Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Page 27
Viðtal 27Helgarblað 20.–22. janúar 2012
vorum í heita pottinum, við
strákarnir í Eurovision, og ég
gaf þeim bara bjórinn minn. Ég
hafði ekki lyst á honum. Stund-
um er það þannig. En stundum
vil ég bara fá að vera venjuleg-
ur strákur, fíflast og skemmta
mér. Fá mér bjór með félög-
unum og þá verð ég stundum
fyrir aðkasti. Mér finnst það fá-
ránlegt.“ Hann þagnar og hugs-
ar sig um smástund. Brosir svo
breitt og segir:
„Allt í lagi, ég skal viður-
kenna að þetta er smá bogið.
Ég persónulega veit það, en ég
er ekki að gera neitt rangt. Ég
fæ mér einn og einn bjór og líf-
ið er í skorðum.“
Hættum að fela
En hefur hann orðið fyrir að-
kasti fyrir að eiga föður sem er
í daglegu tali kallaður morð-
ingi? „Nei,“ segir Kristmundur
ákveðinn. „Við erum þroskað
fólk í Grafarvoginum. Og Ís-
lendingar eru ekki með svona
stæla. Við erum flest á sama
plani hér og við erum með
stórt hjarta og skiljum ógæfu
því hún blandast lífi okkar
allra. Ókei, mínu lífi ef til vill
oftar en margra annarra. En
við þekkjum öll ógæfuna sem
fylgir fíkn. Ég fæ miklu fremur
stuðning og skilning.“
Kristmundi Axel finnst
samkenndin af hinu góða
en finnst vandinn felast í því
hversu mikið Íslendingar
hylma yfir hver með öðrum og
hann vill breyta því.
„Það er ekki tekið nógu
hart á áfengisvanda þjóðar-
innar. Það þarf að breyta svo
mörgu. Ég væri til í að breyta
heiminum. Ég er svo geð-
veikur í hausnum. Þeir brjál-
uðu eru þeir sem geta,“ seg-
ir hann. „Þeir eru þeir einu
sem trúa því að þeir geti það.
Trú á breytingar er forsenda
þeirra. Áfengis- og lyfjafíkn er
verst fyrir aðstandendur, þetta
eru kvalir og þjáningar svo
margra. Maka, foreldra, barna
og systkina. Ég fæ svo mikið af
pósti og símtölum frá bjargar-
lausum börnum og ungling-
um sem vilja bara deila með
mér sársaukanum. Þetta eru
börn sem glíma við áfengis-
sjúka foreldra og heimilis-
ofbeldi. Þetta er svo ljótt og
sársaukafullt en allir eru í
feluleiknum. Allir eru bros-
andi og það vill enginn vita af
öllum þessu ljótu leyndarmál-
um. Er þetta samfélagið sem
við viljum búa í? Það eru allir
að fela. Burt með það. Hætt-
um að fela og byrjum að tala.“
Opið hjarta gegn ógæfu
Hann segir að það að hann
hafi opnað hjarta sitt hafi
bjargað honum frá ógæfu.
„Já, það bjargaði mér. Þú sérð
mig í dag. Mér líður vel. Hef
dregið mörk í kringum tilveru
mína, þangað kemst ógæfan
ekki inn, skal ég segja þér. Ég
lifi glaður og sáttur. Að tala
um reynslu sína er þroskandi,
að fela og ljúga er flótti sem
stöðvar allan þroska.
Að tala er að leysa vanda,
að þora ekki að tala eykur allt-
af á vandann og hjálpar eng-
um. Síst sjálfum þér. Það er
skemmandi.
Ég er bara heví flottur gaur,
kannski aðeins pínu feitur,“
segir hann og klípur í kinnarn-
ar og hlær. „Annars er fínt að
vera ég.“
Kristmundur Axel horfir
björtum augum á framtíðina
og tilveruna. Hann segist ætla
að einbeita sér að því að vera
hann sjálfur.
„Ég orti um þessa þörf mína
í nýju lagi sem kom út í vik-
unni, Alveg eins og er.“ Hann
syngur fyrir blaðamann. Þjón-
ar hótelsins stöðvast í sporun-
um og horfa í átt til okkar.
Á ég að breyta mér
Svo aðrir þrái að vera ég
Eitt líf, lágmark að ég
Fái að vera ég
„Ég á ekki við að ég sé að
fara að verða eitthvað slæm-
ur. Ég er oft að rífa kjaft að
gamni mínu. En ég meiði
ekki með orðum mínum. Ég
tala aldrei um að misnota
eða vanvirða konur og tala
ekki niður til nokkurs manns.
Það versta sem ég segi í þessu
lagi er: Troddu þessum iP-
hone upp í rassgatið á þér. En
hann Pétur Jóhann Sigfússon
segir það hvort sem er ann-
an hvern dag,“ segir hann og
skellihlær.
Sleppir stórum draumum
Eurovision á hug hans þessa
dagana. Hann segist njóta
hverrar stundar og segist
ánægður með að hafa kynnst
Ingólfi Þórarinssyni, höfundi
lagsins Stattu upp.
„Hann er hlýr og hæfi-
leikaríkur listamaður, hann
Ingó, hann kom mér á óvart.
Það er skemmtilegt að taka
þátt í þessari keppni og ég
nýt hverrar stundar. Ég er að
kynnast miklu af hæfileika-
fólki. Ég hef verið einfari svo
lengi, það er þroskandi að
vinna í hópi með öðru fólki.
Það er alveg frábært.“
Aserbaídsjan, hefur hann
flett því upp í heimsatlasn-
um? Hann hlær. „Nei, en
mamma og pabbi gerðu það.
Þau eru að rifna úr stolti.
Þetta er einhvers staðar úti
í rassgati. En veistu, að mér
finnst betra að sleppa því að
leyfa mér að dreyma svona
stórt. Ég þarf að vera jarð-
bundinn með báða fætur á
jörðinni. Ég myndi bara fá
þetta á heilann. Í staðinn
einbeiti ég mér bara að mér
sjálfum og vonandi dugar
það.“ n
„Pabbi er enginn morðingi“„Það var sárt að
kveðja pabba
og sjá fíkilinn birtast.
Þetta skrímsli.
Vill fá að vera hann sjálfur
„Það eina sem ég get gert er að
lifa mínu lífi og halda mig frá
martröðum þessa lífs. Meðan ég
er glaður þá gengur mér vel,“ segir
Kristmundur Axel Kristmundsson
rappari um fjölskyldusögu sína.
mynd eyþór árnaSOn