Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2013, Qupperneq 50
Skrýtnar kröfur
Lady Gaga
50 Fólk 8.–10. febrúar 2013 Helgarblað
G
ömul rokkplaköt af uppá-
haldslistamönnum hennar,
David Bowie, Queen, Elton
John and Billy Holiday,“ eru
meðal fjölmargra krafa sem að-
stoðarmenn Lady Gaga setja fram
um aðbúnað stjörnunnar á tón-
leikaferðalögum.
Tölvupóstur um ýmiss konar
sérvisku og þarfir Lady Gaga á tón-
leikaferðalögum voru birtir á slúð-
urmiðlum vestra nýverið vegna
málsóknar O´Neill sem hefur kært
hana vegna ógreidds launakostn-
aðar.
Svo virðist sem stjarnan sé gagn-
tekin af lavender. En á meðal þess
sem Íslandsvinurinn gerði kröfu
um, voru handklæði og þurrkur í
lit lavender, lofnarblóms, og sápur
og rósir í sama lit. Allt þetta þarf að
vera til staðar öllum stundum og er
aðeins brotabrot af kröfum hennar.
Samkvæmt þeim tölvupósti sem
O´Neill leggur fram hefur Lady
Gaga eytt nærri 6.000 dölum í lúxus
á stuttum tíma á ferðalögum sínum
auk 3.000 dala í hátískuferðatöskur.
Þá kemur einnig fram í áður-
nefndum tölvupósti að hún er á
mjög sérstöku fæði. Í morgun-
verð fær hún sér grófar kornflögur
eða Special K, lífrænt te og mjólk.
Þá bað hún einnig um jarðar-
berjasultu og hnetusmjör með
hörfræjum sem mátti ekki inni-
halda meira en fjögur grömm af
sykri. Þá vill hún ávallt hafa til
taks, grófar tortillur og heimagert
lárperumauk.
Dekstur á ferðalögum
Þær eru fjölmargar og sum-
ar skrýtnar kröfurnar sem
aðstoðarfólk Lady Gaga
gerir um aðbúnað hennar á
ferðalögum.
Tölvupósti lekið Tölvupósti um kröfur
Lady Gaga hefur verið lekið í fjölmiðla í
kjölfar málareksturs O´Neill, sem segir
stjörnuna skulda sér fúlgur fjár í ógreidd
laun.
n Eyðslusöm
og kröfuhörð
Fiskatjörn
og ruslfæði
F
leiri stjörnur en Lady Gaga
vilja láta dekstra svolítið við
sig á ferðalögum. Samkvæmt
fréttum Daily Mail vill söng-
konan dáða heilar þrjár
flöskur af rauðvíni í bestu gæðum, 12
flöskur af evrópskum bjór og pakka
af Marlboro Lights. Hún biður einnig
um ferska ávexti og súkkulaðimola í
bitastærð. Gott partí það!
Eminem er á öðru og undarlegra
plani í sínum óskum. Á tónleikum
í Norður-Írlandi á dögunum vildi
hann hafa hjá sér, heila tjörn með
japönskum koi-fiskum. Það má gera
sér í hugarlund hversu mikið Írar
hafa reytt hár sitt.
Óskir hinnar tágrönnu og íðil-
fögru Taylor Swift koma á óvart,
en svo virðist sem hún vilji hrúga
í sig ruslfæði á ferðalögum sínum.
Ben&Jerry-ís, kakómjólk, makkar-
ónur og ostur og lakkrísrör eru með-
al þess sem hún getur ekki verið án.
Beyoncé þykir heit um
þessar mundir eftir sérlega góða
frammistöðu sína í opnunaratriði
Super Bowl í Bandaríkjunum. Svo
virðist sem mataræðið sé líka eldheitt
en hún borðar helst kjúkling baðað-
an í cayenne- og eldpipar. Þá vill hún
líka hafa búningsherbergi sitt 37 gráðu
heitt.
Justin Bieber er ekki beint fyrir
munúð. Hann biður ekki um sérlega
mikið, er hrifinn af harðfiski og jurta-
tei.
Rihanna er meira fyrir munúðina
og vill umhverfið dýrslegt. Rihanna
biður um hvíta, mjúka sófa með púð-
um skreyttum með blettatígurmynstri.
n Fleiri stjörnur vilja undarlegt dekur
Þarf ekki mikið
Justin Bieber þarf
ekki mikið; harðfisk
og heitt te.
Ruslfæði á óskalistanum Taylor vill hrúga í sig alls kyns ruslfæði á ferðalögum. Ís,
lakkrísrör og makkarónur með osti eru á óskalistanum.
Vildi heila tjörn Eminem
bað ekki um lítið á tón-
leikaferðalagi um Norður-
Írland. Heila fiskatjörn með
japönskum koi-fiskum.
Heit á heitu fæði Beyoncé borðar
kjúkling með cayenne-pipar og vill 37 gráðu
heitt búningsherbergi.
Dýrsleg þægindi Rihanna vill hvíta sófa
með púðum í dýramynstri.
Adele vill gott partí Áfengi, sígarettur,
og súkkulaðimola. Adele vill deyfa öll
skilningarvit á ferðalögum sínum.
Britney
er ekki
„tíkin“
n Timberlake
svarar fyrir sig
J
ustin Timberlake þver-
tekur fyrir að hafa kall-
að Britney Spears „tík“
á dögunum. Samkvæmt
slúðurmiðlinum Hollywood
Life vakti það athygli þegar
Justin hélt smá ræðu í Super
Bowl-fögnuðinum áður
en hann tók lagið Cry
Me a River. Söngvarinn
sagði eitthvað á þá leið að
„stundum hitti maður ein-
hverja sem maður telji að
sé sú eina rétta. En síðan
kemur í ljós að hún var al-
gjör tík“.
Slúðurmiðlarnir halda
nú fram að Justin hafi verið
að tala um samband hans
við poppprinsessuna en
þau Britney voru saman frá
árinu 2000 til 2002. Timber-
lake talar afar sjaldan um
tímann með Spears en sá sér
ekki annað fært en að svara
fyrir sig á Twitter.
Ung og ástfangin Parið var
saman um tveggja ára skeið.
JT Popparinn sagði að hann myndi
aldrei tala illa opinberlega um Britney
eða einhverja aðra konu.