Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Blaðsíða 51
Bíómynd ársins Á annan veg Borgríki Eldfjall Leikið sjónvarpsefni ársins Heimsendir Pressa 2 Tími nornarinnar Frétta- eða viðtalsþáttur ársins Guðrún Ebba Gyrðir Elíasson Kastljós Landinn Silfur Egils Skemmtiþáttur ársins Áramótamót Hljómskálans Dans dans dans Popppunktur 2011 Spaugstofan Spurningabomban Menningar- eða lífsstílsþáttur ársins Andri á flandri Átta raddir Djöflaeyjan Hljómskálinn Kiljan Heimildamynd ársins Andlit norðursins Bakka-Baldur Iceland Food Centre Jón og séra Jón Roðlaust og beinlaust Stuttmynd ársins Korriró Lítill geimfari Naglinn Skaði Útrás Reykjavík Barnaefni ársins Algjör Sveppi – sería 4 Algjör Sveppi og töfraskápurinn Jólastundin okkar 2011 Latibær Action Time Stundin okkar Leikstjóri ársins Börkur Sigþórsson – Skaði Hafsteinn Gunnar Sigurðsson – Á annan veg Olaf de Fleur – Borgríki Óskar Jónasson – Hetjur Valhallar - Þór Rúnar Rúnarsson – Eldfjall Sjónvarpsmaður ársins Bogi Ágústsson Egill Helgason Gísli Einarsson Jóhannes Kr. Kristjánsson Þóra Arnórsdóttir Handrit ársins Friðrik Erlingsson – Þór: Hetjur Valhallar Hafsteinn Gunnar Sigurðsson Sveinn Ólafur Gunnarsson – Á annan veg Jóhann Ævar Grímsson Sigurjón Kjartansson – Pressa Olaf de Fleur Hrafnkell Stefánsson – Kurteist fólk Rúnar Rúnarsson – Eldfjall Leikkona ársins í aðalhlutverki Brynhildur Guðjónsdóttir – Okkar eigin Osló Lilja Þórisdóttir – Útrás Reykjavík Margrét Helga Jóhannsdóttir – Eldfjall Nína Dögg Filippusdóttir – Korriró Sara Dögg Ásgeirsdóttir – Pressa Leikari ársins í aðalhlutverki Björn Thors – Skaði Hilmar Guðjónsson – Á annan veg Sigurður Sigurjónsson – Borgríki Sveinn Ólafur Gunnarsson – Á annan veg Theodór Júlíusson – Eldfjall Leikkona ársins í aukahlutverki Elma Lísa Gunnarsdóttir – Eldfjall Halldóra Geirharðsdóttir – Heimsendir Halldóra Geirharðsdóttir – Kurteist fólk Margrét Ákadóttir – Kurteist fólk María Heba Þorkelsdóttir – Okkar eigin Osló Leikari ársins í aukahlutverki Eggert Þorleifsson – Kurteist fólk Gísli Örn Garðarsson – Pressa Þorsteinn Bachmann – Á annan veg Þorsteinn Bachmann – Eldfjall Þórhallur Sigurðsson (Laddi) – Okkar eigin Osló Kvikmyndataka ársins Arnar Þórisson – Pressa Árni Filippusson – Á annan veg Bjarni Felix Bjarnason Gunnar Heiðar – Borgríki G. Magni Ágústsson, ÍKS – Skaði Sophia Olsson – Eldfjall Klipping ársins Elísabet Ronaldsdóttir – Þór: Hetjur Valhallar Jacob Schulsinger – Eldfjall Kristján Loðmfjörð – Á annan veg Olaf de Fleur, Sigurður Eyþórsson – Borgríki Valdís Óskarsdóttir – Lítill geimfari Hljóð ársins Gunnar Árnason – Borgríki Huldar Freyr Arnarson – Á annan veg Ingvar Lundberg Kjartan Kjartansson – Eldfjall Patrick Drummond – Hetjur Valhallar - Þór Pétur Einarsson – Pressa Tónlist ársins Atli Örvarsson – The Eagle Barði Jóhannsson – Heimsendir Hilmar Örn Hilmarsson – Andlit norðursins Kjartan Sveinsson – Eldfjall Stephen McKeon – Hetjur Valhallar - Þór Leikmynd ársins Gunnar Karlsson – Hetjur Valhallar - Þór Haukur Karlsson – Eldfjall Hálfdán Pedersen – Lítill geimfari Hálfdán Pedersen – Á annan veg Heimir Sverrisson – Borgríki Búningar ársins Ellen Loftsdóttir – Borgríki Helga Rós V. Hannam – Eldfjall Margrét Einarsdóttir – Á annan veg Gervi ársins Áslaug Dröfn Sigurðardóttir – Heimsendir Elín Reynisdóttir Eygló Ólöf Birgisdóttir – Borgríki Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir – Eldfjall Ragna Fossberg – Áramótaskaupið Stefán Jörgen Ágústsson – Algjör Sveppi og töfraskápurinn 51Helgarblað 17.–19. febrúar 2012 Uppáhaldsbókin? „Algjört rokk“ Minus 16 Ísl. dansflokkurinn „Gary Oldman sýnir nær fullkomna frammistöðu“ Tinker Tailor Soldier Spy Fyrir börn á öllum aldri fluttur og leikinn af þeim Baldri Trausta Hreinssyni og Friðriki Friðrikssyni undir stjórn Þór- halls Sigurðssonar að maður saknaði þess eiginlega ekki neitt óskaplega. Þeir voru hvor öðr- um fyndnari: Friðrik þessi litli og ógurlega klári, sá sem veit allt og er drjúgur með sig, en er hins vegar ekkert mjög kjark- aður þegar kemur að þessu líkamlega; Baldur Trausti hinn fyrirferðarmikli en ansi hreint treggáfaði vinur hans sem fann mjög til vanmáttar síns gagn- vart þeim litla á hinu andlega sviði, en reyndist þó hafa sitt til brunns að bera í öðru. Ég er og verð sögubarn og finnst ég alltaf pínulítið svikinn ef ég fæ ekki mína sögu – þegar mér finnst ég eiga að fá sögu. Því hafði leikur Helgu Arnalds, sem Charlotte Böving stýrir og Eivör Pálsdóttir gerir hugljúfa músík við, vinninginn í mínum huga. Þar var nefnilega gott og vel sagt ævintýri í fyrirrúmi. Ég er ekki að segja að það hafi slagað hátt í H.C. Andersen eða Grimms-bræður, en það var gott samt og ríghélt ungum áhorfendum, alveg hæfilega langt og frábærlega túlkað af Helgu sem er ekki aðeins reyndur flytjandi með mikla brúðutækni, heldur kann að tala við börnin sem jafningja, fellur aldrei í þá gryfju að tala niður til þeirra. Hún er ekkert heldur að reyna að búa til eitt- hvert svaka stuð, nei, hún leyfir frásögninni að lifa, lyftir aðeins undir hana með sáraeinföld- um meðulum: teikningum, skuggum á tjaldi, höndum sínum og fingrum sem geta galdrað fram lifandi fígúrur úr rifnum pappír. Þarna var ekkert að detta niður úr rjáfrinu ofan á sviðsgólfið; engar ljósakúnstir eða reyk spúandi appíröt, bara sagan, eins og hún leið fram af munni sögumanns. Leikhúsið eins og það var víst í árdaga, án tilgerðar, án stæla – samt fan- tastískt og grípandi. Það sem kemur frá hjartanu fer til hjart- ans. Og það sem kemur ekki frá hjartanu fer ekki til hjartans. Sannindi sem gilda um allt leikhús á öllum tímum, hvort sem það talar til okkar sem lít- ils barns – eða lítillar fullorð- innar manneskju. Íslensku kvikmynda- og sjónvarps- verðlaunin, Eddan, verða afhent á laugardagskvöldið við hátíðlega at- höfn í Gamla bíói. Þetta er í þrett- ánda skipti sem verðlaunin eru afhent. Fjölmargir eru tilnefndir að þessu sinni. Kvikmyndin Eldfjall er með flestar tilnefningar þetta árið, samtals fjórtán. Meðal annars fyrir kvikmynd ársins, leikstjóra ársins, handrit ársins, leikkonu og leikara ársins í aðal- og aukahlutverki svo eitthvað sé nefnt. Næst á eftir kem- ur kvikmyndin Á annan veg með ellefu tilnefningar og þar á eftir er kvikmyndin Borgríki sem hlaut níu tilnefningar. RÚV hlaut allar til- nefningar í flokkunum frétta- eða viðtalsþáttur ársins og menningar- eða lífsstílsþáttur ársins. Alls voru 97 verk send inn í Edduna í ár, þar á meðal 50 sjónvarpsþættir. Það er töluverð aukning frá því í fyrra eða 35 prósent. Hátíðin hefst klukkan 20 og er í beinni útsendingu á Stöð 2. Eddan afhent í 13. sinn Eldfjall með flestar tilnefningar Frá Eddunni 2011 Edduverðlaunin eru afhent í þrettánda sinn nú í ár. Þessi mynd er tekin á verðlaunahá- tíðinni í fyrra. „Ég les ekki mikið, fyrir utan Létta rétti Rikku og allar hinar Hagkaups-mat- reiðslubækurnar. En ég ætla að segja að uppáhaldsbókin mín sé Strákarnir með strípurnar, út af því að fyrsta bíómyndin sem ég gerði er gerð upp úr henni.“ Baldvin Z kvikmyndaleikstjóri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.