Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Page 34
34 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 20.–22. janúar 2012 Helgarblað
H
alldór fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1951,
lögfræðiprófi frá Háskóla
Íslands 1956, MA-prófi frá Flet-
cher School of Law and Diplomacy
í Bandaríkjunum 1957 og öðlaðist
hdl.-réttindi 1963.
Halldór var fulltrúi í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu 1957 og
í viðskiptaráðuneytinu 1957–62,
deildar stjóri þar 1962–65, skrifstofu-
stjóri Landsvirkjunar 1965–71, að-
stoðarframkvæmdastjóri Lands-
virkjunar 1971–83 og var forstjóri
Landsvirkjunar 1983–99. Halldór
var ritari stóriðjunefndar 1961–64,
sat í stjórn SÍR, Sambands íslenskra
rafveitna, 1983–95 og síðan Sam-
orku, sambands raf-, hita- og vatns-
veitna til 1999, sat í stjórn NORDEL,
samtaka norrænna raforkufyrir-
tækja, 1983–99, í stjórn landsnefnd-
ar Alþjóða verslunarráðsins á Íslandi
1983–90, í stjórn Markaðsskrifstofu
iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkj-
unar 1995–98, í stjórn Fjárfestingar-
stofunnar 1998–99 og var stjórnar-
formaður Hollvinafélags Lagadeildar
Háskóla Íslands 1999–2002. Hann
hefur átt sæti í ýmsum nefndum um
orkumál og ritað fjölda greina um
orkumál í blöð og tímarit.
Halldór hlaut riddarakross hinn-
ar íslensku fálkaorðu árið 1970 og
Grand Dukes of Luxemburg Order of
Merit árið 1986.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 3.5. 1958 Guðrúnu
Dagbjartsdóttur, f. 18.1. 1935, dótt-
ur Dagbjarts Lýðssonar, f. 10.2. 1906,
d. 9.7. 1958, og k.h., Jórunnar Ingi-
mundardóttur, f. 29.1. 1911, d. 24.7.
2008. Jórunn var dóttir Ingimundar
Benediktssonar og Ingveldar Einars-
dóttur frá Hæli, systur Eiríks Einars-
sonar, fyrrverandi alþm. Dagbjartur
var frá Hjallanesi í Landssveit, sonur
Lýðs Árnasonar bónda og Sigríðar
Sigurðardóttur.
Börn þeirra Halldórs og Guðrúnar
eru Dagný, f. 22.10. 1958, rafmagns-
verkfræðingur, gift Finni Sveinbjörns-
syni hagfræðingi, en börn þeirra eru
Guðrún Halla, f. 25.2. 1984, verkfræð-
ingur, gift Herði Kristni Heiðarssyni,
verkfræðingi, og Sveinbjörn, f. 30.3.
1989; Rósa, f. 25.8. 1961, tölvunar-
fræðingur, gift Vilhjálmi Þorvaldssyni
rafmagnsverkfræðingi og eiga þau
þrjá syni, Halldór, f. 1.3. 1990, Ingi-
mund, f. 4.2. 1994, og Þorvald Kára,
f. 11.3. 1997; Jórunn, f. 8.10. 1962,
byggingar- og jarðvegsverkfræðingur;
Steinunn, f. 24.11. 1973, innanhúss-
arkitekt FHÍ, gift Raj Kumar Bonifa-
cius viðskiptafræðingi og eru börn
þeirra Ívan Kumar, f. 23.4. 2002, Mik-
ael Kumar, f. 20.12. 2004, og Viktoría
Inez, f. 3.5. 2007, en Raj Kumar átti
fyrir soninn Rafn Kumar Bonifacius,
f. 17.10. 1994.
Systur Halldórs eru Bergljót,
f.11.4. 1935, gift Jóni Sigurðssyni lög-
fræðingi og eiga þau þrjú börn; Sig-
ríður, f. 18.4. 1937, en eiginmaður
hennar var Þórður Þ. Þorbjarnarson,
heitinn, borgar verkfræðingur, og eru
börn þeirra þrjú.
Foreldrar Halldórs voru Jónatan
Hallvarðsson, f. 14.10. 1903, d. 19.1.
1970, hæstaréttardómari, og k.h., Sig-
urrós Gísladóttir, f. 9.11. 1906, d. 8.3.
1992, húsmóðir.
Ætt
Jónatan var bróðir Einvarðs, starfs-
mannstjóra Landsbankans og Seðla-
banka Íslands, föður Jóhanns, fyrrv.
alþm. og Hallvarðs, fyrrv. ríkissak-
sóknara. Annar bróðir Jónatans var
Jón sýslumaður, faðir Bjarna Braga,
fyrrv. aðstoðarseðlabankastjóra,
föður Jóns Braga heitins, prófess-
ors. Þriðji bróðir Jónatans var Sigur-
jón skrifstofustjóri, faðir Birgis sem
lengi var yfirdeildarstjóri Pósts og
síma. Jónatan var sonur Hallvarðs,
b. í Skutuls ey á Mýrum Einvarðs-
sonar, b. í Skutulsey og í Hítarnesi
Einarssonar, b. í Miðhúsum í Álfta-
neshreppi Sigurðssonar. Móðir Ein-
varðs í Hítarnesi var Vigdís Sigurð-
ardóttir. Móðir Hallvarðs í Skutulsey
var Halldóra Stefánsdóttir, b. í Skut-
ulsey Hallbjörnssonar, og Þórnýj-
ar Snorradóttur. Móðir Jónatans var
Sigríður Jónsdóttir, b. í Skiphyl á Mýr-
um, bróður Páls, langafa Megasar, en
systir Jóns var Oddný, móðir Ingvars,
pr. á Skeggjastöðum, föður Helga, yf-
irlæknis á Vífilsstöðum, föður Guð-
rúnar skólastjóra, móður Ólafs heit-
ins Oddssonar íslenskukennara, en
bræður Guðrúnar voru Lárus yfir-
læknir, Sigurður, sýslumaður á Seyð-
isfirði, og Ingvar stórkaupmaður, fað-
ir Júlíusar Vífils borgarfulltrúa. Jón
var sonur Jóns, dýrðarsöngs í Hauka-
tungu Pálssonar. Móðir Jóns í Skiphyl
var Guðríður Benediktsdóttir. Móðir
Sigríðar var Guðbjörg Þorkelsdóttir,
b. í Einarsnesi Jónssonar, og Guðríð-
ar Þorvaldsdóttur.
Sigurrós var dóttir Gísla, sjó-
manns frá Ánanaustum Kristjáns-
sonar, í Ánanaustum, bróður Pét-
urs Ólafs, útvegsb. og bæjarfulltrúa
í Reykjavík, föður Gísla, héraðslækn-
is á Húsavík og á Eyrarbakka, föður
Jakobs orkumálastjóra, Guðmundar
læknis og Ólafs cand.phil, en systir
Gísla var Valgerður, móðir Áka Jak-
obssonar, alþm. og ráðherra. Hálf-
systir Gísla og Valgerðar, samfeðra,
var Guðrún, móðir Bergþórs, föð-
ur Páls, fyrrv. veðurstofustjóra, föð-
ur Bergþórs óperusöngvara. Ann-
ar bróðir Kristjáns var Guðmundur,
útvegsb. í Ánanaustum, afi Sverris
Kristjánssonar, sagnfræðings og rit-
höfundar. Guðmundur var auk þess
langafi Gerðar G Bjarklind útvarps-
konu og langafi Ingveldar, móður
Þorsteins Pálssonar, fyrrv. forsætis-
ráðherra. Kristján var sonur Gísla, b.
í Ánanaustum Ólafssonar, b. í Breið-
holti Magnússonar. Móðir Krist-
jáns var Hólmfríður Eyleifsdóttir frá
Skildinganesi.
Móðir Sigurrósar var Halldóra Sig-
urðardóttir af Melahúsaætt á Akra-
nesi.
L
ovísa fæddist í Hafnarfirði
en ólst upp í Garðabæ og í
Reykjavík á unglingsárun-
um. Hún var í Flataskóla og
Réttarholtsskóla og stundaði
nám við Húsmæðraskólann á Laug-
arvatni.
Lovísa starfaði hjá Samvinnu-
tryggingum í nokkur ár, var síðan
tölvuritari við Landsbankann á ár-
unum 1984–88.
Lovísa flutti til Svíþjóðar 1990 þar
sem hún starfaði hjá sveitarfélaginu
Gislaved Kommune á árunum 1990–
95. Eftir heimkomuna var hún versl-
unarstjóri hjá Kaupfélagi Fáskrúðs-
fjarðar, síðan hjá Nettó í Mjódd og
loks hjá Samkaupum. Hún starfaði
síðan við safnaðarheimili Bústaða-
kirkju á árunum 2000–2005, hjá
Fríkirkjunni í Reykjavík 2005–2010
en hefur síðan verið kirkjuvörður í
Guðríðarkirkju frá 2010.
Lovísa hefur starfað í Krísuvík-
ursamtökunum og situr í stjórn
þeirra.
Fjölskylda
Eiginmaður Lovísu er Arnþór Heim-
ir Bjarnason, f. 1.2. 1956, rannsókn-
arlögreglumaður.
Dætur Lovísu og Arnþórs Heim-
is er Jóhanna Sigríður Arnþórsdótt-
ir, f. 18.1. 1956, nemi og húsmóðir,
búsett í Reykjavík en maður hennar
er Bryngeir Sigurðsson og eiga þau
tvær dætur, Lovísu Unu og Arneyju
Stellu; Stella Arnþórsdóttir, f. 19.10.
1988, nemi í guðfræði við Háskóla
Íslands, búsett í Reykjavík.
Lovísa heldur upp á afmælið
með fjölskyldunni.
J
ón fæddist á Hellissandi og ólst
þar upp. Hann las undir lands-
próf hjá séra Þorgrími Sigurðs-
syni á Staðarstað, lauk kenn-
araprófi 1965, útskrifaðist úr
Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur
1968 og var við nám í Berlín veturinn
1984.
Jón vann algeng sveitastörf og
verkamannavinnu í heimahögum á
unglingsárum, var um tíma lögreglu-
þjónn en var auk þess á sjó á haust- og
vetrarvertíðum og einnig á síldveið-
um og skaki. Hann stundaði kennslu
og síðar blaðamennsku með leiklist-
arstörfum, fimm ár á Vísi og síðar við
Þjóðviljann.
Jón hóf leikferil sinn hjá Leikfélagi
Reykjavíkur sem Magnús vinnumað-
ur í Fjalla-Eyvindi 1967, hefur leikið á
annað hundrað hlutverk síðan og á að
baki töluvert á fjórða þúsund leiksýn-
ingar hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Hann
hefur auk þess leikstýrt fjölmörgum
verkefnum hjá atvinnuleikhúsum og
með áhugafólki, leikið í nokkrum sýn-
ingum með leikhópum og í sjónvarpi,
útvarpi og nokkrum kvikmyndum.
Jón hefur samið fjölda leikrita og
þátta fyrir svið, sjónvarp og útvarp og
auk þess flutt pistla fyrir útvarp. Hann
skrifaði um tíma reglulega greinar fyr-
ir Þjóðviljann og síðar DV. Eftir hann
hafa komið út þrjár barna- og ung-
lingabækur og þrjár viðtalsbækur.
Hann var um tíma ritstjóri Spegils-
ins og ennfremur sá hann um útgáfu
tímarits leikara, Leikhúsmál, í þrjú
ár, í fyrstu ásamt Bríeti Héðinsdóttur.
Hann var formaður Leikfélags Reykja-
víkur 1974–75 og 1981–87.
Jón hefur verið virkur í hlaupa-
hópnum TKS sl. tuttugu ár. Hann hef-
ur stundaði fjallaferðir undanfarin ár
og skipulagt slíkar hópferðir.
Fjölskylda
Jón kvæntist 21.5. 1988 Ragnheiði
Tryggvadóttur, f. 3.11. 1958, fram-
kvæmdastjóra Rithöfundasambands
Íslands. Hún er dóttir Tryggva Stefáns-
sonar, sem er látinn, bónda í Skraut-
hólum, og k.h., Sigríðar Arnfinnsdótt-
ur húsfreyju sem er látin.
Börn Jóns og Ragnheiðar eru
Hjörtur Jóhann, f. 29.5. 1985, sem er
er útskrifast sem leikari frá Listahá-
skóla Íslands en sambýliskona hans er
Brynja Björnsdóttir; Sigríður Láretta,
f. 20.10. 1988, nemi í bókmenntum við
Háskóla Íslands.
Dóttir Jóns og Svölu Bragadóttur,
f. 26.5. 1943, er Helga Braga, f. 5.11.
1964, leikkona.
Fyrri kona Jóns var Guðleif Guð-
laugsdóttir, f. 26.6. 1945, kaupkona.
Þau skildu.
Dóttir Jóns og Guðleifar er Ingveld-
ur Ýr, f. 26.7. 1966, óperusöngkona, en
dóttir hennar og eina barnabarn Jóns
er Jasmín Kristjánsdóttir, f. 11.3. 1999.
Önnur kona Jóns var Elíza Þor-
steinsdóttir, f. 28.8. 1946, flugfreyja.
Þau skildu.
Dóttir Elízu og uppeldisdóttir Jóns
er Jódís Jóhannsdóttir, f. 5.2. 1966,
bókari.
Systkini Jóns eru Snorri, f. 7.3. 1931,
d. 1.12. 2010, var rafvirki á Akranesi;
Hreinn, f. 31.8. 1933, d. 28.3. 2007, var
sóknarprestur við Fella- og Hólakirkju
í Reykjavík; Rafn, f. 27.7. 1935, fyrrv.
bankastarfsmaður á Akranesi; Hróð-
mar, f. 25.10. 1939, fyrrv. tæknimaður
við Sjúkrahús Akraness; Aðalheiður, f.
19.8. 1947, d. 10.1. 1997, var hjúkrun-
arfræðingur í Reykjavík; Vigfús Krist-
inn, f. 25.6 1956, bankastarfsmaður í
Reykjavík.
Foreldrar Jóns: Hjörtur Jónsson, f.
28.10. 1902, d. 10.8. 1963, hreppstjóri
og útvegsbóndi á Hellissandi, og Jó-
hanna Vigfúsdóttir, f. 11.6. 1911, d.
29.4. 1994, organisti við Ingjaldshóls-
kirkju og húsmóðir.
Ætt
Hjörtur var bróðir Jóhanns, formanns
á Hellissandi, afa Guðmundar Inga
læknis og Þórðar, framkvæmdastjóra
hjá Nýherja, Sverrissona. Hjörtur var
sonur Jóns, formanns í Bjarneyjum
Jónssonar, bókbindara í Dagverðar-
nesseli, Magnússonar, b. í Fremri-
Langey Jónassonar. Móðir Jóns bók-
bindara var Guðrún Jónsdóttir,
prentara við prentverkið í Hrafnsey
Gottskálkssonar. Móðir Jóns í Bjarn-
eyjum var Katrín, systir Ingibjarg-
ar í Stóru-Tungu, ömmu Ingibjargar
Einarsdóttur á Ytra-Leiti, langömmu
Össurar Skarphéðinssonar utanríkis-
ráðherra. Bróðir Katrínar var Jón,
faðir Þorleifs, pr. og fræðimanns á
Skinnastað, og Jóns Snorra, kopar-
smiðs á Skafsstöðum, langafa Jóhanns
Hjartarsonar stórmeistara og Magn-
úsar Hreggviðssonar. Katrín var dótt-
ir Odds, b. á Kjarlaksstöðum Guð-
brandssonar, og Þuríðar ljósmóður
sem talin var njóta aðstoðar huldu-
fólks Ormsdóttur ættföður Ormsættar
Sigurðssonar.
Móðir Hjartar var Jóhanna Krist-
ín Jóhannsdóttir Mouhl. Móðir Jó-
hönnu Kristínar var Jóhanna, dóttir
Johanns Ludvigs Mouhl, þess er reisti
mylluna í Flatey, af þýskum ættum.
Móðir Jóhönnu Mouhl var Kristín
Magnúsdóttir, systir Jochums, föður
Matt híasar skálds.
Meðal tólf systkina Jóhönnu má
nefna Erling, óperusöngvara við Köln-
aróperuna. Jóhanna var dóttir Vigfús-
ar, smiðs á Hellissandi. Meðal sextán
systkina Vigfúsar var Jóhanna, amma
Bjarna Friðrikssonar, júdókappa og
framkvæmdastjóra. Önnur systir Vig-
fúsar var Þuríður, móðir Sigmundar
arkitekts og Guðmundar byggingar-
fulltrúa Halldórssona og söngvaranna
Erlings og Sigurðar Ólafssonar, föð-
ur Þuríðar söngkonu. Elsta systir Vig-
fúsar var Stefanía, móðir Jóhanns Sæ-
mundssonar, yfirlæknis, prófessors
og ráðherra; Oddfríðar, móður Guð-
mundar Ingólfssonar, djassleikara
og píanósnillings; Guðmundar, föð-
ur Hjalta, fyrrv. dómkirkjuprests, og
Aðalheiðar, móður Baldurs Símon-
arsonar prófessors. Vigfús var bróðir
Halldórs, föður Helgu skáldkonu og
Þórðar, refaskyttu, hagyrðings og list-
málara. Vigfús var sonur Jóns, hrepp-
stjóra á Elliða í Staðarsveit Jónssonar,
og Jóhönnu Vigfúsdóttur. Elsti bróðir
Jóns á Elliða var Árni, móðurafi Jóns
Sigurðssonar, b. og kaupfélagsstjóra
á Stapa, föður Víglundar, útgerðar-
manns í Ólafsvík, og Tryggva skip-
stjóra, föður Jóns, leikara og kvik-
myndagerðarmanns. Sonur Árna var
Nikulás, faðir Bjarna b. í Böðvars-
holti, afa Sturlu Böðvarssonar, fyrrv.
alþm. og ráðherra. Aðrir synir Niku-
lásar voru: Víglundur, afi Guðmund-
ar Ólafssonar, rithöfundar og leikara,
og langafi Kristins Björnssonar skíða-
kappa; Guðmundur, móðurafi Jó-
hönnu Þórhallsdóttur söngkonu, og
Þórður, faðir Þóris Kr. Þórðarsonar
prófessors.
Móðir Jóhönnu var Kristín Jens-
dóttir, útvegsb. í Bjarneyjum og á Rifi
Sigurðssonar, Sakaríassonar, bróður
Guðlaugar, húsfreyju í Ólafsdal,
ömmu Snorra skálds og Torfa sátta-
semjara Hjartarsona, föður Ragn-
heiðar, fyrrv. rektors Menntaskólans í
Reykjavík, og Hjartar, fyrrv. hæstarétt-
ardómara. Móðir Kristínar var Guðný
Bjarnadóttir, formanns í Bjarneyjum
Jóhannessonar, sægarps þar og hafn-
sögumanns í Flatey Magnússonar.
Fjölskyldan verður með afmælis-
teiti í Iðnó á afmælisdaginn.
Jón J. Hjartarson
Leikari, leikstjóri og rithöfundur
Halldór Jónatansson
Fyrrv. forstjóri Landsvirkjunar
Lovísa Guðmundsdóttir
Kirkjuvörður í Guðríðarkirkju í Grafarholti
80 ára á laugardag
50 ára á föstudag
70 ára á föstudag