Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Blaðsíða 56
56 Lífsstíll 26.–28. apríl 2013 Helgarblað
n Hagstæðara að fara í sólarlandaferð en að gista í bústað n Nokkrar lúxusferðir
N
ú er sumarið komið samkvæmt
dagatalinu að minnsta kosti og
margir farnir að huga að þvi
hvert halda skal í fríinu. Margir
sjá fyrir sér hvítan sand og slökun við
sundlaugarbakkann á meðan aðrir
kjósa að ganga á fjöll eða bara skella
sér í bústað svo dæmi séu tekin.
Svo eru einhverjir sem vilja njóta
náttúrunnar í botn og tjalda og njóta
útiverunnar á fallegum íslenskum
sumarkvöldum.
En hvað skyldi 14 daga frí kosta
fyrir tvo fullorðna einstaklinga? Við
tókum saman nokkra mismunandi
pakka sem geta verið ágætis viðmið
fyrir ferðaþyrsta í sumar. En það ber
að taka fram að þessi verð eru ekki
heilög en tekin voru meðalverð á
gistingu hérlendis og erlendis og
miðað var við meðalstærð af bíl sem
ferðast er á og einnig er fæðiskostn-
aður mismikill hjá einstaklingum.
Hér var gert ráð fyrir að fólk leyfði sér
smá munað í fríinu og í þessu tilfelli
eiga einstaklingarnir sem miðað er
við heima miðsvæðis í Reykjavík og
neyta báðir áfengis.
Hagstæðara er að fara í sólar-
landaferð með öllu inniföldu en að
taka sumarbústað á leigu á almenn-
um markaði, samkvæmt þessum út-
reikningi.
Balí í 14 daga
Það munar miklu á hótelverði í Indó-
nesíu, en meðalverð á fjögurra stjörnu
hóteli er um 350 dollarar á nótt. Hér
er verið að tala um pínu lúxus, enda
ekki á hverjum degi sem fólk ferðast á
þessar slóðir. Hótelið er að sjálfsögðu
með sundlaug, líkamsræktaraðstöðu,
snyrtistofu og nuddstofu og góðum
veitingastöðum. Morgunmatur er
innifalinn en miðað er við að ferða-
langarnir fái sér léttan hádegisverð
sem gæti kostað um 5.000 krónur á
dag. Það þarf að fá sér snarl um miðj-
an dag, eins og samloku, kaffibolla
eða gos og gæti það kostað um 3.000
krónur á dag.
Drykkir á daginn þegar legið er
við sundlaugarbakkann geta verið
mismundi eftir eintaklingum en hér
gerum við ráð fyrir að báðir aðilar fái
sér léttvín eða bjór um miðjan dag
og gæti það kostað um 2.500 krónur
á dag. Kvöldmatur á meðalgóðum
veitingastað ásamt einni flösku af
léttvíni gæti verið um 10.000 krónur.
Hafa ber í huga að uppgufun áfengis
er meiri í hita og líkurnar eru þverr-
andi á að einstaklingarnir verði of-
urölvi á því magni áfengis sem gert er
ráð fyrir að neytt sé.
Kostar að komast út á flugvöll
Leigubíll til og frá Leifsstöð kostar
um 30.000 krónur. Tengiflug í gegn-
um Kaupmannahöfn er um 220.000
krónur á mann báðar leiðir og tekur
ferðalagið rúman sólarhring. Hér er
ekki gert ráð fyrir að gist sé ein nótt á
leiðinni út og heim.
Leigubílakostnaður á meðan
dvalið er á Balí gæti verið um 20.000
krónur. Annar kostnaður eins og
skoðunarferðir og þvíumlíkt gæti
verið um 30.000 krónur.
Tenerife í 14 daga
Hér er gert ráð fyrir að keypt sé ferð
þar sem allt er innifalið. Flug, gisting,
fullt fæði og allir drykkir, áfengir
sem óáfengir, eru innifaldir í þess-
um pakka. Hér er um að ræða þriggja
stjörnu hótel sem er staðsett að-
eins um 400 metra frá ströndinni.
Þar eru góðir veitingastaðir, bar,
líkamsræktar aðstaða og að sjálfsögðu
er sundlaug líka. Við gerum ráð fyr-
ir því að einstaklingarnir skelli sér í
bæjarferð fjórum sinnum í ferðinni
og fái sér drykk og snarl.
Innanlands er ekki alltaf ódýrast
Algengt verð á ágætis hóteli er um
20.000 krónur nóttin fyrir tvo full-
orðna. Við gerum ráð fyrir því að farið
sé á meðalfína veitingastaði fjórum
sinnum í ferðinni og léttvín sé keypt
í þau skipti. Í hin skiptin er borðað
á skyndibitastað. Hádegismatur er
pylsa, samloka eða súpa til dæmis
og á daginn er gos og annað bakkelsi
verslað í stórmarkaði.
Útivistartýpurnar
Tjaldútilega heillar marga og getur
slík ferð verið ævintýraleg og endur-
nærandi fyrir líkama og sál. Í svona
ferð er oft notast við ferðagrill og
prímus, en þannig sparast mikið fé.
Við gerum samt ráð fyrir að farið sé
út að borða fjórum sinnum í ferðinni.
Það er í lagi að leyfa sér lúxus þó svo
að tjaldað sé.
Sumarbústaðir eru kósí
Algengt verð á sumarbústað á al-
mennum markaði er um 22.000
krónur fyrir nóttina ef miðað er við
lengri gistingu en tvær nætur, en
þá lækkar verðið. Í þessu tilfelli er
gert ráð fyrir bústað með heitum
potti, útigrilli og staðsetningin
er á Suðurlandinu. Hér er svipað
og með tjaldútileguna, megnið af
matnum er eldað í bústaðnum og
má því gera góð kaup í stórmörkuð-
um. Gert er ráð fyrir að farið sé út
að borða, frekar fínt, í þrjú skipti. n
Getur munað rúmri
milljón á ferðalaginu
Balí Dásam-
legt í alla staði
en kostar sitt.
Íris Björk Jónsdóttir
blaðamaður skrifar iris@dv.is
Balí
Leigubílar 50.000 krónur.
Flugmiðar 440.000 krónur.
Hótelkostnaður 600.000 krónur.
Hádegisverðir 70.000 krónur.
Snarl á daginn 35.000 krónur
Kvöldverðir 140.000 krónur.
Annað 30.000 krónur.
Heildarkostnaður 1.365.000 krónur.
Tenerife
Flug, gisting og fullt fæði fyrir tvo
400.000 krónur.
Annar kostnaður, skoðunarferðir
og þvíumlíkt 30.000 krónur.
Bæjarferðir með snarli 40.000 krónur
Leigubílar 50.000 krónur.
Heildarkostnaður 520.000 krónur
Hótel innanlands
Bensín 30.000 krónur.
Hótel 280.000 krónur.
Kvöldverðir 130.000 krónur.
Hádegisverðir 60.000 krónur.
Skoðunarferðir, sund og annað
50.000 krónur.
Heildarkostnaður 550.000 krónur.
Tjaldútilega
Bensín 30.000 krónur.
Gjald á tjaldsvæði 30.000 krónur.
Matvörur 70.000 krónur.
Léttvín eða bjór 15.000 krónur.
Út að borða 40.000 krónur.
Skoðunarferðir, sund og annað
50.000 krónur.
Heildarkostnaður 220.000 krónur.
Sumarbústaður
Bensín 30.000.
Matur 70.000 krónur.
Léttvín og bjór 15.000 krónur.
Út að borða 50.000 krónur.
Sund, skoðunarferðir og annað
50.000 krónur.
Sumarbústaður 310.000 krónur.
Heildarkostnaður 525.000 krónur.
Tenerife Fallegt
og stutt að fljúga
þangað.
Tjald Það getur
verið afar rómantískt
að fara í tjaldútilegu.
Dýari týpan Sumarbústaðir nú til dags
eru vel útbúnir og líkjast fimm stjörnu hóteli.
Lúxus Það er gaman að gista á hóteli
innanlands.