Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Blaðsíða 29
Viðtal 29Helgarblað 20.–22. janúar 2012 Ásta sem var full metnaðar fyr- ir þeirri þjónustu sem hún hafði byggt upp frá grunni og gat ekki lið- ið ástandið. Fjölskylda vinkonunnar hafði einnig beðið Ástu um að beita sér í málinu því það skaðaði börn- in hennar. Hann segir Ástu hafa átt breiðan og traustan bakhjarl innan Háskólans en þó hafi hún ekki mætt stuðningi þeirra sem voru hæstráð- andi þar. „Páll Skúlason hafði nýtekið við rektorsembætti þarna. Hann hafði öðlast mikla virðingu fyrir siðfræði- túlkanir og greiningar á siðleysi þjóð- félagsins sem hann var mjög áberandi með í sjónvarpi og öðrum miðlum á þessum tíma. Ásta ákvað að styðja hann til rektors og beitti sér fyrir kjöri hans. Ásta var vel tengd innan skólans og virkjaði jafnt starfsmenn, kennara og stúdenta í kosningaferl- inu. Hann sigraði í þessu rektorskjöri en svo var það með hans fyrstu emb- ættisverkum að neita að tala við Ástu en hann var hennar næsti yfirmaður. Þar braut hann öll þau siðferðislög- mál sem hann var búinn að tala svo mikið um alls staðar. Siðfræði er hans sérsvið. Hann vildi aldrei tala við Ástu í einrúmi eins og hann gerði við alla starfsmenn og starfslok hennar fóru að mestu fram í gegnum lögfræðinga. Siðfræðin reyndist hér bara í orði en ekki í verki. Hann var ekki meiri mað- ur en svo. Fyrir mér er hann bara ávís- un sem ég myndi aldrei taka við,“ segir Valgeir þungt hugsi og heldur áfram. Hafði aflað sér óvina „Þetta var gífurlega þungbært og stóð mánuðum saman. Ásta hafði mikinn stuðning inni í Háskólanum en hún hafði líka búið sér til óvini. Í starfi sínu sem talsmaður stúdenta hafði hún tekið afstöðu gegn embættis- mönnum, meðal annars í dóms- máli þar sem hafði verið brotið gegn blindum stúdent í skólanum. Hún stóð með stúdentinum í máli sem Háskólinn tapaði. Það vann gegn henni seinna meir en það mun eng- inn gangast við því að það hafi gert það,“ segir hann sannfærður. „Þegar svo alkarnir, sem voru bæði starfsmenn og vinkonur henn- ar í senn, sameinuðust gegn henni, þá voru þeir teknir um borð Háskóla- skútunnar og Ásta sett frá borði. Hún byggði upp þessa deild frá grunni og vann alveg gífurlegt starf í að ryðja þessu fagi brautina. Hún var líka ein þeirra sem beitu sér hvað mest fyrir stofnun námsdeildar innan Háskól- ans og nú eru námsráðgjafar í öllum skólum. Þetta er stétt sem telur núna um 3–400 manns sem hlotið hafa menntun í því námi. Þessi sama deild lætur eins og Ásta hafi aldrei verið til. Þarna er þöggun í gangi á vegum Há- skólans. Þetta hefur valdið okkur al- veg ótrúlega miklum sársauka.“ Hótað líkamsmeiðingum, dauða og íkveikjum Annað mál olli hjónunum og fjöl- skyldunni allri miklum og erfiðum sársauka. Mál sem tengist hinu mál- inu óbeint. Umsátursástand sem varði í rúm tvö ár, nokkuð sem er svo ótrúlegt að halda mætti að um reif- ara væri að ræða, ekki raunveruleika í Reykjavík. Ástu Kristrúnu bárust hótunarbréf þar sem dauða og lík- amsmeiðingum var meðal annars hótað. Fjölskyldan var ofsótt. „Þetta var ástand sem varði í rúm tvö ár. Við fengum hótanir um líkamsmeiðing- ar, dauða, íkveikjur og það sagt hvað hún væri lélegur fagmaður og mikill asni, bara alls kyns ógeð. Eins ömur- legt og það gerist.“ Fjölskyldan leitaði til lögreglunn- ar en þar var fátt um svör. Ekki fyrr en til þeirra barst bréf með hvítu dufti sem 8 ára dóttir þeirra tók á móti. „Þeir gerðu ekkert fyrr en það bréf barst. Þá fóru þeir að taka þetta al- varlega. Við náttúrulega áttum öll bréfin og fyrsta bréfið var með frí- merki á. Aftan af þessu frímerki var tekið lífsýni sem vísaði á ákveðna manneskju,“ segir Valgeir. Á svipuð- um tíma fóru Ástu að berast tölvu- póstar frá Hotmail-póstfangi. „Í þessum póstum stóð: „Ég fylgist með þér“ og „Ég er að fylgjast með börn- unum þínum“ og eitthvað þannig. Þetta var orðið þannig að við fylgd- um börnunum okkar til og frá skóla út af þessum bréfum.“ Þau unnu í miðbænum á þessum tíma og var ekki vært í vinnunni. „Við vorum með aðstöðu í miðbænum og fengum bréf og tölvupósta þar sem var sagt: „Ég fylgist með ykkur dag- lega. Ég sit hérna á kaffihúsi og sé ykkur þegar þið komið og farið. Ég sé mig í anda þegar ég er með eldspýtur og kveiki í hárinu á þér.“ Þetta var bara eins og út úr einhverjum svæsn- um krimma.“ Önnur vísbending varð til þess að sá sem stóð að baki ofsóknunum fannst. „Á þessum tíma var au pair- stúlka að vinna hjá okkur sem sendi þeim hjá Hotmail póst og fékk upp- lýsingar sem við fórum með til Sím- ans. Lögreglan gat út frá þessum upplýsingum fundið IP-tölu þess „Það er eitt sem ég get sagt um það að vera sextugur: Þú færð enga vinnu Var hótað Ástu Kristrúnu barst fjöldinn allur af hótunarbréfum þar sem fjölskyldunni var hótað líkams- meiðingum og jafnvel dauða. Saman á ný Stuðmenn koma aftur saman á afmælis- tónleikum Valgeirs um helgina. Myndin er tekin á æfingu á fimmtudagskvöldið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.