Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Blaðsíða 48
48 17.–19. febrúar 2012 Helgarblað Sakamál 202 U m s j ó n : K o l b e i n n Þ o r s t e i n s s o n k o l b e i n n @ d v . i s DNA-sýni réð úrslitum: Handtek- inn 8 árum eftir fyrsta morðið Talið er að Arohn Kee hafi byrjað morð- og nauðgun- arferil sinn í New York- borg 24. janúar 1991 þegar hann myrti 13 ára stúlku, Palo Illera. Arohn Kee fyrir- kom 19 ára stúlku, Johalis Castro, 13. september 1997 og brenndi síðan líkið svo það varð vart þekkjanlegt. En hann hafði ekki feng- ið sig fullsaddan því Ras- heeda Washington, 18 ára, féll fyrir hendi hans eftir að hafa verið misþyrmt kyn- ferðislega 2. júní 1998. Reyndar kom seinna í ljós að á sama tímabili og Kee framdi morðin hafði hann nauðgað fleiri ung- lingsstelpum þó svo að það hefði ekki kostað þær lífið. Arohn Kee lá reyndar undir grun allar götur frá morðinu á Palo Illera en tókst með ólíkindum að komast hjá því að verða sterklega grunaður, allt til ársins 1999. Þegar þar var komið sögu beindust sjónir lögreglu í ríkara mæli að Arohn og hann var undir stöðugu eftirliti lögreglu sem vonaðist til að komast yfir DNA-sýni úr honum svo unnt yrði að tengja hann við morðin. Í eitt skipti þegar hann var í stutta stund í varð- haldi vegna smávægilegs afbrots neitaði hann að veita lögreglu heimild til að taka munnvatnssýni; lög- reglan sagði að um væri að ræða berklapróf, en Arohn lét ekki blekkjast. Hann sagðist vera vottur Jehóva og gæti trúar sinnar vegna ekki orðið við beiðni lög- reglunnar. En svo fór að lokum að Arohn fór óvarlega og lög- reglu tókst að fá sýni af drykkjarmáli sem hann hafði drukkið úr áður en honum var sleppt úr haldi. Arohn Kee flúði frá New York en náðist örfáum dög- um síðar í Flórída þar sem hann var með 17 ára kær- ustu sinni. Þrátt fyrir að verjandi Arohns mótmælti harð- lega þeirri aðferð sem beitt var við að fá DNA-sýni úr honum var hann engu að síður sakfelldur fyrir þrjú morð og fjórar nauðgan- ir. „Fjandinn hirði ykkur öll,“ hrópaði Arohn Kee þegar hann var leiddur út úr dómsalnum. Hann fékk 400 ára fangelsisdóm. Síðar bættust við 20 ár vegna morðs sem hann framdi 1994, en DNA-sýni sýndi fram á sekt hans. Verkfæratösku- morðingjarnir Í október 1979 voru lögreglu- yfirvöld í Kaliforníu önnum kafin við að reyna að hafa hendur í hári alræmds rað- morðingja sem gekk undir nafninu The Hillside Strang- ler. Síðar kom í ljós að rétt nafn þess misindismanns var Ang- elo Buono, en hann verður lát- inn liggja á milli hluta í þessari frásögn. Á sama tíma neyttu tveir illa þokkaðir náungar, Law- rence Sigmund Bittaker og Roy L. Norris, færis og upplifðu of- beldisfantasíu sína sem með- al annars snérist um mann- rán, nauðganir, pyntingar og … morð. Hugmyndin hafði kviknað hjá kújónunum þeg- ar þeir voru á bak við lás og slá í ríkisfangelsi Kaliforníu í San Luis Obispo, en þar höfðu tekist með þeim kynni. Um tveggja mánaða skeið leituðu félagarnir bráða á þjóðveg- um og baðströndum og þeg- ar upp var staðið höfðu fimm ungar stúlkur og konur fallið fyrir hendi þeirra. Líklega voru fórnarlömb þeirra mun fleiri. Þeir fengu síðar viðurnefnið Verkfæratöskumorðingjarnir vegna aðferða sinna. Morð-Mack verður til Sem fyrr segir kynntust kump- ánarnir í grjótinu, nánar til- tekið árið 1978. Lawrence, 38 ára, hafði reyndar eytt stærst- um hluta fullorðinsára sinna í fangelsi vegna ýmissa brota, en Roy, 30 ára, hafði verið úr- skurðaður með geðveilu, var kynferðisglæpamaður og hafði verið á geðdeild í fjögur ár. Eftir að hann útskrifaðist beið hann ekki boðanna, nauðgaði stúlku og endaði í fangelsi, þar sem hann kynntist Lawrence. Eftir því sem vinátta þeirra styrktist efldist einnig löngun þeirra til að upplifa nauðgana- og morðfantasíuna sem þeir áttu sameiginlega. Eftir að þeir losnuðu úr fangelsi breyttu þeir GMC- van Lawrence þannig að hann hentaði betur því hlutverki sem honum var ætlað og gáfu bílnum heitið Morð-Mack. Að því loknu var þeim ekkert að vanbúnaði og lögðu land und- ir fót í leit að fórnarlömbum. Það átti eftir að koma í ljós að með hverju nýju fórnarlambi jókst ofbeldið og þær kvalir sem fórnarlömbin liðu áður en dauðinn líknaði sig yfir þau. Fékk ekki að biðja Fyrsta fórnarlamb Lawrence og Roy var sextán ára stúlka, Cindy Schaeffer. Þann 24. júní 1979 gekk Cindy sem leið lá eftir Redondo Beach á leið til ömmu sinnar eftir að hafa sótt guðsþjónustu. Lawrence og Roy varð ekið fram hjá henni en höfðu ekki erindi sem erfiði við að fá hana inn í van-bifreið sína. Því fór svo að þeir tóku hana með valdi og óku á fyrirfram ákveð- inn stað uppi í fjalllendi. Þar pyntuðu þeir Cindy og mein- uðu henni að fara með bæn áður en þeir börðu hana til bana og kyrktu með vírherða- tré. Um hálfum mánuði síðar, 8. júlí, leituð tvímenningarn- ir að öðru fórnarlambi. Á vegi þeirra varð Andrea Hall, 18 ára stúlka sem ferðaðist á puttan- um á Pacific Coast-þjóðveg- inum. Lawrence faldi sig aftur í bílnum en Roy bauð henni far sem hún þáði grandalaus og örfáum andartökum eftir að hún kom inn í bílinn réðst Lawrence til atlögu. Lawrence nauðgaði henni og tók síðan af henni ljósmyndir, bundinni og skelfingu lostinni. Eins og um leik væri að ræða varpaði Lawrence fram þeirri spurningu af hverju hún ætti að fá að lifa. Svar hennar var honum ekki að skapi og hann stakk hana með íssting í annað eyrað og kæfði hana síðan til bana. Yngstu fórnarlömbin Jackie Gilliam, 15 ára, og Jacqu- eline Lamp, 13 ára, voru svo ólánssamar að verða á vegi morðvarganna 3. september. Stúlkurnar voru á strætóstoppi- stöð þegar félagarnir kræktu klónum í þær. Farið var með þær upp í fjöllin þar sem þeim var nauðgað og misþyrmt um tveggja daga skeið. Ísstingur var rekinn inn í eyru þeirra og þær klipnar víða um líkamann með töngum og síðan voru vír- herðatré hert að hálsi þeirra þar til þær létust. Þær voru yngstu fórnarlömb Lawrence og Roy. Síðasta þekkta fórnarlamb- ið var Lynette Ledford, 16 ára stúlka sem var myrt 31. októ- ber 1979. Lawrence og Roy rændu Lynette og létu síðan hendur standa fram úr erm- um. Hún var stungin ítrekað og klipin með töngum og meðan á þessu stóð hljóðrituðu félag- arnir öskur hennar og beiðnir um miskunn. Lawrence barði hana ítrekað á olnbogana með sleggju og krafðist þess að hún léti ekki af öskrunum. Að lok- um hengdu þeir hana með vír- herðatré. Til að auka á skemmtunina ákváðu félagarnir að skilja illa farið lík hennar eftir inni í húsa- garði við Hermosa Beach, bara til að sjá hver viðbrögð fjöl- miðla yrðu. Þegar þar var kom- ið sögu var lögreglan búin að ná Angelo Buono, The Hill- side Strangler, og því ólíklegt að hann bæri ábyrgð á morðinu á Lynette. Ein sem slapp Það varð að lokum kjaftagleði Roy sem varð þeim að falli. Hann gat ekki á sér setið og gumaði af afrekum sínum við gamlan fangelsisnaut. Sá hafði samband við lögregluna sem fannst mikil líkindi með frá- sögninni og vitnisburði Shirley Sanders, konu sem náði að flýja frá tveimur karlmönnum sem höfðu nauðgað henni inni í van- bifreið. Lögreglan talaði aftur við konuna og sýndu henni ljós- myndir. Á þeim bar hún kennsl á bifreiðina og Lawrence og Roy. Lögreglan brá á það ráð að handtaka þá fyrir allt önnur brot en morð og nauðganir og hélt þeim án tryggingar fyrir að hafa brotið skilorð. Við yfirheyrslur fór Roy smám saman að tjá sig um ódæðin sem þeir höfðu framið en fullyrti að Lawrence hefði séð um að myrða fórnar- lömbin. Roy samdi við yfirvöld, vitn- aði gegn Lawrence og vísaði lög- reglu á lík fórnarlambanna. Lögreglan fann yfir 500 ljósmyndir af unglingsstúlk- um, nítján þeirra var saknað. En Roy skellti í lás og neitaði að gefa upplýsingar um nema fimm. Þann 17. febrúar 1981 var Lawrence Sigmund Bittaker dæmdur til dauða og til ör- yggis bætti dómarinn 199 ára fangelsisdómi við dauðadóm- inn, hann er enn á dauðadeild. Roy L. Norris fékk 45 ára til lífstíðardóm og má sækja um reynslulausn eftir tíu ár. lágu í valnum Umar Patek er talinn hafa séð um smíði sprengja sem notaðar voru í sprengjutilræði á Balí 12. október 2002. Tilræðið kostaði 202 lífið. Patek flúði land og í níu ár tókst honum að forðast hinn langa arm laganna. Í janúar 2011 var hann gripinn í Pakistan, reyndar í sama bæ og Osama bin Laden var veginn í. Þann 13. febrúar síðastliðinn, um 10 árum eftir sprengjutil- ræðið, hófust loks réttarhöld yfir Patek. n Óku um á Morð-Mack n Þeir upplifðu miður geðslega fantasíu Lawrence Sigmund Bittaker Er eldri tvímenninganna og eflaust má deila um geðheilbrigði hans. Roy L. Norris Samdi við lögregluna og fékk vægari dóm tvímenninganna. „Lawrence faldi sig aftur í bílnum en Roy bauð henni far sem hún þáði grandalaus og örfáum andartökum eftir að hún kom inn í bílinn réðst Lawrence til atlögu. Morð-Mack Fórnarlömbin voru lokkuð eða neydd upp í van-bifreið félaganna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.