Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Side 14
14 Fréttir 26.–28. apríl 2013 Helgarblað
Morgungöngur Ferðafélags Íslands 2013
Komdu með í frískandi fjallgöngu í morgunsárið
og vaknaðu með fuglunum í eina viku.
Við fyrsta hanagal
Fjöll vorsins
Mánudagur 29. apríl. Mosfell í Mosfellsdal.
Þriðjudagur 30.apríl. Úlfarsfell.
Miðvikudagur 01. maí. Helgafell í Mosfellssveit.
Fimmtudagur 02. maí. Helgafell við Hafnarfjörð.
Föstudagur. 03. maí. Esjan upp að Kögunarhóli.
Föstudagur: morgunmatur í boði FÍ.
Einstök náttúruupplifun, gleði
og upplestur úr Skólaljóðunum.
Ókeypis þátttaka. Brottför á eigin bílum
úr Mörkinni 6 kl. 06.00 eða mæting á
upphafsstað göngu.
Nánari upplýsingar daglega á www.fi.is
Fararstjórar: Páll Ásgeir Ásgeirsson
og Rósa Sigrún Jónsdóttir
É
g spái góðu sumri, yfirleitt
svona frekar veðragóðu,“ segir
Páll Bergþórsson, fyrrverandi
veðurstofustjóri, aðspurður
hvernig veðrið verði á Íslandi í
sumar. Páll segist búast við að þetta
verði nokkuð hlýtt sumar en ómögu-
legt sé að spá um hversu sólríkt það
verði. DV leitaði til nokkurra veður-
fræðinga til þess að fá þeirra spá um
veðrið í sumar. Voru þeir allir á því að
líklega yrði veðrið milt í sumar.
Minni hafís bendir til hlýju
„Það er nú bara þannig að það er
mjög erfitt að spá fyrir um veður
lengra fram í tímann en viku – tíu
daga. Það er þó ein vísbending sem
hægt er að nota í þessu samhengi og
hún er sjávarhiti og magn hafíss fyr-
ir norðan landið og vestan. Og það er
örlítið minni hafís en hefur verið að
meðaltali síðastliðin 30 ár, en þetta
er ekki langminnst, heldur aðeins
minna en meðaltalið, en ef maður
lítur á meðaltal undanfarinna 10–
15 ára þá er þetta ekkert sérstaklega
lítið. Þessi staka vísbending myndi
benda til þess að sumarið verði í
svipuðum takti og það hefur verið
undanfarin 10–15 ár og þau hafa flest
verið hlý. Það er helsta vísbendingin
sem maður hefur og allt annað er af
öðrum meiði en þau vísindi sem ég
fæst við,“ segir Haraldur Ólafsson
veðurfræðingur.
Fer að hlýna um miðjan maí
„Ég var orðinn bjartsýnn á einhvers
konar endurtekningu frá síðasta
sumri en nú er ég farinn að hallast að
því að þetta sumar verði lakara en í
fyrra – hvað varðar hitatölur og svo-
leiðis,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson,
betur þekktur sem Siggi stormur, að-
spurður um sína spá fyrir sumarið.
„Ég held að þetta sumar verði ekki
á topp fimm listanum yfir heitustu
sumrin það sem af er öldinni. Hins
vegar hallast ég að því loftþrýsting-
ur verði frekar hár og við fáum frekar
bjart sumar og þurrt. Ef loftþrýsting-
ur er hár og það verður ofan á eins og
sumar veðurlagsspár gera ráð fyrir þá
eru líkindi á hægum vindi meiri en
minni. Við erum að tala um að þetta
sumar verði í góðu meðallagi, þetta
verði gott meðallagssumar. Við erum
bara orðin svo góðu vön. Fyrir tutt-
ugu árum þótti bara fínt að fara í úti-
legu í 13 stiga hita en nú vilja menn
hafa 17–18 stiga hita. Við erum orðin
svo góðu vön. Við fáum alveg þannig
daga í sumar en ekki eins marga og
í fyrrasumar,“ segir hann. „Allavega
hvað hita varðar þá hallast ég að því
að þetta verði ekki Majorkasumar.
En yndislegt engu að síður. Það eru
samt sem áður kuldakaflar framund-
an þó að sumardagurinn fyrsti sé
runninn upp. Þannig að hretið er alls
ekki búið. Þetta hefst svona hægt og
sígandi og fer svo í þennan farveg
svona þegar miður maí er runninn
upp,“ segir Sigurður.
Þjóðtrúin byggð á misskilningi
Flestir þekkja þá þjóðtrú sem lengi
hefur verið við lýði hér á landi að ef
vetur og sumar frjósa saman þá sé
von á góðu sumri. Það gerðist í ár en
frost var aðfaranótt sumardagsins
fyrsta. Páll segir þessa þjóðtrú lang-
lífa en telur að líklega sé hún byggð
á misskilningi og því ekki endilega
von á góðu sumri þó að vetur og
sumar hafi frosið saman. Páll rakst
á vísu í gömlu almanaki sem hann
telur að þjóðtrúin sé byggð á. „Ég
held að þetta sé misskilningur. Ég
held að það sé þessi vísa sem þessi
spá um sumarið er byggð á. En vísan
felur ekki í sér að það verði sérlega
gott veður um sumarið. Það bendir
kannski til þess að það verði kalt
vor þegar það frýs saman, frekar
en hitt, en þá seinkar gróðrinum
en hann hefur tilhneigingu til þess
að standa vissan tíma. Ef honum
seinkar að vorinu þá seinkar hon-
um að haustinu líka, það er að segja,
það verður grænt lengra fram eftir
hausti. Það gæti orðið gott þá.“
Verður með hlýrra móti
Páll segir að nú sé í gangi hlýinda-
skeið sem staðið hafi frá aldamót-
unum síðustu. „Það hefur aldrei
verið eins hlýtt tímabil og þetta
og það er ekki að sjá að það sé að
draga úr því. Það gæti farið að gera
það eftir nokkur ár en það er ekki
að sjá. Ég held að sumarið núna
verði heldur með hlýrra móti,“
segir Páll. n
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
n Veðurfræðingar spá fyrir um sumarveðrið n Gæti verið kal í túnum á Norðurlandi „Ég held að þetta
sumar verði ekki
á topp fimm listanum
yfir heitustu sumrin það
sem af er öldinni.
Von á mildu sumri
Milt sumar Þeir veðurfræðingar sem DV ræddi við búast allir við nokkuð mildu og góðu sumri.
Vísan góða
Hér má lesa vísuna sem Páll telur
hafa valdið þeim misskilningi að
ef vetur og sumar frjósi saman sé
von á góðu sumri:
Frjósi sumars fyrstu nótt
fargi enginn á né kú.
Gróðakonum gerist rótt,
gott mun verða undir bú.
(höfundur ókunnur)