Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Blaðsíða 21
Fréttir 21Helgarblað 17.–19. febrúar 2012
Eykur styrk og þol vöðva
Betri árangur!
AstaZan er öflugt andoxunarefni sem eykur styrk og þol vöðva.
Hjálp við vöðvabólgu, stirðleika, eymslum, harðsperrum og
sinaskeiðabólgum,
Fyrir allan líkamann. Íþróttafólk mælir með AstaZan.
Styrkir húðina gegn húðöldrun og skaða af sólargeislum,
húðin verður fyrr fallega brún í sól.
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni, Hagkaup og Fríhöfninni.
Rannsóknir staðfesta árangur - www.celsus.is
Byltingarkennt andoxunarefni
1 hylki
á dag.
Virkar s
trax!
lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar
G
eirmundur Vilhjálmsson,
fyrrverandi forstöðumaður
Kvíabryggju, telur sig enn
eiga talsvert af tækjum og
öðrum munum á Kvía-
bryggju. Geirmundi var vikið frá
störfum í lok árs 2010 vegna gruns
um fjárdrátt í opinberu starfi. Hann
segist ekki hafa fengið að fjarlægja
munina af Kvíabryggju eftir að hon-
um var vikið úr starfi. Geirmundur
bíður þess nú að mál hans verði tek-
ið fyrir dóm.
DV greindi frá því í síðustu viku
að Geirmundur væri ósáttur við að
lyftingatæki sem hann geymdi á
Kvíabryggju hefðu verið seld að hon-
um forspurðum.
Tófuskott og sveðja
DV hefur undir höndum lista yfir
þá hluti sem Geirmundur krefst að
fá afhenta. Sem dæmi um það sem
Geirmundur segist eiga er 4,2 tonna
trilla sem hann segir hafa verið í eigu
fjölskyldu sinnar í um 20 ár.
Þá vill hann fá afhentan tréárabát
og kerru undir hann, nokkra mið-
stöðvarofna, mikið magn af tófu-
skottum, heimagerða sveðju sem
hann segir geymda í kassa í bílskúr.
Þá eru nokkur húsgögn á listan-
um, til dæmis leðurstólar, sófi og tvö
glerborð. Á listanum eru einnig full-
ur poki af æðardúni, Cherokee-bif-
reið, harðfiskmarningsvél, sánaofn,
leiser til að stilla riffla og stór steinn
með áletruninni „Brósi“.
Þetta er aðeins hluti af því sem er
talið upp á listanum en alls eru þar
53 atriði.
Finnst nóg komið
„Ég ætla að snúa þessu dæmi alveg
við, ég ætla að láta hann sýna fram
á eignarhald á 40 ára gömlum bát og
fullt af hlutum sem voru til fyrir hans
tíð. Það er alveg kominn tími á að
hann fari að sýna fram á að hann eigi
hlutina, hann er búinn að draga mig
á asnaeyrunum og nú finnst mér nóg
komið,“ segir Geirmundur um það
að Páll Winkel fangelsismálastjóri
neiti að afhenda honum munina án
þess að hann geti sýnt fram á eignar-
hald á þeim með einhverjum hætti.
„Það vita allir starfsmenn Kvía-
bryggju að þessi bátur er í eigu föð-
ur míns. Þessi bátur er búinn að vera
hérna í 20 ár. Ég veit ekki hversu oft
hann Páll [Winkel] hefur farið með
mér á sjó í þessum bát ásamt öðr-
um starfsmönnum Fangelsismála-
stofnunar þannig að hann er bara að
sparka í liggjandi mann og ég er bú-
inn að fá nóg af því.“
Aldrei blandað rekstri Kvía-
bryggju
Aðspurður hvernig hann svari þeim
ummælum Páls, að hlutir í einka-
eigu starfsmanna eigi ekki að vera
í notkun eða geymdir í fangelsum,
segir Geirmundur það vera ekkert
annað en lygi hjá Páli.
„Það er í öllum fangelsum. Nú-
verandi forstöðumaður sem tók við
af mér geymdi í mörg ár net og allt
sem við kom heilli grásleppuútgerð
þarna upp frá, þannig að þetta er
bara fyrirsláttur.“
Að sögn Geirmundar eru allir
þessir hlutir geymdir í bílskúr við
fangelsið sem er sérstaklega ætlaður
til nota fyrir forstöðumann fangels-
isins á hverjum tíma.
„Þetta var aldrei blandað rekstri
Kvíabryggju. Þessi bílskúr tilheyrir
íbúðarhúsi sem fyrri forstöðumenn
bjuggu í, en ég er fyrsti forstöðumað-
ur fangelsisins sem býr ekki í þessu
húsi.“
Ætlar að láta hart mæta hörðu
Sveðjur og leiser til að stilla riffla telj-
ast seint til muna sem æskilegt er
að geyma í fangelsi en Geirmund-
ur segist vera veiðimaður og hafa
geymt muni sem tengjast veiði í
áðurnefndum bílskúr.
„Ég er refaskytta og þessi heima-
gerða sveðja sem er á listanum er
búin til úr bílfjöður og selskinni.
Þetta eru svona persónulegir hlutir
bara, bara mitt föndur. Ég setti ekk-
ert inn á þennan lista sem orkar tví-
mælis um eignarhald eða neitt.“
Geirmundur segir alla starfs-
menn fangelsisins vita að þessir
munir séu í hans eigu og þeir eigi
að geta borið vitni um það. „Ásamt
Páli Winkel og Erlendi S. Baldurs-
syni. Þeir geta vottað að ég eigi fullt
af þessum hlutum, en Páll ætlar sér
ekkert að gera það. Ég er ákveðinn
í að láta hart mæta hörðu og ég fer
með þetta mál til umboðsmanns
Alþingis þegar mínu máli lýkur. Ég
ætla ekki að láta Pál komast upp
með þetta.“
„Allsherjarsukk“
Páll Winkel fangelsismálastjóri segir
Geirmund ekki hafa farið formlega
fram á að fá þessa muni afhenta en
hann muni fá allt það sem hann geti
sýnt fram á að hann eigi. „Það bara
vill svo til að það hefur verið svolítið
rót á hlutum. Það hafa verið keypt-
ir hlutir á reikning fangelsisins sem
eru ekkert þar. Þetta hefur bara verið
allsherjarsukk sem hefur verið þarna
í gangi og hann verður að geta sýnt
fram á það að hlutir sem þarna eru
tilheyri honum. Það er ósköp einfalt
og þá fær hann þá afhenta alveg um
leið.“
n Geirmundur Vilhjálmsson sakar Pál Winkel um lygar og hefndaraðgerðir gegn sér
„Ætla ekki að láta Pál
komast upp með þetta“
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Ósáttur Geirmundur Vilhjámsson, fyrrver-
andi forstöðumaður Kvíabryggju, er ósáttur
við að fá ekki 53 hluti sem hann segir vera í
sinni eigu afhenta frá Kvíabryggju
Þjófar herja á
Café Konditori
n Steinsnar frá lögreglustöð
F
jórum sinnum á þrettán mán-
uðum, síðast núna í nótt,“ segir
Hávarður Hilmarsson, bakara-
meistari og eigandi Café Kondi-
tori Copenhagen við Grensásveg,
um tíðni innbrota í bakaríið sitt. Há-
varður hefur undanfarið ítrekað mátt
þola að brotist sé inn hjá honum.
Þjófarnir hafa lítið annað haft upp
úr krafsinu en skiptimynt. Brotist var
inn í bakaríið aðfaranótt fimmtu-
dags en stutt er síðan lögreglan opn-
aði starfsstöð sína á Grensásvegi, um
hundrað metra frá bakaríinu.
Hávarður hefur áhyggjur af und-
irmönnun lögreglunnar þar sem að-
eins tveir lögreglumenn séu á vakt
vegna niðurskurðar og innbrots-
þjófar eru á ferli. Lögreglustöðin á
Grensásvegi annast verkefni austan
Snorrabrautar til vestanverðrar El-
liðaár. Það er stórt svæði fyrir svo fáa
lögreglumenn.
„Það sem pirrar mig mest er þegar
maður fær þær upplýsingar hjá lög-
reglunni að það séu tveir til fjórir lög-
reglumenn með alla austurborgina.
Í gær [miðvikudag, innsk. blm.] eru
fjögur innbrot í fyrirtæki. Á fólk að
láta þetta viðgangast? Manni finnst
þetta dapurlegt,“ segir Hávarður.
Hlutfallslega, miðað við fjölda fyrir-
tækja og íbúa á svæðinu, þykir hon-
um þetta fáir lögreglumenn.
„Þeir vita þessir innbrotsþjóf-
ar að lögreglan er undirmönnuð
og þeir herja á þessi svæði þar sem
ástandið er verst. Af þessum fjórum
innbrotum í gær frétti ég að mynda-
vélar hafi verið á tveimur staðanna
þar sem sami maðurinn hafi ver-
ið á ferð í bæði skiptin. Hann fer
inn á tveimur stöðum, keyrir svo
um borgina með þýfið og kúbein-
ið óáreittur eins og eitthvert fyrir-
menni.“
Hávarður bendir að lokum á að
það sé nóg af lögreglumönnum til
þegar stjórnmálamenn eru smeykir.
„En við megum baka einhver brauð
og snúða með það hangandi yfir
okkur að það geti verið þjófur uppi
í búð með kúbein. Þetta er sorglegt.“
mikael@dv.is
Þjófar sæta lagi Fjögur innbrot á þrettán mánuðum. Myndin er AF FAcebooK-Síðu bAKAríSinS.