Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Qupperneq 32
Þ
að var stór dagur í vændum
hjá Donald og Mörshu Le-
vine þann 9. nóvember 1989.
Innan örfárra klukkustunda
myndi sonur þeirra, Mark,
verða lögfræðingur og nýtt starf beið
hans í Cincinnatti. Klukkan var að
verða níu að morgni og Mark var að
setja föggur sínar í bíl sinn fyrir utan
heimili fjölskyldunnar í Munster, út-
hverfi Chicago.
Blárri Chevrolet Corsica-bifreið var
þá ekið upp að húsinu og út úr henni
steig maður með tvo böggla í fanginu.
„Federal Express,“ sagði maðurinn.
Þagar Mark var við að kvitta fyrir mót-
töku bögglanna í sömu andrá og hann
opnaði útidyrnar sló maðurinn hann
í höfuðið með skammbyssu. Maður-
inn ruddist síðan inn í húsið þar sem
hann mætti Mörshu. Hann hikaði ekki
eitt andartak og skaut hana tveimur
skotum í andlitið. Donald var inni á
baðherbergi og maðurinn skaut hann
í andlitið og bringuna. Meðan á þessu
stóð tókst Mark að komast í nærliggj-
andi skóla og hringja á lögregluna.
Marsha dó á leiðinni á spítalann og
Donald nokkrum klukkustundum síð-
ar. Mark var höfuðkúpubrotinn og lá á
spítala í þrjá daga.
Skildi bögglana eftir
Það varð strax ljóst að morðinginn
var ekki starfsmaður Federal Express
og innihald bögglanna, sem morð-
inginn gleymdi á vettvangi, var ekki
merkilegt; hárþurrka í öðrum og tvö
landakort í hinum.
Sérfræðingar rannsökuðu kortin
og fundu á þeim fingraför, en á þeim
tíma var fingrafaraleit ívið flóknari
aðgerð en nú um stundir og lögregla
þurfti að hafa einhverja hugmynd um
að hverjum ætti að leita.
Hvað sem því líður voru Levine-
hjónin mjög vel efnuð og á með-
al þess sem Donald hafði verið með
fingurna í var námafyrirtæki í Mont-
ana, en annað fyrirtæki sem hann átti
þróaði og sá um rekstur verslunar-
miðstöðva.
Donald hafði reyndar verið í
samstarfi með einum bræðra sinna,
Róbert, en með þeim hafði kastast í
kekki og leiðir hafði skilið. Donald
hafði á sér orð fyrir að vera hvatvís
og sagt var að hann vílaði ekki fyrir
sér að svindla. Sagði sagan að hann
hefði einu sinni skilið föður sinn eft-
ir í 100.000 dala skuldasúpu. Með
bræðrunum ríkti lítil vinátta þegar
þeir skildu að skiptum.
Reyndar hafði Róbert farið fram á
að fá lista yfir eignir Donalds kvöld-
ið eftir að hann var myrtur og síð-
ar lagði hann fram 11 milljóna dala
kröfu í dánarbúið.
Hvað Mark varðaði gerði lögregl-
an sér grein fyrir því að hann væri
einkaerfingi allra auðæva foreldra
sinna og níu dögum eftir morðin
samþykkti Mark að taka lygamælis-
próf; niðurstaðan varð ófullnægj-
andi.
Gamlar syndir gleymast seint
Lögreglan velktist ekki í vafa um að
tilgangurinn hefði fyrst og fremst
verið að myrða hjónin. Ekkert hafði
verið tekið og skotfærin voru af dýrri
og sjaldgæfri tegund.
Eftir nokkrar vikur hljóp á snær-
ið hjá lögreglunni þegar henni
barst ábending um að morðing-
inn væri hugsanlega Bruce William
McKinney, fertugur Phoenix-búi og
fyrrverandi starfsmaður hjá bræðr-
unum Donald og Róbert.
Reyndar var fátt sem var sam-
merkt með Bruce og kaldrifjuðum
morðingja, en gamlar syndir gleym-
ast seint – Bruce hafði verið hand-
tekinn vegna marijúana árið 1982
og fingraför hans voru á skrá hjá lög-
reglunni í Phoenix.
Lögreglan komst enn fremur að
því að Bruce hafði notað ökuskír-
teini Róberts þegar hann leigði bif-
reið sem líktist þeirri sem morðing-
inn hafði ekið. Við húsleit á heimili
Bruce fann lögreglan skammbyssu,
kvittun fyrir skotfærum, klemmu-
spjald líkt því sem sendlar Fede-
ral Express nota og yfirhöfn eins og
morðinginn hafði klæðst. Bruce var
handtekinn skömmu fyrir jól og vitni
bar að hann hefði verið við heimili
Levine-fjölskyldunnar hinn örlaga-
ríka morgun.
Róbert hvergi að finna
Bruce hélt statt og stöðugt fram sak-
leysi sínu og fullyrti að hann hefði
verið í Tucson þegar morðin voru
framin, að hann hefði fundað með
tveimur aðilum úr fasteignabrans-
anum.
Saksóknarar voru ekki reiðubúnir
til að leggja trúnað á frásögn Bruce
og kærðu hann fyrir tvö morð. Einnig
vildu saksóknarar ná tali af Róbert en
jörðin virtist hafa gleypt hann. Hann
hafði selt fyrirtæki sitt og látið sig
hverfa ásamt eiginkonu sinni.
Lögð var fram ákæra á hend-
ur Róbert þrátt fyrir að hann væri
hvergi að finna, en gaf sig fram
þremur mánuðum síðar í Los Ange-
les.
Þegar réttarhöldin nálguðust
ákvað Bruce að lýsa yfir sekt og vitna
gegn Róbert gegn því að sleppa við
dauðadóm.
Bruce sagði að Róbert hefði látið
sig fá skammbyssu, 60 Bandaríkja-
dali fyrir skotfærum og lofað að gera
hann að milljónamæringi. Bruce
fékk einnig afhenta 2.000 dali af há-
skólareikningi dóttur Roberts.
Réttardrama
Réttarhöldin hófust 13. júní 1991, í
dómhúsinu í Hammond í Indíana,
og stjarna saksóknara var að sjálf-
sögðu Bruce McKinney. Hann lýsti
undirbúningi morðanna; mánuði
fyrir morðin fóru hann og Róbert til
Chicago svo Bruce þekkti nágrenni
heimilis Donalds og Mörshu. Reynd-
ar átti Bruce fyrst að fara til Cincin-
natti og koma Mark fyrir kattarnef
og láta lítu út fyrir að um slys væri að
ræða.
Bruce átti að koma of stórum
skammti svefnlyfja ofan í Mörshu
og síðan skjóta Donald. Reynd-
ar gerði Bruce sér ferð til Cincin-
natti en guggnaði á að myrða Mark
og því þurfti Róbert að upphugsa
annað plan; öll skyldu þau skotin
– Donald síðastur – síðan átti Mark
að láta greipar sópa um heimilið
til að kasta ryki í augu lögreglunn-
ar. Til að tryggja þagmælsku Bruce
hótaði Róbert að siga mafíunni í
Chicago á hann ef hann opnaði
munninn.
Verjandi Róberts reyndi að beina
athyglinni að Mark, enda hefði hann
mestan hag af dauða foreldra sinna.
Amma Marks var kölluð til vitnis og
sagði hún að Mark hefði höfðað mál
á hendur henni þegar hann komst að
því að hans var hvergi getið í erfða-
skrá hennar. Verjandi Róberts kallaði
nágranna Levine-hjónanna til vitnis
og samkvæmt vitnisburði nágrann-
ans hafði Mark ekki hlaupið eftir
hjálp fyrr en eftir að morðinginn var
horfinn á braut.
En allt kom fyrir ekki; Róbert var
fundinn sekur um morð og samsæri
eftir 12 stunda íhugun af hálfu kvið-
dómara. Þann 18. október 1991 fékk
Róbert þrjá samfellda lífstíðardóma
fyrir morðið á bróður sínum og mág-
konu. Bruce McKinney fékk 45 ára
dóm við önnur réttarhöld.
Bróðurmorð
32 20.–22. janúar Helgarblað
Sakamál 150
Fjöldi fórnarlamba raðmorðingjans Daniels Barbosa er talinn vera um 150, einkum og sér í
lagi ungar stúlkur. Daniel játaði þó aldrei að hafa myrt „nema“ 72.
Daniel, sem var frá Kólumbíu, kyrkti fórnarlömb sín. Hann var handtekinn en tókst að flýja til
Ekvador þar sem hann hélt morðunumn áfram. Hann var aftur handtekinn árið 1989 og var
síðar drepinn af samfanga sínum.
U m s j ó n : K o l b e i n n Þ o r s t e i n s s o n k o l b e i n n @ d v . i s
Útsala
30 - 70%
Falleg olíumálverk í úrvali
á einstökum verðum
Allt orginal málverk
n Bræðurnir Robert og Donald stunduðu viðskipti saman n Þeim sinnaðist og leiðir skildi í lítilli sátt
n Donald og kona hans voru myrt af óþekktum manni n Böndin beindust að syni þeirra og Róbert
„Einnig vildu saksóknarar
ná tali af Róbert en jörðin
virtist hafa gleypt hann
Robert Levine Var fund-
inn sekur um að hafa staðið
að baki morðum á bróður
sínum og fjölskyldu hans.