Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Blaðsíða 66

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Blaðsíða 66
66 Fólk 26.–28. apríl 2013 Helgarblað Stjörnurnar eldast misvel n Æskublóminn ekki eilífur þótt sumir njóti hans lengur Mikill munur Paul Rudd og Rory McCann eru báðir 43 ára. Æskublómi Taylor Taylor Swift er 23 ára. Adele er 24 ára. Æskublómi Taylor er óneitan-lega mikill. Barnslegur og veðraður John Cho og Dwayne „The Rock“ Johnson eru báðir fertugir. Cho er barnslegur meðan sá grjótharði er orðinn svolítið veðraður. Suri Cruise fékk flottar neglur n Lék sér í spjaldtölvu á meðan S uri, dóttir Katie Holmes og Tom Cruise, lét dekra við sig á laugardag á snyrtistofu í New York, en Suri varð 7 ára í síðustu viku. Með henni í för voru móðir hennar og amma. Á meðan þær voru í fótsnyrtingu dundaði Suri sér við spjaldtölv- una sína en þær eldri sendu vin- um og vandamönnum smáskila- boð. Það var greinilegt að Suri, sem er yngsta barn Tom Cruise, er ekki óvön dekri af þessu tagi og vakti það athygli viðstaddra hversu þæg og stillt hún var á meðan snyrtifræðingurinn snyrti fætur hennar. Að fótsnyrtingu lokinni fóru þær allar í hand- snyrtingu. Suri var afar ánægð þegar búið var að laga á henni neglurnar og benti móður sinni á hversu fín hún væri orðin. Hafði Katie á orði að neglurnar á henni væru sérlega fallegar. Hand- og fótsnyrting Suri, 7 ára í dekri – fékk bæði hand- og fótsnyrtingu Suri Cruise og Katie Holmes á leið í hand- og fótsnyrtingu. Glæsileg í brúðkaupi n Skrifar um mat í Waitrose-tímaritið P ippa Middleton, sem er fræg fyrir að vera systir Katrínar, eiginkonu Vilhjálms Breta- prins, vekur athygli hvar sem hún kemur, enda afar glæsi- leg kona. Henni var nýlega boð- ið í brúðkaup í Aberdeenshire í Skotlandi og klæddist þessum flotta, skósíða silkikjól. Yfir axlirnar var hún með loðfelld en deildar meiningar eru um hvort feldur- inn var ekta eða ekki. Það var gam- all vinur Pippu, George Percy, sem var fylgdarsveinn hennar í brúð- kaupinu en kærastinn hennar, Nico Jackson, átti ekki heimangengt. Af Pippu er það annars að frétta að hún gaf út matreiðslubók í vetur og nýlega var hún fengin til að skrifa dálk Waitrose-tímaritið. Pippa Middleton mætti í brúðkaup í síðkjól með loðfeld Pippa Middleton var glæsileg í brúðkaupinu í skósíðum silkikjól, fjólubláum skóm og með veski í stíl. Fylgdar- sveinn hennar, George Percy, var ekki síður glæsilegur. n Janet Dickinson er gjaldþrota Ofurblönk ofurfyrirsæta F yrrverandi ofurfyrirsæta og dómari í America‘s Next Top Model, Janice Dickinson, er orðin staurblönk en hún skuldar yfir 100 milljónir króna. Dickinson, sem segist sjálf vera fyrsta ofurfyrirsætan, skuld- ar það mikið vegna lýtaaðgerða að hún sá sér ekki aðra leið færa en að lýsa sig gjaldþrota. Sam- kvæmt New York Post skuldar hún til dæmis Arnol Klein, lýta- lækni í Beverly Hills, tæpa millj- ón og lýtalæknastöð þar í bæ ann- að eins. Dickinson staðfesti að þetta séu réttar upplýsingar. „Ég er búin að vera í vandræðum, það er satt. Mér þykir þetta mjög leitt og mun gera allt til að greiða allar mínar skuldir. Ég er miður mín,“ segir hún við RadarOnline. Auk þess skuldar hún skatta meðal annars í Kaliforníu og New York upp á tugi milljóna. Dickinson lenti í vandræðum fyrr á árinu þegar hún var sökuð um að stela skartgripum sem metnir eru á rúmar tvær milljón- ir, á góðgerðatískusýningu í New York. Hún neitaði staðfastlega og sagði að um misskilning væri að ræða. Hún myndi aldrei stela svona drasli. Hún hefði einfald- lega verið að flýta sér og gleymt að taka af sér skartgripina þegar hún fór og málalok urðu þau að hún skilaði skartgripunum verð- mætu. Dómari í America‘s Next Top Model Segist ætla að borga allar sínar skuldir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.