Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Síða 46
46 Sport 20.–22. janúar Helgarblað
S
teini var einfaldlega
eins góður liðsfélagi og
hægt var að hugsa sér,“
segir Þórður Guðjóns-
son, fyrrverandi lands-
liðsmaður í fótbolta, um Sig-
urstein Gíslason, sigursælasta
leikmann Íslandsmótsins, en
hann féll frá á mánudaginn eft-
ir stutta en erfiða baráttu við
krabbamein aðeins 43 ára að
aldri. Þórður spilaði ásamt Sig-
ursteini í síðasta gullaldarliði ÍA
sem varð Íslandsmeistari fimm
ár í röð á milli 1992 og 1996. Sig-
ursteinn bætti fjórum Íslands-
meistaratitlum í safnið með KR
nokkrum árum síðar og vann
því heila níu Íslandsmeistara-
titla á sínum ferli, miklu fleiri
en nokkur annar. Það var þó
ekki bara innanvallar sem Sig-
ursteinn vann hug og hjörtu
manna en þessi mikli sigur-
vegari er mærður af fyrrverandi
samherjum sínum.
Gullöldin á Skaganum
Sigursteinn fæddist á Akranesi
og spilaði með ÍA upp yngri
flokkana. Það vita það kannski
ekki allir að Sigursteinn spilaði
með KR áður en hann hóf leik
með ÍA. Hann skipti yfir á ung-
lingsárunum og varð Íslands-
og bikarmeistari með KR árið
1986. Hann spilaði svo fimm
leiki fyrir Meistaraflokk KR áður
en hann hélt aftur á Skagann
fyrir tímabilið 1988.
Hjá ÍA var hann hluti af gull-
aldarliði Skagans sem varð Ís-
landsmeistari fimm ár í röð,
árin 1992–1996. ÍA gaf tóninn
strax í janúar 1992 þegar liðið
varð Íslandsmeistari innanhúss
í fyrsta skiptið í 22 ár. Í úrslita-
leiknum gegn Fram skoraði Sig-
ursteinn sigurmarkið, 3–2, og
lyfti bikarnum fyrir þá gulu. Það
var bara fyrsti bikarinn af mörg-
um næstu árin.
Árið 1994 var óumdeilanlega
besta ár Sigursteins í boltanum
en hann var þá kjörinn knatt-
spyrnumaður ársins á lokahófi
KSÍ. „Hann er örugglega eini
vinstri bakvörðurinn sem hef-
ur verið valinn bestur. Það segir
ýmislegt um Steina,“ segir Þórð-
ur Guðjónsson.
Vildi vinna allt
Eftir tímabilið 1994 bauðst Sig-
ursteini að gera samning við
sænska liði Örgryte en hann
kaus að vera áfram á Skag-
anum, þeim gulu til mikillar
gleði. Þórður Guðjónsson spil-
aði með Sigursteini þegar titill-
inn kom aftur á Skagann 1992
eftir átta ára fjarveru. „Steini var
svo ótrúlega jákvæður og hugs-
aði alltaf fyrst um liðið. Hann
var alltaf tilbúinn að berjast fyr-
ir liðsfélagana. Hann var ósér-
hlífinn og dró alla með sér. Svo
var bara svo gaman í kringum
hann. Það var svo stutt í húmor-
inn hjá Steina,“ segir Þórður.
Aðspurður hversu stórt
hlutverk Sigursteinn spilaði í
gullaldarliðinu er hann fljót-
ur að svara: „Hann var klár-
lega ein af driffjöðrum liðs-
ins. Það er alveg á hreinu.
Hann var samt ekki þann-
ig gerður að þetta snérist
um hann. Hann vildi aldrei
vera í fararbroddi. Liðið átti
bara að vinna. Það var alltaf
númer eitt hjá honum. Hans
ferill gekk ekki út á að vera í
sviðsljósinu,“ segir Þórður
sem lýsir Sigursteini sem
miklum keppnismanni.
„Það var alveg sama um
hvað var að ræða, útihlaup eða
hvað það var, Steini vildi alltaf
vinna. Hann lagði mikið á sig og
þannig smitaði hann út frá sér
og dró aðra með sér. Útihlaup-
in voru ekki eins og í dag þeg-
ar þessir stráklingar setja á sig
iPodinn og lulla af stað. Þarna
héldu menn hver í annan og
svo var sprett af stað. Hjá Steina
kom ekkert annað til greina
en að vinna og hann var alltaf
fremstur í flokki. Það er góður
maður fallinn frá,“ segir Þórður.
Hjálpaði að fá Steina
Eftir keppnistímabilið 1998
kvaddi Steini ÍA og hélt aftur í
KR. „Það er alltaf gott að breyta
til. Mér stóð til boða að fara til
Örgryte 1994 og ég sé örlítið eft-
ir að hafa ekki farið,“ sagði Sig-
ursteinn við Morgunblaðið eftir
að hann gekk í KR. Hann bætti
svo við: „Svo má líka segja að
ég sé á síðustu metrunum, eigi
ekki eftir nema þrjú til fjögur ár
í boltanum.“
Það urðu reyndar fimm ár
og ekki bara einhver fimm ár
heldur var Sigursteinn eitt af
síðustu bitunum sem KR þurfti
í púslið til að vinna loksins aft-
ur Íslandsmeistaratitilinn. Lið-
ið hafði ekki unnið Íslandsmót-
ið frá því árið sem Sigursteinn
fæddist, 1968, og var 31 árs bið
að gera út af við KR-inga. En það
var eins og við manninn mælt.
Sigursteinn gekk í raðir KR og
Vesturbæjarstórveldið halaði
inn fjóra Íslandsmeistaratitla á
fimm árum og vann meðal ann-
ars tvennuna á fyrsta ári Sigur-
steins.
„Ég held að allir KR-ingar, þó
ég geti aðallega talað fyrir sjálf-
an mig, verði Steina alltaf þakk-
látir fyrir að hafa fengið hann til
liðsins. Eins og flestir vita sem
fylgjast með boltanum átti KR
svolítið erfitt með að vinna titil-
inn á þessum tíma. Það er alveg
ljóst í mínum huga að með því
að fá þennan mikla sigurveg-
ara til liðsins hjálpaði það til við
að fá bikarinn aftur í Vesturbæ-
inn. Það eru engar tilviljanir í
þessu og það er engin tilvilj-
un að Steini vann níu Íslands-
meistaratitla,“ segir Guðmund-
ur Benediktsson sem var ásamt
Steina í liði KR sem vann loks
aftur titilinn eftir 31 árs bið.
Heiður að spila með honum
Innanvallar vita flestir sem
fylgjast með boltanum hvers
megnugur Sigursteinn Gíslason
var. Uppalinn á Skaganum sem
þýddi eitt: Það var ekkert gefið
eftir. Sanngjarn þótt hann væri
harður og hreinræktaður sigur-
vegari. Hann heillaði þó ekki
bara samherja sína og and-
stæðinga innanvallar held-
ur þótti hann einnig mögnuð
persóna utanvallar.
„Steini er einhver heil-
steyptasta persóna sem ég
hef kynnst,“ segir Þórður Guð-
jónsson, liðsfélagi hans úr
ÍA. „Hann var fjölskyldumað-
ur fram í fingurgóma. Það er
kannski klisja að segja það en
hann var vinur vina sinna. Það
var alveg sama hvar Steina bar
niður og hverja hann hitti, leik-
menn, vinnufélaga eða þjálf-
ara, hann tók öllum eins og þeir
voru. Hann var einstakur að
því leyti,“ segir Þórður og Guð-
mundur Benediktsson tekur í
sama streng.
„Þótt hann hafi verið frábær
fótboltamaður þá er það hitt
sem stendur upp úr, hversu frá-
bær maður hann var. Algjörlega
einstök persóna sem allir hrif-
ust með. Það var alltaf gaman
í kringum hann. Stutt í húm-
orinn og hann hjálpaði öllum.
Hann var drífandi í öllu sem
hann tók sér fyrir hendur og
vildi gera það vel. Hann baslaði
ekki í hlutunum til þess að gera
þá með hangandi haus,“ segir
Guðmundur.
Reif upp Breiðholtið
Sigursteinn prófaði sig aðeins
áfram í atvinnumennsku en
hann spilaði nokkra leiki með
Stoke eftir að KR vann Íslands-
meistaratitilinn árið 1999. Hann
var þó kominn aftur fyrir næsta
tímabil. Gamall félagi hans af
Skaganum, Sigurður Jónsson,
vissi nákvæmlega hvaða mann
Sigursteinn hafði að geyma og
fékk hann sem spilandi aðstoð-
arþjálfara Víkings árið 2004 en
Fossvogspiltar voru þá nýliðar í
deildinni. Sigursteinn snéri aft-
ur í KR árið eftir og var þar þjálf-
ari 2. flokks og aðstoðarþjálfari
meistaraflokks þar til árið 2008
þegar hann tók við sem aðal-
þjálfari Leiknis í Reykjavík.
Það verður ekki annað sagt
en að sigurvilji og metnaður
Sigursteins hafi rifið Leikni upp
um nokkur þrep. Liðið var hárs-
breidd frá því að vinna sér inn
sæti í efstu deild á fyrsta tímabili
Sigursteins en aðdráttarafl hans
hjálpaði Leikni að fá til liðsins
stærri leikmenn en áður. Sigur-
steinn fékk svo frí vegna veik-
inda í maí í fyrra þegar krabba-
mein fannst í lungum hans.
Honum var seinna um sumar-
ið sagt upp hjá Leikni, ákvörð-
un sem hann var ekki ánægður
með. Sigursteinn laut svo á end-
anum í lægra haldi í baráttunni
við krabbameinið og lést mánu-
daginn 16. janúar. Íslenskur fót-
bolti kveður sinn sigursælasta
son.
Titlarnir níu
engin tilviljun
n Sigursteinn Gíslason kvaddi 43 ára að aldri n Sigursælasti leikmaður
Íslandsmótsins n Lýst sem frábærum liðsfélaga og enn betri manneskju
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Fótbolti „Steini er
einhver
heilsteyptasta
persóna sem
ég hef kynnst
Nífaldur Íslandsmeistari
Sigursteinn var sigursælasti
leikmaður Íslandsmótsins.
myNd FótBoLti.Net
Bestur Sigursteinn vann Íslandsmeistaratitlinn með ÍA árið 1994 og var þá valinn knattspyrnumaður ársins.