Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Síða 11
Fréttir 11Helgarblað 20.–22. janúar 2012
Þingmenn
ræða Geir
Þingmenn ræða í dag, föstudag,
hvort sleppa skuli Geir H. Haarde
við áframhaldandi málarekst-
ur fyrir landsdómi. Þingmenn
allra flokka nema Sjálfstæðis-
flokks ætla að leggja fram dag-
skrártillögu um að vísa tillögunni
frá. Þingflokksformaður Vinstri
grænna telur meirihluta fyrir
slíku. Verði dagskrártillögunni
hafnað er það líklega stjórnsýslu-
og eftirlitsnefndar að leggja mat á
hvort Geir skuli sleppa og leggja
aftur fyrir þing. Þingsályktunartil-
lögur þurfa enda tvær umræður.
Þrír þingmenn VG hafa lýst
yfir stuðningi við Geir þar á með-
al Ögmundur Jónason innanrík-
isráðherra sem gerði það í langri
grein í Morgunblaðinu. Mikil
reiði er meðal flokksfélaga VG
vegna málsins en val Ögmundar
á fjölmiðli til að birta yfirlýsingu
sína vekur athygli.
Samfylkingin er sögð loga
vegna málsins. „Stjórn [Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík] væntir
þess að allir þingmenn Samfylk-
ingarinnar greiði atkvæði gegn
þingsályktunartillögunni,“ segir
í ályktun. Kjartan Valgarðsson,
formaður félagsins, virðist hafa
óttast að þingmenn læsu ekki
ályktanir aðildarfélaga. Í viðtali
við vefritið Smuguna, sem er að
hluta í eigu VG, hótaði Kjartan
stuttu eftir að ályktunin var send
út að þingmenn sem kysu með
Bjarna yrðu þurrkaðir af fram-
boðslistum.
Eldsneytis-
skattar verði
lagðir niður
Ögmundur Jónasson innan-
ríkisráðherra mælti á Alþingi
á fimmtudag fyrir tillögu til
þingsályktunar um samgön-
guáætlun 2011 til 2022 og 2011
til 2014. Meðal þess sem fram
kemur í tillögunni er að á áætl-
unartímabilinu verði breytt
skipan á gjaldtöku fyrir umferð
á vegum könnuð. Greindir verði
kostir og gallar þess að ökutæki
greiði í samræmi við ekna vega-
lengd,jafnhliða því að núverandi
kerfi sérstakra eldsneytisskatta
yrði lagt niður.
Tólf ára áætlunin er stefnu-
markandi samgönguáætlun fyrir
árin 2011–2022 en hin er verk-
efnaáætlun fyrir árin 2011–2014
sem er hluti af og innan ramma
stefnumarkandi áætlunarinn-
ar. Þá fór Ögmundur yfir helstu
áherslubreytingar frá tillögu að
síðustu tólf ára samgönguáætl-
un en fyrrnefndar breytingar á
gjaldtöku eru þar á meðal. Meðal
annarra breytinga sem stefnt er
að má nefna að dregið verði úr
neikvæðum umhverfisáhrifum
samgangna með það að mark-
miði að þær verði umhverfislega
sjálfbærar. Stefnt verði að því að
losun gróðurhúsalofttegunda
vegna samgangna verði undir 750
þúsund tonnum árið 2020, sem
er 23 prósenta samdráttur frá
2008. Markmiðið er í samræmi
við aðgerðaáætlun íslenskra
stjórnvalda í loftslagsmálum.
Fær borgað
og styður geir
n Stefán Már Stefánsson segir stuðning sinn ekki falan
J
á, ég kom að greinargerðinni
vegna frávísunarkröfu lög-
manna Geirs,“ segir Stefán Már
Stefánsson lagaprófessor að-
spurður um störf í þágu máls-
varnar Geirs H. Haarde fyrrverandi
forsætisráðherra. „Ég mætti á fund
með þeim þegar þeir voru að semja
greinargerðina fyrir kröfuna og vann
í fimm tíma og fékk fyrir það 75 þús-
und krónur.“
Skrifaði til stuðnings Geir
Stefán skrifaði grein í Morgunblaðið
í vikunni þar sem hann gagnrýndi
verklag Alþingis við ákvörðun um
ákæru á hendur Geir. „Forsenda
sumra þingmanna kann t.d. að hafa
verið sú að þeir samþykktu því að-
eins ákæruna að allir yrðu ákærðir
líkt og þingmannanefndin lagði til.
Heildarniðurstaðan gæti því hafa
orðið önnur en meirihluti þing-
manna reiknaði með og gerði ráð
fyrir. Það er illa stætt á því að tilvilj-
anir geti ráðið því hverjir skuli sæta
ákæru.“ Bæði Andri Árnason lög-
fræðingur Geirs og Valtýr Sigurðs-
son, fyrrverandi ríkissaksóknari,
hafa vitnað í greinina málstað sín-
um til varnar.
Þá má nefna að grein Stefáns
er gerð að umfjöllunarefni í leiðar
Morgunblaðsins. „Allmargir þing-
menn sem greiddu atkvæði með
ákæru á sínum tíma, hafa upplýst
að þeim þyki ljóst að forsendubrest-
ur hafi orðið í málinu með atkvæða-
greiðslunni um það, þar sem aðeins
fjórðungur tillagna sérstakrar nefnd-
ar hlaut samþykki,“ segir í leiðaran-
um sem að öllum líkindum er skrif-
aður af Davíð Oddssyni. Þess má
geta að einhverjir telja sig sjá á frétta-
flutningi Morgunblaðsins af málinu
að blaðið hallist nokkuð á sveif með
málstað Geirs.
„Fræðilegur pirringur“
„Það er ekkert leyndarmál að ég er
ekki sáttur við niðurstöðu lands-
dóms um að vísa málinu ekki frá,“
segir Stefán og bætir við að það sé
ekkert óeðlilegt enda hafi ekki verið
fyllilega tekið mark á þeirri röksemd
sem hann aðstoðaði verjendur Geirs
við að semja. „Það er samt alvanalegt
og við fræðimenn verðum að búa við
slíkt.“ Stefán segir það af og frá að af-
staða hans smitist af störfum hans
fyrir verjanda Geirs. Hann segir verj-
anda hafa leitað til hans vegna fyrri
skrifa. „Greinin í Morgunblaðinu
er algjörlega að mínu frumkvæði.
Það blundar auðvitað í mér að þessi
málsmeðferð sé ósanngjörn. Í mín-
um huga kann að koma til greina
að málsmeðferðin sé brot á mann-
réttindasáttmálanum. Ég er bara að
pirra mig fræðilega með greinarskrif-
um.“
Aðspurður segir Stefán það af og
frá að hann hefði átt að taka fram í
greininni að hann hafi áður þegið
greiðslu fyrir ráðgjöf frá verjendum
Geirs. „Það kemur fyrir að fólk ósk-
ar eftir sérfræðiráðgjöf og að ég fái
greitt fyrir slíkt,“ segir hann og ítrekar
að hann telji ekki þarft að telja upp
slíkar greiðslur í greinum sem hann
skrifar að eigin frumkvæði.
Jón Steinar neitar að svara
DV leitaði svara hjá Jóni Steinari
Gunnlaugssyni hæstaréttardóm-
ara um það hvort hann hefði þegið
greiðslur frá verjendum Geirs en
blaðinu barst ábending um að hann
væri meðal þeirra sem aðstoð-
uðu við málsvörn forsætisráðherr-
ans fyrrverandi. Jón Steinar vildi
ekki svara því enda væri það ekki í
hans verkahring að svara fjölmiðl-
um. Hann kvaðst þó spenntur að
sjá hvaða ályktanir „ágætur blaða-
maður“ drægi út frá því að hann
neitaði að svara spurningunni. Þess
má geta að Andri Árnason, lögfræð-
ingur Geirs, sagðist ekki kannast við
að Jón Steinar hefði unnið fyrir sig í
málinu.
Líkt og í almennum dómsmálum
er það dómstólsins að dæma verj-
endum sakbornings þóknun. Þær
upplýsingar fengust hjá ritara lands-
dóms að greiðslur dómsins vegna
útlagðs kostnaðar verjenda væru
hingað til 251 þúsund krónur. Þær
greiðslur voru dæmdar verjendum
þegar landsdómur tók afstöðu til frá-
vísunarkröfu verjenda.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Geir H. Haarde Fyrrverandi forsæt-
isráðherra og Andri Árnason, lögmaður
hans, við þinghald landsdóms.
„Það kemur fyrir að
fólk óskar eftir sér-
fræðiráðgjöf og að ég fái
greitt fyrir slíkt.
Stefán Már Stefánsson Þáði greiðslu fyrir sérfræðiráðgjöf frá verjendum Geirs.