Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2013, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2013, Blaðsíða 35
Menning 35Helgarblað 8.–10. febrúar 2013 V eistu amma, að þessi sýn­ ing, hún var bara svo yfir­ þyrmandi að ég held að ég geti ekki talað um hana strax,“ sagði ég við nöfnu mína þegar við keyrðum heim af sýningu á Vesalingunum í Smárabíói í síðustu viku. „Ég veit,“ sagði amma og við þögðum saman. Það er einmitt orðið yfir Vesaling­ ana – yfirþyrmandi. Hún er yfir­ þyrmandi; af ást, sorg og baráttu. Allt öðruvísi Þeir sem þekkja söngleikinn Les Misérables vita að um er að ræða sýningu sem ekki er auðvelt að horfa á. Ég hef aldrei séð neinn söngleik sem endurspeglar ömurleika mann­ kynsins eins vel og þessi – en einnig baráttugleði þess. Ég hef verið svo heppin að sjá verkið á fjölunum tvisvar, annars vegar West End­út­ gáfu þess og svo í þjóðleikhúsinu í fyrra. Báðar sýningarnar voru af­ bragðsgóðar og ekki gaf Þjóðleik­ hússýningin Lundúnaverkinu eftir í neinu nema síður sé. Kvikmyndin er hins vegar mjög frábrugðin báð­ um sýningunum. Hún ljær verkinu meiri nánd en ég hef áður upplif­ að og á köflum svo mikla að manni finnst það erfitt. Lífsbaráttan Vesalingarnir eru byggðir á sam­ nefndri bók eftir Victor Hugo. Þar segir frá samfélagslegum hræring­ um; ást, sorg og leitinni að betra lífi og réttlæti. Það er erfitt að stikla á stóru, en hér segir frá Jean Va­ ljean, fanga sem hefur afplánað nítján ára fangelsisvist í skelfilegum aðstæðum fangabúða í Frakklandi á nítjándu öld. Er honum er veitt reynslulausn úr fangabúðunum heitir fangavörðurinn, og síðar lög­ reglumaðurinn, Javert, því að fylgj­ ast vel með Jean Valjean og minnir hann á að hann verði ávallt stimpl­ aður ofbeldismaður sem eigi sér ekki von um uppreisn æru. Hann brýtur skilorðið og leggur á flótta. Þegar honum er veitt tæki­ færi á ný – syndaaflausn og betrun, þá grípur hann það. Mörgum árum síðar kynnist hann Fantine, ungri einstæðri móður sem lífið hefur leikið grimmilega. Þegar hún deyr heitir hann að ganga dóttur hennar, Cosette, í föðurstað. En Jean Valjean verður alltaf á flótta þó svo að hann hafi snúið við blaðinu. Í sögunni erum við leidd í gegnum sögusvið frönsku byltingarinnar; við fáum innsýn í líf þjáningar, fátæktar og grimmdar, en líka vonar og baráttu­ anda. Við kynnumst svikahröppum og byltingarsinnum og sannri ást. Boðskapurinn er sannarlega tíma­ laus og það er viðeigandi að sagan sé endurvakin með reglubundnum hætti. Heimurinn gengur nú í gegn­ um enn eitt byltingartímabilið, sem við sjáum hvað helst endurspeglast í Mið­Austurlöndum. Sagan á alltaf erindi við okkur og minnir okkur á hvað kærleikurinn er mikilvægur. Vel gert Kvikmyndin er mjög vel gerð og leik­ ur vel á tilfinningar fólks. Í salnum þetta kvöld voru fáir sem gátu ha­ mið tilfinningar sínar. Munurinn á að sjá þessa sýningu á fjölunum og í bíósal er mikill. Nálægðin er meiri, þó furðulegt sé, í bíóinu, og er það vegna þess að margar senurnar eru teknar í mikilli nærmynd. Harmur Fantine (Anne Hathaway) má nefna sem dæmi um slíka nálægð að mað­ ur á sér engrar undankomu auðið. Ég þráði að komast heim þegar sem mest lét. Ekki vegna þess að það væri illa gert, heldur einfaldlega vegna þess að það var svo tilfinningaþrung­ ið. Hér er margt gert vel. Að láta söngvarana syngja lögin beint í myndavélina, en ekki í hljóðupp­ tökuveri, gefur myndinni mikinn raunveruleika, en skerðir vissulega gæði söngsins. Þeir sem frægastir eru leikaranna eru allir þekktir fyr­ ir leikhæfileika sína – en minna fyr­ ir söng. Þeir eru ekki færir um að syngja óperur og verkið er ópera. Það hefðu til dæmis margir geta sungið hlutverk Javerts betur en Russell Crowe, en fáir hefðu getað skapað þá persónu sem hann gerir. Anne Hathaway, Hugh Jack­ man og Eddie Redmayne skila sínu öll með bravúr. Sú sem stelur sen­ unni er leikkonan Samantha Barks, en frammistaða hennar í hlutverki Eponie er stórkostleg. Þá er litli vinur minn Gavroche, sem leikinn er af Daniel Huttlestone, yndisleg­ ur. Sacha Baron Cohen er hins vegar slakur og nær sér aldrei á strik sem svikahrappurinn Thénardie. Það eru viss vonbrigði, enda ljá Thénardie­ hjónin verkinu skemmtanagildi sem er því nauðsynlegt. Myndin er feikilega vel gerð. Boðskapurinn, baráttan gegn arðráninu og trúin á að hægt sé að sigra heiminn með kærleikann að vopni, skilar sér vel og sannir að­ dáendur ættu ekki að láta myndina fram hjá sér fara. n Yfirþyrmandi af ást og sorg Einvala lið Anne Hathaway hefur verið til- nefnd og hlotið verðlaun fyrir leik sinn í myndinni. Bíómynd Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is Les Misérables IMDb 7,9 RottenTomatoes 70% Metacritic 63 Leikstjóri: Tom Hooper Handrit: William Nicholson, Alain Boublil, Claude-Michel Schönberg ,Herbert Kretzmer. Leikarar: Amanda Seyfried, Anne Hathaway, Eddie Redmayne, Helena Bonham Carter, Hugh Jackman, Russell Crowe og Sacha Baron Cohen. 158 mínútur „Sú sem stelur sen- unni er leikkon- an Samantha Barks, en frammistaða hennar í hlutverki Eponie er stór- kostleg. „Vel smíðuð saga“ „Meiriháttar skemmtun“ Undantekningin Auður Ava Ólafsdóttir DMC Devil May Cry Capcom „Ágætis sjónvarpsmynd á sunnudagseftirmiðdegi“ Jack Reacher Christopher McQuarrie Leitað að gömlum gersemum mikla athygli. Þetta eru rummungs­ verk og voru einu sinni á sýningu hér fyrir löngu 1977. Listamennirn­ ir gáfu síðan þessi verk til Listasafns Íslands. Síðan eru verk eftir mjög marga þekkta listamenn. Georges Mathieu, mann sem er einn af fyrstu gjörningalistamönnum heimsins. Hann málaði verk sín fyrir framan áhorfendasæg. Þá er líka verk eftir Carl André, einn þekktasta miníma­ lista heims og teikningar eftir Ric­ hard Serra af verkinu sem seinna var reist í Viðey.“ n kristjana@dv.is Kenni ýmissa grasa Á meðal verka á sýningunni er verk eftir eftirlætisnem- anda Rafaels. Sárindi Sum verkanna fengust ekki endurheimt. Halldór Björn segist að vissu leyti skilja sjónarmið þeirra sem í hlut eiga. MynDIR SIgTRyggUR ARI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.