Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Page 56
Fjölskyldu-
væn tattú-
stofa?
Of upptekin til
að fylgjast með
n „Ég er upptekin á ráðstefnu um
meðferð kynferðisbrota allan föstu
dag og geri ekki ráð fyrir að ná að
fylgjast með þinginu,“ segir Sigríður
J. Friðjónsdóttir, saksóknari Alþing
is, aðspurð hvort hún muni fylgjast
með þinginu þegar umræður um
hvort ákæra á hendur Geir H. Haarde
skuli dregin til baka. „Ætli ég fari
samt ekki yfir umræður þegar um
hægist. Það verður fróðlegt að sjá
umræðuna í þinginu og einstaka
ræður.“ Sigríður var vararíkissak
sóknari þegar hún
tók við starfi sak
sóknara Alþing
is. Stuttu seinna
hætti Valtýr Sig
urðsson og því
sinnir Sigríður
bæði starfi ríkis
saksóknara og sak
sóknara Alþing
is.
Bubbi leiður
á athyglinni
n Tónlistarmanninum Bubba Mort-
hens hefur aldrei leiðst athyglin
en nú virðist öldin önnur og hann
virðist búinn að fá nóg. Bubbi ákvað
á dögunum að segja skilið við sam
skiptasíðuna Facebook. Hann lét
hafa eftir sér á Vísi á fimmtudag að
ástæðan væri sú að endalaust væri
verið að gera fréttir úr því sem hann
segði. „Ég hef aldrei litið á Face
book sem gullæð fyrir fjölmiðla,“
sagði Bubbi en þrátt fyrir það ætlar
hann að halda áfram að skrifa pistla
sína á Pressuna.
Efnistökin í
pistlum Bubba
vekja jafn
an athygli og
því mun hann
væntanlega ekki
alveg losna við
kastljós fjöl
miðlanna.
E
inar Ingi Marteinsson, leið
togi Hells Angels á Íslandi, hef
ur fengið grænt ljós á að opna
tattú stofu í Faxafeni 10. Einar
sótti um leyfi fyrir tattústofunni hjá
skipulags og byggingarsviði Reykjvík
urborgar fyrir nokkru. Á fundi bygg
ingarfulltrúa síðastliðinn þriðjudag
var umsókn Einars samþykkt en hús
næðið sem um ræðir er nokkuð stórt,
eða 250 fermetrar.
Einar Ingi, sem er betur þekktur
sem Einar Boom, var úrskurðaður í
gæsluvarðhald á dögunum í tengslum
við rannsókn lögreglu á fólskulegri lík
amsárás á konu. Einar er grunaður um
að hafa fyrirskipað árásina á konuna
sem framin var þann 22. desember
síðastliðinn. Aftur var ráðist á konuna
stuttu síðar en alls voru fimm hand
teknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald
vegna málsins. Ekki liggur fyrir hvort
málið muni hafa einhver áhrif á áætl
anir Einars um tattústofuna í Faxafeni.
Í viðtali DV við Einar sem birtist
um miðjan desember sagðist hann
vera að undirbúa opnun tattústofunn
ar. Hann sagði að allt væri tilbúið en
hann væri einungis að bíða eftir leyfi
til að geta opnað.
„Við erum búin að bíða í um þrjá
mánuði en það er allt dálítið þungt í
vöfum þegar ég er annars vegar. Það
má segja að ég mæti mikilli andstöðu
alls staðar út af því hver ég er,“ sagði
Einar en sem fyrr segir hefur hann nú
fengið leyfið sem hann beið eftir. Í við
talinu sagði hann aðstöðuna á tattú
stofunni vera á heimsmælikvarða og
að virtir húðflúrarar myndu koma og
flúra landann.
Fær leyfi til að opna tattústofu
n Langri bið Einars Inga Marteinssonar, forseta Hells Angels, virðist lokið
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 20.–22. JAnúAr 2012 8. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
Fær að opna Einari Inga hefur verið veitt
leyfi til að opna tattústofu í Faxafeni.
Af gullslegnu
hóteli í greni
n Bjarni Harðarson, fyrrverandi þing
maður og bóksali, er staddur þessa
dagana í borginni Rawalpindi í Pak
istan. Bjarni var í Dúbaí fyrr í vik
unni þar sem hann gisti á hóteli úr
gulli og hafði það afar gott. Hótelin
í Pakistan eru þó ekki eins góð og í
Dúbaí. „Meðal Pakistana eru rúm
föt óþekkt fyrirbæri. Hér fylgja gróf
teppi með herberginu og það er full
ástæða til að vefja þeim
fast að sér,“ seg
ir Bjarni á bloggi
sínu en hann fann
sér nýtt hótel eftir
fyrstu nóttina. Hon
um leist betur á það
þó herbergið
væri ekki
við út
vegg og
gluggar
þess
snéru
inn á
hótel
gang.