Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Qupperneq 21
Fréttir 21Helgarblað 20.–22. janúar 2012
Sól og
heilsa ehf
B e t r i a p o t e k i n o g M a ð u r l i f a n d i w w w . s o l o g h e i l s a . i s
SucoBloc
SucoBloc-pillurnar hindra að líkaminn taki upp sykurinn í fæðunni.
Borði maður eitthvað sætt fer hluti af því ekki út í líkamann.
Allt sem gera þarf er að taka 2-3 pillur af þessu norska
jurtalyfi fyrir hverja máltíð (ekki fleiri en 9 stk. á dag.)
Þær veiða sykurinn og kolvetnið úr fæðunni og hindra
að hann breytist í fitu. Þannig er auðveldara að halda
sér grönnum.
V
ið höfum farið í marga
sparisjóði og banka á Ís-
landi og það er ekki krónu
að fá. Allt tal um uppbygg-
ingu með bönkum og sjóð-
um á Íslandi er þunnur þrettándi,“
segir Árni Gunnarsson, fyrrverandi
þingmaður og forsvarsmaður fyrir-
tækisins Heilsuþorp á Flúðum ehf.
Hann vinnur nú að því, ásamt fleir-
um, að reisa stórt heilsuþorp á jörð-
inni Gröf á Flúðum. Sunnlenska
fréttablaðið greindi fyrst frá þessu.
Árni segir að Kínverjar séu áhuga-
samir um að leggja fé í verkefnið en
fullreynt sé að afla fjár hér á Íslandi.
Verkefnið í heild gæti kostað á bilinu
sex til sjö milljarða króna. Árni seg-
ir að innan fárra vikna eða mánaða
gæti fullbúin viljayfirlýsing við kín-
verska fyrirtækið CSST International,
verið undirrituð, um að leggja til það
fé sem þarf. Drög að viljayfirlýsingu
hafi þeir þegar séð. Undirbúnings-
vinnan er vel á veg komin en Árni
segir þó að mörg ljón séu enn í veg-
inum áður en þorpið rís.
180 íbúðir gætu risið
Árni segir að hugmyndin að heilsu-
þorpi hafi fæðst fyrir allnokkrum
árum. „Grunnhugmyndin er sú að
fólk geti komið, fengið ítarlega úttekt
á heilsu sinni, hvílt sig hjá okkur og
fengið ráðleggingar til að bæta heils-
una.“ Ef allt gengur upp gætu, að
sögn Árna, risið 180 íbúðir á svæð-
inu, sem spannar sjö hektara. Íbúðir
á bilinu 60 til 80 fermetrar að stærð.
Vitanlega verði þó byrjað á færri
íbúðum en aðalatriði sé að koma
upp þjónustuhlutanum; laugum og
allri aðstöðu til heilsuræktar.
Árni hefur gengið með hugmynd-
ina í maganum lengi en fyrir um átta
árum stofnaði hann félagið Heilsu-
þorp ehf. Hann segir að hann hafi
átt í viðræðum við fjársterka Spán-
verja en þeir hafi horfið þegar krepp-
an skall á. Leit að fjármagni á Ís-
landi hafi, eins og áður segir, ekki
borið árangur. Viðræður við lífeyris-
og framtakssjóði hafi einnig reynst
árangurslausar. Það var ekki fyrr
en þeir komust í tæri við Kínverj-
ana, í gegnum Íslandsstofu, að mál-
ið komst á skrið. Öllu máli hafi skipt
að fá vottun bandarísku stofnunar-
innar Sustainable Sites, en verkefnið
Heilsuþorp á Flúðum hafi verið eitt
einungis þriggja verkefna sem hlutu
náð fyrir augum þeirra í allri Evrópu.
CSST fáist aðallega við að framleiða
öryggisbúnað af ýmsum toga en fjár-
festi einnig í umhverfisvænum og
sjálfbærum verkefnum.
Allt til alls á Flúðum
Spurður hvað hafi valdið því að Flúðir
urðu fyrir valinu segir Árni að þar sé
allt til alls. Veðurfar sé þar gott, stað-
setningin sé góð hvað vegasamband
snertir, gróðurhúsabyggð sé á svæð-
inu, vistvæn ræktun, jákvætt sveitar-
félag, flugvöllur, náttúruperlur og af-
þreying á borð við hestaferðir. „Allt
til matargerðar er innan 25 kílómetra
radíuss,“ segir hann og bætir við að
staðsetningin gæti vart verið betri.
Sveitarfélagið hafi lagt þeim til jörð
og fulltrúi þess sitji í stjórn félagsins
en Smugan hefur eftir Jóni Valgeirs-
syni sveitarstjóra á svæðinu að hann
vonist til að framkvæmdir hefjist sem
fyrst.
Árni vonast til að á byggingar-
tíma muni á bilinu 100 til 120 manns
vinna við verkið en áætlanir gera ráð
fyrir að starfsfólk, að byggingu lok-
inni, verði á bilinu 120 til 130. Árni
segir að markhópurinn sé jafnt Ís-
lendingar sem útlendingar, hann
vonist til að stærri fyrirtæki og félaga-
samtök, bæði hér og í útlöndum, sjái
hag sinn í að kaupa íbúðir á svæðinu
til að bjóða starfsfólki sínu.
Ljóst er að um gríðarlega innspýt-
ingu fyrir sveitarfélagið yrði að ræða,
ef af verkefninu verður. „Þetta ræðst
á næstu tveimur mánuðum,“ segir
Árni að lokum.
Reisa heilsuþorp
fyrir sjö milljarða
n Kínverjar íhuga að fjármagna 180 íbúðir við Flúðir n Ekki gekk að fá peninga á Íslandi
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Mörg ljón í veginum Árni
vandar íslenskum bönkum ekki
kveðjurnar. Þar sé ekkert að fá.