Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Blaðsíða 16
16 Fréttir 20.–22. janúar 2012 Helgarblað
– VERKIN TALA
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200
www.velfang.is • velfang@velfang.is
Fr
um
Nýtt og traust umboð
fyrir á Íslandi
varahlutir
þjónusta
verkstæði
vélar
Vodafone
segir upp 28
manns
Vodafone hefur sagt upp 28 starfs-
mönnum. Fjarskiptafyrirtækið
segir að þetta sé liður í viðbrögð-
um þess við miklum kostnað-
arhækkunum á undanförnum
misserum. Ekki kemur fram í til-
kynningu sem barst frá fyrirtæk-
inu á fimmtudag hvort stjórnend-
um félagsins hafi verið sagt upp
eða hvort um sé að ræða lágt setta
starfsmenn. Ekki kemur heldur
fram um hvaða kostnaðarhækk-
anir er að ræða.
Starfsfólkið fær laun í þrjá
mánuði og krefur fyrirtækið fólkið
ekki um að vinna út uppsagnar-
frestinn. Talsmaður fyrirtækisins
fullyrðir að fjöldauppsagnirnar
hafi ekki áhrif á þjónustu fyrirtæk-
isins. Eftir uppsagnirnar starfa 390
manns hjá fyrirtækinu.
Bílþjófar
gómaðir
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu hafði hendur í hári fjögurra
einstaklinga á fimmtudag vegna
gruns um að þeir hefðu stolið
bifreið. Þremenningarnir, þrír
karlar og ein kona, voru hand-
teknir í Reykjavík í tengslum við
rannsókn málsins en bifreiðin
sem var stolið er af gerðinni
Mercedes Benz. Þau hafa öll
komið við sögu lögreglu áður.
Mikil fækkun
Á fjórða ársfjórðungi 2011 voru
175.700 á vinnumarkaði sam-
kvæmt tölum sem Hagstofan birti
í vikunni. Þetta jafngildir 78,4
prósenta atvinnuþátttöku sem er
lægsta hlutfall sem Hagstofan
hefur mælt frá upphafi mælinga
árið 1991. Frá fjórða ársfjórðungi
2008 hefur vinnuaflið minnkað
um 6.700 manns, en það taldi þá
182.400 manns. Frá fjórða
ársfjórðungi 2010 hefur fólki á
vinnumarkaði fækkað um 3.100.
Atvinnuþátttaka karla á 4.
ársfjórðungi 2011 var 82,7 prósent
en kvenna 74 prósent.
Mikill viðbúnaður
vegna vítisengla
n Farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir meintu árásarfólki
n Menn úr sérsveit lögreglu á staðnum þegar fólkið var fært fyrir dóm
F
arið var fram á áframhald-
andi gæsluvarðhald yfir fjór-
um einstaklingum vegna lík-
amsárásar á konu sem átti
sér stað í Hafnarfirði þann
22. desember í fyrra og er talin tengj-
ast Hells Angels. Fólkið var leitt
fyrir dóm í Héraðsdómi Reykjaness
á miðvikudag en það hefur verið í
einangrun vegna rannsóknarhags-
muna. Farið var fram á áframhald-
andi gæsluvarðhald til 16. febrúar
á grundvelli almannahagsmuna og
varð héraðsdómur við þeirri beiðni.
Ekki var farið fram á áframhaldandi
einangrunarvist.
Einn af þeim sem eru í gæsluvarð-
haldi er Einar „Boom“ Marteinsson,
forseti Hells Angels, en hann er grun-
aður um að hafa fyrirskipað árásina
á konuna. Hinir eru taldir vera með-
limir Hells Angels, en konan sem er
í haldi, Andrea Kristín Unnarsdótt-
ir, sem notar nafnið Andrea slæma
stelpa á Facebook-síðu sinni, er í
sambandi með einum mannanna.
Haldið úr augsýn
Gífurlegur viðbúnaður var í héraðs-
dómi þegar fólkið var fært fyrir dóm.
Fjöldi lögreglumanna var á staðn-
um, meðal annars menn úr sérsveit
lögreglunnar og rannsóknarlög-
reglumenn. Fyrir utan héraðsdóm
voru lögreglubílar í viðbragðsstöðu
dreifðir um svæðið. Fólkið var leitt
inn í bygginguna og dómsal hvert í
sínu lagi af lögreglumönnum og var
ávallt haldið úr augsýn hvers annars.
Allir nema Andrea Kristín og Einar
„Boom“ huldu andlit sín. Einar vildi
ekki tjá sig um afstöðu til kærunnar
við blaðamann á leið inn í dómsal.
Hrottaleg árás
Af þeim fjórum sem eru í haldi eru
þrjú, tveir menn og ein kona, grun-
uð um að hafa veist að konunni á
hrottalegan hátt. Eiga þau meðal
annars að hafa notað töng í þeim til-
gangi að klippa af konunni fingur
sem og beitt hana grófu kynferðis-
legu ofbeldi. Konan var flutt með-
vitundarlítil á bráðamóttöku eftir að
vinkona hennar sem var gestkom-
andi hringdi á lögreglu eftir að fólkið
hafði haft sig á brott. Konan dvaldi á
sjúkrahúsi í nokkra daga en var síðar
útskrifuð.
Samkvæmt heimildum DV held-
ur konan því fram að aftur hafi verið
ráðist á sig af mönnum tengdum
Hells Angels á nýársmorgun, en
gæsluvarðhaldskrafan tók aðeins
til fyrri árásarinnar. Leynd ríkir yfir
dvalarstað konunnar en þar er hún
undir nokkurs konar vernd.
Fórnarlambið og Andrea Krist-
ín, sem grunuð er um árásina, voru
áður góðar vinkonur. Andrea Kristín
ku telja fórnarlambið hafa svikið sig
og í kjölfarið hafi fólkið ráðist á kon-
una á heimili hennar.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Leiddur inn Einn hinna meintu árásarmanna leiddur fyrir dóm.
Hrottaleg árás Farið var fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir fólkinu á grundvelli almannahagsmuna.
Slæma stelpa Andrea Kristín Unnarsdóttir notar nafnið
Andrea slæma stelpa á Facebook.
Forsetinn Einar „Boom“ Marteinsson, forseti Hells Angels, er
grunaður um að tengjast árásinni. MYNDIR SIGTRYGGUR ARI