Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Blaðsíða 66
66 Fólk 26.–28. apríl 2013 Helgarblað
Stjörnurnar eldast misvel
n Æskublóminn ekki eilífur þótt sumir njóti hans lengur
Mikill munur Paul Rudd og Rory McCann eru báðir 43 ára.
Æskublómi Taylor Taylor Swift er 23 ára. Adele er 24 ára. Æskublómi Taylor er óneitan-lega mikill.
Barnslegur og veðraður John Cho og Dwayne „The Rock“ Johnson eru báðir fertugir. Cho
er barnslegur meðan sá grjótharði er orðinn svolítið veðraður.
Suri Cruise fékk
flottar neglur
n Lék sér í spjaldtölvu á meðan
S
uri, dóttir Katie Holmes og
Tom Cruise, lét dekra við
sig á laugardag á snyrtistofu
í New York, en Suri varð 7
ára í síðustu viku. Með henni í
för voru móðir hennar og amma.
Á meðan þær voru í fótsnyrtingu
dundaði Suri sér við spjaldtölv-
una sína en þær eldri sendu vin-
um og vandamönnum smáskila-
boð. Það var greinilegt að Suri,
sem er yngsta barn Tom Cruise,
er ekki óvön dekri af þessu tagi
og vakti það athygli viðstaddra
hversu þæg og stillt hún var á
meðan snyrtifræðingurinn snyrti
fætur hennar. Að fótsnyrtingu
lokinni fóru þær allar í hand-
snyrtingu. Suri var afar ánægð
þegar búið var að laga á henni
neglurnar og benti móður sinni á
hversu fín hún væri orðin. Hafði
Katie á orði að neglurnar á henni
væru sérlega fallegar.
Hand- og fótsnyrting Suri, 7 ára í dekri – fékk bæði hand- og fótsnyrtingu
Suri Cruise og Katie Holmes á leið í hand- og fótsnyrtingu.
Glæsileg í brúðkaupi
n Skrifar um mat í Waitrose-tímaritið
P
ippa Middleton, sem er fræg
fyrir að vera systir Katrínar,
eiginkonu Vilhjálms Breta-
prins, vekur athygli hvar
sem hún kemur, enda afar glæsi-
leg kona. Henni var nýlega boð-
ið í brúðkaup í Aberdeenshire í
Skotlandi og klæddist þessum
flotta, skósíða silkikjól. Yfir axlirnar
var hún með loðfelld en deildar
meiningar eru um hvort feldur-
inn var ekta eða ekki. Það var gam-
all vinur Pippu, George Percy, sem
var fylgdarsveinn hennar í brúð-
kaupinu en kærastinn hennar, Nico
Jackson, átti ekki heimangengt. Af
Pippu er það annars að frétta að
hún gaf út matreiðslubók í vetur og
nýlega var hún fengin til að skrifa
dálk Waitrose-tímaritið.
Pippa Middleton mætti í brúðkaup í síðkjól með loðfeld Pippa Middleton var
glæsileg í brúðkaupinu í skósíðum silkikjól, fjólubláum skóm og með veski í stíl. Fylgdar-
sveinn hennar, George Percy, var ekki síður glæsilegur.
n Janet Dickinson er gjaldþrota
Ofurblönk ofurfyrirsæta
F
yrrverandi ofurfyrirsæta og
dómari í America‘s Next Top
Model, Janice Dickinson,
er orðin staurblönk en hún
skuldar yfir 100 milljónir króna.
Dickinson, sem segist sjálf
vera fyrsta ofurfyrirsætan, skuld-
ar það mikið vegna lýtaaðgerða
að hún sá sér ekki aðra leið færa
en að lýsa sig gjaldþrota. Sam-
kvæmt New York Post skuldar
hún til dæmis Arnol Klein, lýta-
lækni í Beverly Hills, tæpa millj-
ón og lýtalæknastöð þar í bæ ann-
að eins. Dickinson staðfesti að
þetta séu réttar upplýsingar. „Ég
er búin að vera í vandræðum, það
er satt. Mér þykir þetta mjög leitt
og mun gera allt til að greiða allar
mínar skuldir. Ég er miður mín,“
segir hún við RadarOnline. Auk
þess skuldar hún skatta meðal
annars í Kaliforníu og New York
upp á tugi milljóna.
Dickinson lenti í vandræðum
fyrr á árinu þegar hún var sökuð
um að stela skartgripum sem
metnir eru á rúmar tvær milljón-
ir, á góðgerðatískusýningu í New
York. Hún neitaði staðfastlega
og sagði að um misskilning væri
að ræða. Hún myndi aldrei stela
svona drasli. Hún hefði einfald-
lega verið að flýta sér og gleymt
að taka af sér skartgripina þegar
hún fór og málalok urðu þau að
hún skilaði skartgripunum verð-
mætu.
Dómari í America‘s Next Top
Model Segist ætla að borga allar sínar
skuldir.