Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Blaðsíða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Blaðsíða 57
Lífsstíll 57Helgarblað 17.–19. febrúar 2012 Reynir Traustason Baráttan við holdið Þ etta er Helgafell í Hafnar- firði,“ kallaði göngufélag- inn í gegnum rokið og benti með sveiflu út í sortann þar sem glitti í útlínur einhvers sem gat allt eins verið fjall. Ég spurði hvort hann væri viss. Hann horfði á mig með aumkunarsvip sem gat táknað að ég væri að tala við mann sem hefði klifið hæstu fjöll í tveimur heimsálfum og sæti nú undir þeim efasemdum að þekkja ekki hæsta og líklega eina fjall Hafnarfjarðar. En það var ástæða til að efast. Við höfðum stundum villst. N okkrum vikum áður stóðum við félagarnir á háum tindi fjalls sem átti að vera sá hluti Grímannsfells sem er ofan Gljúfrasteins Halldórs Laxness. Við nánari skoðun kom í ljós að okkur hafði borið af leið og við vorum komnir upp á eitthvað sem heitir Hjálm- ur. Ég benti ferða- félaganum á að við þyrftum að fara um djúpt dalverpi og klífa þaðan upp á umræddan hátind. Hann horfði á mig eins og hugsi en komst svo að niðurstöðu. „Nei, við förum bara niður núna. Mark- miði okkar er náð,“ sagði hann. Ég lét í ljósi þá skoðun að þetta væri rangur tindur en félaginn sagði að ég væði í villu og svíma. „Þetta er jafnhátt fjall. Við getur því sagt þeim á jörðu niðri að við höfum klifið Grímannsfell þótt það muni nokkrum metrum,“ sagði hann. V ið börðumst upp bratta hlíð Helgafellsins með storminn í fangið. Ég var á þessum tíma nokkuð næmur á hæð fjalla og vissi að samkvæmt mæl- ingum var Helgafell í Hafnarfirði yfir 300 metrar á hæð. Þar sem við börðumst áfram í stórviðr- inu skref fyrir skref gætti hjá mér kvíða um að á tindinum yrði ekki stætt. Göngufélaginn var á undan og öðru hvoru leit hann um öxl og æpti hvatningarorð í gegnum óveðrið. Skyndilega vorum við komnir upp. Við skriðum á fjórum fótum upp á bunguna. „Ertu viss um að þetta sé Helgafell,“ kallaði ég. Hann æpti til baka að auðvitað vissi hann allt um þetta fjall. „Við Bensi mágur höfum farið þetta,“ urraði hann í gegnum óveð- ursgnýinn. É g var efins alla niðurleið- ina en þorði ekki að spyrja hinn vana fjallamann frekar. Á bílastæðinu mættum við konu sem var á gagnstæðri stefnu. Ég spurði ferðafélagann hvort hann væri til í að fá staðfest hjá konunni að þetta væri Helgafell. „Heldurðu að ég sé einhver vit- leysingur?“ spurði hann allhvasst á móti. Ég sagðist auðvitað hafa á honum fulla trú almennt séð en nú yrði ég að vita vissu mína. Hann hristi höfuðið og hóf síðan upp raust sína. „Fyrirgefðu, frök- en. Viltu staðfesta við félaga minn að við séum að koma af Helga- felli,“ sagði hann og benti á fjallið í sortanum. K onan stoppaði og horfði eins og hissa á okkur. „Nei, þetta eru Óbrynnishólar,“ sagði hún og upplýsti hlæjandi að þeir væru rúmlega 100 metrar á hæð. Ferðafélaginn hummaði. „Skrýtið, við Bensi …“ sagði hann og þagnaði svo. Hæðarmunurinn á hólunum og fjallinu var of mikill til að við gætum sagt fjölskyldu og vinum að við hefðum klifið hið háa fell. Við ákváðum að best væri að ferðin væri gleymd og grafin. Og við þögðum þar til nú. Týnda fjallið Ljúffengar rjómabollur M júkar og sætar, full- ar af sultu og rjóma og skreyttar eftir kúnstar- innar reglum. „Bollur er freisting sem er erf- itt að standast,“ segir Jónatan Egg- ertsson, bakarameistari hjá Café Konditori Copenhagen, sem er í miklum önnum ásamt öðru starfs- fólki við að undirbúa bolludaginn þegar blaðamann ber að garði. Jón- atan útskýrir að þar sem sá siður að borða bollur sé danskur baki bak- arar gjarnan bollur að dönskum sið. Hann segir frá því að í Dan- mörku tíðkist að bera fram bollur með rjóma og ferskum ávöxtum. Bollurnar sjálfar séu annaðhvort gerbollur eða vatnsdeigsbollur. Í gerdeigið sé síðan gjarnan blandað vandaðri vanillu eða kardimomm- um. „Danskir bakarar eru ólíkt íhaldssamari hvað varðar samsetn- ingu bollunnar en þeir íslensku. Ís- lenskir bakarar eru óhræddir við að leika sér með hráefnin gagn- stætt þeim dönsku. Við erum ýktari býst ég við,“ segir Jónatan og hlær. Hann segist hafa gaman af þess- ari nýjungagirni og að fylgjast með skemmtilegum hugmyndum um samsetningu bollunnar. Sjálfur er Jónatan helst hrifinn af draumabollunum sem eru með rjóma, berjum og öðrum ávöxtum. „Vatnsdeigsbollurnar eru vinsælli en gerbollur. Þær eru léttari í maga og það má segja að þær eigi endur- komu, þær voru vinsælar fyrir ára- tugum síðan og margir muna eftir þeim úr æsku,“ segir hann. Jónatan gefur lesendum DV uppskriftir að draumabollunum góðu og karamellubollum sem mörgum þykja góðar. kristjana@dv.is Að skreyta rjómabollur er skemmtileg iðja fyrir alla fjölskylduna. Bolludagur nálgast og er í fullkomnu ósam- ræmi við janúarheilsuæði landans enda algengt að í hverri bollu sé hitaeiningafjöldinn svimandi hár. DV fékk uppskriftir að ljúffengum bollum frá Jónatani Grétarssyni, bakarameistara hjá Café Konditori Copenhagen. Bolludagur Vatnsdeigsbolla með karamellu 10 stk. 500 gr þeyttur rjómi Bræðið 15–20 freyjukaramellur í 0,25 l rjóma og setið smá af vanilludropum út í. Látið kólna aðeins og setjið næstum því allt í þeyttan rjómann og restin fer yfir bollurnar. Vatnsdeigs-draumabolla 10 stk. Þeytið 500 gr rjóma, setja jarðarberjasultu á botninn. Sprautið rjómanum á bollurnar. Skerið niður jarðarber, kíví og bláber og raða í rjómann. Setjið lokið yfir og súkkulaðiíssósa sett yfir. Þetta er ekta dönsk rjómabolla. Vatnsdeigsbollu uppskrift 250 gr. smjörlíki 5 dl vatn 250 gr hveiti 6 egg Smá salt Smá sykur Smjörlíki og vatn er hitað saman í potti þangað til smjörlíkið er allt bráðið og vatnið sýður vel. Hitinn minnkaður og allt hveitið látið í einu út í pottinn, hrært stöðugt í þangað til það er orðið þykkt. Látið síðan smá salt og sykur út í, látið kólna aðeins. Eggin eru þeytt og síðan látin ofan í og hrært stöðugt. Bakið við 200 gráður í 15 til 20 mínútur. Draumabollur Bollur eru vinsælar í Danmörku og eru bornar fram með rjóma og ferskum ávöxtum. Karamellubollur Íslendingar eru heldur ýktari en Danir þegar kemur að því að útfæra bollurnar. Karamellubollur eru vinsælar hjá Café Konditori Copenhagen. Nóg af rjómabollum Jónatan Grétarson með fangið fullt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.