Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Qupperneq 44
44 Lífsstíll 20.–22. janúar 2012 Helgarblað
Hárið lagað meðan þú sefur
n Þrjár leiðir til að umbreyta blautu hári yfir nótt
H
árgreiðslu-
maðurinn
Ted Gibson
lumar á
þremur skemmti-
legum ráðum til þess
að umbreyta blautu
hári í fallega hár-
greiðslu yfir nótt.
Venjulega þýðir
það að fara að sofa
með blautt hár held-
ur skelfilega sýn í
baðherbergisspegl-
inum morguninn
eftir, hárið stend-
ur út í loftið, er ef til
vill flatt öðrum meg-
in en úfið eins og á
rokkstjörnu hinum
megin.
Góð lyfting
Fínt hár hefur tilhneigingu til
að vera flatt og líflaust. Áður
en þú ferð að sofa skaltu sprauta í það
hárlyftingarvökva (til dæmis Aveda
Volumizing hártóner) sem lyftir hárinu
frá rótunum. Settu allt hárið í hátt
tagl og snúðu upp á það í lausan hnút.
Festu lauslega undir teygjuna. Notaðu
fáeinar spennur til þess að festa
lausa hnútinn. Betra er að nota mjúka
teygju. Um morguninn leysir þú taglið
úr teygjunni og greiðir í gegnum hárið
með fingrunum. Ekki nota bursta.
Náttúrulegar bylgjur
Settu froðu í hárið frá
rótum til enda. Skiptu hárinu
í tvennt í miðju. Skiptu hárinu beggja
vegna í tvennt. Fléttaðu hvorn
helming frá miðju. Byrjir þú ofar verður
hárið ekki eins fallegt. Snúðu fléttunni
svo lauslega í hringi og festu með
spennum. Spreyjaðu með saltspreyi
eða léttu vaxspreyi og notaðu fingur
til að ýfa það mjúklega.
Mjúkar krullur
Notaðu létta hárnæringu sem
má skilja eftir í hárinu. Notaðu
grófa greiðu til þess að dreifa nær
ingunni allt til hárendanna.
Skiptu hárinu í miðju. Skiptu hárinu
í þrjá hluta báðum megin og vefðu
hárinu utan um fingur og snúðu
upp á það upp að rótum. Festu með
spennum.
Þegar þú vaknar skaltu losa spenn
urnar, hrista lokkana og spreyja örlítið
af vatni yfir til að lífga upp á það.
Spreyið svo yfir krullurnar með afar
mildu hárspreyi.
1
2
3
Fallegt hár yfir nótt Hárnæring sett í með greiðu.
G
etur verið að vinkona mín
hafi verið hérna fyrir viku?“
spurði ég manninn sem hafði
boðið mér í eftirpartí í Hlíð-
unum. Hann hafði sýnt mér áhuga
fyrr um kvöldið og var farinn að
færa sig nær mér í sófanum.
Ísland er mjög lítið land.
Nokkrum mínútum áður en ég bar
upp þessa spurningu við manninn
hafði ég einmitt áttað mig á því.
V
iku áður en ég sat við hlið
umrædds manns á sófa í
Hlíðunum hafði ég vaknað
við SMS-skilaboð frá vin-
konu minni. Í þeim stóð: „Ég var
að vakna, á vindsæng í Hlíðunum.“
Það var fimmtu-
dagur og klukkan
var átta. Auð-
vitað fékk ég
sjokk. Á sama
tíma færðist þó
smá bömm-
er yfir mig,
skynsömu stúlk-
una sem sleppti
barnum kvöldið áður.
„Djöfull hlýt ég að hafa misst af
miklu í gær,“ hugsaði ég og svaraði
SMS-skilaboðum vinkonunnar
með þremur spurningamerkjum.
Heimtaði svo hádegismat og frek-
ari fréttir af þessu áhugaverða
máli.
Yfir sveittum hamborgurum
fræddi vinkona mín mig um ævin-
týri miðvikudagskvöldsins sem ég
missti af, fyrir skynsemi sakir.
H
ún hitti þennan líka myndar-
lega mann á barnum sem
bauð henni og vinkonun-
um í eftirpartí, í Hlíðunum.
Atburðarásin æxlaðist svo á þann
veg að hún vaknaði á vindsæng
morguninn eftir. Þetta var allt
saman stórkostlega fyndið að okk-
ur fannst. Enda með eindæmum
góð saga. Sérstaklega í miðri viku.
Viku síðar var ég stödd á sama
bar með annarri vinkonu. Vin-
konan af vindsænginni var fjarri
góðu gamni.
Nokkrir menn gáfu sig á tal við
okkur og við skáluðum hvert við
annað þangað til barnum var lok-
að. Þá kallaði einn þessa klassísku
setningu sem allir vilja heyra á
slíkri stundu: „Eftirpartí hjá mér!“
V
ið tókum
öll leigubíl
saman og
enduðum
á hæð í Hlíðun-
um. Partíhaldar-
inn hafði vissu-
lega sagt til nafns en
einhvern veginn kveikti þetta ekki
á neinu hjá mér. Hvorki nafnið
né Hlíðarnar. Eða þetta tvennt
saman. Partíið hófst með gítar-
spili og almennri gleði. Partíhald-
arinn settist í sófann hjá mér og
ég fílaði það. Fljótlega þurfti ég á
klósettið og á leið minni þangað
sá ég glitta í vindsæng á gólfi inni í
einu herberginu. Ding! Á þessum
tímapunkti hringdu viðvörunar-
bjöllurnar hátt og snjallt. Ég rétt
komst inn á klósett áður en ég
ældi af hlátri. Ég var komin heim
til mannsins með vindsængina. Af
öllum stöðum í Reykjavík.
Honum var mjög brugðið og
viðurkenndi lúpulegur að þekkja
vinkonuna. Í kjölfarið dó partíið,
enda ljóst að engin stúlka myndi
vakna á vindsænginni daginn eftir.
Eftir þetta óþægilega en jafn-
framt kostulega atvik höfum við
vinkonurnar reynt að samræma
aðgerðir okkar betur, með ágætis
árangri.
Spurningunni af hverju mað-
urinn átti ekkert rúm heldur bara
vindsæng, er þó enn ósvarað.
Vaknað á vind-
sæng í Hlíðunum
Líf mitt
í hnotskurn
Sólrún Lilja
Ragnarsdóttir
M
argar konur hafa reynt að
fylgja í fótspor Marilyn
Monroe, Jayne Mansfield
og Sheree North og á okk-
ar dögum, Christinu Agui-
lera, Gwen Stefani, Scarlett Johansson
og Madonnu. Stjarna Michelle Willi-
ams skín nú skært í hlutverki Marilyn
og þykir vera nútímaleg útgáfa kyn-
bombunnar. Harpa Dögg Káradóttir
færir í sama gervi. „Eydís Helena er
kynbomba, það er engum blöðum um
það að fletta og auk þess hefur hún
mikla samsvörun við Marilyn, hefur
áþekkar línur, þykkar varir og þennan
mjúka og heillandi kvenleika.“
Lærðu að mála þig
eins og þokkagyðja
Dökkur augnlínupenni, rauðar varir og húð eins og
postulín. Nútímalegt og fagurt gervi Michelle Williams
í hlutverki Marilyn Monroe í myndinni My Week With
Marilyn hefur vakið verðskuldaða athygli. Harpa Dögg
Káradóttir hjá MAC endurskapar útlitið með ráðlegg-
ingum fyrir lesendur DV og setur fyrirsætuna Eydísi
Helenu Evensen í sama gervi.
n „Ég byrjaði á því að undirbúa húðina vel,“
segir Harpa Dögg Káradóttir. „Ég byrjaði á
því að setja strobe cream á húðina til þess
að gefa henni góðan raka og fallegan ljóma.
n Því næst notaði ég Studio Sculpt meik,
aðallega á miðju andlitsins. Meikið er mjög
kremað og kemst maður upp með að nota
frekar lítið meik og blandast það vel inn í
húðina.
n Einnig notaði ég select moisturecover
hyljara bæði undir augun, kringum nefið og
munninn. Í kinnarnar setti ég kremkinnalit
sem heitir So sweet so easy sem gefur
húðinni ferskan ljóma og einnig krem high
lighter sem heitir Luna.
n Á augun setti ég painterly paint pot sem
grunn til þess að fá betri lit út úr augn
skugganum.
n Ofan á það notaði ég 2 augnskugga.
Augnskugga í vanillulit yfir allt augnlokið og
lit í ljósbrúnum lit undir augnbeinið til þess
að gefa augnsvæðinu betri dýpt.
n Ég notaði Blacktrack eye liner og bursta
nr 210 á augun og False lashes extreme
black maskara til þess að gera augnhárin
lengri og þykkari.
n Á varirnar notaði ég Brick varablýant til
þess að móta varirnar, Barcelona red varalit
og Love alert dazzelglass varagloss til þess
að gera varirnar enn meira djúsí.“
Förðun í anda Marilyn Monroe