mikil gleðitíðindi fyrir Þórarinn sem thlaut örorku við þessa hetjudáð þann 21. september 2005. „Fyrir mig persónulega þýðir þetta að ég fæ viðurkenningu á þeim skaða sem ég beið og að þessir aðilar séu skaðabótaskyldir vegna hans,“ segir Þórarinn. Hann vill koma á framfæri þökkum til Verkalýðsfélagsins á Akranesi sem hann segir hafa staðið rækilega við bakið á honum. Í dómi Hæstaréttar segir að Norðurál beri vinnuveitenda­ ábyrgð á mistökum sem urðu hjá stjórnanda krana sem bakskautsk­ lemman losnaði úr. Tjón Þórarins teljist til bótaskyldrar afleiðingar á slysinu. Þá var Norðuráli gert að greiða Þórarni 1,2 milljónir króna í málskostnað. Sem fyrr segir slas­ aði Þórarinn sig við áreynsluna sem fylgdi því að lyfta klemmunni þungu af samstarfskonunni. „Ég er búinn að vera óvinnu­ fær nú í eitt og hálft ár og veit ekk­ ert hvað ég verð lengi í viðbót,“ segir Þórarinn sem sjálfur vill ekki ganga svo langt að kalla þetta hetjudáð. „Ég veit ekki með það, þetta er nú bara eitthvað sem allir hefðu gert. Við vorum tveir sem stóðum þarna næst og við bara gerðum þetta.“ Og þú myndir gera það sama aftur? „Já, já, já, ekki spurning.“ mikael@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.