Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Blaðsíða 18
18 Kosningar 2013 26.–28. apríl 2013 Helgarblað Arfleifð Framsóknar og Sjálfstæðisflokks n Einkavæddu ríkisfyrirtæki n Reistu Kárahnjúkavirkjun n Lýstu yfir stuðningi við Íraksstríðið Þ egar litið er á niðurstöður skoðanakannana er senni- legt að Sjálfstæðisflokk- urinn og Framsóknarflokk- urinn myndi ríkisstjórn og stjórni landinu næstu fjögur árin. Í ljósi þess er ekki úr vegi að rifja upp hvernig það gafst síðast. Hér verður fjallað stuttlega um embættisverk ríkisstjórna Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins á árunum 1995 til 2007. Farið verður sérstak- lega yfir stefnu stjórnanna í skatta- málum, utanríkismálum og um- hverfismálum auk þess sem greint verður frá einkavæðingu ríkisfyrir- tækja um aldamótin og málefnum Íbúðalánasjóðs. Íbúðamál Árið 2004 var ákveðið að hrinda í framkvæmd kosningaloforði Fram- sóknarflokksins um að Íbúðalána- sjóður fengi heimild til að veita 90 prósent íbúðalán til allra sem stóðust greiðslumat. 90 prósent lán höfðu verið í boði frá 1986 en einungis til þeirra sem voru tekju- lágir og gegndu þannig félagslegu hlutverki. Þetta olli því að íbúðaverð hækkaði upp úr öllu valdi og á ár- unum 1997 til 2007 hækkaði íbúða- verð á höfuðborgarsvæðinu um 180 prósent að raunvirði. Þessi kerfis- breyting er talin eiga stóran þátt í uppgreiðsluáhættu Íbúðalánasjóðs sem er stærsti vandi hans í dag. Frá árinu 2008 hefur sjóðurinn skilað um 50 milljarða króna tapi og hefur íslenska ríkið þegar lagt sjóðnum til 46 milljarða króna. Þá hefur IFS greining sagt í skýrslu að ríkið þurfi að leggja 22,5 milljarða eða meira til viðbótar til sjóðsins á næstu þremur til fimm árum. Samkvæmt tölum frá Lánasýslu ríkisins er ríkisábyrgð Íbúðalánasjóðs um 950 milljarð- ar króna. Sjóðurinn hefur tekið yfir meira en 2.000 íbúðir frá banka- hruninu en 80 prósent þeirra eru á landsbyggðinni og margar hverjar á svæðum þar sem erfitt og jafnvel ómögulegt hefur reynst að selja fast- eignir. Heildarútlán Íbúðalánasjóðs frá júlí 2004 til maí 2007: 175 milljarð- ar króna. Uppgreiðsla lána frá júlí 2004 til maí 2007: 246 milljarðar króna. Heildarútlán íslensku bankanna til fasteignakaupa frá júlí 2004 til maí 2007: 407 milljarðar króna Skattamál Stefán Ólafsson, prófessor í félags- fræði við Háskóla Íslands hefur margoft bent á að skattastefna Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknar- flokksins frá 1995 til 2007 var fyrst og fremst hliðholl hátekjufólki en lágtekjuhópar þurftu að þola aukna skattbyrði. Þetta sést vel í töflu úr skýrslu Þjóðmálastofnunar Háskóla Íslands sem Stefán veitir forstöðu. Menntamál Í tíð Sjálfstæðisflokksins og Fram- sóknarflokksins var mikil áhersla lögð á að styðja við einkarekna skóla. Þannig varð Háskólinn í Reykjavík til árið 1998. Þrátt fyrir að vera rekinn af Sjálfseignastofnun Viðskiptaráðs Íslands fær skólinn um 2,2 milljarða króna árlega í rík- isframlag. Það sem upp á vantar fær skólinn inn í formi skólagjalda. Lánasjóður íslenskra námsmanna lánar hins vegar að stærstum hluta fyrir skólagjöldunum. Því hafa sumir talað um að stóraukning á skólagjaldalánum LÍN hafi ver- ið eins og einkavæðing háskóla- kerfisins í boði ríkisins. Árið 2001 veitti LÍN 115 milljónir króna í skólagjaldalán. Árið 2011 veitti LÍN hins vegar um 2,3 milljarða króna í skólagjaldalán sem að stærstum hluta er veitt vegna náms við há- skóla á Íslandi. Þannig tuttuguföld- uðust framlög LÍN til skólagjalda- lána á einum áratug. Sem menntamálaráðherra hvatti Björn Bjarnason til þess að gengið yrði til samninga við Ólaf Johnson um stofnun framhaldsskólans Hrað- brautar og skólanum úthlutað fé á fjárlögum. Síðar kom í ljós að Ólafur Johnson og eiginkona hans, Borg- hildur Pétursdóttir, tóku tugi millj- óna króna út úr skólanum í formi arðs og lána. Umhverfismál Í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins festist íslenska stóriðjustefnan rækilega í sessi og er- lend álfyrirtæki voru löðuð til lands- ins. Helsta beitan var lágt raforku- verð á Íslandi sem Landsvirkjun hélt leyndu fyrir almenningi um árabil, en jafnframt voru fyrirtækjum veitt- ir ríflegir skattaafslættir og annars konar ívilnanir. Ráðist var í stærstu virkjanaframkvæmdir Íslands- sögunnar við Kárahnjúka. Fram- kvæmdin olli miklum deilum, enda benti fjöldi fólks á að virkjunin ætti eftir að stórskaða lífríkið í Lagarfljóti og valda landbroti í ánni. Þetta mat reyndist á rökum reist því samkvæmt nýlegri skýrslu Landsvirkjunar er líf- ríki Lagarfljóts á vonarvöl. Þetta var fyrirséð, enda lagðist Skipulagsstofn- un gegn framkvæmdunum á sínum tíma. Siv Friðleifsdóttir, umhverfis- ráðherra Framsóknarflokksins, hnekkti hins vegar niðurstöðunni. Þegar gengið var frá Kyoto-bókun Sameinuðu þjóðanna um losunar- heimildir gróðurhúsalofttegunda sá ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins til þess að Ís- land fengi verulegar undanþágur. Í bók eftir hagfræðinginn Roger Bate kemur fram að Davíð Oddsson hafi líklega verið eini leiðtoginn í Evrópu sem gerði lítið úr loftslags- breytingunum. „Hann studdi Bush bak við tjöldin á nokkrum fundum í Evrópu þar sem spurningar um loftslagsbreytingar voru teknar fyrir,“ segir í bókinni. Utanríkismál Í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins studdi Ís- land dyggilega við Bandaríkin á al- þjóðavettvangi. Það lýsti sér meðal annars í stuðningsyfirlýsingu Hall- dórs Ásgrímssonar og Davíðs Odds- sonar við ólöglegt innrásarstríð í Írak sem kostað hefur hundruð þús- unda óbreyttra borgara lífið. Þegar ákvörðunin var tilkynnt fullyrti Hall- dór Ásgrímsson að sýnt hefði verið fram á með óyggjandi hætti að Írakar hefðu yfir efnavopnum að ráða. Síðar hefur komið í ljós að þetta átti sér ekki stoð í raunveruleikanum. Björn Bjarnason hvatti til þess að stofnaður yrði íslenskur her, sér- staklega ef bandaríski herinn færi af landi brott. Þá breyttust friðargæslu- störf Íslendinga talsvert í stjórnar tíð flokkanna og fóru í auknum mæli að tengjast hernaði. Því hefur margoft verið haldið fram að þjónkun ís- lenskra stjórnvalda við Banda- ríkjastjórn á þessum tíma hafi fyrst og fremst þjónað þeim tilgangi að koma í veg fyrir að bandaríski herinn léti sig hverfa frá Íslandi. n Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar annas@dv.is Jóhann Páll Jóhannsson blaðamaður skrifar johannp@dv.is Einkavæðingin 1998 Seldu 49 prósenta hlut í Fjárfestingabanka atvinnulífsins 1998 Seldu 11 prósenta hlut í Íslenskum aðalverktökum 1999 Seldu 51 prósents hlut í Fjár- festingabanka atvinnulífsins 1999 Seldu 13 prósenta hlut í Búnaðar- banka Íslands 1999 Seldu 13 prósenta hlut í Landsbanka Íslands 2001 Seldu 51 prósents hlut í Kísiliðjunni 2002 Seldu 20 prósenta hlut í Lands- banka Íslands 2002 Seldu 46 prósenta hlut í Lands- banka Íslands 2003 Seldu 9 prósenta hlut í Búnaðar- banka Íslands 2003 Seldu 46 prósenta hlut í Búnaðar- banka Íslands 2003 Seldu 40 prósenta hlut í Íslenskum aðalverktökum 2005 Seldu 98,8 prósenta hlut í Lands- símanum n Fjárfestingabanki atvinnulífsins sameinaðist Íslandsbanka árið 2000. Árið 2006 varð Glitnir til en bankinn fór í þrot við bankahrunið. Það sama á við um Landsbankann og síðar kom í ljós að Búnaðarbank- inn hafði lánað Björgólfsfeðgum fyrir stórum hluta af kaupverði hans. Búnaðarbanki Íslands sameinaðist Kaupþingi árið 2003 sem einnig fór í þrot í október 2008. Landssíminn varð síðar að Símanum og Skiptum en í dag standa yfir viðræður við lánadrottna og skuldabréfaeigendur um fjárhagslega skipulagningu. n Samson keypti Landsbankann í október 2002 en fyrir hópnum fóru feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson. Bankinn hrundi með braki og brest- um átta árum síðar. 170 milljarðar Tekjur ríkisins af einkavæðingu ríkisfyrirtækja í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar 1995–2007. 414 milljarðar Beinn kostnaður íslenska ríkisins vegna endurreisnar íslenska fjármálakerfisins í kjölfar banka- hrunsins í október 2008. Skattbyrði Taflan sýnir hversu stóran hluta af heildartekjum þeir allra tekjulægstu og eitt prósent tekjuhæstu greiddu í beina skatta frá 1995 til 2007. Tölur í %. Ár Tekjulægstu Tekjuhæstu 1996 -6,0 32,2 1997 -6,0 27,8 1998 -4,2 27,7 1999 -1,9 24,5 2000 -1,4 22,0 2001 0,8 17,4 2002 0,4 16,5 2003 2,2 15,3 2004 4,1 15,8 2005 3,1 13,3 2006 3,3 13,1 Davíð Oddsson Var forsætisráðherra frá 1991–2003 Siv Friðleifsdóttir Var umhverfisráðherra frá 1999–2003. Geir H. Haarde Var fjármálaráðherra frá 1998–2004. Björn Bjarnason Var mennta- og síðar dómsmálaráðherra frá 1995–2002 og 2003–2009 Halldór Ásgrímsson Var utanríkisráðherra frá 1995–2003. Finnur Ingólfsson Var iðnaðar- og viðskiptaráðherra frá 1995–1999.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.