Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Blaðsíða 2
2 Fréttir 26.–28. apríl 2013 Helgarblað
n Gunnar var tvírukkaður um komugjald n Svona eru reglurnar
Þ
eir tóku á móti mér en sögð
ust ekkert geta gert fyrir
mig, segir Gunnar Þór Guð
mundsson sem slasaðist á
fingri í byrjun febrúar. Hann
leitaði á Heilbrigðisstofnun Suður
lands á Selfossi (HSU) í þeirri von að
þar yrði gert að sárum hans.
„Puttinn á mér fór mjög illa.
Þetta var opið beinbrot þannig það
þurfti að tjasla puttanum saman og
sauma,“ útskýrir Gunnar.
Svörin sem hann fékk á HSU voru
hins vegar þau að þeir hefðu ekki að
stöðu til að gera að sárinu þar sem
sú deild væri lokuð. „Þeir bundu að
vísu um sárið og deyfðu mig,“ segir
Gunnar sem í kjölfarið var sendur
með sjúkrabíl til Reykjavíkur.
„Þá varð ég frekar fúll“
Á Landspítala háskólasjúkrahúsi
var gert að sárum Gunnars og
greiddi hann 8.000 krónur fyrir þá
þjónustu. Þá þurfti hann einnig að
greiða 7.500 krónur fyrir sjúkrabíl
inn frá Selfossi til Reykjavíkur.
„Þegar ég fékk svo reikning frá
HSU líka þá varð ég frekar fúll,“
segir Gunnar hreinskilinn. En
nokkrum dögum eftir komuna á
sjúkrastofnunina fékk hann send
an reikning upp á 6.000 krónur,
skráð sem komugjald.
Gunnari þótti sérstakt að vera
rukkaður um komugjald á báðum
sjúkrastofnunum, í ljósi þess að
önnur þeirra gat ekki veitt honum
þá þjónustu sem hann þurfti.
Hann taldi þetta óeðlilega mik
inn kostnað og gerði nokkrar til
raunir til að hafa samband við inn
heimtufulltrúa hjá HSU í síma til
að fá skýringar á reikningnum, en
án árangurs. Til að fá einhver svör
fór hann upp á HSU þar sem ritari
tjáði honum að reikningurinn hlyti
að hafa verið sendur fyrir mistök.
Gunnar greiddi því ekki reikn
inginn, enda taldi hann sig ekki
þurfa að greiða fyrir þjónustu sem
hann fékk ekki.
Vísaði í reglurnar
Hann sendi innheimtufulltrúanum
engu að síður tölvupóst og óskaði
skýringa. Hann fékk fljótlega svör
sem voru þó ekki eins og hann hafði
búist við.
Gunnari var tjáð að samkvæmt
reglum Sjúkratrygginga Íslands þá
bæri honum skylda til að greiða
komugjald á báðum stöðum. Í póst
inum segir: „Reglurnar eru ef þú
kemur tvisvar sama sólarhringinn
á sömu stofnun þá greiðir þú bara
einu sinni, en þar sem þetta er sitt
hvor stofnunin er þetta svona því
miður.“
Gunnar var mjög hissa yfir því
að það skipti máli hvort um væri að
ræða sömu sjúkrastofnun eða ekki,
þar sem þær væru báðar innan sama
heilbrigðiskerfisins.
Reikningurinn kominn
í innheimtu
Þegar svörin bárust var um rædd ur
reikningur kominn í milli innheimtu
með tilheyrandi kostnaði. „Fyr
ir utan þennan milli inn heimtu
kostnað þá er þetta komið upp í
rúmar 20 þúsund krónur hjá mér,“
segir Gunnar. Þá þurfti hann að fara
fimm sinnum til Reykjavíkur svo
hægt væri að skipta um umbúð
ir á fingrinum, því ekki var hægt að
gera það á Selfossi. „Það er auðvit
að kostnaður við það líka, en maður
lætur sig hafa það. Þannig að þetta
er orðið svolítið dýrt dæmi.“
Gunnar er ekki bara ósáttur við
að þurfa að greiða komugjald á
báðum sjúkrastofnunum, heldur
þykir honum einnig bagalegt að
HSU geti ekki sinnt tilfellum eins
og hans, enda hafi ekki verið um
að ræða meiriháttar áverka.
DV hafði samband við Sjúkra
tryggingar Íslands þar sem það
fékkst staðfest að reglurnar væru
eins og innheimtufulltrúi HSU gaf
upp. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
„Þetta var opið
beinbrot þannig
það þurfti að tjasla putt-
anum saman og sauma.
Sendur burt með
opið beinbrot
Tvírukkaður
Gunnari finnst undar-
legt að þurfa að borga
komugjald á tveimur
sjúkrastofnunum sem
hann leitaði til sama
daginn. Sérstaklega
í ljósi þess að honum
var vísað frá á öðrum
staðnum.
„Ég þekki þessa
menn ekki neitt“
3 Snorri Sturluson lögmaður
sat í gæsluvarð
haldi í þrjá daga fyrr
í þessum mánuði
vegna gruns um
aðild að smygli
á 300 grömm
um af kókaíni. DV
fjallaði um málið á miðvikudag.
Aðspurður hvort grunur lögreglu væri
á rökum reistur, svaraði Snorri: „Það
er dómstólanna að dæma um það,
ef það verður gefin út ákæra.“ Snorri
liggur undir grun um að hafa átt að
taka á móti kókaíni sem tveir Þjóð
verjar reyndu að smygla til landsins í
byrjun mánaðarins. „Ég þekki þessa
menn ekki neitt,“ sagði Snorri við
blaðið.
Fæddist með
hjartagalla
2 Anney Birta, sem brátt
verður ellefu ára,
kemur um þessar
mundir fram í aug
lýsingum þar sem
fólk er hvatt til þess
að gefa blóð. Ann
ey Birta fæddist
með alvarlegan hjartagalla og fer á
þriggja mánaða fresti til hjartalækn
is í sónar og aðrar rannsóknir. Hún
og Guðrún Bergmann Franzdóttir,
móðir hennar, voru í viðtali í mánu
dagsblaði DV þar sem þær lýstu
erfið leikum undanfarinna ára. Fyrir
liggur að Anney Birta þurfi að fara í
aðgerð seinna á ævinni, hún er með
gerviæð sem þarf að skipta út og svo
þarf að setja nýja loku í hjartað.
Ingólfur látinn
1 Ingólfur Júlíusson, frétta
ljósmyndari og
margmiðlunar
hönnuður, lést að
faranótt mánudags
ins eftir hetjulega
baráttu við bráða
hvítblæði. Ingólfur
var fæddur 4. maí árið 1970 og ólst
upp fyrstu árin í SyðraGarðshorni í
Svarfaðardal en frá fimm ára aldri í
Breiðholtinu í Reykjavík. Eftirlifandi
eiginkona Ingólfs er Monica Haug en
þau eiga saman tvær dætur; Hrafn
hildi og Söru. DV ræddi við nokkra af
vinum Ingólfs sem var afar vinmargur.
„Það sem mér dettur fyrst í hug er að
hann var aldrei í vondu skapi,“ sagði
Gunnþór Sigurðsson, vinur Ingólfs
og hljómsveitarfélagi, þegar hann var
beðinn um að lýsa vini sínum, Ingólfi.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
Funduðu um
símahleranir
Umboðsmaður Alþingis og rík
issaksóknari héldu á miðviku
dag upplýsingafund þar sem
fjallað var um símahleranir lög
reglu. Þar var einnig rætt hvern
ig ríkissaksóknari ræki eftirlit
sitt með símahlustunum. Á vef
umboðsmanns Alþingis segir að
honum hafi að undanförnu borist
athugasemdir og ábendingar
vegna símahlustana lögreglu og
eftirlits með þeim. Hann hefur
til skoðunar hvort tilefni sé til að
taka framkvæmd þessara mála til
athugunar. Ríkissaksóknari hefur
eftirlit með tilkynningum til hlust
unarþola um aðferðina.
Skrópaði oftast
Árni Johnsen, þingmaður Sjálf
stæðisflokksins, skrópaði oftast
þegar greidd voru atkvæði, sam
kvæmt vef sem Pírataflokkurinn
hefur sett í loftið en vefurinn nefn
ist Alþingisrýnir. Árni var með
810 fjarvistir þegar kom að því
að greiða atkvæði um mál á Al
þingi. Höskuldur Þórhallsson,
þingmaður Framsóknarflokksins,
var í öðru sæti með 749 fjarvistir.
Birkir Jón Jónsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, var með 454
fjarvistir og Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
með 455 fjarvistir. Guðmundur
Steingrímsson, formaður Bjartrar
Framtíðar, var með 510 fjarvistir
og Sigmundur Davíð Gunnlaugs
son, formaður Framsóknarflokks
ins, með 524 fjarvistir.