Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2013, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2013, Blaðsíða 6
6 Fréttir 8.–10. febrúar 2013 Helgarblað Fær ekki svör um Hörpu n „Ég skil ekki í hvaða leik menn eru“ n Segir kostnaðinum leynt É g skil ekki í hvaða leik menn eru. Þeir vilja miða við sem lægsta tölu, 17,5 milljarða, sem er kostn­ aðurinn eftir að núverandi fé­ lag tók við,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Á fundi borgarstjórnar í september lagði hann fram fyrirspurn um hver væri heildarbyggingarkostnaður við Hörpu og tengd mannvirki á núverandi verð­ lagi. Hann telur að í svari borgarstjóra á fundi í janúar hafi verið snúið út úr spurningunni og svarið því ekki full­ nægjandi. Hann ítrekaði fyrirspurn­ ina á fundi þann 5. febrúar. Fyrsti hluti hennar hljómar svo: „Óskað er eft­ ir sundurliðuðum upplýsingum um áfallinn kostnað, s.s. vegna lóðakaupa, jarðvinnu, sjófyllingar, byggingar, glerhjúps, gatnatenginga, torggerðar, lóðafrágangs, bílastæðahúss o.s.frv. Þá er óskað eftir yfirliti yfir þær fram­ kvæmdir, sem eftir eru eða standa yfir og kostnaðaráætlanir vegna þeirra.“ Kjartani finnst rangt gagnvart skatt­ greiðendum að lægstu tölunni sé ávallt haldið fram. „Þegar það er talað um þessa upphæð þá fer fólk að ímynda sér að þetta hús hafi ekki kostað meira, en það kostaði miklu meira.“ Hann segir rangt að aðeins 17,5 milljarðar lendi á skattgreiðendum, 30 milljarðar væru nær lagi. „Ég tók það sérstaklega fram þegar ég spurði að ég væri að spyrja um stóru töluna. Mér finnst eins og það sé verið að snúa út úr.“ Kjartan telur borgarstjóra ekki hafa samið svarið heldur hafi embættis­ maður á hans vegum útbúið það. Hann segir það hins vegar borgar­ stjóra að sjá um að rétt svör berist borgarfulltrúum. „Maður á bara að spyrja og fá svar og svo snúa sér að næsta máli. Maður á ekki að þurfa að standa í margra mánaða stappi við að fá tölu sem ég veit að er ein­ hvers staðar inni í tölvutæku bók­ haldskerfi, og ég veit að tekur engan tíma að prenta út.“ n Þ að kom bréf í morgun, stíl­ að á konuna mína, sem inni­ hélt upplýsingar um aðra konu. Hvaða lyf hún er að taka, heimilislækni hennar og hvað eina sem fyllt er út þegar sótt er um líf­ og sjúkdómatryggingar,“ segir eiginmaður konu sem fyrir slæm mistök hjá tryggingafélaginu Verði fékk sendar í pósti viðkvæm­ ar persónuupplýsingar um annan tilvonandi viðskiptavin félagsins. Framkvæmdastjóri hjá Verði segir að um mannleg mistök hafi verið að ræða, málið sé litið alvarlegum aug­ um og farið verði yfir verkferla hjá fyrirtækinu. Óttuðust um eigin upplýsingar Forsaga málsins var sú að hjónin voru að skipta um tryggingafélag og færa öll viðskipti sín yfir til Varð­ ar. Við yfirferð á umsókn þeirra um líf­ og sjúkdómatryggingu fengu þau þær upplýsingar frá tryggingafé­ laginu að skoða þyrfti tiltekið atriði umsóknar konunnar nánar. Varðaði það kvilla sem orðið hafði föður kon­ unnar að aldurtila á sínum tíma. „Þau sögðust ætla að skoða þetta nánar en síðan var aldrei haft sam­ band aftur. Síðan kemur þetta bréf í morgun [þriðjudag, innsk. blm.].“ Maðurinn, sem baðst undan því að koma fram undir nafni kveðst hafa hringt allt annað en sáttur í tryggingafélagið til að leita skýringa. „Við héldum auðvitað að fyrst þegar við fengum persónuupplýs­ ingar þessarar konu í pósti, að bréfið sem við vorum að bíða eftir frá Verði hefði farið eitthvert annað út í bæ.“ „Eitt stórt klúður“ Hann kveðst afar ósáttur með þau viðbrögð sem hann hafi fengið við kvörtun sinni hjá starfsmanni Varð­ ar. „Okkur er sagt að þetta hafi bara verið smávægileg mistök. Þetta er sko eitt stórt klúður hjá þeim.“ Starfsmaðurinn tjáði honum að þau hafi ekki átt að fá nokkurt bréf frá Verði. „En hvernig áttum við að vita það? Okkar mál voru í skoðun og svo barst þetta bréf.“ Aðspurður segir maðurinn að fullyrt hafi verið við hann að engin gögn er varða eiginkonu hans hafi farið á flakk, enda hafi þau ekki átt að fá bréf frá félaginu. „En get ég tekið hana trúanlega eftir þetta klúður?“ Maðurinn kveðst hafa haft sam­ band við Persónuvernd og kon­ una sem gögnin varða. Konan hafi lagt mesta áherslu á að þau skiluðu bréfinu til tryggingafélagsins sem maðurinn kveðst ætla sér að gera. Tryggingafélagið var þá búið að hafa samband við konuna og biðja hana afsökunar. „Þeir hringja í hana og biðja hana afsökunar en það er ekkert hringt í okkur. Þetta kostaði í það minnsta það að við erum farin frá þessu tryggingafélagi,“ segir mað­ urinn verulega ósáttur með vinnu­ brögð tryggingafélagins. Eftir að DV grennslaðist fyrir um málið var haft samband við manninn og hann beðinn afsökunar. „Þetta er augljóslega alvarlegt mál og þegar svona mistök koma upp þá þarf sá sem gerði þau að yfirfara sín öryggismál,“ segir Þórður Sveins­ son, lögfræðingur hjá Persónuvernd, þegar DV bar málið undir hann. Hann segir að ef svo fari að kvörtun berist stofnuninni verði leitað skýr­ inga og bent á úrbætur. Mannleg mistök „Við erum búin að fara yfir málið og það er í sjálfu sér mjög einfalt. Mis­ tökin fólust í því að starfsmaður skrif­ aði rangt nafn á haus bréfs. Þetta eru bara mannleg mistök,“ segir Sigurður Óli Kolbeinsson, framkvæmdastjóri vátryggingasviðs hjá Verði, aðspurð­ ur um málið. Hann segir svona atvik aldrei hafa gerst áður í sögu félagsins svo vitað sé. „Þess vegna lítum við svo á að þetta sé einangrað tilvik en það breytir því ekki að við lítum málið mjög alvarlegum augum,“ segir Sig­ urður Óli og ítrekar mikilvægi þess að svona hlutir séu gerðir vel og tryggt eins og best verður á kosið að við­ kvæmar upplýsingar fari ekki á ranga staði eða komist í hendur rangra að­ ila. „Það er algjört grundvallaratriði.“ Sigurður Óli staðfestir einnig að haft hafi verið samband við konuna sem bréfið sem hjónin fengu raun­ verulega varðaði, og hún beðin inni­ lega afsökunar. Sigurður Óli átti ekki von á neinum eftirmálum. „Við munum í kjölfarið fara yfir málin, athuga hvort eitthvað er sem betur má fara því það er mjög slæmt þegar svona gerist. Það er lítið til af óskeikulu fólki í heimin­ um en auðvitað á verklag og kerfið að vera þannig að eins mikið sé gert og mögulegt er til að tryggja að svona gerist ekki. Og ég tel að svo sé hjá okkur.“ n Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is „Þetta eru bara mannleg mistök persónuupplýsingar sendar á rangt fólk n Hjón fengu viðkvæm gögn annars viðskiptavinar Varðar í pósti Mannleg mistök Sigurður Óli Kolbeins- son, framkvæmdastjóri vátryggingasviðs, segir málið litið alvarlegum augum en það megi rekja til mannlegra mistaka. Viðkvæmar upplýs- ingar Hjón fengu fyrir mistök sendar viðkvæm- ar persónuupplýsingar um annan viðskiptavin tryggingafélagsins Varðar. Mynd Sigtryggur Ari. Sætir farbanni Hæstiréttur Íslands felldi á fimmtudag úr gildi úrskurð Hér­ aðsdóms Vesturlands þar sem karlmanni, sem grunaður er um að hafa beitt tvær systur grófu kynferðisofbeldi, var gert að sæta gæsluvarðhaldi. Ákvað Hæsti­ réttur þess í stað að láta manninn sæta farbanni. Telur Hæstiréttur að ekki sé hægt að réttlæta gæslu­ varðhaldsúrskurð yfir manninum því hann hefur eindregið neitað ásökunum systranna. Við rann­ sókn málsins er stuðst við bráða­ birgðamat sérfræðings í klínískri sálfræði sem var falið að kanna sálrænt heilbrigðisástand manns­ ins, hugarástand og siðferðisvit­ und ásamt því að meta kynferð­ islegar hvatir hans. Kemur fram í vottorði sérfræðingsins að hann hafi áhyggjur af geðrænum ein­ kennum kærða og að öll hans svör einkennist af samhengis­ leysi. Telur sérfræðingurinn hugsanlegt að geðrofseinkenni séu til staðar hjá manninum sem virðast blandast trúmálum. Fundu úlpuna Hátt í hundrað leitarmenn, þar á meðal kafarar, leituðu að Grét­ ari Guðfinnssyni sem saknað hefur verið síðan á miðvikudags­ morgun á Siglufirði. Svört úlpa og persónulegir munir Grétars fund­ ust í fjörunni norðan við bæinn á fimmtudagsmorgun þegar leit hófst að nýju. Á fimmtudag ein­ skorðaðist leitin því við sjóinn, með aðstoð kafara, og strand­ lengjuna. Samkvæmt upplýsing­ um frá lögreglunni á Akureyri er búið að fínkemba bæinn og næsta nágrenni. Grétar er 45 ára en síðast spurðist til hans á tíunda tíman­ um á miðvikudag og fram hefur komið að hann hefur átt við veik­ indi að stríða. Ítrekar fyrirspurn Kjartani finnst hafa verið snúið út úr fyrir- spurn sinni. Umhverfisvæn heilsu og lífsstíls- verslun fyrir þig og þá sem þú elskar mest Strandagata 17, Hafnarfirði - S:568 8872 - www.radisa.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.