Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Blaðsíða 54
„Ég fíla spandex“ 54 Lífsstíll 17.–19. febrúar 2012 Helgarblað Klæðningar og viðgerðir á gömlum húsgögnum Iðnbúð 5 - 210 Garðabæ - Sími: 554 1133 - asgrimur@bolstra.is É g fíla spandex,“ segir söng- konan og þáttastjórn- andinn Þórunn Antonía sem hefur frumsýnt nýtt myndband við lagið Too Late. Þórunn, sem er meðal annars þekkt fyrir að vera dótt- ir tónlistarmannsins Magnúsar Þórs Sigmundssonar og annar stjórnenda skemmtiþáttarins Týndu kynslóðarinnar á Stöð 2, dansar djarflega í níðþröng- um, hvítum „spandex“-galla í myndbandinu. Myndbandið var tekið af Ágústi Bent, kærasta Þórunn- ar, úti á palli við heimili þeirra. Lagið verður á nýrri plötu Þór- unnar Antoníu sem gert er ráð fyrir að komi út í vor. Plötuna vinnur hún með tónlistarmann- inum Davíð Berndsen. Þórunn Antonía er einmitt í upptökum á enn einu laginu þegar blaða- maður hefur samband við hana og spyr hana út í myndbandið, væntanlega plötu og líflegan heimilisiðnað hennar og kær- asta hennar Ágústs Bent. Líflegur heimilisiðnaður „Nágrannar okkar eru orðnir öllu vanir,“ segir Þórunn Ant- onía og hlær og segir þá hafa horft á dans hennar úti á palli stórum augum. „Þetta er auð- vitað ekki í fyrsta sinn sem við skemmtum nágrönnum okkar og örugglega ekki í það síðasta. Ég sem tónlistina mína heima og syng mikið. Steindahöfuð- stöðvarnar eru síðan náttúru- lega heima hjá okkur. Strákarnir sitja í stofunni og skrifa gaman- þættina. Fyrsta serían var klippt í svefnherberginu okkar. Það var reyndar mjög fyndin uppákoma þegar yfirmenn Stöðvar 2 litu inn snemma einn morguninn til að kíkja á efnið. Þannig ég reif mig fram úr rúminu og bauð þá velkomna á náttsloppnum og þeir sátu á rúmstokknum að horfa á fyrsta þáttinn,“ segir hún og skellihlær. Keypti „spandex“-galla á eBay Hún virðist alls ófeimin við að vera djörf. Er hún ekk- ert feimin? „Nei, alls ekki. Ég er ekkert feimin, ég er löngu komin yfir allan hégóma. Sem betur fer því það er svo mik- il tímaeyðsla. Ég er bara eins og ég er. Hégóminn er hluti af gelgjunni, það er ánægjulegt að komast á það skeið að vera sáttur við sjálfan sig. Aðalástæðan fyrir því að ég er í þessum galla er hins vegar að það þurfti að setja inn bak- grunn og þá var betra að vera í þröngum galla. Ég fór því á eBay og verslaði einn hvítan galla og einn svartan. Það er líka lykilatriði að taka sig ekki alvarlega og skella sér í góðan partíbúning.“ Með tónlistina í blóðinu Þórunn Antonía hefur sung- ið frá því hún man eftir sér. „Ég hef sungið frá því ég var krakki, eiginlega frá því ég man eftir mér. Ég var að gera fjölskylduna geðveika með því að syngja hástöfum með Stjórnina í botni í vasadiskó- inu mínu. Sigga Beinteins var átrúnaðargoðið mitt, öll lög með henni söng ég hástöfum dagana langa,“ segir hún og hlær. Það er ekki skrýtið að hún hafi valið sér þennan vett- vang í lífinu enda ólst hún upp við tónlist föður síns, tónlist- armannsins Magnúsar Sig- mundssonar. „Ég er með söng- inn í blóðinu. Ég fann það fljótt hvað ég elska tónlist mikið. Ég þarf á henni að halda. Mér fannst ekkert skemmtilegra í uppvextinum en að fá að sitja í hljóðverinu með pabba og hlusta á galdurinn gerast á bak við tjöldin,“ útskýrir Þórunn Antonía. Haldin fullkomnunaráráttu Hún segist hafa sterka þörf fyr- ir að syngja og koma fram en á sama tíma er hún haldin mik- illi fullkomnunaráráttu. Þór- unn Antonía segir hana ekki há sér. „Ég er búin að læra inn á sjálfa mig. Ég veit það að þegar ég er eitthvað skrýtin og pirruð að ég þarf að setjast niður og semja tónlist. Ég þarf að koma frá mér einhverri orku. Síðan koma önnur tímabil þar sem hugmyndirnar láta lítið á sér kræla. Það er ekkert hægt að ýta á skáldagyðjuna en ég veit að í mínu tilfelli er hún ansi ágeng. Ég er líka með mikla full- komnunaráráttu en með tím- anum þá hefur hún þróast í það að mér finnst hún af hinu góða. Ég veit nákvæmlega hvað ég vil. Ég er búin að syngja síð- an ég var lítil og veit upp á hár hvernig ég vil hljóma. Aðrir heyra það ekki en ég geri það,“ segir hún. „Hvað var ég að pæla?“ Þórunn Antonía gaf út sína fyrstu sólóplötu aðeins átján ára að aldri og flutti því næst til Bretlands og stofnaði hljóm- sveitina The Honeymoon. Hún var einnig meðlimur bresku sveitarinnar Fields en hefur að auki sungið með fjölda hljóm- sveita og listamanna, þar á meðal með bandaríska tón- listarmanninum Beck. Hana sundlar nánast þegar hún hugsar um eigið hugrekki þeg- ar hún lítur til baka. „Ég var í rauninni bara barn. Aðeins átján ára og þegar ég horfi til baka þá hugsa ég: Hvað var ég að pæla? Ég var svo hugrökk og þegar maður er svona lítill þá finnst manni heimurinn eng- in ógn. Ég var einlæg í því sem ég var að gera, það er á hreinu,“ segir hún. Erfitt að búa í London Þórunn Antonía flutti heim til Íslands árið 2008 og ætlaði upphaflega aðeins að dvelja hér í stutta stund. Hún er ekki enn farin og gæti ekki hugsað sér að fara aftur til Bretlands. Henni fannst enda oft erfittað búa í London og finnst gott að festa rætur hér á landi um stund með fjölskyldu sinni og kærasta. „Það var ágætt að taka sér smá pásu og anda aðeins. Það var mjög erfitt stund- um að búa í London. Borgin er hörð og grá og brjálæðis- lega dýr. Þegar maður er ung- ur þá er maður auðvitað ekki með mikinn pening á milli handanna og þessi borg étur upp allt sem þú átt. En þetta er dýrmæt reynsla og ég er sterkari eftir hana. Það er ekkert verkefni sem ég er hrædd við í dag eftir þetta,“ segir Þórunn Antonía. „Maður er bara tilbúinn í allt.“ Samstarfið við Davíð Berndsen Hún hefur ekki setið aðgerða- laus hér á landi og farið eins og stormsveipur um íslenskt menningarlíf. Hún birtist landsmönnum í gamanþátt- unum Steindinn okkar sem slógu í gegn á Stöð 2, í vetur hefur hún verið kynnir þátt- anna Týndu kynslóðarinn- ar ásamt Birni Braga og nú kynnir hún hvert popplagið á fætur öðru. Hún segist horfa björt fram á veginn. „Samstarf okkar Davíðs Berndsen geng- ur vel. Við prófuðum samstarf í fyrsta sinn þegar við sömd- um saman lagið For Your Love. Prófuðum að senda það til spilunar og það gekk von- um framar. Sat í efsta sæti vin- sældalista Rásar 2 í dágóðan tíma. Einnig koma að plöt- unni pródúserarnir Hermi- gervill og Friðfinnur Oculus og draumurinn er að platan okkar komi út seint í vor og ég hlakka til.“ Söngkonan Þórunn Antonía hefur frumsýnt nýtt myndband við lag sitt og Davíðs Berndsen, Too Late. Þórunn Antonía ræddi við Kristjönu Guðbrandsdóttur um plötu hennar sem kemur út í vor, líf- legan heimilisiðnað hennar og kærasta hennar Ágúst Bent og full- komnunaráráttu hennar. „Það er lykil- atriði að taka sig ekki alvarlega og skella sér í góðan partíbúning. Ekkert feimin „Ég er löngu kominn yfir allan hégóma. Ég er bara eins og ég er. Hégóminn er hluti af gelgjunni.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.