Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Qupperneq 40
1 Hugo bendir á muninn á því að segja „komdu“ og „farðu“ en það er mikill
munur á því hvað börnin upplifa þegar við
notum þessi orð. Notum frekar setningu
eins og „komdu að hátta“ heldur en „farðu
að hátta“. Þá er einnig mikilvægt að eiga
smá samverustund með þeim á meðan
háttað er.
2 Á ákveðnum aldri verða börn mjög
upptekin af því hvort
foreldrarnir og aðrir geri
„rétt“ og fylgi reglum. Þau
fylgjast til dæmis iðulega með hvort
fullorðna fólkið fylgi umferðarreglum. Ef
við segjum til dæmis að það sé í lagi að
tala í síma á meðan við keyrum eða það sé
í lagi að fara aðeins yfir hámarkshraða
erum við að gefa þeim þau skilaboð að það
sé í lagi að breyta reglum eftir hentisemi.
Það er slæmt veganesti fyrir þau út í lífið.
Við erum fyrirmyndir barnanna.
3 Útskýring þarf ekki alltaf að
vera afsökun. Leyfum
börnunum að útskýra
hvað gerðist áður en við
skömmum þau. Skammir
án útskýringa leiða oft til fleiri
vandamála.
4 Þrátt fyrir allt sem við foreldrar hafa gert fyrir börnin þá skulda þau
okkur ekki fyrir það. Það er því ósanngjarnt
að gefa það í skyn þegar börnin óhlýðnast
okkur og nota það gegn
barninu.
5 Börn eiga að taka þátt í heimilishaldi
en ekki að hjálpa okkur við
það. Segjum „þú þarft að
fara út í búð og kaupa...“ í stað þess að
segja „viltu fara út í búð fyrir mig og
kaupa...“ en börnin alast þá upp við að líta
á heimilisþrif sem sameiginlegt verkefni.
6 Börn sýna foreldrum sýnum að jafnaði trúnaðartraust og fyllstu
einlægni en dæmi um það er þegar börn
koma til foreldra sinna full eftirsjár yfir
reiðikasti eða slæmri hegðun. Foreldrarnir
taka afsökunarbeiðninni og börnin lofa að
gera þetta aldrei aftur. Hugo segir að
foreldrar sem eignast slíkt traust verði að
fara vel með það og megi ekki grípa til
þess næst þegar barnið „missir sig“ og rifja
upp það sem barnið sagði í síðasta
uppgjöri. Það geti kennt barninu að hætta
að vera einlægt og treysta þér þar sem það
gæti verið notað gegn því
seinna.
7 Hugo hefur heyrt börn og unglinga
segja að þau kvíði því að
koma heim, sér í lagi ef þau
hafa gert eitthvað af sér. Eins geta þau
kviðið því að foreldrarnir komi heim úr
vinnu þar sem þau eru áhyggjufull yfir að
hafa ekki efnt eitthvað sem þau höfðu
lofað. Börnin bregða því oft á það ráð að
vera ekki heima þegar foreldrarnir koma
heim því þau kvíða „skömmunum“. Þau
draga það að fara heim og láta vita af sér.
Þetta gerir ástandið enn verra og getur
komið af stað vítahring óheppilegra
samskipta.
Hugo leggur til að
foreldrar taki alltaf taka
vel á móti börnunum ,
sér í lagi ef þau hafa gert
eitthvað af sér. Það þýðir
þó ekki að við eigum að líta
fram hjá brotinu en það á enginn að
þurfa að kvíða því að koma heim til sín.
8 Skömm, eftirsjá og óánægj með hegðun sína er sterkasti hvatinn til
að börn vilji bæta sig og taka á hegðun
sinni. Hugo segir það mikilvægt fyrir
foreldra að fá barnið til að treysta þeim
nægilega vel til að segja satt og rétt frá.
Barnið verði að að vita að það eigi ekki von
og skömmum eða ávítum heldur að
skilningur ríki á að barnið sjái eftir því sem
það gerði.
Einnig er mikilvægt að
nudda börnunum ekki
upp úr sektarkennd sinni
því þá eiga þau til að fara
að afsaka sig og jafnvel
réttlæta hegðun sem þeim
finnst sjálfum óréttlætanleg. Með því gerir
barnið minna úr ábyrgð sinni og þess sem
gerðist í stað þess að læra og þroskast. Þá
glötum við tækifæri til að hjálpa barninu
að læra af reynslunni.
9 Þegar ræða þarf mál við ungling-inn, sem foreldrarnir vita fyrirfram
að muni verða hitamál, er gott að vera vel
undirbúinn. Hugo mælir með að foreldrar
setjist við hliðina á unglingnum í sófa í
stað þess að sitja andspænis hvert öðru
við eldhúsborðið. Skilaboðin eiga að vera
að við séum samherjar sem takast saman
á við að leysa verkefni en ekki andstæð-
ingar sem takast á.
10 Hugo bendir á að ein af ástæðum þess að unglingar hlusta ekki á
aðfinnslur okkar og afskipti
er sú að foreldrum hættir
til að nota sterk eða ýkt
alhæfingarorð. Dæmi
sem hann gefur eru orð
eins og „alltaf“, „aldrei“,
„sífellt“, „stöðugt“,
„endalaust“, „þúsund sinnum“, „drasl og
rusl“, „allt út um allt“, „allt á hvolfi“, „eins
og í svínastíu“. Þau séu oftast óréttmæt
og ósönn og setji unglinginn skiljanlega í
vörn. Foreldrar þurfi því að vanda orðaval
og tón þegar rætt er um umgengni eða
hegðun. Það sé ekki merki um ósigur eða
uppgjöf að taka tillit til þessara viðbragða
unglingsins heldur eðlileg tillitssemi og
kennsla í góðum samskiptum. Ekki viljum
við kenna barninu að alhæfa því þá heyra
foreldrar fljótlega setningar á borð við
„Það er aldrei neitt gott að borða hérna!“
40 Lífsstíll 20.–22. janúar Helgarblað
Opnunartímar
mán–fim 8.00 - 18.00
föst 8.00 - 19.00
laugardaga 10.00 - 13.00
Þekking
gæði Og
Þjónusta
Húð og hár
í kulda og roki
Öflugt rakakrem
n Veturinn er vandræðatími fyrir
þá sem eru með ójafna húð og
leitin að rétta rakakreminu reynist
mörgum erfið. Rakakremið La Mer
er mest lofað af konum víða um
heim en er venjulegum konum
helst til of dýrt, það fæst ekki hér á
landi en túba af kreminu er seld á
rúm 500 pund erlendis sem gera
um 100 þúsund íslenskar krónur.
Fyrirsætur sem þurfa oft að standa
sína vakt utandyra í alls kyns
veðrum lofa hins vegar margar tvö
önnur krem sem þær segja standa
undir væntingum þegar veður er
bæði kalt og umhleypingasamt.
Rakakremið Dry Skin Relief frá
Eucerin er lofað af Adrianne Lima
og fleiri ofurfyrirsætum og komst
reyndar í fréttir fyrir
nokkrum árum
þegar hún var andlit
Estée Lauder. Þá
hentar kremið Skin
Fortifying Hydrator
frá Clarins einkar vel í umhleyp-
ingunum og heldur fjármálunum
á réttu róli á sama tíma.
Gott í töskunni
n Um hávetur finna margir fyrir
þurrki á vörum, olnbogum og
hnjám. Slíkur þurrkur kemur oft
til vegna mikilla umhleypinga í
veðri. Húðin reynir að bregðast
við umskiptum úr hita í kulda með
þeim afleiðingum að hún á það
til að dragast saman. Þá er gott að
hafa handhæga lausn í töskunni.
Rosebud-varasalvinn er lofaður
af mörgum og fæst nú á Íslandi.
Hann hefur verið framleiddur í
meira en 100 ár þótt uppskrift-
in hafi verið uppfærð reglulega.
Salvinn inniheldur
ekki vax og má
nota á minni
háttar þurrk á húð
sem og brunasár.
Nýr Rosebud-salvi
fæst í umbúðum sem
minna á gamla tíma og er með
mintu- og rósatónum.
Þvoðu hárið sjaldnar
n Hárið á það til að verða þurrt
yfir veturinn og mörgum finnst
hárið verða líflausara en á öðrum
tímum ársins.
Til að gæða hárið
lífi yfir veturinn er
ráð að verja það
gegn veðri og vind-
um. Notaðu húfu
eða trefil til að verja
hárið gegn kuldanum, notaðu
hárnæringu oftar en vanalega og
takmarkaðu blástur og notkun
heitra járna. Ekki þvo hárið oft og
alls ekki upp úr heitu vatni þó það
sé freistandi í kuldanum. Notaðu
fremur volgt vatn.
Hugo Þórisson sálfræðingur Hefur
starfað við ráðgjöf í 30 ár og er höfundur
bókarinnar Hollráð Hugos.
n Hvað skal gera þegar barnið óhlýðnast? „Höfum
ávallt í huga
að við erum fyrir-
myndir barnanna
n Hafðu hugfast að þegar barnið þitt
hefur fengið fyrirgefningu frá þér máttu
ekki nota það gegn því síðar.
n Vertu ekki „sagnfræðingurinn“ í upp-
eldinu, en það er sá sem rifjar upp slæmu
atvikin þegar það hentar honum.
n Mundu að í endursögn af rifrildi milli
foreldris og barns hentar það foreldrinu
best að segja aðeins frá því sem barnið
sagði og gerði. Foreldrar g(l)eyma að
segja frá sínum hlut í atburðarásinni.
Það er ekki sanngjarnt gagnvart barninu
né þeim sem heyra söguna, því þeim
hættir til að taka afstöðu á röngum
forsendum.
n Með því að fyrirgefa barninu þínu
mistök þess í raun og veru og þar með
að rifja þau aldrei upp þegar það hentar
ekki barninu ertu að styrkja það og gefa
því færi á að komast burt frá mistök-
unum.
n Með því að vera sagnfræðingurinn
sem rifjar upp leiðinleg atvik gerir þú
barninu þínu erfiðar fyrir að „byrja upp
á nýtt“ og eykur líkurnar á þrjósku og
stífni. Það er líka til þess fallið að draga
úr styrkingu á sjálfsmynd barns sem
hugsar þá jafnvel á þessa leið: „Ég geri
aldrei neitt rétt, ég er ömurleg(ur)“.
góð ráð
í uppeldinu
Vert að huga að