Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Qupperneq 35
Ættfræði | 35Helgarblað 20.–22. janúar 2012
L
ea fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Keflavík. Hún var
í Njarðvíkurskóla, stund-
aði nám við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og lauk þaðan
stúdentsprófi 2001, stundaði nám í
hótelstjórnun við César Ritz í Sviss
2004–2006 og lauk BA-prófi í ferða-
málaviðskiptafræði við Les Roches á
Marbella á Spáni 2007.
Lea var fararstjóri fyrir Íslendinga
á Spáni 2007–2010, var síðan verk-
efnastjóri ráðstefnudeildar hjá Keili
og hefur stundað kennslu við Keili
nú í vetur.
Lea æfði og keppti í dansi frá því
í barnæsku. Hún kenndi dans á Suð-
urnesjum, einkum jazzdans og afro-
dans. Þá hefur hún æft jóga um árabil
og kennt jóga í nokkur ár. Þá spilaði
Lea í mörg ár á harmoníku og spilar
nú á gítar enda var hún skemmtana-
stjóri hjá eldri borgurum á Kanarí er
hún var þar fararstjóri.
Fjölskylda
Eiginmaður Leu er Ferdey Gaysin, f.
15.3. 1972, húðflúrari og húsasmiður.
Sonur Leu og Ferdey er Vincent
Týr Leo Ferdeysson, f. 11.5. 2011.
Systir Leu er Sigurlaug Rúna Guð-
mundsdóttir, f. 21.11. 1985, íþrótta-
kennari í Reykjavík.
Foreldrar Leu eru Anna Lea
Björnsdóttir, f. 25.8. 1957, fararstjóri
á Kanaríeyjum, og Guðmundur Brói
Sigurðsson, f. 13.6. 1955, fararstjóri á
Kanaríeyjum.
20. janúar
30 ára
Dávid Lazorik Spóahólum 2, Reykjavík
Anna Malgorzata Lizak Iðufelli 6, Reykjavík
Miroslaw Brawiak Funahöfða 7, Reykjavík
Inga Cakaité Meðalholti 3, Reykjavík
Guðrún Eyrith G. Einarsdóttir Ystaseli 13, Reykjavík
Gígja Hrönn Árnadóttir Hagalandi 8, Mosfellsbæ
Sigrún Pálína Magnúsdóttir Nýbýlavegi 56, Kópavogi
Kristján Fannar Ragnarsson Víðivangi 3, Hafnarfirði
Davíð Freyr Jónsson Brekkugötu 32, Akureyri
Sara Gunnarsdóttir Stangarholti 20, Reykjavík
Hjördís Birgisdóttir Ásakór 6, Kópavogi
Elísa Björk Jónsdóttir Engjavegi 47, Selfossi
Rósa Dögg Þorsteinsdóttir Funalind 15, Kópavogi
Daníel Bjarni Ingólfsson Starengi 48, Reykjavík
Viðar Garðarsson Snægili 11, Akureyri
Sara Stefánsdóttir Heiðarseli 7, Reykjavík
Árni Kristján Gissurarson Fjósakambi 12, Egilsstöðum
Margrét Polly Hauksdóttir Skeggjagötu 15, Reykjavík
40 ára
Dilyara Nasyrova Þorláksgeisla 12, Reykjavík
Ásgeir Óskarsson Laugarnesvegi 100, Reykjavík
Asta Gedvilé Grænlandsleið 25, Reykjavík
Kristján Ásgeirsson Skógarbraut 1103, Reykjanesbæ
Sigurveig Dögg Þormóðsdóttir Jöklatúni 5, Sauðárkróki
Oddfreyja H. Oddfreysdóttir Egilsbraut 24, Þorlákshöfn
Jón Viðar Björnsson Þingási 33, Reykjavík
Steinarr Bragason Burknabergi 4, Hafnarfirði
50 ára
Oleg Krijanovskij Boðagranda 4, Reykjavík
Oddur Stefnir Oddsson Árhvammi 3, Egilsstöðum
Þorbera Fjölnisdóttir Fagradal 3, Vogum
Ingibjörg Ragnarsdóttir Skógarási 5, Hafnarfirði
Rósa Jónsdóttir Skrúðási 10, Garðabæ
Elín Helena Guðmundsdóttir Dunhaga 17, Reykjavík
Hermann Sævar Guðmundsson Sævangi 27, Hafnarfirði
Unnur Guðbjargardóttir Veghúsum 31, Reykjavík
60 ára
Lilja Kolbrún Högnadóttir Baldursgötu 30, Reykjavík
Sigurður Hauksson Bröndukvísl 16, Reykjavík
Jenný Anna Baldursdóttir Aðalgötu 19, Sauðárkróki
Agnes Adolfsdóttir Norðurvöllum 56, Reykjanesbæ
Guðjón Sigurðsson Lyngbergi 55, Hafnarfirði
Ásta I. Lúðvíksdóttir Hraunbæ 109, Reykjavík
Jón Magnússon Fannafold 27, Reykjavík
Snæbjörn Geir Viggósson Holtagerði 62, Kópavogi
70 ára
Birgir J. Dagfinnsson Vallarbraut 20, Seltjarnarnesi
Selma Samúelsdóttir Höfðagrund 18, Akranesi
Erling R. Guðmundsson Boðagranda 7, Reykjavík
Steingrímur Dagbjartsson Hagaseli 5, Reykjavík
Vilborg Vilhjálmsdóttir Randabergi, Egilsstöðum
Pétur Njörður Ólason Hnausi, Selfossi
Íris Jónína Hall Sörlaskjóli 50, Reykjavík
75 ára
Hrefna Einarsdóttir Urðarstekk 8, Reykjavík
80 ára
Sigríður Regína Waage Blikanesi 14, Garðabæ
Hörður B. Sigurðsson Grandavegi 47, Reykjavík
Páll Cecilsson Hrannarstíg 12, Grundarfirði
Kristjana H. Guðmundsdóttir Þinghólsbraut 37, Kópavogi
Halldór Ólafsson Kópnesbraut 11, Hólmavík
85 ára
Baldur Davíðsson Safamýri 53, Reykjavík
Vigdís Guðbjarnadóttir Einigrund 22, Akranesi
90 ára
Elín Margrethe Kaaber Skúlagötu 10, Reykjavík
95 ára
Guðbjörg B. Smith Hraunvangi 7, Hafnarfirði
21. janúar
30 ára
Alfa Freysdóttir Hömrum 10, Djúpavogi
Hanna Rún Sverrisdóttir Sjafnargötu 10, Reykjavík
Andri Reyr Vignisson Hléskógum 16, Reykjavík
Guðrún Birna Einarsdóttir Þorláksgeisla 1, Reykjavík
Ólafur Unnsteinsson Merkjateigi 7, Mosfellsbæ
Emilía Rós Hallsteinsdóttir -, Reykjavík
Freydís Bjarnadóttir Fagurhólstúni 2, Grundarfirði
Magnús Björn Ólafsson Ásvallagötu 10a, Reykjavík
Elzbieta Rodak Helluhóli 5, Hellissandi
Jón Skjöldur Níelsson Tunguási 5, Garðabæ
Theódóra Þorvaldsdóttir Neðra-Seli, Hellu
Helgi Már Sæmundsson Vegghömrum 37, Reykjavík
Birna Hallgrímsdóttir Tjarnarbóli 14, Seltjarnarnesi
40 ára
Elena Gopka Grýtubakka 6, Reykjavík
Wieslaw Kozlowski Hamraborg 7, Kópavogi
Norbert Jaroslaw Kruk Stórholti 43, Reykjavík
Gauti Hallsson Huldugili 62, Akureyri
Jóhanna Sigurey Snorradóttir Klettagljúfri 11
Ólöf Helga Helgadóttir Fálkagötu 11, Reykjavík
Eggert Þór Jónsson Álfheimum 68, Reykjavík
Reynir Elís Þorvaldsson Fléttuvöllum 33, Hafnarfirðii
Marteinn Þór Arnar Reyðarkvísl 9, Reykjavík
Ásrún Jóhannsdóttir Hraunbæ 2, Hveragerði
Ólafur Nordgulen Strandvegi 12, Garðabæ
Davíð Guðmundsson Móvaði 11, Reykjavík
Harpa Björg Hjálmtýsdóttir Þórðarsveig 24, Reykjavík
Magnús Freyr Jónsson Melavegi 12, Hvammstanga
Helga Vala Gunnarsdóttir Brekkuási 8, Hafnarfirði
50 ára
Anna Bergsdóttir Fellabrekku 21, Grundarfirði
Sveinn Ingimarsson Lynghaga 18, Reykjavík
Hólmfríður Hermannsdóttir Miðgörðum 16, Grenivík
Björk Óttarsdóttir Fífuhvammi 23, Kópavogi
Gyða Ásgeirsdóttir Háaleitisbraut 113, Reykjavík
Erna Líndal Kjartansdóttir Burknavöllum 1c, Hafnarfirði
Jón Axel Pétursson Grenibyggð 24, Mosfellsbæ
Eiríkur Leifsson Hlaðbrekku 19, Kópavogi
Jón Halldór Guðmundsson Logafold 105a, Reykjavík
Oliver Karlsson Ránargötu 19, Akureyri
60 ára
Ólöf Björnsdóttir Akurgerði 2, Akureyri
Viktor Ágúst Sighvatsson Þrastarlundi 14, Garðabæ
70 ára
Kristmundur Guðmundsson Gaukshólum 2, Reykjavík
Þórólfur Pétursson Lautasmára 53, Kópavogi
Ólafía Magnúsdóttir Kötlufelli 1, Reykjavík
Guðmundur Böðvarsson Syðra-Seli 1, Flúðum
Magnús G. Ólafsson Heiðargerði 19, Reykjavík
Stefán Tryggvason Ekrusíðu 5, Akureyri
75 ára
Ragnheiður Guðjónsdóttir Giljalandi 2, Reykjavík
Jón Óskarsson Heimalind 6, Kópavogi
Jakobína Axelsdóttir Austurbrún 2, Reykjavík
Edda Guðmundsdóttir Löngulínu 12, Garðabæ
Ingibjörg Jónasdóttir Víðilundi 8, Garðabæ
80 ára
Kristín María Heiðberg Brúnalandi 18, Reykjavík
Svava Torfadóttir Gullsmára 11, Kópavogi
María H. Hansen Brunnstíg 3, Hafnarfirði
Ingi Steinar Ólafsson Akurgerði 11, Reykjavík
Guðrún Ólafsdóttir Lækjasmára 4, Kópavogi
Anna Sigurjónsdóttir Furugrund 46, Kópavogi
85 ára
Ólafur Guðmundsson Neðstaleiti 1, Reykjavík
Astrid Marita Garðarsson Blikanesi 17, Garðabæ
90 ára
Sigríður Ingimundardóttir Sunnuvegi 25, Reykjavík
100 ára
Ingigerður Þórðardóttir Vallholti 27, Selfossi
22. janúar
30 ára
Malgorzata Karmel Iðufelli 12, Reykjavík
Bartosz Waclaw Jablonski Melási 11, Garðabæ
Davíð Freyr Jónsson Hlíðarbyggð 29, Garðabæ
Árni Þorgrímur Kristjánsson Eiðismýri 10, Seltjarnarnesi
Kristín Baldursdóttir Laugarásvegi 6, Reykjavík
Þóra Reyn Rögnvaldsdóttir Beykidal 6, Reykjanesbæ
Pála Gunnarsdóttir Granaskjóli 42, Reykjavík
Haukur Gylfason Goðheimum 19, Reykjavík
Ingimundur Jónasson Sléttahrauni 34, Hafnarfirði
Björn Júlíus Grímsson Bugðugerði 5a, Selfossi
Agnes Ægisdóttir Skipalóni 25, Hafnarfirði
Áslaug Ragnarsdóttir Lindarbraut 22b, Seltjarnarnesi
Heimir Daníelsson Rjúpufelli 42, Reykjavík
Unnur Edda Sveinsdóttir Asparási 1, Garðabæ
40 ára
Gunnar Þröstur Ásgeirsson Laufrima 8, Reykjavík
Gunnar Björn Guðmundsson Lækjargötu 34e, Hafnarfirði
Kolbeinn Sigurjónsson Laugabakka, Mosfellsbæ
Ingibjörg Arnljótsdóttir Galtalind 13, Kópavogi
Guðmundur Karl Ólafsson Krummahólum 4, Reykjavík
Arnar Guðmundsson Nauthólum 22, Selfossi
Carolyn B. O. Tómasdóttir Burknavöllum 3, Hafnarfirði
50 ára
Inga Dís Guðmundsdóttir Vogatungu 10, Kópavogi
Guðrún Sigurðardóttir Heiðarbakka 3, Reykjanesbæ
Sveinn Kjartansson Brekkuhjalla 7, Kópavogi
Sigrún Finnsdóttir Barðastöðum 23, Reykjavík
Jón Ólafur Halldórsson Bjarnhólastíg 10, Kópavogi
Magnús Axel Jónsson Miðbraut 1, Búðardal
Ingibjörg Þ. Þórarinsdóttir Stórholti 18, Reykjavík
Tadeusz Konopelski Reykjavíkurvegi 22, Hafnarfirði
Arianda Sablovska Miklubraut 60, Reykjavík
Skúli Sveinsson Borg, Borgarfirði (eystri)
Sigurveig M. Kjartansdóttir Hvassaleiti 18, Reykjavík
Kristín Birna Porter Bollagörðum 109, Seltjarnarnesi
Hilmar Sigurðsson Rúgakri 1, Garðabæ
Sveinn Bragason Tómasarhaga 55, Reykjavík
Birgir Óli Einarsson Sjávargötu 33, Álftanesi
Logi Sigmundsson Birkigrund 67, Kópavogi
60 ára
Guðmundur F. Baldursson Laufskógum 40, Hveragerði
Bergþór Guðmundsson Kársnesbraut 51, Kópavogi
Kristján Gunnarsson Flúðaseli 67, Reykjavík
Kristján E. Ágústsson Gerðhömrum 6, Reykjavík
Haraldur G. Blöndal Fellahvarfi 11, Kópavogi
Árni Halldórsson Sæbóli 29, Grundarfirði
Jóhann Hafberg Óskarsson Básahrauni 33, Þorlákshöfn
Þorvaldur Árnason Þernunesi 2, Garðabæ
Ágúst Ágústsson Hlaðhömrum 42, Reykjavík
70 ára
Hafliði Ólafsson Urðum, Dalvík
Kristrún B. Jónsdóttir Geitlandi 6, Reykjavík
Björn Eymundsson Fagranesi, Höfn í Hornafirði
Sigurjón Jónsson Hverafold 42, Reykjavík
Ebenezer Þ. S. Sturluson Stóragerði 13, Reykjavík
75 ára
Guðrún Hildur Árnadóttir Stekkjarholti 1, Akranesi
Kolbrún Þorsteinsdóttir Langholtsvegi 27, Reykjavík
Sigrún Ólöf Karlsdóttir Engjadal 4, Reykjanesbæ
Haraldur Stefánsson Hofslundi 13, Garðabæ
Heiður Vilhjálmsdóttir Hlíðartúni 9, Höfn í Hornafirði
Guðrún Einarsdóttir Flókagötu 56, Reykjavík
Anna Magnúsdóttir Skarðsbraut 9, Akranesi
80 ára
Sigurborg Helgadóttir Hæðargarði 40, Reykjavík
Áslaug Stephensen Neðstaleiti 3, Reykjavík
Randver G. Karlesson Norðurgötu 35, Akureyri
Helga Karlsdóttir Rauðalæk 24, Reykjavík
Indriði Pétursson Dalbraut 27, Reykjavík
Halldóra Finnbjörnsdóttir Hamraborg 26, Kópavogi
Sigríður Hjaltadóttir Mýrarbraut 12, Vík
Gunnar Haukur Sveinsson Hveramörk 14, Hveragerði
85 ára
Martha Sigurðardóttir Ársölum 1, Kópavogi
Fjóla Ágústsdóttir Heiðarhjalla 8, Kópavogi
Bjarney Lea Guðmundsdóttir
Ferðamálaviðskiptafræðingur og kennari við Keili
30 ára á föstudag
Afmælisbörn helgarinnar
Til hamingju!
V
algeir fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Hamrahlíð 1972,
stundaði nám í ensku og
landafræði við Háskóla Íslands 1973–
74, nam hljómfræði við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík 1974–75 og lauk prófi
í félagsráðgjöf frá Socialhögskolen í
Þrándheimi 1981.
Valgeir var kennari í Lækjar-
skóla, Ármúlaskóla og Réttarholts-
skóla 1973–75 og var forstöðumaður
Félagsmiðstöðvarinnar Ársels í Ár-
bæjarhverfi 1981–83.
Valgeir lék með Stuðmönnum
1975–76 og 1980–87 og Spilverki þjóð-
anna 1976–79. Hann samdi tónlistina
fyrir kvikmyndirnar Punktur, punkt-
ur, komma, strik 1980; Stella í orlofi,
1987; Pappírs-Pési, 1989, Stikkfrí,
1997, og með Stuðmönnum, Með allt
á hreinu, 1982, og Hvítir mávar, 1984.
Hann samdi tónlist í sjónvarpsmynd-
ina Ást í kjörbúð 1987, tónlist og leik-
texta í Síldin kemur, síldin fer, sýnt hjá
Leikfélagi Reykjavíkur 1988, tónlist
við sjónvarpsmyndina Gamla brúð-
an, 1991, fór tónlistarferð til Kína með
Strax, 1986, og var gerð um þá ferð
kvikmyndin Strax í Kína, 1986.
Valgeir er höfundur að sam-
norrænu tónlistarverkefni vegna
siglingar víkingaskipsins Gaia til
Bandaríkjanna, var höfundur og um-
sjónarmaður sjónvarpsþáttanna
Ungmennafélagið, sýnt í ríkissjón-
varpinu 1991, starfaði að gerð sjón-
varpsþáttanna Scandinavia fyrir PBS
í Bandaríkjunum 1993–95 sem með-
framleiðandi og höfundur tónlistar,
samdi tónlist fyrir fjölda banda-
rískra sjónvarpsþátta á vegum PBS og
Discovery, starfaði fyrir hugbúnaðar-
fyrirtækið Netalbúm frá 2000–2001.
Frá 2001 hafa Valgeir og Ásta kona
hans sinnt þróunarstarfi er lýtur að
vefrænum lausnum fyrir námsfólk.
Þá starfrækja þau hjónin menningar-
setrið Nemaforum í Hafnarhvoli,
Tryggvagötu 11 í Reykjavík.
Valgeir var formaður Samtaka um
byggingu tónlistarhúss og vann að
ýmsum verkefnum fyrir samtökin, var
formaður Félags tónskálda og texta-
höfunda og formaður stjórnar STEFS.
Hann hefur gefið út mikinn fjölda
hljómplatna með Stuðmönnum, Spil-
verki þjóðanna og á eigin vegum og
sigraði í sönglagakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva á Íslandi með lagi
sínu Hægt og hljótt, 1987, og laginu
Það sem enginn sér, 1989.
Fjölskylda
Eiginkona Valgeirs er Ásta Kristrún
Ragnarsdóttir, f. 25.8. 1952, náms- og
starfsráðgjafi og framkvæmdastjóri.
Foreldrar hennar voru Ragnar Tóm-
as Árnason, f. 13.3. 1917, d. 3.3. 1984,
útvarpsþulur, og k.h., Jónína Vigdís
Schram, f. 14.6. 1923, d. 28.3. 2007,
húsmóðir.
Börn Valgeirs og Ástu eru Árni
Tómas, f. 9.5. 1977, vaktstjóri, búsett-
ur á Seltjarnarnesi en kona hans er
Karine Julie Paroux líffræðingur frá
Frakklandi; Arnar Tómas, f. 10.5. 1989,
nemi við Háskóla Íslands; Vigdís Vala,
f. 9.3. 1993, nemi við Menntaskólann
í Reykjavík.
Systur Valgeirs eru Guðrún Arna, f.
13.6. 1957, hjúkrunarfræðingur, bú-
sett í Reykjavík; Sigríður Anna, f. 2.2.
1959, skólastjóri Ísaksskóla, búsett í
Garðabæ.
Foreldrar Valgeirs: Guðjón Val-
geirsson, f. 13.5. 1929, d. 7.3. 1993,
hdl. í Reykjavík, og k.h., Margrét
Árnadóttir, f. 1.10. 1928, athafna-
kona.
Ætt
Guðjón var sonur Valgeirs, múrara í
Reykjavík Guðjónssonar, b. á Svarf-
hóli í Geiradal Sigurðssonar. Móð-
ir Guðjóns var Sigríður Sveinsdóttir,
trésmiðs í Reykjavík Gíslasonar, b.
á Þrándarstöðum í Kjós Ögmunds-
sonar, b. á Skálpastöðum, bróður
Jóns, langafa Sigmundar Guðbjarna-
sonar, fyrrv. háskólarektors og langa-
langafa Svölu Thorlacius hrl. Annar
bróðir Ögmundar var Oddur, langafi
Önnu, móður Flosa Ólafssonar leik-
ara. Oddur var einnig langafi Arn-
laugs, föður Guðmundar, rektors og
skákmeistara. Systir Ögmundar var
Kristín, langamma Ingibjargar, móð-
ur Einars Laxness. Ögmundur var
sonur Bjarna, ættföður Stóra-Vatns-
hornsættar Hermannssonar.
Móðurbræður Valgeirs eru Tóm-
as seðlabankastjóri og Vilhjálmur
hrl. Margrét er dóttir Árna, útgerðar-
manns og erindreka Fiskifélags Ís-
lands, á Hánefsstöðum í Seyðisfirði,
bróður Hjálmars, fyrrv. ráðuneytis-
stjóra. Annar bróðir Árna var Þór-
hallur, afi Snorra Sigfúsar Birgissonar
tónskálds. Þriðji bróðir Árna var Her-
mann, afi Lilju Þórisdóttur leikkonu.
Systir Árna var Sigríður, móðir Vil-
hjálms Einarssonar, skólameistara
á Egilsstöðum, föður Einars spjót-
kastara. Árni var sonur Vilhjálms, út-
vegsb. á Hánefsstöðum Árnasonar,
b. á Hofi í Mjóafirði Vilhjálmssonar.
Móðir Árna var Guðrún Konráðs-
dóttir, systir Ragnhildar, langömmu
Gísla, föður Ingvars, fyrrv. ráðherra.
Móðir Árna var Björg, systir Stefaníu,
móður Vilhjálms Hjálmarssonar,
fyrrv. ráðherra, föður Hjálmars heit-
ins fiskifræðings. Björg var dóttir Sig-
urðar, b. á Hánefsstöðum Stefáns-
sonar, bróður Gunnars, afa Gunnars
Gunnarssonar skálds. Móðir Bjargar
var Þorbjörg Þórðardóttir, ættföður
Kjarnaættar, forföður Ólafs Friðriks-
sonar verkalýðsforkólfs og Friðriks
Friðrikssonar æskulýðsleiðtoga.
Móðir Margrétar var Guðrún Þor-
varðardóttir, útvegsb. í Keflavík Þor-
varðarsonar, beykis í Keflavík Helga-
sonar, langafa Þorvarðar Helgasonar
leiklistarfræðings. Móðir Þorvarðar
Helgasonar var Guðrún, systir Jak-
obs, pr. í Steinnesi, föður Þorvalds,
pr. í Sauðlauksdal, afa Vigdísar Finn-
bogadóttur, fyrrv. forseta, og Krist-
jáns Búasonar, fyrrv. dósents í guð-
fræði við Háskóla Íslands. Annar
sonur Jakobs var Jón, langafi Hans
G. Andersen þjóðréttarfræðings, föð-
ur Gunnars, forstöðumanns Banka-
eftirlitsins. Þriðji sonur Jakobs var
Ingimundur, langafi Ragnars Tómas-
sonar, lögmanns og fasteignasala.
Guðrún var einnig systir Ásgeirs,
bókbindara og dbrm. á Lambastöð-
um á Álftanesi, langafa Lárusar Jó-
hannessonar, alþm. og hæstaréttar-
dómara, og langafa Önnu, móður
Matthíasar Johannessen, skálds og
fyrrv. Morgunblaðsritstjóra. Ásgeir
var einnig langafi Lárusar Blöndal,
föður Benedikts hæstaréttardómara,
Halldórs, fyrrv. ráðherra og alþingis-
forseta, og Haraldar hrl. Þá var Ásgeir
faðir Þorvalds, pr. á Hjaltabakka, föð-
ur Sigríðar, langömmu Jóns L. Árna-
sonar stórmeistara, en systir Sigríð-
ar var Guðríður, langamma Eyjólfs
Kristjánssonar, tónskálds og söngv-
ara. Guðrún var dóttir Finnboga,
verslunarmanns í Reykjavík Björns-
sonar og Arndísar Teitsdóttur, vef-
ara í Reykjavík og ættföður reykvísku
Vefaraættarinnar Sveinssonar.
Valgeir heldur afmælistónleika í
Eldborgarsal Hörpu, sunnudaginn
22.1. nk. kl. 20.00. Þar munu gaml-
ir félagar hans úr Stuðmönnum og
Spilverki þjóðanna stíga á stokk og
rifja upp þekkt verk frá löngum og
farsælum ferli.
Valgeir Guðjónsson
Tónskáld og tónlistarmaður
60 ára á mánudag